Dagur - 31.03.1992, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 31. mars 1992 - DAGUR - 7
Blak:
KA-menn bikarmeistarar annað árið í röð
KA-menn vörðu bikarmeistara-
titil sinn í blaki karla þegar liðið
sigraði Þrótt R. 3:2 í Digranesi á
laugardag. Þetta var leikur
nokkurra mistaka hjá báðum lið-
um og taugatitringurinn greini-
legur. Eftir að KA hafði unnið
tvær fyrstu hrinurnar fram-
kvæmdi þjálfari liðsins óskiljan-
lega skiptingu í miðri þriðju hr-
inu þegar KA hafði yfir 12:6 og
Þróttarar nýttu sér þetta með því
að vinna hrinuna og einnig næstu
á eftir. En KA-mönnum tókst síð-
an að vinna úrslitahrinuna og
tryggja sér titilinn.
Mikil barátta var strax í fyrstu
hrinu og liðin skiptust á að hafa
forystuna. Gömlu kempumar í
Þrótti komust í 10:8 en með góðum
leikkafla náðu KA-menn að kom-
astyfir 13:10og vinna síðan 15:13.
í annarri hrinu fóru norðanmenn á
kostum og skelltu Þrótturum 15:3.
í þeirri þriðju leit síðan út fyrir ör-
uggan sigur KA þar til kom að
skiptingunni umdeildu. Þá tók
þjálfarinn, Shao Baolin, fyrirliðann
Hauk Valtýsson af velli og við það
datt allur botn úr KA-liðinu. Þrótt-
arar unnu 15:13 og næstu hrinu
15:12 eftir að hafa verið yfir 14:7. í
úrslitahrinunni léku KA-menn hins
vegar eins og bikarmeistumm
sæmir, höfðu yfir allan tímann og
unnu 15:10. Þar með var bikarinn í
höfn annað árið í röð.
„Sannur úrslitaleikur“
Bjami Þórhallsson er að leika sitt
annað keppnistímabil með KA og
hefur í bæði skiptin orðið bikar-
- eftir sigur á Þrótti í úrslitaleik, 3:2
meistari. „Þetta var sannur úrslita-
leikur, blaklega séð ekki mjög góð-
ur og mistökin mörg en í heildina
séð skiluðu okkar menn sínu.
Skiptingin í þriðju hrinu var mistök
sem vom dýr og hefðu getað kost-
að okkur titilinn. Framundan eru
einhverjar breytingar á liðinu en ég
verð áfram með og við ætlum okk-
ur að halda bikamum fyrir norð-
an,“ sagði Bjami.
Haukur Valtýsson, fyrirliði KA,
sagði að sínir menn hefðu oft leik-
ið betur og var sammála Bjama um
að skiptingin í þriðju hrinu hefði
verið mistök. „Hún hefði getað
kostað okkur titilinn. Þjálfarinn
vildi styrkja blokkina með hávaxn-
ari mönnum við netið og skora
fleiri stig en því miður tókst það
ekki. Ég var ekki hress með skipt-
inguna og skammaðist svolítið yfir
henni en vonandi læmm við af
reynslunni. Ef við náðum öðm sæti
í deildinni held ég að árangurinn í
vetur verði að teljast mjög viðun-
andi miðað við að liðið missti þrjá
aðalsmassarana frá í fyrra.“
KA-menn léku án Stefáns Jó-
hannessonar sem ekki hefur mætt á
æfingar upp á síðkastið og lýsti
Haukur Valtýsson, fyrirliði KA,
mikilli óánægju sinni með það.
Leifur Harðarson, þjálfari og
leikmaður Þróttar, sagði að KA-
menn hefðu einfaldlega verið betri.
„Urslitin vom sanngjöm, það er
alltaf mikilvægt að vinna fyrstu hr-
inu og KA-mönnum tókst það.
Önnur hrinan var í rúst hjá okkur
og hrein gjöf til KA og þeir sýndu
síðan einfaldlega betri leik í lokin.
-bjb
Bikarmeistarar KA 1992.
Mynd: KL
Knattspyrna:
Pavel áfram með KA?
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Dags eru miklar líkur á að
Tékkinn Pavel Vandas, sem lék
með knattspyrnuliði KA í 1.
deildinni sl. sumar, leiki einnig
með liðinu á komandi keppnis-
tímabili.
Pavel kom til KA frá tékkneska
1. deildarliðinu Slavia Prag og átti
erfitt uppdráttar fyrstu vikumar.
Hann náði sér hins vegar mjög vel
á strik í seinni hluta Islandsmótsins
og var þá einn besti maður liðsins.
Pavel hélt aftur til Slavia Prag í
haust og hefur leikið með liðinu í
vetur. Hingað til hefur verið talið
ömggt að hann yrði ekki áfram hjá
KA.
Sveinn Brynjólfsson, formaður
knattspymudeildar KA, vildi ekki
staðfesta að Pavel myndi leika með
liðinu. „Við emm að athuga ýmis
mál og þau skýrast á næstu dögum.
Það er hins vegar ekkert leyndar-
mál að það hefur verið stefnan að
bæta við einum sterkum leikmanni,
hvort sem það yrði Pavel eða ein-
hver annar.“
Samkvæmt heimildum Dags
fær Pavel sig ekki lausan frá Slavia
fyrr en í byrjun júní þannig að hann
myndi missa af a.m.k. tveimur
fyrstu umferðum íslandsmótsins.
KA-menn sigruðu Þróttara 3:2 í hörkuleik í bikarúrslitunum. Mynd: kl
Pavel Vandas.
Pýskaland:
Eviólfiirí
sviðsljósinu
Eyjólfur Sverrisson var í
sviðsljósinu þegar Stuttgart
sigraði Hamburger SV 3:2 á
Neckar-leikvanginum á laug-
ardag. Eyjólfur átti þátt í öll-
um mörkuni Stuttgart en lét
ekki þar við sitja og átti einnig
þátt í einu af mörkum Ham-
borgarliðsins.
Fritz Walter skoraði tvö af
mörkum Stuttgart og Gaudino
eitt og átti Eyjólfur stóran þátt í
öllum mörkunum. Hann kom
líka við sögu þegar Hamborgar-
ar tóku aukaspymu og boltinn
fór í Eyjólf og þaðan í netið.
Stuttgart er enn í þriðja sætí
með 40 stig, jafnmörg og
Frankfurt en iakara markahlut-
fall. Dortmund er í efsta sætinu
með 41 stig en liðið gerði jafn-
telli við Frankfurt, 2:2.