Dagur - 31.03.1992, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 31. mars 1992
Íþróttir
Bikarkeppni kvenna í blaki:
Sterkar Stúdínur höfðu betur gegn KA
Kvennalið KA keppti í fyrsta
sinn til úrslita í bikarkeppninni í
blaki þegar liðið mætti ÍS í Digra-
nesi á laugardaginn. Þrátt fyrir
hetjulega baráttu tókst KA-
stúlkum ekki að sigra því Stúdín-
ur unnu allar hrinurnar og
tryggðu sér bikarmeistaratitil-
inn.
Stúdínur áttu ekki í erfiðleikum
með utangátta KA-stúlkur í fyrstu
hrinu og unnu örugglega 15:5. í
annarri hrinu fóru hlutimir að
ganga betur hjá KA og héldu þær
forskotinu þar til staðan var 12:9
þeim í vil. Þá jafnaði ÍS 12:12 og
vann síðan hrinuna 15:13. Þriðja
hrinan var jöfn og æsispennandi.
KA komst í 7:5 en ÍS komst yfir
8:7. Þegar staðan var orðin 12:8
kom langþráð skipting hjá KA,
þjálfarinn Hrefna Brynjólfsdóttir
kom inná og hleypti nýju blóði í
liðið. KA tókst að jafna, 13:13, og
næstu mínútur voru æsispennandi.
Jafnt var á öllum tölum, 14:14,
15:15 og 16:16 enþaðvoru Stúdín-
ur sem gerðu síðasta stigið og
tryggðu sér þar með sigur í leikn-
um.
„Þetta var mikill baráttuleikur.
Við stóðum virkilega vel í þeim en
það vantaði herslumuninn. Hrin-
umar vom jafnar en baráttan var
ekki nógu góð allan tímann. Upp-
gjafimar fóm illa, okkur vantaði
sterkari sókn og móttakan var ekki
alveg nógu góð. Annars var gaman
að fá að kynnast stemmningunni í
kringum bikarúrslitaleik og við
gemm bara betur næst,“ sagði
Halla Halldórsdóttir, fyrirliði KA,
eftir leikinn.
Hrefna Brynjólfsdóttir sagði að
KA-stúlkumar hefðu verið of
stressaðar. „Við vomm of staðar
og uppgjafimar klikkuðu alltof oft.
Þær fóm alveg með okkur til að
byrja með en við náðum að skora
þegar þær bötnuðu. Við emm ekki
vanar að spila svona leiki, þetta er
stærsti viðburðurinn í þau 11 ár
sem ég hef verið í blakinu hjá KA
og við emm ánægðar með að ná
svona langt. Við tökum bikarinn
með trompi næsta vetur.“ -bjb
Akureyrarmótið í handknattleik:
KA-menn hirtu alla titlana
- úrslitin 23:15 í seinni leik meistaraflokks
KA-menn tryggðu sér Akureyr-
armeistaratitilinn í meistara-
flokki karla í handknattleik með
öruggum sigri á Þór, 23:15, í
seinni leik liðanna í KA-húsinu á
föstudaginn. Leikurinn var ekki
merkilegur handboltalega séð,
harkan í fyrirrúmi en KA-menn
með yflrhöndina allan leikinn.
KA varð Akureyrarmeistari í öll-
um flokkum og tapaði ekki leik í
mótinu.
KA-menn tóku forystuna strax í
upphafi og skomðu tvö fyrstu
mörkin. Þórsarar áttu í erfiðleikum
fyrir framan vöm KA og skoruðu
ekki mark fyrr en eftir 9 mínútur.
Þeir jöfnuðu 2:2 og aftur 3:3 en
síðan náðu KA-menn sex marka
forystu, 10:4, og eftir það var sig-
urinn aldrei í hættu. KA-menn
vom betri á flestum sviðum en einn
besti maður Þórs, Rúnar Sigtryggs-
son meiddist snemma í leiknum og
varð að hætta.
Harkan var of mikil hjá báðum
liðum og geðprýðinni ekki fyrir að
fara. Dómarar leiksins voru slakir
en ekki jafn slakir og leikmenn
vildu vera láta og menn vom famir
að tuða strax á fyrstu mínútu. Það
er hins vegar engum greiði gerður
með því að láta dómara frá öðm fé-
laginu dæma svona leiki.
Á fimmtudagskvöldið mættust
liðin í 2. flokki og „old boys“ og
hafði KA sigur í báðum leikjunum,
16:12 og 17:6. Þar með er ljóst að
KA hefur unnið titilinn í öllum
flokkum, vann alla leikina nema
tvo í fyrri umferðinni sem lauk
með jafntefli. Sannarlega umhugs-
unarefni.
Mörk KA: Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson 7/2,
Stefán Kristjánsson 5/1, Alfreð Gíslason 3, Erl-
ingur Kristjánsson 3/1, Jóhann Jóhannsson 3/1,
Þorvaldur Þorvaldsson 1, Pétur Bjamason 1/1.
Axel Stefánsson varði 9 skot og Bjöm Bjöms-
son 7/2.
Mörk Þórs: Sævar Ámason 5, Ole Nielsen 4,
Ólafur Hilmarsson 2, Jóhann Samúelsson 1,
Rúnar Sigtryggson 1, Atli Rúnarsson 1, Ingólfur
Samúelsson 1/1. Hermann Karlsson varði 3/1
skot og Ingólfur Guðmundsson 3.
Dómarar: Guðmundur Stefánsson og Amar
Kristinsson.
búið að ræða við aðra leikmenn
liðsins og væri Ijóst að þeir yrðu
allir áfram. „Við teljum mjög mik-
ilvægt og jákvætt að geta haldið
öllum hópnum. Hins vegar er ljóst
að okkur vantar meiri mannskap til
að ná þeim markmiðum sem við
setjum okkur, þ.e. að lenda ekki
neðar en í 4.-6. sæti í 1. deild. Við
erum ekkert að fara upp til að
hanga í deildinni. Stefnan er því að
styrkja hópinn með nýjum mönn-
um en það er of snemmt að tala
nokkuð um það,“ sagði Kristinn.
Rúnar Sigtryggsson meiddist í
leiknum gegn KA á föstudaginn og
sagði Kristinn að blætt hefði inn á
vöðva hjá honum. Hins vegar væri
útlitið ekki slæmt og væri talið lík-
legt að Rúnar myndi leika með Þór
í síðasta leiknum, gegn Aftureld-
ingu um næstu helgi.
Akureyrarmeistarar KA í meistaraflokki karla.
Mynd: Golli
Ole Nielsen.
Handknattleikur:
Ole áfram hjá Pór
i
Á sunnudag náðist samkomulag
milli handknattleiksdeildar Þórs
og danska leikmannsins Ole
Nielsen um að hann myndi leika
með Þórsliðinu í 1. deildinni
næsta vetur. Ole, sem hefur verið
einn albesti leikmaður liðsins í
vetur, var á tveggja ára samnir n
sem hægt var að segja upp eftú
tímabilið en nú er Ijóst að hann
verður hjá félaginu a.m.k. einn
vetur til viðbótar.
Kristinn Sigurharðarson, for-
maður handknattleiksdeildar Þórs,
sagði í samtali við Dag að almenn
ánægja hefði ríkt með Nielsen,
jafnt meðal leikmanna og annarra.
„Hann hefur leikið mjög vel í vetur
og við teljum að hann eigi eftir að
njóta sín vel í 1. deildinni næsta
vetur.“
Kristinn sagði að jafnframt væri