Dagur - 14.04.1992, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 14. apríl 1992
Gamansemin getur vakið áhorfandann til umhugsunar
- segir Magnús Kjartansson, myndlistarmaður sem nú sýnir myndröðina Kristur í kaffibollanum í Gallerí AllraHanda
Magnús Kjartansson, mynd-
listarmaður, sýnir þessa dag-
ana myndröð sína Kristur í
kaffibollanum í Gallerí Allra:
Handa í Listagili á Akureyri. í
kynningu á myndröðinni segir
listamaðurinn meðal annars að
verkin séu fléttur og hug-
leiðingar um trúarlega
umgjörð og fylgifíska trúarinn-
ar fremur en trúna sjálfa. En
hvað kom listamanninum til að
fást við þetta viðfangsefni?
Magnús hugsaði sig nokkuð
um er hann var inntur eftir því á
vinnustofu sinni í gömlu Álafoss-
húsunum í Mosfellsbæ um síð-
ustu helgi - brosti síðan og sagði
að líklega væri þessi áhugi arf-
gengur. Hann kvaðst eiga ættir
að rekja af Snæfellsnesi og væri
presta að finna á meðal ættingja
sinna frá fyrri tíð. Hvað mynd-
listina varðar þá kvaðst hann
snemma hafa ákveðið að leggja
hana fyrir sig. Hann væri að
nokkru leyti alinn upp af afa sín-
um og ömmu. Þau hefðu safnað
málverkum og því hafi hann alist
upp innan um myndlist frá því
hann myndi eftir sér. Verk gömlu
íslensku meistaranna hefðu
hangt á veggjum og vakið áhuga
sinn. Hann kvaðst einnig
snemma hafa fengið áhuga fyrir
handverki og sífellt verið að búa
eitthvað til - allt frá því hann var
barn. Rætur myndlistaráhugans
mætti rekja til þessara tíma.
Eftir nám við Myndlistar- og
handíðaskólann hélt Magnús til
Danmerkur þar sem hann stund-
aði framhaldsnám. Hann kvaðst
hafa kosið að fara þessa hefð-
bundnu leið íslenskra náms-
manna frá fyrri árum. Hann væri
alinn upp í anda ungmennafélags-
kynslóðarinnar og einhvern veg-
inn aldrei fundist annað koma til
greina en þræða þessa fyrrum
hefðbundnu slóð.
Magnús dvaldi mikið í sveit á
sumrin sem barn og unglingur og
sagði að margar fyrirmyndir sínar
í myndlistinni ættu rætur að rekja
SJALUNN
Miðvikudagur 15. apríl:
Hljómsveit
Ingimars Eydal
Húsið opnað kl. 23.00. Miðaverð kr. 1.000
Sunnudagur 19. apríl:
Dansleikur frá
kl. 24.00-03.00
Hljómsveitin
Vinir og synir
og Rúnar
Júlíusson
Miðaverð kr. 1.000
Miðvikudagur 22. apríl:
Dansleikur frá kl. 23.00-03.00
Sú Ellen leikur fyrir dansi
Miðaverð kr. 1.000
Kjallarinn verður opinn:
Miðvikudag 15. apríl kl. 18.00-03.00
Fimmtudag 16. apríl kl. 12.00-15.00 og kl. 18.00-24.00
Föstudag 17. apríl lokað
Laugardag 18. apríl kl. 12.00-15.00 og kl. 18.00-24.00
Sunnudag 19. apríl kl. 24.00-03.00
Mánudag 20. apríl kl. 12.00-15.00 og kl. 18.00-01.00
til þess tíma og til þeirra áhrifa
sem sveitadvölin hefði haft á sig.
Margar uppsprettur myndlistar
sé að finna í sveitunum - úti í
náttúrunni. Hann ræddi í því
sambandi meðal annars um
Jóhannes Kjarval og kvað hann
hafa kennt Islendingum að meta
hraunið - í því gæti falist mikil
fegurð en ekki eingöngu grasleysi
og auðn.
Varðandi myndröðina um
Krist í kaffibollanum kvaðst
Magnús vera svo íslenskur í sín-
um hugsunarhætti að ætíð hafi
farið í taugarnar á sér að sjá
erlendar altarismyndir og önnur
listaverk í kirkjum hér á landi.
Þetta myndefni hafi einnig heill-
að sig og þegar lát hafi orðið á
öðrum viðfangsefnum hafi hann
farið að fást við þetta. Umgjörð-
in sem hann hafi valið þessari
myndasamstæðu geti í fyrstu virst
nokkuð gamansöm - að hann
taki hinar trúarlegu hugmyndir
ekki alvarlega. Um slíkt sé þó
ekki að ræða. Myndirnar séu
unnar í fyllstu alvöru en hins veg-
ar sé það skoðun sín að þetta
tjáningarform geti ekki síður
vakið áhorfendur til umhugsunar
um hið raunverulega innihald
heldur en ef myndirnar virkuðu
mjög alvöruþrungnar við fyrstu
sýn. ÞI
Messur í Laufáspresta
kalli um bænadagana
Nú er dymbilvikan hafin og fram-
undan eru frídagar fyrir marga.
Trúarlega fyrir okkur kristna
menn eiga þessir dagar að vega
þungt, og hugur okkar á að tengj-
ast pínu og dauða Frelsarans.
En það eru svolítið sérstakar
aðstæður sem ríkja víða hjá okk-
ar kirkju einmitt á þessum tíma. í
stað alvarlegra þenkinga og
kyrrðar, fer nú í hönd á skírdag
ein mesta „kirkjuveisla" sem yfir
gengur þetta árið. Þá fara fram
fermingar í mörgum kirkjum sér-
staklega í þéttbýlinu, og gleði og
fögnuður er því að sjálfsögðu
fylgjandi. Og eins og okkur ís-
lendingum er lagið höldum við
gleðinni gangandi a.m.k. næsta
dag á eftir. Sá dagur er föstudag-
urinn langi, - dagur sem helgaður
er atburðunum á Golgata. Það er
bæði mikil hátíðarstund og fagn-
aðarefni þegar ungmenni fermist,
en mitt í gleðinni megum við ekki
gleyma hinu trúarlega.
Eg veit að mörgu eldra fólki
finnst ysinn og skeytingarleysið
En þrátt fyrir breytta tíma, þá
vil ég minna á mikilvægi helgi-
halds og trúarlegrar hugleiðingar
um krossinn og upprisuna nú um
páskana. Og ég vil hvetja fólk til
að gefa líka gaum að þeim guðs-
þjónustum öðrum en fermingum,
sem haldnar eru þessa daga.
í Laufásprestakalli verður
messað sem hér segir:
Skírdagur: Guðsþjónusta og
altarisganga í Laufáskirkju kl.
21. Föstudagurinn langi: Kyrrð-
arstund með hljóðfæraleik, söng
og hugleiðingu í Svalbarðskirkju
kl. 20.30. Fluttur verður helgi-
leikurinn Sjö orð Krists á kross-
inum. Altarisganga. Páskadagur:
Hátíðarguðsþjónusta í Grenivík-
urkirkju kl. 14.
Um leið og ég endurtek hvatn-
ingu mína til allra að mæta þess-
um dögum með réttu hugarfari
og gleyma ekki kirkjunni, óska
ég öllum gleðilegra páska.
Pétur Þórarin.sson.
Höfundur er sóknarprestur í Laufásprestakalli.
Pétur Þórarinsson.
við helgi þessa föstudags vera
orðið full mikið, og minnist
gamla tímans og þeirrar alvöru
sem þá ríkti. En það er víst sagt
að tímarnir breytist og mennirnir
með.
Ríkey Ingimundardóttir við nokkur verka sinna.
Myndlist:
Ríkev sýnir
á Dalvík
A skírdag, 16. apríl 1992, opn-
ar Ríkey Ingimundardóttir,
myndhöggvari sýningu í Kaup-
féíagshúsinu á Dalvík, 3. hæð.
Ríkey útskrifaðist úr mynd-
höggvaradeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1983 og
stundaði síðan framhaldsnám í
keramikdeild skólans í 3 og Vi ár.
Á sýningunni verða olíumál-
verk, vatnslitamyndir, postulíns-
lágmyndir, skúlptúrar og fleira.
Þetta er 22. einkasýning Rík-
eyjar, en hún hefur sýnt bæði hér
heima og erlendis.
Sýningin verður opin frá kl.
16.00 til 22.00 og lýkur miðviku-
daginn 22. apríl.