Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 10

Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 14. apríl 1992 Iþróttir Visa Cup: Úrslit Stórsvig kvenna 11/04 1. Pernilla Viberg, Sví. 97,20 2. Kristina Andersson, Sví. 97,71 3. Marianne Kjörstad, Nor. 98,22 4. Kari Anne Saude, Nor. 99,53 5. Anna Ottosson, Sví. 99,71 6. Anniken Murstad, Nor. 99,91 7. Ásta Halldórsdóttir, ísl. 100,83 Svig karla 11/04 1. Per Fredrik Spieler, Nor. 108,80 2. Cristophe Granberg, Sví. 108,83 3. Magnus Oja, Sví. 109,81 4. Kristinn Björnsson, ísl. 110,70 5. Marcus Eriksson, Sví. 110,73 6. Atle Hovi, Nor. 110,89 7. Stefan Ström, Sví. 111,77 8. Erik Loberg, Sví. 112,26 9. Örnólfur Valdimarsson, ísl. 112,58 Stórsvig kvenna, 12/04 1. Pernilla Viberg, Sví. 95,76 2. Kari Anne Saude, Nor. 96,79 3. Kristina Andersson, Sví. 97,46 4. Annie E. Manshaus, Nor. 97,54 5. Marianne Kjörstad, Nor. 98,18 6. Cathrine Mikkelsen, Nor. 99,56 7. Christina Mánson, Sví. 100,14 8. Ásta Halldórsdóttir, ísl. 100,24 9. Guðrún H. Kristjánsdóttir, ísl. 101,73 Svig karla 12/04 1. Per Fredrik Spieler, Nor. 105,16 2. Atle Hovi, Nor. 105,48 3. Kristinn Björnsson, ísl. 106,29 4. Magnus Oja, Sví. 106,91 5. Sverre Liljequist, Sví. 107,11 6. Attila Bonis, Ungv. 107,56 7. Robert Ritzen, Sví. 108,49 8. Arnór Gunnarsson, 108,75 Svig kvenna 13/04 1. Pernilla Viberg, Sví. 93,48 2. Kristina Andersson, Sví. 95,43 3. Ásta Halldórsdóttir, ísl. 96,00 4. Marianne Kjörstad, Nor. 96,19 5. Inger Kohler, Sví. 99,14 6. Marianne Vari, Nor. 99,19 7. Estelle Tessieres, Fra. 99,30 8. Anniken Murstad, Nor. 99,70 9. Eva Jónasdóttir, ísl. 100,47 Stórsvig karlar 13/04 1. Atle Hovi, Nor. 108,99 2. Christophe Granberg, Sví. 109,27 3. Per Fredrik Spieler, Nor. 110,01 4. Petter Wikström, Sví. 111,74 5. Kristinn Björnsson, ísl. 112,07 6. Marcus Eriksson, Sví. 112,28 7. Charlie Laband, Sví. 114,21 8. Torbjörn Sögaard, Nor. 114,27 Per Fredrik Spieler kominn með tvö gull. Visa-Cup mótaröðin í alpagreinum: Pemilla Viberg í sérflokki - Kristinn og Ásta bæði búin að ná í brons Pernilla Viberg, heims- og ólympíumeistari kvenna í stór- svigi, sýndi og sannaði hvers hún er megnug á fyrstu mótun- um í Visa Cup, alþjóðlegu mótaröðinni, sem fram fóru í Hlíðarfjalli um helgina og í gær. Hún vann örugga sigra í tveimur stórsvigsmótum og einu svigmóti og tók því samt rólega í öllum mótunum. I karlaflokknum sigraði Norð- maðurinn Per Fredrik Spieler í tveimur fyrstu svigmótunum en landi hans Atle Hovi sigraði í fyrsta stórsvigsmótinu í gær. Kvennaflokkurinn er skipaður gríðarsterkum þátttakendum með Svíana Viberg og Kristinu Andersson í broddi fylkingar en þær eru báðar í fremstu röð í heiminum. Þær hafa og skipað tvö fyrstu sætin alla þrjá dagana að undanskildu stórsviginu á sunnudag þegar Kari Anne Saude frá Noregi læddist í 2. sæt- ið á eftir Viberg. Ásta Halldórs- dóttir hefur staðið sig best íslend- inganna, lenti í 7. sæti á laugar- dag, 8. sæti á sunnudag og 3. sæti í gær sem verður að teljast mjög góður árangur. Guðrún H. Kris- tjánsdóttir frá Akureyri hafnaði í 9. sæti á sunnudag og Eva Jónas- dóttir, Akureyri, í 9. sæti í gær. í karlaflokknum hefur Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði náð langbestum árangri íslending- anna og besta árangrinum náði hann á sunnudag þegar hann hafnaði í 3. sæti. Kristinn stefnir að sigri í a.m.k. einu móti eins og fram kemur annars staðar á síð- unni og verður fróðlegt að sjá hvort hann nær því takmarki. Atle Hovi vann stórsvigið í gær. Pernilla Viberg á fullri ferð í svigmótinu i gær. Kristinn Björnsson er búinn að ná í ein bronsverðlaun og stefnir a.m.k. að einum sigri. Myndir: Goiii „Hef ekki beitt mér að ft segir Pernilla Viberg vÉg hafði aldrei áður komið til Islands og hafði áhuga á því þannig að ég sló til þegar þetta bauðst. Svo finnst mér líka mikilvægt að hjálpa þeim yngri að bæta punktastöðuna með því að keppa við þær sterkari og hef því ekki beitt mér að fullu,“ sagði Pernilla Viberg, heims- og ólympíumeistari í stórsvigi kvenna eftir að hún hafði tryggt sér öruggan sigur í þriðja mótinu í alþjóðlegu mótaröðinni Visa Cup. Pern- illa hafði örugga forystu eftir fyrri ferð og tók því rólega í seinni ferðinni, hægði m.a. greinilega á sér skömmu áður en hún kom í mark. Pernilla sagði að sér litist mjög vel á það sem hún hefði séð af ís- landi hingað til. „Landslagið er svolítið öðruvísi en ég á að venjast, það er t.d. svolítið skrít- ið að hér eru nánast engin tré. Svo er veðrið ótrúlega fljótt að breytast hérna og ég hef kynnst öllum tegundum þann stutta tíma sem ég hef verið hér. Mér skilst að það hafi verið frekar lítill snjór hér í vetur og það er búið að vera eins í Svíþjóð þar til fyrir tæpum tveimur vikum. Snjórinn kom bara eiginlega of seint því nú eru flestir heima farnir að hugsa um sumarið og sólina.“ Pernilla var eini gullverðlauna- hafi Svía á Ólympíuleikunum í Frakklandi fyrr í vetur. „Já, ég var nokkurs konar hetja í hópn- um þótt við hefðum líica krækt í silfur og brons. Ég stefni að því að halda áfram að gera góða hluti og næsta stórmót sem ég bý mig undir er heimsmeistaramótið á næsta ári. Svo eru það Ólympíu- leikarnir í Lillehammer þar sem Svíar ætla að ná fram hefndum á Norðmönnum," sagði Pernilla Viberg. Pernilla Viberg. Kristinn stefnir að sigri Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði var ekki nema í meðallagi ánægð- ur þegar Dagur ræddi við hann. „Ég er alls ekki ánægður með daginn í dag (gær), mér gekk illa í fyrri ferðinni og ekki nema þokkalega í seinni. Ég var hins vegar ánægður með hvernig mér gekk í gær og í fyrradag. Ég stefndi að því að bæta punkta- stöðuna en það hefur ekki tekist enn.“ Kristinn sagði að erlendu keppendurnir væru ekkert rosa- legir í karlaflokknum. „Ég á að geta unnið þá á góðum degi og er að vona að ég vinni eitt svigmót. Það ætti að geta gengið," sagði Kristinn. Þessi mót eru þau síð- ustu sem hann tekur þátt í á þess- um vetri en að þeim loknum heldur hann til Geilo ogi klárar i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.