Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 20
^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiwminiiiiiiiiiiiiiiiimiiHihMiiiiii........................................................
Akureyri, þriðjudagur 14. aprfl 1992
Kodak
Express
Gæöaframköllun
★ Tryggðu filmunni þinni
Jbesta ^PediGmyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Fyrirhugað er að selja Rúmfatalagernum hf. lóðina Norðurtanga 3 sem Járntækni hf. fékk úthlutað á sínum tíma.
Mynd: Golli
Sauðárkrókur:
„Flassað“ á laganna verði
Að sögn lögreglu á Blönduósi
og Sauðárkróki var helgin
fremur viðburðalítil og að því
Ieyti lík öðrum helgum frá ára-
mótum. Þó bar svo við á Sauð-
árkróki að „flassað“ var á lag-
anna verði þar sem þeir voru
við eftirlit og ku það ekki vera
algengt þar í bæ.
Tvær tilraunir voru gerðar til
að brjóta upp glugga á íbúðar-
húsum í Hlíðahverfi á Sauðár-
króki um helgina. Einnig teygði
einhver fingralangur sig inn um
opinn glugga á húsi og tók spari-
bauk lítils barns úr gluggakist-
unni.
Harður árekstur varð síðan á
mótum Sauðárkróksbrautar og
Skagfirðingabrautar, en engan
sakaði þrátt fyrir að bifreiðar
skemmdust mikið.
Aðfaranótt laugardags voru
tveir laganna verðir svo á eftir-
Hafnarstjórn Akureyrar:
Klofnaði í afstöðu til umsóknar um
breytta nýtingu lóðar á hafnarsvæðinu
Bæjarstjórnar Akureyrar bíða
nú til staðfestingar þær sam-
þykktir hafnarstjórnar og
bygginganefndar að lóðin
Norðurtangi 3, sem er innan
hafnarsvæðis Akureyrarhafn-
ar, verði seld og önnur starf-
semi verði á lóðinni en áður
hafði verið ákveðið. Járntækni
hf. fékk lóðinni á sínum tíma
úthlutað en fyrirhugað er að
selja Rúmfatalagernum hf.
húsgrunn á henni undir versl-
unarhús. Hafnarstjórn klofn-
aði í afstöðu sinni til málsins sl.
föstudag og samþykkti, með
atkvæðum minnihlutans og
fulltrúa Alþýðubandalags, að
heimila breytta nýtingu á lóð-
inni en fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks voru á móti.
Mál þetta kom til umræðu á
tveimur fundum hafnarstjórnar í
fyrri viku en bygginganefnd fjall-
aði einnig um málið og sam-
þykkti breytta nýtingu ef hafnar-
stjórn féllist á beiðnina.
Síðari fundur hafnarstjórnar
var á föstudag og þar lögðu full-
trúar minnihlutans fram tillögu
þess efnis að hafnarstjórn heimili
breytta nýtingu lóðarinnar að
Norðurtanga 3 þannig að Rúm-
fatalagernum verði heimilt að
reka þar verslun enda sé lóðin í
útjaðri hafnarsvæðis samkvæmt
gildandi skipulagi. Jafnframt seg-
ir að heimildin sé veitt með því
skilyrði að Akureyrarhöfn hafi
kauprétt á Ióðinni og þeim mann-
virkjum sem á lóðinni eru og á
henni kunni að verða reist. Þessi
tillaga var samþykkt með tveimur
atkvæðum fulltrúa minnihluta og
atkvæði fulltrúa Alþýðubanda-
lags, eins og áður segir.
Tveir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks í hafnarstjórn lögðu fram
bókun í fjórum liðum í framhaldi
af fyrrgreindri samþykkt. Þar
segir að fyrirhuguð starfsemi sé í
mótsögn við samþykkt aðalskipu-
lags og svæðaskipulags Akureyr-
arhafnar. Einnig að sá rökstuðn-
ingur sem hafnarstjórn hafi notað
þegar mælt var með úthlutun til
núverandi eiganda lóðarinnar
árið 1988 sé í fullu gildi og engin
rök hafi komið fram sem gefi
tilefni til að breyta skipulagi á
hafnarsvæðinu. JÓH
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
Fjármagnskostnaður jókst um 93%
- úthlutað úr Menningarsjóði KÞ
Hagnaður Kaupfélags Þingey-
inga á síðasta ári var 1,6 millj-
ónir króna. Þetta er nokkru
minni hagnaður en á árinu
1990 þegar hagnaðurinn var 59
milljónir króna. Þetta kom
fram á aðalfundi Kaupfélags
Þingeyinga sem var haldinn á
laugardag. Fundinn sóttu 108
fulltrúar frá 10 deildum félags-
ins.
í skýrslu formanns KÞ, Egils
Olgeirssonar, og Hreiðars Karls-
sonar, kaupfélagsstjóra, kom
fram að nýliðið ár einkenndist að
mörgu leyti af þeim samdrætti
sem var í þjóðarbúskapnum,
mjög háum raunvöxtum veruleg-
íslenskar getraunir:
Röð með 13 rétta á Akureyri
vinningsupphæðin losar tvær milljónir
„Sem stendur eru Akureyring-
ar getspakastir allra íslend-
inga. Röð með þrettán réttum
komu upp á Akureyri einu
sinni enn og það í þriðja sinn á
þremur vikum,“ sagði Sigurð-
ur Baldursson, framkvæmda-
stjóri Islenskra getrauna í
Reykjavík.
Fimmtánda leikvika í íslensk-
um getraunum fór fram um sl.
helgi. Er upp var staðið reyndust
20 með 13 rétta, þ.e. tvær raðir á
íslandi og átján í Svíþjóð. Hlutur
norðanmanna, sem áttu aðra
íslensku röðina, er um 2,4 millj-
ónir króna. Sigurður Baldursson
segir að Akureyringar séu lang
bestu viðskiptavinir íslenskra
getrauna og vinningar skili sér í
réttu hlutfalli norður. „Golf-
klúppur Akureyrar seldi 56 þús-
und raðir og er söluhæstur allra.
KR kemur þar á eftir með 41 þús-
und raðir. KA og Pór eru í
fimmta sæti með 31 þúsund raðir
hvort íþróttafélag."
„Vinningshafarnir tveir er voru
með 13 rétta eru viðskiptavinir
Golfklúbbs Akureyrar. Æ fleiri
leita til okkar hér að Jaðri og
telja staðinn boða gæfu í þessu
sem öðru. Vinningsupphæð tví-
menninganna losar tvær milljónir
og fleiri fengu vinninga. Nær 400
þúsund fóru til þeirra sem voru
með 12, 11 og 10 rétta. Já, heilla-
dísirnar er með okkur hér að
Jaðri,“ sagði Smári Garðarsson,
starfsmaður Golfklúbbs Akur-
eyrar. ój
an hluta ársins, lítilli verðbólgu
og kyrrð á vinnumarkaðnum. í
skýrslum sínum töldu þeir að
reksturinn hafi borið merki sam-
dráttarins án þess að um stóráföll
væri að ræða og miðað við ytri
aðstæður verði að telja niður-
stöðu ársins viðunandi þótt hún
hafi orðið undir því sem vonir
hafi staðið til og áætlað hafði
verið. Þessi niðurstaða sýni að
félagið hafi styrkst nokkuð á
árinu þótt eiginfjárhlutfali hafi
versnað.
Fjármagnskostnaður KÞ hækk-
aði milli ára úr 31,7 milljónum
króna í 61,2 milljónir eða um
93%. Fjármunamyndun í rekstri
var 54,4 milljónir króna, borið
saman við 62,4 milljónir á árinu
1990.
Aðalfundurinn afgreiddi nýjar
samþykktir fyrir félagið í sam-
ræmi við ný samvinnulög. Þá var
einnig samþykkt, m.a. í tilefni af
110 ára afmæli félagsins, að út-
hluta úr Menningarsjóði K.Þ. til
Skógræktarfélags Suður-Þingey-
inga og Húsgulls á Húsavík 110
þúsund krónum til hvors félags.
Gunnar Páll Jóhannsson var
kjörinn nýr fulltrúi í stjórn í stað
Brynjars Sigtryggsonar. JÓH
litsrúnti um Sauðárkrók, þegar
tveir piltar gengu í veg fyrir lög-
reglubifreiðina og heftu för
hennar. Það var þó ekki í frásögu
færandi nema fyrir það eitt að
piltarnir tóku út á sér kynfærin og
veifuðu framan í lögregluna áðuf
en þeir hleyptu bílnum framhjá
og brutu með því þá grein hegn-
ingarlaga er varðar almennt vel-
sæmi. SBG
Akureyri:
Tvö innbrot
um helgina
- nokkur ölvun
í miðbænum
Aöfaranótt niánudagsins
var brotist inn á tveimur
stööum á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum
rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri var brotist inn í
kapellu Akureyrarkirkju. Inn-
brotsþjófurinn braut litla
rúðu, opnaði gluggafag og
smokraði sér síðan inn. Engu
var stolið það er séð verður.
Síðara innbrotið var framið í
verslun Pedrómynda við
Hafnarstræti. Þjófurinn komst
inn um þakgiugga á skúrbygg-
ingu bakatjl vif) verslunina.
Litlu sem engu var stolið,
aðeins lítilræði af skiptimynt.
„Nokkur ölvun var í miðbæ
Akureyrar um helgina, en þó
ekki meiri en gengur og gerist
um helgar. Lögreglan tók einn
mann ölvaðan og próflausan
við akstur þar sem hann ók
gegnt rauðu ijósi,“ sagöi tals-
maður rannsóknarlögreglunn-
ar á Akureyri. ój
Strákagöng:
skála boðin út
Vegagerð ríkisins hefur
boðið út byggingu vegskálu
Fljótamegin við Stráka-
göng. Vegskálinn er 28
metra langur og í hann er
gert ráð fyrir að fari 220
rúmmetrar af steinsteypu og
40 tonn af steypustyrktar-
járni.
Að sögn Einars Gíslasonar,
umdæmistæknifræðings hjá
Vegagerð ríkisins á Sauðár-
króki, er ekki gert ráð fyrir að
göngunum verði lokað tíma-
bundið á meðan á l'ram-
kvæmdunt við vegskálann
stendur í sumar, en þeim skal
lokið 30. ágúst nk.
Jafnhliða því sem ístak hf.
vann við endurbætur á sjálfum
Strákagöngunum á sl. sumri,
var sprengt töluvert úr berginu
Fljótamegin við göngin og
uppsteypa vegskála þannig
undirbúin. Því stendur ekkert
í veginum að hefja fram-
kvæmdir af fuilum krafti, en
Einar Gíslason segir það
ákvörðun væntanlegs verktaka
hvenær hann hefji fram-
kvæmdir.
Tilboð í þetta verk verða
opnuð 4. maí nk. óþh