Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 14. apríl 1992 - DAGUR - 9 Stuttgart efst Eyjólfur Sverrisson og félagar í Stuttgart settust í toppsæti þýsku úrvalsdeiid- arinnar í knattspyrnu þegar þeir sigruðu Núrnberg 2:0 á luugardaginn. Liðið er i efsta sæti eftir sigurinn með 43 stig, jafnmörg og Dortmund en hagstæðara markahlutfall. Dortmund sigr- aði Bayern Miinchen 3:0. Frankfurt gerði 1:1 jafntefli við Borussia Mönchengladbach og er í 3. sæti með 42 stig. Eyjólfur lék með Stuttgart allan ieikinn og stóð sig vel. Hann átti eitt skot sem hafn- aði í höfði eins leikmanna Niirnberg og rotaði hann. í Belgíu vann Ekeren, lið Guðmundar Benediktssonar, stórsigur á Liege, 7:2. Guð- mundur kom inná þegar 2 mínútur voru til leiksloka. JÚdÓ: Gauti og Vemharður í 2. umferð Sex íslendingar voru meðal þátttakenda á opna breska meistaramótinu > júdó sem fram fór um helgina. Þeirra á meðal voru tveir KA- menn, þeir Freyr Gauti Sig- mundsson og Vernharður Þorleifsson, og komust þeir báðir í 2. umferð en féllu þar úr leik. Sigurður Bergmann náði bestum árangri lslendinganna en hann hafnaði í 5. sæti í +95 kg flokki. Bjarni Friðriksson hafnaði í 7. sæti í -95 kg flokki. Freyr Gauti og Vern- harður sigruðu báðir Breta í 1. umferð en töpuðu síðan báðir fyrir ísraelsmönnum í 2. umferð og fengu ckki upp- reisnarglímu. Jón Gunnar Björgvinsson og Halldór Hafsteinsson féllu báðir úr keppni í 1. urnferð. Fyrsta umferð úrslitakeppni 1. deildar í gærkvöld: er bytjun hjá KA-mönnum sigruðu ÍBV 28:21 - óvæntur sigur Stjörnunnar á FH KA-menn unnu fyrstu lotu gegn ÍBV í úrslitakeppni 1. deildar Islandsmótsins í hand- knattleik sem hófst í gærkvöld. Liðin mættust þá í troðfullu KA-húsinu í geysilegum bar- áttuleik þar sem KA hafði yfir- höndina frá fyrstu mínútu og sigraði 28:21. „Þetta var kær- kominn sigur liðsheildarinn- ar,“ sagði brosmildur Alfreð Gíslason, þjálfari og leikmað- ur KA eftir leikinn. Og hann óttast ekki leikinn í yest- mannaeyjum: „Það er alltaf gaman að spila í Eyjum. Þar verða þeir undir pressu og verða að vinna en við eigum annan heimaleik í bakhöndinni ef illa fer og getum hugsað um að gera góða hluti.“ Það var geysileg stemmning í KA-húsinu í gærkvöld enda áhorfendur rúmlega 950 talsins og létu öllum illum látum. Hópur Vestmannaeyinga setti svip sinn á leikinn með lúðrablæstri og trumbuslætti og hávaðinn var ærandi frá fyrstu mínútu. Leik- menn voru greinilega tauga- spenntir, enda mikið í húfi, og handknattleikurinn ekki sá áferð- arfallegasti. KA-menn komust í 3:1, Eyjamenn jöfnuðu 3:3 en þá skoruðu KA-menn þrjú mörk í röð og héldu forystunni eftir það. Munurinn varð nokkrum sinnum fimm mörk í fyrri hálfleik en staðan í hléi var 13:9. í seinni hálfleik var staðan fljótlega orðin 16:10 en Eyjamenn sýndu mikið baráttuþrek og minnkuðu tví- vegis muninn í tvö mörk, 17:15 og 20:18 en þurftu mikla orku í það og KA-menn náðu í bæði skiptin að breikka bilið á nýjan leik. Þegar staðan var orðin 20:18 skoruðu þeir þrjú mörk í röð og eftir það var aðeins spurning um hvað sigurinn yrði stór. Körfuknattleikur, 2. deild: Laugaskóli sigraði en fékk á sig kæru Laugaskóli tryggði sér um helgina sigur í 2. deild íslandsmótsins í körfuknatt- leik og þar með sæti í 1. deild að ári. En þótt mótinu sé lok- ið eru úrslitin ekki endanlega ráðin þar sem Laugaskóli fékk á sig kæru fyrir að nota ólöglegan mann og verði úrskurður liðinu í óhag missir það 1. sætið og leikur áfram í 2. deild. Úrslitakeppni 2. deildar fór fram í íþróttahúsi Seljaskóla, leikið var í tveimur riðlum og léku síðan efstu liðin til úrslita. Laugaskóli vann sinn riðil, sigr- aði Ungmennafélag Akureyrar. Leikni og Bolungarvík og lagði síðan Ungmennafélag Gnúp- verja í úrslitaleik, 97:49. Eftir mótið lögðu Bolvíkingar fram kæru á Laugamenn fyrir að hafa notað ólöglegan mann, Svein- björn Sigurðsson, og verði úrskurður Laugamönnum í óhag teljast þeir hafa tapað leiknum 2:0. Þaö þýðir að Bol- víkingar verða í efsta sæti í riöl- inum og þurfa að leika annan úrslitaleik gegn Gnúpverjum. Kæran verður tekin fyrir hjá dómstóli Körfuknattleiksráðs Reykjavíkur. Bolvíkingar höfn- uðu í 3. sæti í mótinu, sigruðu Árvakur 100:80 í úrslitaleik um það sæti. Ungmennafélag Akureyrar sigraði Leikni en tapaði fyrir Laugum og Bolvíkingum í framlengdum leik. Liðið lék til úrslita um 5. sætið við Ung- mennafélag Selfoss og tapaði 74:76. KA-menn einum færri í 10 mínútur KA-menn léku af gífurlegum krafti í vörninni, voru fastir fyrir og stundum allt að því grófir. Þetta hreif, Eyjamenn voru hik- andi og fundu ekki taktinn í sóknarleiknum en þetta kostaði lfka það að KA-menn fengu að hvíla í samtals 14 mínútur en Eyjamenn í 4. „Við vorum of harðir á köflum en mér fannst munurinn ekki svona mikill. Dómararnir dæmdu yfirleitt mjög vel en það er synd að segja að þeir hafi verið heimadómarar og úrslitin eru bara ennþá skemmtilegri fyrir það,“ sagði Alfreð um þetta. í sókninni fór KA-maðurinn Stefán Kristjánsson á kostum, skoraði glæsileg mörk og átti gullfallegar línusendingar. Alfreð var traustur, Erlingur tók af skarið á mikilvægum augna- blikum en Sigurpáll sýndi ekki sitt rétta andlit fyrr en undir lokin. í markinu stóð svo Axel og varði frábærlega þegar mest á reið. „Mér fannst allt liðið standa sig vel, sérstaklega var ég ánægð- ur með varnarleikinn og mark- vörsluna og svo sýndi liðið góð- an „karakter“ í seinni hálfleik þegar þeir fóru að saxa á okkur,“ sagði Alfreð um frammistöðu sinna manna. Eyjamenn léku alls ekki vel og er þá nánast sama hvar á liðið er litið. Þeir geta betur og hafa sýnt það, m.a. á Akureyri fyrr í vetur og það er hætt við að það verði á brattann að sækja fyrir KA ann- að kvöld. „Ég var hræddur fyrir þennan leik og úrslitin komu mér ekki á óvart. Við getum varla spilað verr en þetta og hefðum tapað fyrir flestum liðum með svona leik. Við þurfum að bæta okkur um 15-20% fyrir leikinn heima til að vinna og gerum það. Það verður ekkert frekar pressa á okkur en þeim, þeir þurfa að klára dæmið,“ sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari og leikmað- ur ÍBV. Stefán Kristjánsson átti frábæran leik í sókninni hjá KA og skoraði 7 mörk. Myndir: Golli Önnur úrslit í gærkvöld urðu þau að Stjarnan vann óvæntan stórsigur á FH í Hafnarfirði, 28:21, Selfoss sigraði Hauka 34:27 og Víkingur sigraði Fram 26:21. Önnur umferð úrslita- keppninnar fer fram annað kvöld og mætast þá ÍBV og KA í Vest- mannaeyjum. Ef til þriðju umferðar kemur fer hún fram á laugardag. Mörk KA: Stefán Kristjánsson 7, Sigur- páll Árni Aðalsteinsson 7/3, Alfreð Gíslason 5, Erlingur Kristjánsson 4, Árni Stefánsson 2, Jóhann Jóhannsson 2, Pét- ur Bjarnason 1. Axel Stefánsson varði 10 skot. Mörk ÍBV: Sigurður Friðriksson 5/2, Zoltan Belany 4, Sigurður Gunnarsson 4/1, Guðfinnur Kristmannsson 3/1, Gylfi Birgisson 2, Sigbjörn Óskarsson 1, Erl- ingur Richardson 1, Jóhann Pétursson 1. Sigmar Þröstur Óskarsson og Ingólfur Arnarsson vörðu 3 skot hvor. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Sigurjónsson. Dæmdu þokka- lega. Gerðu sín mistök en héldu nokkurn veginn haus í mjög erfiðum leik. Eitt af þruinuskotuin Alfreðs Gíslasonar í uppsiglingu. Sigbjörn Óskarsson og Gylfi Birgisson til varnar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.