Dagur - 22.04.1992, Side 1

Dagur - 22.04.1992, Side 1
75. árgangur Akureyri, miðvikudagur 22. aprfl 1992 76. tölublað Vel í fti 1 klæddur itum frá BERN,IARI)T lerrabudin | HAFNARSTRŒTI92 602 AKUREYRI • SÍMI96-26708 BOX 397 Aðalfundur Mjólkursamlags KEA í gærkvöld: Augljóst mál að dagskipimin verður spamaður í rekstri - segir mjólkursamlagsstóri í aðalfundarskýrslu „Útlit er fyrir enn minnkandi framleiðslu og jafnvel ekki ólíklegt að innvegið magn fari niður í 19 milljónir lítra. Það er því augljóst mál að dag- skipunin í rekstri Mjólkursam- lagsins verður sparnaður, þar sem erfitt verður að auka tekj- urnar, þegar samdráttur er í innvigtun og samkeppni eykst.“ Þetta segir Þórarinn E. Sveins- son, mjólkursamlagsstjóri KEA, í ársskýrslu Mjólkursamlagsins, en aðalfundur þess var haldinn í gærkvöld. í skýrslu mjólkursamlagsstjóra kemur fram að rekstur Mjólkur- samlags KEA hafi verið viðun- andi á síðasta ári, þótt hann hafi verið mun lakari en árið 1990. Helsta ástæða þess er verulegur samdráttur í hráefni milli ára. Innvigtun dróst saman um u.þ.b. sama magn og hún jókst árið 1990. Einnig hætti Mjólkursam- lagið að kaupa rjóma frá Blöndu- ósi og Sauðárkróki og minnkuðu umsvif þess sem því nam. „Þessi afkomumunur sýnir augljóslega að hægt er að auka umsvif og vinna meiri mjólk í samlaginu án þess að kostnaður aukist veru- lega,“ segir Þórarinn í skýrslu sinni. Á síðasta ári fór 98,53% innveg- innar mjólkur hjá Mjólkursam- lagi KEA í fyrsta flokk. Alls voru 143 framleiðendur ætíð með mjólk í fyrsta flokki og 18 mjólk- urframleiðendur fengu viður- kenningu í gærkvöld fyrir úrvals mjólk árið 1991. Á síðasta ári varð samdráttur í sölu nýmjólkur, en sala á létt- mjólk og undanrennu jókst, þó ekki nógu mikið til að vega upp samdrátt í sölu nýmjólkur. Einnig varð samdráttur í sölu á jógurt, en nokkur aukning varð í sölu á Kotasælu. Þá varð einnig samdráttur í sölu á smjörva, en það gerðist í fyrsta skipti síðan framleiðsla á smjörva hófst. Rekstrartekjur Mjólkursam- lags KEA voru rúmir 1,8 millj- arðar króna á síðasta ári en rekstrargjöldin rúmir 1,7 millj- arðar króna. Hagnaður eftir fjár- magnsliði varð því um 131 millj- ón króna. Hagnaður eftir fjár- magnsgjöld og skatta varð hins vegar 6,4 milljónir króna. óþh Verkfall mjólkurfræðinga: Ólíklegt að komi til mjólkur- skorts Ólíklegt er að til mjólkur- skorts komi á felagssvæði Mjólkursamlags KEA þrátt fyrir verkfallsaðgerðir mjólk- urfræðinga. Sem kunnugt er verða mjólkurfræðingar í verkfalli í dag, á föstudag og mánudag. Vegna verkfalls mjólkurfræð- inga hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík er búist við að þar gæti mjólkurskorts næstu daga en að sögn Þórarins E. Sveins- sonar, samlagsstjóra Mjólkur- samlags KEA á Akureyri, stefnir í að ekki verði mjólkur- skortur á svæðinu né að bændur þurfi að hella niður mjólk. Hann segir að þetta ráðist þó af því hvort leyfi fæst til að vinna lengur þá daga sem unnið verð- ur síðari hluta vikunnar, þ.e. á morgun og um helgina. JÓH Aðilar vinnumarkaðarins setjast að samningaborðinu á ný: Stutt og snörp samnmgalota framundan - segir Kári Arnór Kárason, forseti Alþýðusambands Norðurlands Kári Arnór Kárason, formað- ur Alþýðusambands Norður- Fjárhagsáætlun Grýtubakkahrepps íyrir 1992: Fyrsta skrefið stigið í byggingu nýs íþróttahúss Fjárhagsáætlun Grýtubakka- hrepps fyrir árið 1992 var afgreidd á fundi hreppsnefndar 6. aprfl sl. Til framkvæmda á árinu verður varið 19,5 millj- ónum króna. íbúar Grýtubakkahrepps eru 419 og Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri, segir að stærsta verkefnið á vegum hreppsins er Grunur um ölvun Töluvert mikil umferð var í Þingeyjarsýslu um páskahelg- ina og gekk ágætlega nema hvað lögregla tók ökumann vegna gruns um ölvun á annan dag páska. Talsverð ókyrrð varð eftir dansleik aðfaranótt annars páskadags og hafði lögregla ein- hver afskipti af mönnum en ekki var um nein alvarleg mál að ræða, að sögn lögreglunnar. IM lúti að eignamyndun verði gerð grunns að íþróttahúsi. Til þeirra- framkvæmda verður varið 5,5 milljónum króna. í fyrra var gerður nýr 50 metra viðlegukant- ur við höfnina. Á næstu mánuð- um verður varið 8,4 milljónum í gerð steyptrar þekju á þennan kant. Grýtubakkahreppur ber 25% kostnaðar, en ríkið75%. Af öðrum framkvæmdum sumarsins taldi sveitarstjórinn upp malbik- un hafnargötunnar og smærri verkefni við þinghús, sundlaug og malarvöll. „Atvinnumálin eru stöðugt til umfjöllunar. Grýtubakkahrepp- ur tekur þátt í átaksverkefni er lýtur að atvinnumálum í hrepp- unum innan og austan Eyjafjarð- ar. Sannast sagna þá erum við íbúar Grýtubakkahrepps í vörn til að halda þeim fyrirtækjum sem eru starfrækt í hreppnum. Breytt kvótastaða og fleira gerir mönnum erfitt fyrir sem víða á landsbyggðinni,“ sagði Guðný Sverrisdóttir. ój lands, segir að nú fyrir helgina verði að liggja fyrir niðurstaða í viðræðum um nýja kjara- samninga. Stóra samninga- nefnd ASÍ hittir samninga- nefnd vinnuveitenda á fundi í dag en miðað við hljóð í samn- ingamönnum í gær þykir ekki ástæða til að ætla að nýr kjara- samningur sé líklegri nú en var fyrir það hlé sem var á viðræð- um yfír páskana. Forsvarsmenn félaga innan ASÍ hittust í gær og segir Kári að þar hafi verið gerð grein fyrir þeim vilja sem komið hafi fram á fundum í félögunum síðustu vikur. Skilaboð þau sem samn- ingamenn hafi nú séu þau að niðurstaða fáist í viðræður fljótt, hvort heldur niðurstaðan verði samningur eða viðræðuslit. „Það að niðurstaða fáist fljótt þýðir að fyrir helgi verði að fást niðurstaða. Uppleggið á okkar fundi var að knýja fram niður- stöðu á eins stuttum tíma og hægt er. Menn eru búnir að hanga yfir þessu lengi og kannski lengur en efni standa til,“ sagði Kári. Hann segist ekki hafa trú á að yfirstandandi verkfallsaðgerðir mjólkurfræðinga hafi áhrif á við- ræðurnar nú, þó svo vinnuveit- endur hóti að láta reyna á lög- mæti aðgerðanna fyrir dómi. Mjólkurfræðingar hafi lítið sem ekkert verið með í samflotinu og viljað ræða sín mál á sérvett- vangi. Kári segir að samningar séu bjartsýni á að sjónmáli hafi ekki vaxið í hléinu á viðræðun- um. „Nei, út af fyrir sig hefur ekkert batnað frá því sem var og ekki hægt að segja að atvinnurek- endur né ríkisstjórn sýni meiri samningsvilja nú en áður en slitn- aði upp úr. Síðan þá hefur verið haldinn einn fundur með atvinnurekendum og þar treystu þeir sér ekki til að staðfesta að þeir væru tilbúnir til að ganga frá samningi á þeim nótum sem for- seti ASÍ lagði upp. Því má segja að komið hafi fram á þessum tíma harðara nei en þegar slitn- aði upp úr. En menn ætla núna að reyna að hafa stutta og snarpa lotu,“ segir Kári. JÓH Slökkvilið Akureyrar: hjú útköll vegna sinubruna Slökkviliðið á Akureyri fór í þrjú útköll um páskana vegna sinubruna, tvisvar á skírdag og einu sinni á föstudaginn langa. í tveim tilfellum hafði verið kveikt í sinu í bæjar- landi Akureyrar og þriðja útkallið var vegna sinubruna í Möðruvallasókn. Gunniaugur Búi Sveinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu, segir að alltof rnikið sé um útköll vegna sinubruna og oftast sé um að ræða fikt, sem endi með ósköpum og skapi mikla hættu. Eftir 1. maf nk. er stranglega bannað að kveikja í sinu, en Gunnlaugur Búi tók fram að sinubrunar væru alltaf bannaðir í bæjarlandinu. óþh ÓlalsQörður: Árekstur á annan páskadag Árekstur varð á annan dag páska við bæinn Brimnes í Olafsfírði. Betur fór en á horfðist og urðu engin meiðsl á fólki. Bifrciðarnar skemmdust lítilsháttar. í dymbilvikunni varð árekst- ur í Múlagöngunum þegar tvær bifreiðar skullu saman. Engin slys urðu á fólki og bifreiðamar skemmdust lítilsháttar. Að sögn lögreglunnar í Ólafsfirði mætt- ust bifreiðarnar milli útskota og skipti engum togum að þær skullu saman. Mikil mengun var í göngunum þegar óhappið varð. óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.