Dagur - 22.04.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 22. apríl 1992
Fréttir
- ráðgert að Guðmundur Árnason verði hótelstjóri
Stjórn Ferðamálasjóðs hefur
ákveðið að ganga að tilboði
Bautans hf. á Akureyri og
þriggja einstaklinga í Hótel
Stefaníu á Akureyri. Byggða-
sjóður hefur ekki tekið afstöðu
til tilboðsins, en hann á
minnihluta í hótelinu. Eftir því
sem næst verður komist mun
stjórn Byggðastofnunar taka
þetta mál fyrir á næsta stjórn-
arfundi, sem boðaður hefur
verið í næstu viku, og sam-
Húnavaka:
Húsbænda-
vaka á
Blönduósi
í kvöld
Húnavaka hófst sl. mánudag,
en þá var opnuð samsýning
myndlistarmannanna: Daða
Guðbjörnssonar, Elínar
Magnúsdóttur og Þórðar Hall
á Hótel Blönduósi. Um kvöld-
ið sýndi Leikflokkurinn á
Hvammstanga síðan Ættar-
mótið í Félagsheimili Blöndu-
óss.
Myndlistarsýningin verður
opin alla daga Húnavökunnar,
eða fram á sunnudag. í kvöld,
síðasta vetrardag, verður svo
Húsbændavaka í Félagsheimili
Blönduóss og er þar um að ræða
blandaða skemmtidagskrá sem
alls koma um 80 manns fram í.
Að henni lokinni dansa Húnvetn-
ingar veturinn út við undirleik
Herramanna.
Nemendur Grunnskóla Blöndu-
óss verða með sína skemmtun á
fimmtudag og um kvöldið er
unglingadansleikur með Vinum
vors og blóma. Að kvöldi föstu-
dags verða síðan kórtónleikar í
Félagsheimili Blönduóss, þar
sem Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps, Samkórinn Björk og
Reykjalundarkórinn úr Mosfells-
bæ, leiða saman hesta sína.
Kvikmyndin Ingaló verður
sýnd á laugardag, en Húnavöku
lýkur á laugardagskvöldið með
stórdansleik í félagsheimilinu þar
sem Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar, sér um fjörið. SBG
kvæmt heimildum Dags er tal-
ið ólíklegt annað en Byggða-
sjóður taki tilboðinu.
Ferðamálasjóður (65%) og
Byggðasjóður (35%) festu kaup
á Hótel Stefaníu á síðasta ári á
nauðungaruppboði. Það var síð-
an auglýst til sölu og bárust nokk-
ur tilboð í það. f síðustu viku
ákvað stjórn Ferðamálasjóðs að
taka sameiginlegu tilboði Baut-
ans hf. og þriggja einstaklinga úr
Reykjavík í hótelið. Ráðgert er
að einn þeirra, Guðmundur
Árnason, verði hótelstjóri. Guð-
mundur lærði hótelstjórnun og
ferðamálafræði í Sviss og hefur
m.a. verið hótelstjóri á Hótel
Þelamörk undanfarin tvö sumur.
Hann er nú starfsmaður Ríkisút-
varpsins.
Stefán Gunnlaugsson, veitinga-
maður á Bautanum, sagði að ef
allt gengi að óskum myndu nýir
eigendur opna hótelið fyrrihluta
maímánaðar.
Stefán sagði að Bautinn hf. og
hótelið, sem ekki er búið að finna
nýtt nafn á, yrðu rekin sem tvö
aðskilin fyrirtæki. „Við erum í
ferðamannaþjónustunni og telj-
um að við styrkjum okkur með
kaupum á hótelinu,“ sagði
Stefán. óþh
Mynd: Golli
Akureyri:
Á þriðja hundrað böra feraid
Eins og oft áður settu fermingar
mikinn svip á páskahátíðina.
Fermt var á Akureyri, Húsa-
vík, Sauðárkróki og Siglufirði.
Á Akureyri voru 209 börn
fermd á pálmasunnudag og
skírdag, þar af 129 í Akureyrar-
kirkju og 80 í Glerárkirkju. Á
Húsavík voru 33 börn fermd á
skírdag og 27 börn á Siglufirði,
einnig á skírdag. Á Sauðárkróki
voru alls 54 börn fermd á
pálmasunnudag og skírdag.
Golli ljósmyndari Dags tók
meðfylgjandi mynd í ferming-
arguðsþjónustu í Akureyrar-
kirkju eftir hádegi á skírdag.
óþh
Hótel Stefanía á Akureyri:
Ferðamálasjóður gekk að tilboði
Bautans og þriggja einstaklinga
Fegurðarsamkeppni íslands
1992 í'er Iram á Hótel ís-
landi í kvöld, síðasta vetrar-
dag, og fyrir landshyggða-
fólkið er rétt að minna á að
frá keppninni er sjónvarpað
á Stöð 2. Útsending hefst kl.
22.20
Að þessu sinni taka 18
stúlkur þátt í keppninni og
koma þær víðs vegar af land-
inu. Fulltrúi Norðurlands er
Pálína Halldórsdóttir úr Suö-
ur- Þingeyjarsýslu er stundar
nám í Menntaskólanum á
Akureyri. Foreldrar Pálínu
eru Halldór Sigurðsson og
Mary Anna Guðmundsdóttir.
Hestamennska og blak eru
áhugamál Pálínu og að stúd-
entsprófi loknu ætlar hún til
náms við bændaskólann að
Hólum.
Gróa Ásgeirsdóttir cr fram-
kvæmdastjóri keppninnar, en
dómnefndina er velur fegurð-
ardrottningu íslands 1992
skipa: Sigtryggur Sigtryggs-
son, fréttastjóri, sem er for-
maður, Kristjana Geirsdóttir,
veitingamaður, Matthildur
Guðmundsdóttir, fyrrverandi
Ungfrú íslands, Bryndís
Ólafsdóttir, fyrirsæta, Stefán
Hilmarsson, söngvari, Sigurð-
ur Kolbeinsson, framkvæmda-
stjóri, og Þórarinn J. Magnús-
son, ritstjóri.
Stöð 2 mun fylgjast með vali
á fegurðardrottningu íslands
1992. í þættinum verða allar
stúlkurnar kynntar auk þess
sem rætt verður við fegurðar-
drottningar fyrri ára. í lok
þáttarins verður sjónvarpað
beint frá krýningarathöfninni.
ój
Mjólkursamlag KEA:
Atján hlutu viðurkennmgar fyrir 1991
A aðalfundi Mjólkursamlags
KEA og Félags eyfirskra naut-
gripabænda í gærkvöld voru
afhentar viðurkenningar fyrir
framleiðslu úrvals mjólkur sem
lögð var inn hjá samlaginu á
Flskmi&lun Nor&urtamls 6 Dalvík - Flskvert ó markaW vlkuna 12.04-18.04 1992
Tegund Hámarks- verö Lágmarks- verö Meöalverð (kr/kg) Magn (kg) Verðmæti
Grálúöa 81 80 80,76 1.280 103.370
Hlýri 33 30 30,00 40 1.200
Hrogn 115 114 114,11 235 26.817
Karfi 42 30 40,46 234 9.468
Lúöa 370 356 359,66 88 31.650
Skarkoli 60 30 45,34 768 34.820
Skata 60 60 60,00 9 540
Steinbítur 34 30 30,05 253 7.602
Ufsi 46 45 45,99 8.759 402.801
Undirmál þ. 65 60 64,22 351 22.540
Ýsa 120 116 119,32 1.386 165.372
Þorskur 91 30 87,19 18.678 1.628.503
Samtals 75,89 32.081 2.434.683
Dagur btattr vtkulsga tdflu yflr flskver* hjá Ftskmlflhm Norturlandv h Dalvík og grefnlr Þar M
verBtnu eam fékkst (vtkunnl á undan. Þetta er gert í Ijósl jwss a6 hlutverk fiskmarkaáa f verfl-
myndun istenskra sjáverafurfle hefur vaxifl hr&ðum skrefum og þvl sjálfsagt eð gera lesendum
blaðslns klelft að fytgjast með þrðun markaðsverðs á flskl hir á Norðurlandl.
síðasta ári. Að þessu sinni
fengu 18 býli viðurkenningu og
þar af hlutu 5 þeirra sérstaka
viðurkenningu fyrir að hafa
framleitt úrvalsmjólk a.m.k.
þrjú ár í röð.
Til þess að hljóta þessa viður-
kenningu má gerlamagn í mjólk-
inni aldrei fara yfir 30.000 gerla
pr. ml, meðaltals frumutala sé
undir 300.000 pr. ml, mjólkin sé
alltaf í 1. flokki við flokkun á
hitaþolnum og kuldakærum
gerlum, að mjólkin hafi ekki ver-
ið óeðlileg við skynmat og að
aldrei hafi orðið vart fúkkalyfja
og eða annarra efna er rýrt geti
gæði mjólkurinnar. Einnig að
aðkoma og umgengni í fjósi og
mjólkurhúsi hafi ævinlega verið
góð að mati mjólkureftirlits-
manna.
Eftirtaldir hlutu viðurkenningu
í ár: Félagsbúið Vöglum, Félags-
búið Holtseli, Félagsbúið Vill-
ingadal, Félagsbúið Eyvindar-
stöðum, Haukur Berg Fífilgerði,
Félagsbúið Hallanda, Félagsbúið
Breiðabóli, Grímur Jóhannesson
Þórisstöðum, Árni Sigurjónsson
Leifshúsi, Árni Hermannsson
Ytri-Bægisá, Félagsbúið Stóra-
Dunhaga, Sigurður Jónsson
Efstalandi, Félagsbúið Bakka,
Ólafur Thorlacíus Öxnafelli,
Leifur Guðmundsson Klauf,
Sverrir Sverrisson Neðri-Vind-
heimum, Kristján Hermannsson
Lönguhlíð og Þorsteinn Rútsson
Þverá.
Þá hlutu þeir Ólafur Thorlacíus,
Leifur Guðmundsson, Sverrir
Sverrisson, Kristján Hermanns-
son og Þorsteinn Rútsson sér-
staka viðurkenningu fyrir að hafa
framleitt úrvals mjólk í a.m.k.
þrjú ár. óþh
Húsavík:
Fyrsta skfðamótíd í Gyðuhnjúk
Sveinn Bjarnason sem keppti
fyrir Grím hf. sigraði á fyrsta
skíðamótinu sem haldið er í
Gyðuhnjúk, á hinu nýja skíða-
svæði Húsvíkinga. Keppnin
fór fram á páskadag í blíðskap-
arveðri. Keppt var í samhliða
svigi og tóku 32 skíðamenn
þátt fyrir hönd 77 fyrirtækja.
Á annað hundrað manns komu
á skíðasvæðið á páskadag, ýmist
gangandi eða akandi á jeppum
eða snjósleðum. Skíðadeild
Völsungs bauð fólkinu veitingar.
„Krakkarnir voru alsælir og fólk
yfir sig hrifið. Þetta er eins og að
koma í annan heim þó ekki sé
farin lengri leið og þarna sér
hvergi á dökkan díl. Það vantar
bara betri aðstöðu og veg uppeft-
ir,“ sagði Sólveig Skúladóttir sem
starfaði við mótshaldið. Hún
sagði að þó nokkuð margir hefðu
komið á gönguskíðum að Gyðu-
hnjúk og að þar væri víðáttumik-
ið göngusvæði.
Sólveig sagði að skíðalyftan
yrði í gangi á sumardaginn fyrsta
og um næstu helgi. Ökufært væri
á jeppum langleiðina að Gyðu-
hnjúk og snótroðarinn hefði síð-
an dregið skíðamenn síðasta
spölinn. IM