Dagur - 22.04.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 22.04.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 22. apríl 1992 Frumvarp til nýrra hjúskaparlaga: Jafnrétti hjóna fest í lög - töluverðar breytingar á lögum um hjónavígslur, skilnaði og það sem þar er á milli Frumvarp til nýrra hjúskapar- laga hefur verið lagt fram á Alþingi og er því ætlað að leysa af hólmi lög frá 1972 og að hluta lög frá 1923. I frumvarp- inu er leitast við að færa ákvæði laganna nær nútíman- um og laga þau að þeim breyt- ingum sem orðið hafa í samfé- laginu. Til dæmis má sjá mörg merki um að ákvæði eldri laga sem gerðu ráð fyrir öðrum við- horfum til jafnréttis kynjanna hafi mátt víkja. Mestum nýmælum sætir 3. grein frumvarpsins, en hún hljóðar svo: „Hjón skulu skipta með sér verkefnum á heimili eftir föngum, svo og útgjöldum vegna heimilisrekstrar og framfærslu fjölskyldu. Hjónum er skylt að veita hvort öðru upplýsingar um efnahag sinn og afkomu.“ Þetta hljómar eðlilega en er samt nýmæli í íslenskri hjúskaparlög- gjöf. í 2. grein segir líka að hjón séu „hvívetna jafnrétthá í hjúskap sínum og bera jafnar skyldur hvort gagnvart öðru og börnum sínum“. I samræmi við það eru á nokkrum stöðum felld niður ákvæði eldri laga um „sérþarfir húsfreyju“. Ýmsar breytingar eru líka ráð- gerðar á skilyrðum til hjóna- vígslu. Til dæmis getur dóms- og kirkjumálaráðuneytið veitt ungl- ingum undir 18 ára aldri undan- þágu til giftingar án þess að leita heimildar foreldra. Þeim kemur þetta ekki lengur við. Þá eru numdar brott allar hömlur á vígslu tengdra manna, en ætli kjörforeldri og kjörbarn að gift- ast verður fyrst að fella niður ætt- leiðinguna. Einnig eru felldar niður hömlur við því að andlega fatlaðir menn, þ.e. geðveikir eða þroskaheftir, gangi í hjónaband. Skilnaðarástæðum fækkar Reglur um hjónaskilnað hafa breyst töluvert frá eldri löggjöf. Séu bæði hjón sammála um að leita skilnaðar má veita lögskiln- að sex mánuðum eftir að leyfi til skilnaðar að borði og sæng tók gildi. Áður þurfti að líða heilt ár og sú regla gildir enn ef einungis annað hjóna krefst skilnaðar. Pá hefur verið felld niður krafan um tryggð milli hjóna meðan þau eru skilin að borði og sæng, þ.e. ef annað hjóna fremur hjúskapar- brot á þeim tíma er ekki hægt að nota það sem rök fyrir lögskiln- aði. Reyndar hefur ástæðum fyrir hjónaskilnaði verið fækkað veru- lega og eru einungis fjórar: sam- vistaslit vegna ósamlyndis hjóna, tvíkvæni, hjúskaparbrot og lík- amsárás annars hjóna gegn hinu eða börnum á heimilinu. I síðast- nefnda tilvikinu nægir raunar að maki hafi „sýnt af sér atferli sem fallið er til að vekja alvarlegan ótta“ um að hann gerist sekur um líkamsárás. Samkvæmt eldri lögum var hjónum skylt að leita sátta ef þau Friðgeir Halldórsson, íþróttamaður ársins hjá Ungmennasam- bandi Austur-Hún- vetninga. Ungmennasamband Austur-Húnvetninga: Friðgeir HaJldórsson kjörinn íþróttamaður ársins - Valdimar Guðmannsson kosinn formaður Guðrún Sunna Gestsdóttir (t.v.), handhafi stigabikars F.R.I. flmmta árið í röð, ásamt fráfarandi for- manni U.S.A.H., Sigurlaugu Þ. Hermannsdóttur. 75. ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga var haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi 21. mars sl. í boði Umf. Hvatar og Golfklúbbsins Óss. Gestir þings- ins voru Pálmi Gíslason formað- ur U.M.F.Í., frá Í.S.Í. þeir Stefán Konráðsson, Guðmundur Gísla- son og Edda Hermannsdóttir, formaður trimmnefndar Í.S.Í. 40 ár eru síðan Pálmi Gíslason gerðist ungmennafélagi, einmitt í Austur-Húnavatnssýslu. í tilefni þess gaf Pálmi Ungmennasam- bandinu forláta bikar en Ung- mennasamband Austur-Húnvetn- inga er 80 ára á þessu ári, stofnað í marsmánuði 1912. íþróttamaður ársins var kjör- inn Friðgeir Halldórsson, Umf. Hvöt. Stjörnukeppni F.R.Í. vann Guðrún Sunna Gestsdóttir Umf. Hvöt Blönduósi. Sigurlaug Þ. Hermannsdóttir, sem verið hefur formaður U.S.A.H. undanfarin 4 ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs en hún var kosin í stjórn U.M.F.Í. á sl. hausti. Formaður í stað Sigur- laugar var kosinn Valdimar Guð- mannsson í Bakkakoti og veru- legar breytingar aðrar urðu á stjórn U.S.A.H. vildu skilja. Þeirra skyldi leitað hjá presti eða sáttanefnd ef hjón tilheyrðu hvort sínum söfnuði eða voru utan safnaða. Sátta- nefndir virkuðu aldrei almenni- lega og voru lagðar niður með lögum fyrir nokkrum árum. Nú er hjónum ekki skylt að leita sátta nema þau eigi ósjálfráða barn, annað eða bæði, sem þau hafa forsjá fyrir. Hjón skulu þó ávallt eiga þess kost að leitað sé um sættir með þeim og er það áfram í höndum presta að gera slíkt. Hins vegar getur dómari eða sýslumaður gegnt þessu hlut- verki og einnig er ráðuneytinu heimilað að veita stofnunum um fjölskylduráðgjöf leyfi til að ann- ast sáttaumleitanir. En þótt hjónum sé skylt að leita sátta ef börn eru inni í myndinni eru ákvæði um forsjá barna í slíkum tilvikum ekki að finna í þessum lögum. Þau eru talin eiga heima í barnalögum, enda er búið að leggja frumvarp til nýrra barnalaga fyrir Alþingi þar sem réttarstaða þeirra við skilnað foreldra er ákvörðuð. Eignir og peningar Hjúskaparlög snúast óhjákvæmi- lega mikið um peningamál og eignir. Þess vegna eru í þeirn langir bálkar og margar greinar um kaupmála, fjárskipti við skilnað og skilgreiningar á því hvað er séreign og hvað hjúskap- areign, þe. sameign fjölskyldunn- ar. Margt er þar keimlíkt og í eldri lögum en ýmis nýmæli einnig. Til dæmis er nú hægt að rifta gjöf annars maka til þriðja manns „ef gjöf er úr hófi miðað við efnahag hjóna“. Varðandi kaupmála þá er nú einungis hægt að gera kaupmála um þær eignir sem eru til staðar við gerð samningsins. Samkvæmt frumvarpinu verður einnig hægt að gera kaupmála um að innbú á heimili hjóna verði séreign ann- ars þeirra. Einnig er breyting í þá veru að arður af séreign verður samkvæmt frumvarpinu áfram séreign en í núgildandi lögum er hann sagður sameign hjóna. Það er einnig búið að herða á ákvæðum sem takmarka rétt ann- ars maka til að ráðstafa fasteign- um, innbúi eða lausafé sem fjöl- skyldan notar eða er notað við atvinnurekstur beggja hjóna eða hins. Þetta gildir einnig um bújarðir og leigu húsnæðis sem fjölskyldan býr í, annar makinn má ekki segja upp leigusamningi eða selja fasteign án skriflegs samþykkis hins. Er þetta rökstutt með því að þörf sé á að vernda fjölskylduna betur en gert er í gildandi lögum. Þá er búið að rýmka heimildir til frávika frá helmingaskiptaregl- unni þegar hjón skilja. Nú ber að taka meira tillit en áður til þess hvernig slík skipti koma út og hvort þau eru bersýnilega ósann- gjörn fyrir annað hvort hjóna. Þar getur komið til álita arfur sem annað hjóna hefur fengið eða ef annað hjóna hefur lagt verulega miklu meira en hitt í búið og hjónaband staðið stutt. Mikill lagabálkur Þetta nýja frumvarp til hjú- skaparlaga er heilmikill bálkur, einar 140 greinar og alls tæplega 90 síður með athugasemdum og greinargerð. Höfundar þess eru sifjalaganefnd sem er ein af fasta- nefndum dóms- og kirkjumála- ráðuneytis. Hana skipa nú Ár- mann Snævarr fyrrum hæstarétt- ardómari, Baldur Möller fyrrum ráðuneytisstjóri, Drífa Pálsdóttir deildarstjóri og Guðrún Erlends- dóttir hæstaréttardómari. Auk þeirra vann Auður Auðuns fyrr- um dómsmálaráðherra að samn- ingu frumvarpsins á fyrri stigum þess. Verði frumvarpið afgreitt sem lög á þessu þingi tekur það gildi 1. júlí í sumar. Eftir það gilda ný lög um öll hjónabönd í landinu svo það dugir ekkert að skjóta sér á bak við þau lagaákvæði sem giltu þegar gengið var í hjóna- band. Þó er sú undantekning þar á að beiðni um skilnað sem borin er fram fyrir gildistöku laganna skal meðhöndluð eftir eldri lög- um nema bæði hjón óski þess að nýju lögin gildi. -ÞH íslenskar sjávarafurðir hf.: Bæklingur um veiðarogvinnslu Upplýsingabæklingurinn Facts and figures er nú kominn út í annað sinn hjá íslenskum sjávar- afurðum. í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar varð- andi veiðar og vinnslu á 16 fisk- tegundum, á landsvísu annars vegar og fyrir íslenskar sjávaraf- urðir hf. hins vegar. Áftast í bæklingnum er auk þess að finna samantekt á útflutningi ÍS eftir tgegundum og mörkuðum. Upplýsingar um veiðar og vinnslu á landsvísu eru byggðar á upplýsingum frá Fiskifélagi íslands. Ætlunin er að endurnýja bæklingin árlega. Halldórsstefna: Alþjóðleg ráðstefna um ritstörf Haíldórs Laxness - í tilefni af níræðisafmæli hans 23. apríl nk. Stofnun Sigurðar Nordals gengst fyrir alþjóðlegri ráð- stefnu um ritstörf Halldórs Laxness í tilefni af níræðis- afmæli hans 23. apríl 1992. Ráðstefnan er haldin í tengsl- um við Listahátíð í Reykjavík og fer fram í Háskólabíói, sal 2, dagana 12. til 14. júní. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða Árni Sigurjónsson, Ástráð- ur Eysteinsson, Eysteinn Þor- valdsson, Gísli Pálsson, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, Guð- rún Nordal, Gunnar Kristjáns- son, Halldór Guðmundsson, Halldór E. Laxness, Helga Kress, Hubert Seelow, István Bernáth, José A. Fernández Romero, Peter Hallberg, Régis Boyer, Rory McTurk, Svetlana Nedeliajeva-Steponaviciene, Turið Sigurðardóttir og Véstein Ólason. Ráðstefnan hefst með sam- komu í Háskólabíói 12. júní, kl. 21. Þar tala Árni Bermann, Steinunn Sigurðardóttir og Peter Hallberg um skáldskap Halldórs og kynni sín af honum og lesið verður upp úr verkum hans og flutt tónlist í tengslum við þau. Ráðstefnan er öllum opin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.