Dagur - 22.04.1992, Side 7
Miðvikudagur 22. apríl 1992 - DAGUR - 7
Norðurlandamótið í júdó:
KA eignaðíst tvo Norðurlandameistara
- Freyr Gauti náði ólympíulágmarkinu
KA-menn náðu frábærum
árangri á Norðurlandamótinu í
júdó sem fram fór í Reykjavík
um helgina. KA átti 9 kepp-
endur á mótinu og hrepptu
þeir 8 verðlaun, 2 gull, 2 silfur
og 4 brons, eða helminginn af
öllum verðlaunum íslendinga á
mótinu. Freyr Gauti Sig-
mundsson og Vernharð Þor-
leifsson urðu báðir Norður-
landameistarar í flokki yngri
en 21 árs og Freyr Gauti
tryggði sér þátttökurétt á
Ólympíuleikunum í Barcelóna
í sumar, aðeins tvítugur að
aldri.
Freyr Gauti Sigmundsson
keppti í -78 kg flokki, sat hjá í
fyrstu umferð en sigraði síðan tvo
finnska keppendur og var þá
komin í úrslit. Þar mætti hann
mjög sterkum Finna sem náði að
skora og síðan að verjast hörðum
atlögum Freys Gauta og tryggja
sér þar með gullið. í flokki 21 árs
og yngri komst Freyr Gauti auð-
veldlega í úrslit þar sem hann
mætti mjög sterkum Norðmanni.
Úrslitaviðureignin varð hins veg-
ar stutt þar sem Freyr Gauti kast-
aði þeim norska með fallegasta
kasti mótsins og tryggði sér sigur-
inn. Þess má geta að erlendu far-
arstjórarnir voru svo hrifnir að
þeir flykktust að sjónvarpsmynda--
vélunum til að sjá kastið aftur.
Vernharð Þorleifsson keppti í
-95 kg flokki og tapaði í fyrstu
umferð fyrir Svía og þurfti dóm-
araúrskurð þar sem ekkert var
skorað í glímunni. Vernharð
fékk síðan uppreisnarglímur og
lagði þar glæsilega tvo Finna og
tryggði sér bronsverðlaunin.
Hann þurfti síðan ekki að hafa
mikið fyrir því að tryggja sér
Norðurlandameistaratitilinn í
flokki yngri en 21 árs. Þátttaka í
flokknum var slök og átti enginn
möguleika í Vernharð.
Guðlaugur Halldórsson keppti
í -86 kg flokki og komst í
undanúrslit en tapaði þar fyrir
Finna sem vann síðan flokkinn.
Guðlaugur tapaði síðan fyrir
Finna í úrslitaglímu um bronsið.
Jón Jakobsson, sem kepptií +95
kg flokki, tapaði fyrir Finna í
fyrstu umferð en tryggði sér síð-
an bronsverðlaun með því að
sigra íslenska og norska kepp-
endur.
Baldur Stefánsson keppti í -65
kg flokki. Hann komst í undan-
úrslit með því að sitja hjá í fyrstu
umferð, vinna íslending í annarri
og Finna í þriðju. í undanúrslit-
unum mætti hann Svía og börð-
ust þeir hart. Svíinn hafði betur á
endanum svo Baldur glímdi um
bronsið en tapaði þar fyrir Finna
og lenti í fjórða sæti. Baldur gekk
ekki heill til skógar og hefði verið
gaman að sjá til hans í góðu
formi.
Jón, Vernharð og Guðlaugur
kepptu allir í opna flokknum og
komst Jón í aðra umferð en
Vernharð og Guðlaugur mættust
í þriðju umferð og sigraði Vern-
harð eftir harðan slag. Vernharð
tapaði síðan fyrir Sigurði Berg-
mann á dómaraúrskurði í undan-
úrslitum en sigraði síðan sænskan
keppanda í glímu um bronsið.
Það var sami Svíinn og Vernharð
tapaði fyrir í -95 kg flokknum.
Guðlaugur tapaði fyrir Finna í
glímu um brons.
Ómar Árnason, Sævar Sigur-
steinsson og Rúnar Sæland
kepptu í -60 kg flokki 21 árs og
yngri og komust allir í undan-
úrslit. Sævar mætti þar Finna en
Ómar og Rúnar hvor öðrum. Það
fór síðan svo að Ómar glímdi til
úrslita við Finnann þar sem
reynsla Finnans gerði útslagið í
hörkuglímu en hann er fjórum
árum eldri en Ómar. Ómar hlaut
silfrið en Sævar sigraði Rúnar í
glímu um bronsið þannig að KA
átti þrjá af fjórum efstu mönnum
í flokknum.
Á mótinu bar hæst árangur
Bjarna Friðrikssonar sem vann
tvenn gullverðlaun, í -95 kg
flokki og opnum flokki.
Þorvaldur fékk loksíns tæki-
færi hjá Nottingham Forest
- en vill samt fara frá liðinu
Þorvaldur Örlygsson hefur
loksins hlotið náð fyrir aug-
um þjálfara og framkvæmda-
stjóra Nottingham Forest.
Hann hefur nú leikið þrjá
leiki á fáum dögum með lið-
inu, fyrst gegn Luton Town á
þriðjudaginn, síðan gegn
Aston Villa á laugardag og
loks gegn Manchester United
á mánudag. „Það er mjög
ánægjulegt að fá loksins tæki-
færi. Ég veit ekki hvort mað-
ur á að kalla þetta óvænt,
þetta er kannski óvænt miðað
við það sem á undan er geng-
ið en maður vonaði alltaf að
tækifærið gæfíst og fannst
maður eiga það skilið,“ sagði
Þorvaldur í samtali við Dag.
Þorvaldur spilaði með vara-
liði Forest á mánudaginn í síð-
ustu viku og stóð sig vel. Á
þriðjudaginn voru síðan gerðar
töluverðar breytingar á liði
Forest, m.a. vegna meiðsla og
ósigurs í úrslitaleik deildarbik-
arkeppninnar. Þorvaldur var
valinn í byrjunarlið og spilaði á
miðjunni í 2:1 ósigri gegn
Luton. Á laugardaginn sigraði
Forest Aston Villa 2:0 og enn
var Þorvaldur á miðjunni og á
mánudaginn var hann færður út
á vænginn og Kingsley Black
Þorvaldur Örlygsson.
datt út úr liðinu. Forest vann þá
óvæntan útisigur á toppliði
Manchester United, 2:1.
„Ég var nokkuð ánægður
með mína frammistöðu í fyrstu
tveimur leikjununt, sérstaklega
á móti Aston Villa þar sem ég
fékk að spila þá stöðu á miðj-
unni sem mér finnst skemmti-
legust og ég tel eiga best við
mig. Mér gekk hins vegar frekar
illa gegn United, var mjög þung-
ur í fyrri hálfleik en skánaði
mikið í seinni. Við spilum frest-
aðan leik gegn Liverpool á
morgun [í dag] og ég vona að ég
haldi sætinu enda ólíklegt að
gerðar verði breytingar eftir úti-
sigur á United. Eg hef hins veg-
ar lært að maður getur ekki
gengið að neinu vísu hérna,“
sagði Þorvaldur.
Samningur hans við Forest
rennur út í sumar en keppnis-
tímabilinu líkur í Englandi eftir
tæpar tvær vikur. „Það er
ómögulegt að segja hvað gerist
þá en ég er alveg ákveðinn í að
vera ekki áfram hjá Forest. Það
er auðvitað mjög gaman að
komast í liðið og getur orðið
mjög sterkt fyrir mig að vera
það í lok keppnistímabilsins
þegar samningurinn rennur út.
En eftir sl. tvö ár er ég búinn að
fá nóg og langar að komast
eitthvað annað. Ég get vel hugs-
að mér að vera áfram í Eng-
landi en tek ekki hverju sem er.
Það er ýmislegt í gangi, bæði
hér í Englandi og á meginland-
inu, en það er skammt á veg
komið og best að segja sem
minnst.“
Orðrómur hefur verið á
kreiki um að Þorvaldur hyggðist
korna heim í sumar spila með
KA en hann vildi ekki kannast
við að það væri rétt. „Ég hef
heyrt þetta en veit ekki hvaðan
þessar sögur koma. Ég er ekk-
ert farinn að hugsa út í neina
slíka möguleika, ég leyfi keppn-
istímabilinu að klárast og sé svo
til hvað býðst,“ sagði Þorvaldur
Örlygsson.
Freyr Gauti Sigmundsson hreppti gull- og silfurverðlaun og tryggði sér sæti
á ÓL í sumar.
Norræn tvíkeppni:
Ólafur meistari
Fyrir rúmri viku lauk Skíða-
móti íslands þegar fram fór
keppni í norrænni tvíkeppni,
stökki og göngu, í Ólafsfirði.
Sigurvegari varð Ólafur
Björnsson sem sigraði einnig í
greininni 1987. Ekki hefur ver-
ið keppt í norrænni tvíkeppni á
Landsmóti undanfarin þrjú ár.
Sex keppendur mættu til leiks,
allir frá Ólafsfirði. Þeirra á meðal
var gamla kempan Björn Þór
Ólafsson, faðir Ölafs, sem varð
íslandsmeistari í norrænni tví-
keppni 11 sinnum á 12 ára tíma-
bili, 1970-1981.
Ólafur hlaut alls 194 stig í
stökkinu en veitt eru stig íyrir
Ólafur Björnsson.
lengd og stfl. Hann stökk lengst
52 metra og var það langlengsta
stökk keppninnar. Randver Sig-
urðsson varð annar með 171 stig
og Sigurður Sigurgeirsson þriðji
með 157 stig.
í göngunni voru gengnir 10 km
eftir Gundesen aðferð og kom
Ólafur í mark rúmum 10 mínút-
um á undan Birni Þór og tæpum
12 mínútum á undan Sigurði Sig-
urgeirssyni.
Akureyri:
Andrésar andar
leikarnir settir
Andrésar andar leikurnir á
skíðum verða settir á Akur-
eyri í dag. Keppni hefst á
morgun.
Dagskráin í dag hefst með
skrúðgöngu frá Lundarskóla
kl. 20.30 og verður gengið nið-
ur í íþróttahöll. Áætlað er að
þangað verði komið kl. 20.55
og kl. 21 verður séra Hannes
Örn Blandon með andakt.
Vilhelm Örn Þorsteinsson set-
ur síðan leikana og Andrésar
andar eldurinn verður kveikt-
ur.
Keppni hefst í fyrramálið
kl. 10 með stórsvigi 7, 8 og 11
ára. Dagskrá leikanna verður
birt í blaðinu á morgun.