Dagur


Dagur - 22.04.1992, Qupperneq 16

Dagur - 22.04.1992, Qupperneq 16
DAGUR Akureyri, miðvikudagur 22. apríl 1992 heimsendingarþjónusta J7 JL JL alla daga Sunnudaga til fixxuxitudaga kl. 12.00-22.30 Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.30 Hadegistilboð alla daga Glerárgötu 20 • 26690 Akureyri og SigluQörður: Margir á skíðum um páskana Stopulli skíðavertíð er nú senn að Ijúka norðanlands. Fjöl- margir voru á skíðum í páska- leyfinu bæði í Hlíðarfjalli og Siglufjarðarskarði en með Andrésar andar leikunum sem nú eru að hefjast í Hlíðarfjalli má segja að botninn sé sleginn í tunnu skíðavertíðar enda snjórinn á undanhaldi, sá litli sem kom. „Við fengum ágæta daga eins og föstudaginn langa og páskadag. Þá var gott veður og margt fólk á skíðum. Það var færra hina dagana enda slæmt skyggni en við þurftum þó aldrei að loka vegna veðurs um þessa páska sem er fremur sjaldgæft," sagði ívar Sigmundsson, for- Akureyri: Innbrot í Viking Brugg og bjór stolið Lögreglunni á Akureyri var í gær tilkynnt um þrjú innbrot á Akureyri. í fyrsta lagi hafði verið brotist inn í útibú KEA að Brekkugötu 1, í öðru lagi Möðruvelli, raungreinahús MA og í þriðja lagi Viking Brugg. Að sögn Daníels Snorrasonar, rannsóknarlögreglumanns, eru öll þessi mál til rannsóknar. Engar verulegar skemmdir voru unnar á þessum þrem stöð- um og litlu stolið. Svo virðist sem þorstinn hafi „rekið“ viðkomandi inn í Viking Brugg, því þaðan var stolið ríf- lega einum kassa af bjór. óþh stöðumaður Skíðastaða í Hlíðar- fjalli. Hann sagði að dálítið hefði snjóað á laugardaginn og aðfara- nótt sunnudags og því var loks hægt að opna lyfturnar í Hjalla- braut og Hólabraut. Þar með komust yngstu börnin á skíði og kunnu vel að meta það. ívar sagði að snjóleysið hefði lamað skíðaáhuga Akureyringa en töluvert hefði verið af aðkomu- fólki í fjallinu. Hann bjóst við að skíðavertíðinni myndi ljúka fljót- lega eftir Andrésar andar leik- ana. „Þetta hefur verið stutt og dauf skíðavertíð en við huggum okkur við það að þetta getur tæplega orðið verra næsta vetur,“ sagði ívar. Kristján Möller, skíðafrömuð- ur á Siglufirði, sagði að margir hefðu verið á skíðum um pásk- ana og fólk væri orðið brúnt og sællegt eftir blíðuna á föstudag og sunnudag. „Það voru haldin nokkur mót og svo var líka mikill fjöldi í bænum. Fólk kom í fermingar- veislur á skírdag og var hérna yfir helgina og notaði þá tækifærið og skrapp á skíði. Svo má ekki gleyma skemmtuninni á Hótel Höfn, sem vonandi er orðin árviss, en þar var Fílapenslakór- inn með heilmikla skemmtun og það var fullt hús á öllum sýning- um,“ sagði Kristján. Hann sagði að snjórinn hefði verið í minnsta lagi en þó nægur á efra svæðinu. Um skíðavertíðina í vetur sagði Kristján að hún hefði verið heldur dauf, enda kom snjórinn seint. Siglfirðingar ætla að fjölmenna á Andrés önd, þangað fara 80-90 börn, og sagði Kristján að skíðavertíðinni myndi væntanlega Ijúka með þessu móti. SS Þessi makindalegi þröstur horfir til sumarsins með eftirvæntingu. Að baki er einn mildasti vetur þessarar aldar. Mynd: Goiii Búðaþjófur handtekinn á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók sl. miövikudag tvítugan pilt sem staðinn var aö hnupli í Hagkaup á Akureyri. Við yfir- heyrslu kom í Ijós að hann hafði áður hnuplað ýmsu í verslunum á Akureyri. Pilturinn hafði stolið tösku í Hagkaup og fyllt hana af ýmsum vörum að andvirði um 30 þúsund krónur. Starfsfólk Hagkaups gerði lögreglunni viðvart sem síð- an handtók piltinn. Við yfir- heyrslu viðurkenndi hann að hafa daginn áður einnig stolið vörum í Hagkaup. Auk þess fann lögregl- an í fórum hans fatnað, sem hann viðurkenndi að hafa stolið í Vöruhúsi KEA. í það heila mun pilturinn hafa stólið vörum að andvirði nálægt 100 þúsund krónum. óþh ^Skil a staðgreiðslu tekjuskatts og útsvars 1988 til 1991: Ólafsfírðingar með 99,8% skil Á árunum 1988-1991 voru Olafsfirðingar skilvísastir á staðgreiðslu tekjuskatts og útsvars á Norðurlandi sam- kvæmt upplýsingum fjármála- ráðuneytisins. Skil á stað- greiðslu hjá bæjarfógetaem- bættinu í Ólafsfirði námu samtals 99,8% þessi þrjú ár. Lökust var innheimtan 92,6% hjá bæjarfógetaembættinu á Siglufirði. Þessar upplýsingar komu fram í svari fjármálaráðherra við fyrir- spurn Kristins H. Gunnarssonar, alþingismanns, um vanskil á stað- greiðslu tekjuskatts og útsvars. í svari ráðherra kemur fram að á árunum 1988 til 1991 hafi skil á tekjuskatti og útsvari verið nær 100%, eða 99,8%, hjá bæjar- fógetanum í Ólafsfirði. Fast á hæla Ólafsfirðinga kemur sýslu- maðurinn í Skagafjarðarsýslu með 99,5% skil, síðan bæjarfóget- inn á Akureyri og Dalvík með 98,7%, sýslumaðurinn í Þingeyj- arsýslu með 97,2%, sýslumaður- inn í Húnavatnssýslu með 96,9% og bæjarfógetinn á Siglufirði rek- ur lestina með 92,6%. í svari fjármálaráðherra segir að eins og tölurnar beri með sér verði að telja ástand innheimtu staðgreiðslu viðunandi og verði ekki séð að innheimta hafi slakn- að í tímans rás. „Ekki er vafi á að góð staða í þessum efnum er m.a. afleiðing þess að innheimtu- úrræði eru virk, heimildir eru til álaga vegna vanrækslu á skilum og til lokunar sé greiðsluskyldu ekki sinnt. Þá er einnig að nefna að staðgreiðslukerfið er einfalt að gerð og þess hefur verið gætt að halda kröfum um gögn sem launagreiðendur þurfa að skila í lágmarki og einföldum í vinnslu,“ segir m.a. í svari fjármálaráð- herra. óþh Norðurland vestra: Róleg Bifreiðaverkstæðið Múlatindur í Ólafsfirði: Framleiðsla á slökkvibflum hafin - fyrsti bíllinn afhentur Ólafsíjarðarbæ í haust Sigurjón Magnússon við fyrsta slökkvibílinn sem Múlatindur smíðar. I yfirbyggingunni á bílnum er öflug háþrýstidæla og 900 lítra léttvatns- tankur auk búnaðar og aðstöðu fyrir slökkviliðsmenn. Rennihurðir eru á báðum hliðum bílsins og hönnun miðuð við að hægt sé að hefja slökkvi- starf strax og bíllinn er kominn á brunastað. Mynd:JÓH Bifreiðaverkstæðið Múla- tindur í Ólafsfirði hefur hafið framleiðslu á slökkvibflum. Ekki er þetta þó smíði bfl- anna frá grunni heldur byggir hugmyndin á smíði yfir ameríska pallbfla. í yfirbygg- ingunni er komið fyrir há- þrýstidælu, 900 lítra létt- vatnstank og ýmsum búnaði sem nauðsynlegur er við fyrstu aðgerðir á brunastað en bíllinn er einmitt hannað- ur með það fyrir augum að vera fyrsta hjálp á brunastað enda er það viðurkennt að tíminn við slíkar aðstæður skiptir öllu máli. Hönnuðir og smiðir bílsins eru feðgarnir Sigurjón Magnús- son og Magnús Sigursteinsson, eigendur Múlatinds en þess má geta að þeir og aðrir starfsmenn verkstæðisins eru í slökkviliði Ólafsfjarðar og þekkja því glöggt til þessara mála. Byrjað var að huga. að þessu verkefni um síðustu áramót og var keyptur amerískur pallbíll til að smíða yfir. Þegar smíðin var komin áleiðis var bíllinn boðinn Ólafsfjarðarbæ til kaups og verður hann afhentur í vor. Sigurjón segir að bíll af þess- ari stærð henti fyrst og fremst| minni sveitarfélögum afar vel. Mörg þeirra eigi gamla slökkvi- bíla fyrir en vanti minni bíla til að nota jafnframt. Fyrir minnstu sveitarfélögin geti bíll- inn þjónað fullkomlega einn og sér. Aðspurður um verð segir Sig- urjón að með öllu, þ.e. þegar bílverð er méðtálfð, getí til- búinn bíll kostað um 5 milljónir króna en kaupendur geti valið hvort þeir leggi sjálfir til bíl eða láti verkstæðinu eftir að útvega hann. Eins og áður segir verður fyrsti bíllinn seldur Ölafsfjarð- arbæ en ætlunin er að byrja fljótlega á næsta bíl enda segist Sigurjón ekki í vafa um að eftir- spurn verði eftir þessum bílum þar sem mörg sveitarfélög hafi þörf fyrir bíl af þessu tagi og lausnin sé fjárhagslega hagstæð fyrir þau. Aöspurður um smfða- tíma segir Sigurjón að búnaður- inn sé tilbúinn til afhendingar 2- 3 mánuðum eftir pöntun. JÓH páskahelgi Lögreglumenn á Norðurlandi vestra sögðu í samtali við Dag í gær að páskahelgin hefði verið með rólegasta móti. Þeir sögð- ust vita um tvær bflveltur og nokkur rúðubrot, auk þess sem nokkrir voru teknir fyrir of hraðan akstur Að sögn lögreglunnar á Sauð- árkróki gekk lífið sinn vanagang um hátíðarnar og þurfti lítið að hafa afskipti af fólki. Nokkrar rúður voru þó brotnar í bænum og krotað á veggi, en annað ekki. Vitað er um tvær bílveltur á Norðurlandi vestra um helgina. Önnur varð inni í Vesturdal í Skagafirði, en þar valt jeppa- bifreið niður í gil án þess að öku- maður slasaðist alvarlega. í Víði- dal í Húnaþingi lenti síðan bíll út af og valt, en ökumaður þeirrar bifreiðar slapp einnig með skrekkinn. Lögreglan í Húnavatnssýslum var við hraðamælingar um helg- ina og voru 45 ökumenn teknir, frá miðvikudegi til sunnudags, á of mikilli ferð. Sá sem hraðast ók var á 135 km/klst og að sögn lög- reglu lá mönnum greinilega meira á að komast í páskafríið en úr því, vegna þess að flestir voru teknir á miðvikudegi og fimmtu- degi. SBG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.