Dagur - 01.05.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 1. maí 1992
Fréttir
Blöðruselsplágan á Skjálfandaflóa:
„Verðum að veita viðnám“
,Við Grímsey og á Skjálfanda
er blöðruselurinn aðgangs-
harðastur um mánaðamótin
ágúst/september. Þá er selur-
inn búinn að vera á ísnum þar
sem hann gengur úr hárum. A
haustin er hann magur en ekki
nú,“ segir Þórður Pétursson,
veiðimaðurinn kunni frá Húsa-
vík.
Sem lesendum Dags er kunnugt
er mikið um blöðrusel á Skjálf-
Félag fertugra
á Skagaströnd:
Hvorld hlutafé
né samvinnufé
ag
ag
Félag fertugra á Skagaströnd
var stofnað 26. apríl sl. í sam-
þykktum félagsins segir m.a.
að tilgangur þess sé að gera líf-
ið skemmtilegra og stuðla að
því að fólki sé Ijóst að það sé líf
eftir fertugt.
Samþykktir félagsins kveða á
um að þeir einir séu félagar sem
verða fertugir ár hvert og ganga
þeir sjálfkrafa í félagið á áramót-
um og úr því um næstu áramót á
eftir. Magnús B. Jónsson, sveit-
arstjóri á Skagaströnd, er einn af
stofnendum félagsins og segir
hann að á stofnfundinn hafi mætt
tíu manns, en þrettán séu skráðir
í félagið samkvæmt þjóðskrá,
jafnt karlar sem konur.
Að sögn Magnúsar er engin
stjórn í félagi þessu og fundum
stjórnar sá sem er háværastur og
frekastur. Hann segir að það
sé helst á stefnuskránni að fara í
sumar til Hríseyjar og gera
eitthvað skemmtilegt.
Samþykktir félagsins eru mjög
athyglisverðar og rétt er að gefa
lesendum smá sýnishorn af þeim:
„1. grein. Félagið er hvorki
hlutafélag né samvinnufélag og
nafn þess er Félag fertugra á
Skagaströnd.“
„4. grein. í félaginu eru þeir
einir félagar sem verða fertugir ár
hvert og ganga þeir sjálfkrafa í
félagið á áramótum og úr því um
næstu áramót. Þar sem þessi
grein er skýlaust brot á mannrétt-
indum skal öllum málum sem
upp kunna að koma varðandi
þessa grein, vísað til Mannrétt-
indadómstólsins í Haag.
5. grein. Enginn félagi ber
ábyrgð á félaginu og getur því
enginn skuldbundið félagið og
félagið ekki skuldbundið neinn.
Sömuleiðis bera félagar ekki
ábyrgð hver á öðrum, nema um
hjón sé að ræða.“ SBG
Bridds
andaflóa á fyrstu dögum sumars.
Sjómenn hafa kvartað undan
ágangi skepnunnar því hún er
mikill skaðvaldur og eyðileggur
fiskinn í netum. Þórður segir að
blöðruselurinn sjúgi aðeins lifr-
ina úr netafiskinum ólíkt því sem
aðrar selategundir gera. Landsel-
urinn og Breiðfirðingurinn klippa
t.d. fiskinn um haus þannig að
hausinn er aðeins eftir í möskv-
anum.
„Blöðruselurinn kemur frá
Grænlandi upp að Grímsey og
síðan inn á Skjálfandaflóa. Þann-
ig fylgir hann vorgöngum þorsks
frá Grænlandi. Fiskur hefur verið
illa bitinn við Grímsey að undan-
förnu sem og á miðum sjómanna
frá Húsavík. Mest hefur orðið
vart við selinn á Flateyjarsundi
og Hraunshorni. í fyrra var mikið
um blöðrusel við Lundey og hans
hefur orðið vart þar nú. Selurinn
heldur sig mest á djúpu vatni þ.e.
70 til 90 föðmum, en nú höfum
við orðið hans varir á grunnu
vatni þ.e. allt að fimm föðmum.
Norðaustur af Lundey er karfi og
þar höfum við séð blöðruseli
koma upp með karfa. Einnig höf-
um við séð fiska í yfirborðinu
sem eru lifandi en lifrarsognir.
Nei, blöðruselurinn er ekki á eft-
ir laxi því stórlaxinn byrjar ekki
að ganga í Laxá fyrr en um 20.
maí. Strax og brælan gengur nið-
ur fer ég út til að veiða blöðrusel.
Við verðum að veita viðnám og
drepa þennan ófögnuð sem rænir
sjómenn lífsbjörginni,“ sagði
Þórður Pétursson. ój
Bernharð Haraldsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, notaði stórvirk áhöld við að sneiða niður tertu
sem útskriftarnemar skólans færðu starfsfólki í gærmorgun. Nemendurnir dimiteruðu í gær en setjast nú niður við
lcstur skólabóka fyrir lokaáfangann. Mynd: Coiii
Kísiliðjan hf.:
„Efst í huga að verksmiðjimm
verði tryggt viðunandi námaleyfi“
- sagði Róbert B. Agnarsson, eftir aðalfnndinn
„Orsakir þessa eru í fyrsta lagi
almenn lægð í efnahagslífi í
heiminum en á síðasta ári mun
sala kísilgúrs hafa minnkað um
Aðalfundur Starfsmannafélags Akureyrarbæjar:
Vextir af lánum Líf-
eyrissjóðs STAK verði
lækkaðir í 5,5%
Á aðalfundi Starfsmannafélags
Akureyrarbæjar sl. þriðju-
dagskvöld var samþykkt til-
laga, sem Jóhanna Júlíusdóttir
og Snælaugur Stefánsson lögðu
fram fyrír hönd stjórnar
STAK, þar sem samþykkt var
að skora á stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna Akureyrarbæjar
„að lækka nú þegar vexti af
lánum sjóðsins niður í 5,5% til
samræmingar við Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins.“
í tillögunni segir að aðalfund-
urinn telji það „vera mikla hags-
Sveitakeppni UMSE og HSÞ í bridds:
UMSE vaun annað árið í röð
Hin árlega sveitakeppni í
bridds milli UMSE og HSÞ fór
fram að Hrafnagili fyrir
skömmu, í umsjá UMSE. Eftir
mjög tvísýna og skemmtilega
keppni fóru leikar svo að
UMSE sigraði, hlaut 140 stig á
móti 125 stigum HSÞ-manna.
Keppt er um bikar sem Fóður-
vörudeild KEA gaf og vann
UMSE hann nú annað árið í röð.
Það lið sem fyrr vinnur bikarinn
þrjú ár í röð eða fimm sinnum
alls, vinnur hann til eignar.
Tvímenningsmót UMSE 1991
sem fram átti að fara sl. haust,
var haldið í Víkurröst á Dalvík
sl. sunnudag. Þátttaka var nokk-
uð góð en alls mættu 18 pör til
leiks. Keppnin var jöfn og æsi-
spennandi og einungis munaði 10
stigum á parinu í fyrsta sæti og
parinu í áttunda sæti og tveimur
stigum á parinu í fyrsta sæti og
parinu í þriðja sæti.
Svo fór þó að lokum að Vík-
ingur Guðmundsson og Ólafur
Björnsson fögnuðu sigri með 161
stig. Hákon Stefánsson og Stefán
Jónsson urðu í öðru sæti með 160
stig og Reimar Sigurpálsson og
Ófeigur Jóhannesson í því þriðja
með 159 stig. í næstu sætum
komu eftirtalin pör:
4. Gísli Pálsson)
Árni Arnsteinsson 155
5. Gylfi Pálsson/
Helgi Steinsson 154
6. Kristján Þorsteinsson/
Trausti Þórisson 154
7. Jón A. Jónsson/
Ólafur Árnason 152
8. Eiríkur Helgason/
Jóhannes Jónsson 151
-KK
muni fyrir félagsmenn í STAK að
vextir skuli lækkaðir og bendir á
að ein aðal forsenda við gerð
nýrra kjarasamninga, hafi ein-
mitt verið vaxtalækkun."
Meirihluti stjórnar Lífeyris-
sjóðs starfsmanna Akureyrarbæj-
ar samþykkti undir lok síðasta
árs að hækka vexti á lánum sjóðs-
ins úr 5,5% í 6,5%. Samþykkt
aðalfundar STAK kveður því á
um að ná þeirri hækkun til baka.
í stjórn Lífeyrissjóðs STAK
eru tveir fulltrúar Akureyrarbæj-
ar, Heimir Ingimarsson og Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir auk Hall-
dórs Jónssonar, bæjarstjóra, og
Erlingur Aðalsteinsson og Gunn-
laugur Búi Sveinsson eru fulltrú-
ar Starfsmannafélags Akureyrar-
bæjar. óþh
Tónleikar á
Sauðárkróki
Tónleikar til styrktar Stórsveit
Tónlistarskóla Sauðárkróks,
sem er á förum tU Danmerkur
um miðjan mánuðinn, verða í
dag, 1. maí, í húsnæði skólans
og hefjast kl. 15.30. Nemendur
og kennarar munu leika létt
lög og Sigurdríf Jónatansdóttir
syngja einsöng, auk þess sem
kaffihlaðborð verður á
staðnum.
Við sama tækifæri mun Búnað-
arbankinn á Sauðárkróki
afhenda Tónlistarskólanum gjöf
og er þar um að ræða íslenska
fiðlu, smíðaða af Kristni Sigur-
geirssyni. SBG
10% í heildina, og það eykur
samkeppnina. Síðan má nefna
gengismálin. Við erum útflutn-
ingsfyrirtæki og flytjum út
99,9% framleiðslunnar og selj-
um allt okkar efni í Evrópu-
myntum sem lækkuðu um
1,5% milli ára. Meðan verð-
bólgan er þetta um 7% milli
ára þá kemur kostnaðarauki á
fyrirtækið sem ekki er bættur í
tekjum þess,“ sagði Róbert B.
Agnarsson, framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar hf., aðspurður
um orsakir átta milljóna króna
taps á rekstri fyrirtækisins í
fyrra. En Kísiliðjan var rekin
með hagnaði mörg árin þar á
undan.
Á aðalfundinum var ákveðið
að greiða út arð, 10% af nafn-
verði hlutafjár. Kísiliðjan var 25
ára 13. ágúst í fyrrasumar. Af því
tilefni voru gefnar þrjár milljónir
króna til skólabyggingar í
Mývatnssveit og 300 þúsund
krónur til skógræktar í sveitinni.
„Þó nú sé ekki tími til að vera
gjafmildur, þá koma tímar og
koma ráð, og þetta breytist allt til
batnaðar,“ sagði Róbert.
Róbert lætur af störfum fram-
kvæmdastjóra nú um mánaða-
mótin og var hann spurður hvaða
málefni Kísiliðjunnar honum
væru efst í huga á þeim tímamót-
um: „Mér er það efst í huga að
sem fyrst verði gengið frá því að
tryggja framtíð fyrirtækisins með
því að verksmiðjunni verði tryggt
viðunandi námaleyfi sem er
grunnur fyrirtækisins. Ég er mjög
vongóður um að það verði gert
fyrr en seinna. Sjálfur er ég mjög
bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins,
það er bæði þjóðhagslega hag-
kvæmt og hagkvæmt fyrir hérað-
ið. Já, ég kveð hérna með sökn-
uði.“ IM
Flugmálastjórn:
Tímamót í sögu alþjóða-
flugþjónustu á íslandi
I gær, 30. apríl 1992, voru 45
ár liðin frá því að samstarf
íslands og Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar um þjónustu
við alþjóðaflug á Norður-
Atlantshafí hófst. Samstarfíð
hófst er undirritaður var samn-
ingur um rekstur Loran stöðv-
ar í Vík í Mýrdal, sem Banda-
menn reistu á stríðsárunum.
„ísland býr enn í dag að þessu
samstarfi um alþjóðaflug, sem
hefur aukist og margfaldast með
árunum og sjá má á því að 1947
fóru um 5500 alþjóðleg flug um
íslenska flugstjómarsvæðið, sem
þá var um 1 milljón km2 að
stærð. Fjömtíu og fimm árum
síðar fara um 70 þúsund alþjóð-
leg flug um íslenska flugstjómar-
svæðið, sem nú er um fimm sinn-
um stærra en það upphaflega,"
segir f fréttatilkynningu frá flug-
málastjóra.
Fram kemur að hagnaður af
þessu samstarfi hafi einkum verið
tvíþættur, þ.e. gjaldeyristekjur
sem námu 600 milljónum króna á
síðasta ári og innlend tækniþekk-
ing, en sá þáttur er ómetanlegur
m.a. fyrir Háskóla íslands.
Á þessu ári verður tekinn í
notkun háþróaður tölvubúnaður
og í byggingu er flugstjórnarmið-
stöð fyrir Alþjóðaflugþjónust-
una. Verðmæti þessara fram-
kvæmda er um 1400 milljónir
króna. SS
STAK:
Jóhanna gaf
ekki kost á sér
Vegna fréttar í Degi í gær um
stjórnarkjör í Starfsmannafélagi
Akureyrarbæjar skal að gefnu
tilefni tekið fram að Jóhanna
Júlíusdóttir, fráfarandi formaður
STAK, gaf ekki kost á sér til
endurkjörs og á aðalfundi félags-
ins sl. þriðjudagskvöld voru
henni þökkuð með lófaklappi
giftusöm störf í þágu þess. óþh