Dagur - 01.05.1992, Qupperneq 5
Föstudagur 1. maí 1992 - DAGUR - 5
Hvaðeraðgerast
Kirkjukór Akraness
með tónleika
- á Akureyri og í Hrísey
Kirkjukór Akraness heimsækir
Eyjafjörð helgina 1. til 3. maí.
Kórinn heldur tónleika í Akur-
eyrarkirkju í kvöld, föstudaginn
I. maí, kl. 20.30 og Hríseyjar-
kirkju laugardaginn 2. maí kl.
17.30. í>á syngur kórinn við guðs-
þjónustu í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 3. maí kl. 14 þar
sem Björn Jónsson, sóknarprest-
ur á Akranesi, predikar.
Á efnisskrá kórsins í þessari
söngferð er „Requiem" Op. 48
og „Cantique De Jean Racine"
Op. 11 eftir Gabriel Fauré.
Einsöngvarar á tónleikunum í
Akureyrarkirkju 1. maí verða
Margrét Bóasdóttir, sópran, og
Halldór Vilhelmsson, bassi.
Orgelleikari verður Marteinn
Hunger Friðriksson, dómorgan-
isti. Einnig syngur Margrét Bóas-
dóttir aríu og sönglög eftir
J. S. Bach við undirleik Marteins
H. Friðrikssonar.
Einsöngvarar á tónleikunum í
Hríseyjarkirkju 2. maí verða Sól-
veig Hjálmarsdóttir, sópran, og
Halldór Vilhelmsson, bassi.
Akureyri:
NemendurGlerár-
skóla bjóða
upp á bflaþvott
Nemendur í 10. bekk Glerár-
skóla bjóða upp á athyglisverða
þjónustu nk. sunnudag, 2. maí,
við Glerárskóla frá kl. 14 til 18.
Til fjáröflunar fyrir ferðasjóð
nemenda ætla þeir að þvo og
bóna bíla fyrir fólk gegn 2000
króna greiðslu. Ef bílinn er ryk-
sugaður og þrifinn að innan
greiðast aukalega 500 krónur.
Innifalið í verðinu er kaffi og
kökur. Kennarar Glerárskóla
hafa umsjón og eftirlit með verk-
inu.
Dropinn
Tríóið 3 plús Jazz leikur á veit-
ingastaðnum Dropanum annað
kvöld, laugardagskvöld, og á
sunnudagskvöldið. Þessir sveiflu-
kóngar hafa að undanförnu getið
sér gott orð á veitingastöðum
höfuðborgarinnar.
Annað kvöld verður rokkaður
jazz í hávegum hafður, en á
sunnudagskvöld verður boðið
upp á jazztónleika eins og þeir
gerast bestir. Frítt verður inn
annað kvöld kl. 11-03 en á sunnu-
dagskvöld kostar aðgöngumiðinn
kr. 600 kl. 10 til 01.
1929
í kvöld, 1. maí, verður danssýn-
ing í skemmtistaðnum 1929 á
Akureyri sem nefnist „Back to
the Musik“. Valið verður „Blind
Date“ kvöldsins. Annað kvöld,
laugardagskvöld, verður undir-
fatasýning frá Ynju og ilmvatns-
kynning frá Vörusölunni.
Hótel KEA
Hljómsveitin Herramenn frá
Sauðárkróki sér um fjörið á
Hótel KEA á Akureyri annað
kvöld, laugardagskvöld.
Hótel KEA minnir á leikhús-
matseðil á kr. 1940 í kvöld og
2400 krónur annað kvöld og er
dansleikur þá innifalinn.
Undirleikari verður Juliet
Faulkner.
Söngstjóri Kirkjukórs Akra-
ness er Jón Ólafur Sigurðsson og
formaður Ingimar Magnússon.
Tónlistarskólinn
á Akureyri:
Vortónleikar
forskóladeildar
Vortónleikar forskóladeildar
Tónlistarskólans á Akureyri
verða í dag, föstudaginn 1. maí,
kl. 14. Nemendur flytja fjöl-
breytta efnisskrá.
Allir eru velkomnir og er
aðgangur ókeypis.
Vortónleikar
strengjadeildar
Vortónleikar strengjadeildar
(efri stig) verða á sal Mennta-
skólans á Akureyri í dag, föstu-
daginn 1. maí, kl. 17. Nemendur
á strengjahljóðfæri flytja fjöl-
breytta efnisskrá við undirleik
Richard Simm og Guðnýjar Erlu
Guðmundsdóttur.
Allir eru velkomnir og er
aðgangur ókeypis.
Röst með
aðalfund á
Hrafnagili
Röst, samtök um eflingu land-
búnaðar og byggðar í landinu,
boða til aðalfundar samtakanna
að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit
nk. sunnudag, 3. maí, kl. 10
árdegis.
Á fundinum kynnir próf. Sigurð-
ur Líndal ritgerð sína um fram-
leiðslustjórnun í landbúnaði,
Gunnar Páll Ingólfsson, kjötiðn-
aðarmeistari, fjallar um vöru-
þróun - markaðs- og sölumál
búvara og Sigfús B. Jónsson,
framkvæmdastjóri Ferskra
afurða á Hvammstanga, fjallar
um sjóðakerfi landbúnaðarins.
Akureyri:
Hefðbundin
dagskrá
á 1. maí
Verkalýðsfélögin á Akureyri
gangast að vanda fyrir 1. maí
hátíðarhöldum á Akureyri í dag.
Klukkan 13.45 safnast fólk sam-
an við Alþýðuhúsið og fimmtán
mínútum síðar verður lagt upp í
kröfugöngu. Hátíðarsamkoma
hefst að kröfugöngunni lokinni á
fjórðu hæð Alþýðuhússins. Þar
flytur Ármann Helgason, for-
maður 1. maí nefndar, ávarp
hennar. Flutt verður aðalræða
dagsins og boðið verður upp á
fjölbreytt skemmtiatriði. Þá
verður kaffihlaðborð í boði 1.
maí nefndar verkalýðsfélaganna.
Boðið verður upp á barna-
gæslu í hliðarsal þar sem verða
leikföng og aðstaða til að lita og
teikna. Einnig verða sýndar þar
vel valdar teiknimyndir.
Um kvöldið, kl. 23, verður
verkalýðsball í Alþýðuhúsinu og
leikur hljómsveitin Namm fyrir
dansi.
Leikfélag
Akureyrar
Nú fer sýningum á Íslandsklukk-
unni hjá Leikfélagi Akureyrar að
fækka. Um þessi helgi, sem er
áætluð næstsíðasta sýningarheigi,
verða tvær sýningar. Sýningar
verða í kvöld, föstudaginn 1.
maí, kl. 20.30 og annað kvöld,
laugardagskvöld á sama tíma.
Akureyri:
Dansleíkur
Féiags
harmoniku-
unnenda
Félag harmonikuunnenda við
Eyjafjörð stendur fyrir dansleik í
Lóni við Hrísalund á Akureyri
annað kvöld, laugardaginn 2.
maí, kl. 22-03. Allir eru vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Borgarbíó
Borgarbíó sýnir um helgina kl. 21
myndirnar Deceived og Other
peoples money. Klukkan 23
verða sýndar myndirnar Bilun í
beinni útsendingu og Föður-
hefnd.
Á barnasýningum nk. sunnu-
dag kl. 15 verða sýndar myndirn-
ar Hundar fara til himna og
Lukku-Láki.
Freyvangs-
lcikhúsið
Um helgina verður Freyvangs-
leikhúsið með síðustu sýningar á
hinni vinsælu rokkóperu Messíasi
Mannssyni. Sýningar verða í
kvöld, föstudagskvöldið 1. maí,
kl. 20.30 og á sama tíma annað
kvöld, laugardagskvöldið 2. maí.
Upplýsingar eru gefnar í síma
31196.
Laugamarkaður
á laugardag
Frjálsíþróttaráð HSÞ stendur fyr-
ir Laugamarkaði, sem eitthvað
verður í líkingu við Kolaportið,
laugardaginn 2. maí kl. 14-18 í
íþróttahöllinni á Laugum.
Einstaklingar, félög og fyrir-
tæki geta leigt sér söluborð gegn
vægu verði og selt framleiðslu
sína, gamlar vörur eða hvað ann-
að sem mönnum dettur í hug.
Frjálsíþróttaráð mun selja veit-
ingar og einnig verður eitthvað
léttmeti á boðstólnum. Aðstand-
endur vona að þessi nýbreyttni
mælist vel fyrir í héraði.
Áhugahópur um brjóstagjöf:
Opið hús í
Amarohúsinu
Priðjudaginn 5. maí verður opið
hús fyrir mömmur sem hafa
áhuga á brjóstagjöf. Þar geta þær
hitt aðrar „brjóstamömmur“ og
spjallað saman um allt sem teng-
ist brjóstagjöf.
Reyndari mæður geta veitt
stuðning og ráð sem og hjúkrun-
SjaUinn
Hljómsveitin Suðusveitin ásamt
Björgvini Halldórssyni leikur fyr-
ir dansi í kvöld, föstudagskvöldið
1. maí, og annað kvöld, laugar-
dagskvöld. í hljómsveitinni er
valinn maður í hverju rúmi.
Björgvin leikur á kassagítar og
syngur, Magnús Kjartansson
leikur á hljómborð, Finnbogi
Kjartansson á bassa, Vilhjálmur
Guðjónsson á gítar og Ásgeir
Óskarsson á trommur, en þrír
síðasttöldu hafa í vetur leikið í
þætti Hemma Gunn, Á tali.
Skákfélag Akureyrar:
Amaro-
hraðskákmót
Sunnudaginn 3. maí næstkom-
andi kl. 14 hefst síðasta stórmót
Skákféiags Akureyrar á þessari
skákvertíð. Þetta er hraðskák-
mót þar sem keppt er um Amaro-
bikarinn og er mótið árlegur við-
burður í starfi félagsins.
Núverandi handhafi Amaro-
bikarsins er Rúnar Sigurpálsson
og hann verður meðal keppenda
á sunnudaginn.
Þótt skákvertíðinni sé að ljúka
mun Skákfélag Akureyrar halda
úti einhverri starfsemi í sumar.
arfræðingur frá ungbarnaeftirlit-
inu. Einnig er von á fyrirlestrum
og fræðslu um efnið. Að þessu
opna húsi standa fimm áhuga-
samar mæður með börn á brjósti.
Þær eru í þann veginn að stofna
áhugafélag um brjóstagjöf og
vöxt og þroska barna.
Þetta félag tengist opna húsinu
en á eftir að þróast. Því eru allar
mæður velkomnar að taka þátt í
uppbyggingu nýja félagsins.
Opna húsið verður í húsnæði
mæðraeftirlitsins í Amaróhúsinu
Hafnarstræti 99 á Akureyri 4.
hæð og verður framvegis á hálfs
mánaðar fresti.
Vímuvamardagur
Iions á morgun
Lionshreyfingin á íslandi heldur
sinn árlega vímuvarnardag í sjö-
unda sinn laugardaginn 2. maí.
Þá munu Lions-, Lionessu- og
Leófélagar um land allt ganga í
hús og selja túlipana til styrktar
unglingastarfsemi í landinu. Auk
þess rennur hluti peninganna í
sérstakan vímuvarnarsjóð hreyf-
ingarinnar, sem er sérstakur
styrktarsjóður fyrir kennsluverk-
efnið Lions Quest.
Markmiðið með vímuefna-
varnardeginum er að kynna
vímuvarnarstarf hreyfingarinnar
og verkefnið Lions Quest, Að ná
tökum á tilverunni. Þeir túlipan-
ar sem seldir verða hafa allir ver-
ið ræktaðir hér á landi sérstak-
lega fyrir þennan dag.
Sjá einnig „Hvað er að
gerast“ á bls. 8.
Áburðarflutningar
Tökum að okkur áburðarflutning
★ Ódýr og góð þjónusta
Vörubílstjórafélagið Valur
(Stefnir)
Öseyri 2 a, Akureyri, sími 22620.
A D H 'O JL A VA 7 NI
FORELDRAR! FORELDRAR!
Innritun er hafin
í sumarbúðirnar Hólavatni
Dvalarflokkar sumarsins fyrir börn 8 ára og eldri verða:
Drengir 6. júní -16. júní
Drengir 19. júní - 26. júní
Stúlkur 27. júní- 7. júlí
Stúlkur 9. júlí-16. júlí
Stúlkur 17. júlí - 24. júlí
10 dagar verð kr. 17.900
7 dagar verð kr. 12.500
10 dagar verð kr. 17.900
7dagar verð kr. 12.500
7dagar verð kr. 12.500
Innritun fer fram í félagsheimili KFUM og K, Sunnuhlíð 12, mánu-
daga og miðvikudaga kl. 17-18 í síma 26330 og utan skrifstofutíma
í síma 23929 hjá önnu og 23939 hjá Hönnu sem einnig veita allar
nánari upplýsingar.
SUMARBÚÐIRNAR HÓLAVATNI.