Dagur - 01.05.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 1. maí 1992
l.maí
L
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
útibúið Akureyri
Brekkuafgreiðsla
sendir starfsfólki sínu og
landsmönnum öllum kveðjur
á baráttudegi verkafólks 1. maí
1. tnaí
TÖEVUTÆKI
BÓXVAL
sendir starfsfólki sínu og
verkafólki um land allt
bestu kveðjur í tilefni dagsins
—1* maí------------------
Sendum baráttukveðjur til
sjómanna og verkafólks í
tilefni dagsins
Útgerðarfélag Akureyringa
l.maí
Sparisjóður Þórshafnar
og nágrennis
sendir starfsfólki sínu
og verkafólki um land allt
bestu kveðjur í tilefni dagsins
Hvað er að gerast?
Hanne Juul og fleiri góðir á
vísnatónleikum um helgina
Vísnadagar verða haldnir 2. og 3.
maí samtímis í Reykjavík, Akur-
eyri, Egilsstöðum og ísafirði. Um
skipulagningu vísnadaganna sjá
Vísnavinir, Norræna húsið og
Norræna félagið. Tvennir tón-
leikar verða haldnir á Akureyri.
Norrænir vísnadagar 1992 eru
haldnir í samvinnu Norræna
hússins í Reykjavík, Norrænu
félaganna á ísíandi og Tónlistar-
félagsins Vísnavina.
Fyrri tónleikarnir verða haldn-
ir á morgun, 2. maí, kl. 16 í
Gamla Lundi. Par koma fram
Hanus G. Johansen frá Færeyj-
um, Jannika Hággerström frá
Finnlandi og Tjarnarkvartettinn
frá Tjörn í Svarfaðardal.
Hanus er þekktasti vísna-
söngvari Færeyinga. Hann hefur
haldið tónleika á öllum Norður-
löndunum og tekið þátt í gerð
safnplatna með norrænum vísna-
söng. Fyrsta sólóplata hans kom
út árið 1988.
Jannika Hággerström er
sænskumælandi Finni og meðlim-
ur í Vísnavinum í Helsingfors.
Jannika er formaður Félags
ungra trúbadora og er þetta í
fyrsta skipti sem hún kemur til
íslands.
Sunnudagskvöldið 3. maí
verða síðari tónleikarnir á Hótel
KEA kl. 20.30. Þar koma fram
Hanne Juul frá Danmörku, Jan-
Olof Andersson frá Svíþjóð og
Tjarnarkvartettinn frá Tjörn í
Svarfaðardal.
Hanne Juul er vel þekkt vísna-
söngkona með rætur á íslandi.
Afi hennar var apotekari á ísa-
firði. Hún er fædd í Kaupmanna-
höfn, bjó í níu ár á íslandi, en er
búsett í Svíþjóð núna. Hanne
ferðast um öll Norðurlöndin og
syngur vísur á öllum Norður-
landamálunum. Hanne kom síð-
ast fram í sjóvarpsþætti hjá
Hemma Gunn.
Jan-Olof Andersson er sænsk-
ur söngvari og gítarleikari. Hann
hefur hlotið margs konar viður-
kenningar fyrir vísnatúlkun sína,
m.a. Alf-Hamba-styrkinn 1991
og Ulf Peder Olrog-styrkinn
1987. Þetta er í þriðja sinn sem
Jan-Olof kemur til íslands. Hann
var hér í desember sl. í boði Blás-
arakvintetts Reykjavíkur.
Fyrsta landsmót kvennakóra
í Ýdölum um helgina
Helgina 2.-3. maí verður fyrsta
landsmót kvennakóra haldið að
Ýdölum í Aðaldal. Til mótsins
koma 5 kórar: Kvennakórinn
Ljósbrá Rangárvallasýslu,
Kvennakór Suðurnesja, Kvenna-
kór Siglufjarðar, Freyjukórinn
Borgarfirði og Kvennakórinn
Lissý Þingeyjarsýslu, en hann
hefur skipulagt og undirbúið
mótið. Þáttakendur eru um 160
talsins.
KA-heimilið:
Kynningarftmdur um eina
bestu íþróttamiðstöð Evrópu
Um helgina verður staddur hér á
landi framkvæmdastjóri National
Sportcentrum Sittard, einnar
bestu íþróttamiðstöðvar í
Evrópu. Hann mun kynna
íþróttamiðstöðina forystumönn-
um íslenskra íþróttafélaga og
-sambanda, þjálfurum og örðum
framámönnum. Fyrsti kynning-
arfundurinn verður í KA-heimil-
inu á Akureyri á morgun kl. 14 á
vegum Úrvals-Útsýnar og Flug-
leiða.
Sittard er staðsett í Limburg-
héraði í Hollandi í aðeins 10 km.
fjarlægð frá landamærum Hol-
lands við Belgíu og Þýskaland.
Aðstaðan þar er eins og best ger-
ist í heiminum í dag og gildir þá
einu hvort íþróttin sem stunda
skal heitir handknattleikur,
knattspyrna, sund, körfuknatt-
leikur, fimleikar, blak, badmin-
ton eða frjálsar íþróttir. Forráða-
menn íþróttafélaga og aðrir
íþróttaforystumenn eru hvattir til
að mæta á fundinn.
Akureyri:
Dansstúdíó Alice með
„opið hús“ í dag
í dag, föstudaginn 1. maí, stend-
ur Dansstúdíó Alice á Akureyri
fyrir „opnu húsi“ í húsakynnum
sínum. Þar verður boðið upp á
ókeypis kynningartíma í líkams-
rækt auk þess sem kynning verð-
ur á drykkjum frá Coca Cola,
.66
Akureyri:
„Styrkur'
með
fræðslufund
Næstkomandi mánudag, 4. maí,
heldur „Styrkur", félag krabba-
meinssjúklinga og aðstandenda
þeirra, fund að Glerárgötu 36 kl.
20 til 22. Fyrirlesari kvöldsins
verður Elísabet Hjörleifsdóttir,
krabbameinshj úkrunarfræðing-
ur, og mun hún fjalla um almenn-
an stuðning við krabbameins-
sjúklinga og aðstandendur þeirra
og kynna sambærilega stuðnings-
hópa í Skotlandi. Félagar eru
hvattir til að mæta og taka með
sér gesti. Nýir félagar eru boðnir
velkomnir.
Amaro verður með Guerlain
snyrtivörukynningu og Sporthús-
ið kynnir íþróttaskó.
Húsið verður opnað kl. 13.30.
Klukkan 14 verður boðið upp á
ókeypis tíma í „maga, rass og
læri“, kl. 14.30 í „þreki og þoli“,
kl. 15 í „eróbikki“ og kl. 15.30 í
„tröppuþreki“. Fólk er hvatt til
að mæta á staðinn með íþrótta-
gallann og taka hraustlega á.
Auk æfinga og sameiginlegrar
kvöldskemmtunar syngja kórarn-
ir við guðsþjónustur sunnudaginn
3. maí kl. 11 í Húsavíkur-, Þór-
oddsstaðar-, og Neskirkju.
Lokatónleikar verða haldnir
að Ýdölum sunnudaginn 3. maí
kl. 15. Þar kemur fram sameigin-
legur kór allra þátttakenda og
kórarnir hver um sig. Á efnis-
skránni eru m.a. íslensk þjóðlög
og sönglög, kórar úr óperum og
söngleikjum, t.d. Carmen, Hol-
lendingnum fljúgandi, Ævintýr-
um Hoffmanns og Söngvaseið.
í tengslum við mótið er í and-
dyri Ýdala opin sýning á vefnaði
Elínar Kjartansdóttur og sýndar
vörur frá Leðuriðjunni Teru á
Grenivík.
Tónlistarskóli EyjaQarðar:
Fyrstu vortón-
leikamir
Tónlistarskóli Eyjafjarðar verður
með vortónleika nk. sunnudag,
3. maí, kl. 15.30 að Melum. Um
kvöldið kl. 20.30 verða eldri
nemendur með tónleika að
Grund. Miðvikudaginn 6. maí kl.
20.30 verða tónleikar á Sval-
barðseyri, laugardaginn 9. maí
kl. 15 í Sólgarði, sunnudaginn 10.
maí kl. 13.30 í Laugarborg
(nemendur úr Laugalandsskóla
og Grunnskólanum á Hrafnagili)
og sunnudaginn 10. maí kl. 17 á
Grenivík. Mánudaginn 11. maí
kl. 20.30 verða síðan söngtón-
leikar í Laugarborg.
Skólaslit Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar verða í Grundarkirkju
miðvikudaginn 13. maíkl. 20.30.
Akureyri:
FélagAlzheimers
sjújklinga með
fræðshifúnd
Félag aðstandenda Alzheimer-
sjúklinga á Akureyri og nágrenni
heldur fræðslufund á morgun,
laugardaginn 2. maí, kl. 14 í Hlíð
á Akureyri. Þar segir Þóra Arn-
finnsdóttir, geðhjúkrunar-
fræðingur, frá umönnun og
aðhlynningu heilabilaðra sjúkl-
inga í Hlíðabæ í Reykjavík. Von-
ast er til þess að allir þeir sem
áhuga hafa á þessum málum
komi á fundinn.