Dagur - 12.05.1992, Síða 3

Dagur - 12.05.1992, Síða 3
Þriðjudagur 12. maí 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Pörin er lentu í þremur efstu sætunum á íslandsmótinu í parakeppninni í bridds. Lengst til vinstri Sólveig Róars- dóttir og Gunnar Sveinsson frá Skagaströnd í þriðja sæti, þá Esther Jakobsdóttir og Sverrir Ármannsson í öðru sæti og lengst til hægri sigurvegararnir Sigurður B. Þorsteinsson og Hjördís Eyþórsdóttir. Mynd: Ás íslandsmótið í parakeppni í bridds á Siglufirði: Reykvíkingar í tveimur efstu sætunum OALVIK Dalvík: Bæjarmála- punktar ■ Eini umsækjandinn um stöðu garðyrkjumanns hjá Dalvíkurbæ, Jan Bcnny Qvarfott í Reykjavík, hefur dregið umsókn sína til baka. Bæjarráð hefur falið bæjar- stjóra að auglýsa starfið á nýj- an leik. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að veita lokafrest til 1. júní nk. til að rífa hesthús ofan bæjarins, en að þeim tíma liðnum verði húsin rifin á kostnað eigenda. ■ Bæjarráð hefur veitt heim- ild til að fenginn verði sérfróð- ur aðili (lögfræðingur) til að vinna að samningum um kaup á erfðafestulöndum og húsum sem á þeim standa. ■ í fógetaúrskurði dags. 5. maí sl. er ekki fallist á þá kröfu Dalvíkurbæjar að hross Hreiðars Leóssonar í Ásgarði verði fjarlægð. Úrskurðurinn var kynntur á fundi bæjarráðs 6. maí sl. Á þeim fundi sam- þykkti bæjarráð að fela bæjar- stjóra „að leita allra leiða til að framfylgja búfjárreglugerð m.a. með formlegri kæru á brotum gegn henni.“ ■ Byggingarnefnd þjónustu- íbúða aldraðra hefur sam- þykkt einróma að taka tilboði Daltrés hf. í byggingu þjón- ustuíbúða við Dalbæ, en Dal- tré átti lægsta tilboðið í verkið. Tæknideild Dalvíkur- bæjar hefur verið falið að hafa eftiriit með byggingafram- kvæmdum og þá mun fulltrúi frá Formi hf. sitja verkfundi til að fylgjast með verkfram- kvæmdum eftir því sem þurfa þykir. ■ Á fundi hafnarstjórnar 6. maí sl. lagði bæjarstjóri fram eftirfarandi tillögu að gjaldskrá fyrir smábáta: Við trébryggju - 1 ár 35 þúsund, lágmark 3 mánuðir 12 þúsund, mánaðargjald umfram lágmark 3.700 krónur. Við flotbryggju - 1 ár 42 þúsund og lágmark 3 mán- uðir 16 þúsund. Veittur verði 30% afsláttur af heilsársgjaldi við flotbryggju árið 1992. ■ íþrótta- og æskulýðsráð hefur samþykkt styrki til eftir- talinna félaga: U.M.F.S 350 þúsund, Golfklúbburinn Hamar 165 þúsund, Briddsfé- lagið 10 þúsund, Taflfélag Dalvíkur 10 þúsund, íþrótta- deild hestamannafélagsins Hrings 150 þúsund, Skíðafélag Dalvíkur 275 þúsund og Skátafélagið Landvættir 140 þúsund krónur. ■ Sparisjóöur Svarfdæla hef- ur fært Bókasafni Dalvíkur að gjöf Victor PC tölvu ásamt forriti fyrir bókasöfn. Hjördís Eyþórsdóttir og Siguröur B. Þorsteinsson frá Reykjavík, sigruðu á íslands- mótinu í parakeppni í bridds, sem fram fór á Hótel Höfn á Siglufirði um helgina. Metþátt- taka var í mótinu en alls mætti 41 par til leiks, 27 pör af Norðurlandi, 13 pör frá Reykjavík og 1 af Suðurlandi. Spilaður var barómeter, 2 spil milli para. Hjördís og Sigurður tóku for- RUV semur rnn knattspymu- útsendingar íþróttadeild Ríkisútvarpsins undirritaði á fímmtudaginn samning við Samtök fyrstu- deildarfélaga í knattspyrnu um rétt til upptöku og útsendingar á keppni fyrstudeildarfélag- anna sumarið 1992. Knattspyrnukeppni fyrstu- deildar hefst 23. maí. Með nýgerðum samningi er undirrit- aður var á fimmtudaginn er ljóst að fyrstudeildarknattspyrnunni verða gerð skil á sjónvarpsstöðv- unum báðum. Áður höfðu Sam- tök fyrstudeildarfélaga og Stöð 2 samið. Samhliða fyrstudeildarsamn- ingnum var gengið frá samningi Knattspyrnusambands íslands og íþróttadeildar Ríkisútvarpsins um upptöku og útsendingu til erlendra sjónvarpsstöðva vegna landsleikja erlendra liða á íslandi á tímabilinu 1982/1983. Jafn- framt mun KSÍ leitast við að tryggja sjónvarpinu útsendinga- rétt frá leikjum íslenska lands- liðsins á erlendri grundu. ój SkagaQörður: Einn sviptur ökuleyfi Lögreglan á Sauðárkróki tók ökumann á 148 kflómetra hraða á klukkustund á Sauðár- króksbraut um helgina. Var sá ökuglaði umsvifalaust sviptur réttindum til að stýra ökutæki. SBG ystu í keppninni strax í 10. umferð og héldu henni allt til loka. Þau hlutu alls 394 stig en Esther Jakobsdóttir og Sverrir Ármannsson frá Reykjavík höfn- uðu í öðru sæti með 266 stig. í þriðja sæti urðu Sólveig Róars- dóttir og Gunnar Sveinsson frá Skagaströnd með 222 stig og í fjórða sæti heimamennirnir Björk Jónsdóttir og Jón Sigur- björnsson með 216 stig. Birkir Jónsson frá Siglufirði, sonur þeirra Bjarkar og Jóns var yngsti keppandinn á mótinu, aðeins 12 ára en hann og Berta Finnbogadóttir meðspilari hans, höfnuðu í 9. sæti með 101 stig. Guðrún Jóhannesdóttir og Jón Hersir Elíasson frá Reykjavík urðu í 5. sæti með 171 stig og Ágústa Jónsdóttir og Kristján Blöndal frá Sauðárkróki í 6. sæti með 142 stig. Mótið fór vel fram undir öruggri stjórn Jakobs Kristinssonar og reiknimeistari var Sveinn R. Eiríksson. -KK Rúmfatalagerinn: Nýja versl- unin opnuð 1. nóvember Ný verslun Rúmfatalagersins á Akureyri verður opnuð þann 1. nóvember næstkomandi. Kaup Rúmfatalagersins á húsgrunni af Járntækni hf. að Norðurtanga 3 eru fullfrágeng- in og hófust framkvæmdir í gær. Eins og fram hefur komið er um að ræða 1100 fermetra hús sem hýsir verslun, lager og starfs- mannaaðstöðu. Jógvan Purkhus, verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Akureyri, segir að samkvæmt samkomulagi við Járntækni hf. verði húsið afhent 1. október en nýja verslunin verði væntanlega opnuð mánuði síðar. Jógvan seg- ir að gott samstarf sé á milli Rúm- fatalagersins og seljanda hús- grunnsins að Norðurtanga 3, þ.e. Járntækni, sem mun annast bygg- ingaframkvæmdirnar en að þeim munu auk fyrirtækisins koma nokkrir verktakar á Akureyri. Jógvan segir Ijóst að með nýja húsinu skapist mun betri aðstaða á allan hátt þó búast megi við að í grundvallaratriðum verði versl- unin sjálf með svipuðu sniði. Meira gólfrými auðveldi fyrst og fremst uppstillingu í versluninni en til gamans má geta þess að verslunin á Akureyri verður stærri en stærsta verslun í Dan- mörku í þeirri verslanakeðju sem Rúmfatalagerinn kaupir af. JÓH n Ultra Hampers '41 Stráka StelpiJI BLEIUR Ultra 1 Ullra pers Harm Boy | g 4 stærðir Rakadrægur kjarni aö framan Rakadrægur kjarni í miðju Þó bleian sé vot er barnið þurrt Ánægðir strákar og stelpur í Pampers-bleium Pampers bleiur eru hannaöar með vellíðan barnsins að markmiði. Við framleiðslu þeirra er leitast við að spara dýrmætar auðlindir jarðarinnar og að spilla ekki umhverfinu með skaðlegum úrgangi. AUKA VELLÍÐAN BARNANNA STUÐLA AÐ UMHVERFISVERND

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.