Dagur - 12.05.1992, Side 5
Þriðiudagur 12. maí 1992 - DAGUR - 5
Fréttir
Evrópska efnahagssvæðið:
Ætlimin að gera verkalýðsfélög
áhrifalaus að fyrirmynd EB-ríkja
- segir Birgir Björn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri BHMR
„Réttindi Iaunamanna í ríkjum
Evrópubandalagsins byggjast
ekki á samningum veikburða
stéttarfélaga heldur á laga-
ákvæðum,“ sagði Björn Birgir
Sigurjónsson, hagfræðingur og
framkvæmdastjóri BHMR, á
Iandsfundi Samstöðu um óháð
ísland. Björn Birgir sagði að
Evrópubandalagið hefði í vax-
andi mæli tekið að sér að lög-
binda lágmarksréttindi
launamanna fyrir öll aðildar-
ríkin. I Ijós hafi komið að sum-
ar af þessum reglum banda-
lagsins gangi lengra en íslensk
lög og samningar, sérstaklega
hvað varðar öryggi og holl-
ustuhætti á vinnustöðum. Sá
böggull fylgi þó skammrifi að
lögbundin lágmarksréttindi
launafólks í ríkjum Evrópu-
bandalagsins séu skilgreind
sem einstaklingsbundin rétt-
indi sem heyri undir almenna
dómstólakerfið.
Björn Birgir sagði að staða
stéttarfélaga væri afar veikburða
í ríkjum Evrópubandalagsins og
ættu félögin oft í miklum erfið-
leikum með að fá samningsrétt-
inn viðurkenndan af vinnuveit-
endum. Björn Birgir kvaðst telja
einsýnt að þetta verði einnig hlut-
skipti íslenskra stéttarfélaga inn-
an Evrópska efnahagssvæðisins.
Hann benti á að einmitt nú gerðu
íslenskir vinnuveitendur aðför að
forgangsréttarákvæðum í íslensk-
um kjarasamningum í skjóli sér-
fræðinganefndar Evrópuráðsins.
Margir telji nú tímaspursmál
hvenær skylduaðild að stéttarfé-
lögum verði bönnuð. Vinnuveit-
endur ætli að veikja verkalýðs-
hreyfinguna og hafi þeir þegar
unnið fyrsta stríðið hugmynda-
fræðilega þegar þeim hafi tekist
að telja forystu verkalýðshreyf-
ingarinnar trú um að kaupmátt-
urinn og velferðarmálin verði að
bíða þar til tekist hafi að koma á
stöðugu verðlagi, stöðugu gengi
og dálitlu af atvinnuleysi.
Björn Birgir sagði að við stofn-
un Evrópubandalagsins hafi ver-
ið uppi háværar raddir um svo-
nefnd fimmtu fríðindi en þar væri
um að ræða bann við starfsemi
stéttarfélaga. Þótt það hefði ekki
orðið væru verkalýðsfélögin not-
uð sem gólfmottur í bandalags-
löndunum. Fulltrúar þeirra sitji í
nefndum ásamt vinnuveitendum,
sem séu í raun algjörlega áhrifa-
lausir umsagnaraðilar um tillögur
framkvæmdastjórnar EB. Þetta
fyrirkomulag eigi að útfæra fyrir
allt Evrópska efnahagssvæðið.
ÞI
Landsfundur Samstöðu um óháð ísland:
Gengið gegn anda stjómarskrár-
innar með EES-samningnum
- fyrirhugað valdaafsal óheimilt nema með stjórnarskrárbreyt-
ingu, segir í álitsgerð Jóhanns Þórðarsonar, hæstaréttarlögmanns
í ávarpi frá landsfundi Sam-
stöðu um óháð ísland sem
haldinn var á laugardag segir
meðal annars að samningurinn
um Evrópskt efnahagssvæði sé
afdrifaríkasta mál sem Islend-
ingar hafa staðið frammi fyrir í
sögu lýðveldisins. Með EES-
samningnum sé ótvírætt gegn-
ið gegn anda stjórnarskrár
íslenska lýðveldisins þar sem
samningurinn kveði á um að
ekki megi mismuna eftir þjóð-
erni. Á þann hátt fái 380 milij-
ónir manna sama rétt og
íslendingar hafi einir haft í
landinu til þessa.
f ávarpi fundarins er bent á að
með samningnum verði stjórnar-
farslegt sjálfstæði þjóðarinnar
skert í miklum mæli þar sem
íslendingar eigi að taka við laga-
safni Evrópubandalagsins á sviði
efnahags- og atvinnumála og
verði framvegis að setja lög eftir
fyrirskipunum,frá Brússel. Síðar
í ályktuninni segir að samningur-
inn um EES geri þeim öflum
margfalt auðveldra fyrir, sem
keyra vilji fsland inn í Evrópu-
bandalagið því líkur séu fyrir því
að EFTA hverfi af sjónarsviðinu
að fáum árum liðnum. Því standi
þjóðin nú á krossgötum og þeir
sem andvígir séu EB-aðild hljóti
að beita sér af afli gegn aðild
íslands að Evrópsku efnahags-
svæði.
Bjarni Einarsson, einn af for-
svarsmönnum Samstöðu, sagði
að EES-samningurinn gæti í
sjálfu sér gengið upp ef nokkurt
jafnræði ríkti á milli þjóða og
nefndi Svía sérstaklega í því
sambandi er nytu í mörgu jafn-
ræðis á við ríki Evrópu. Hvað
okkur varðaði væri málinu öðru-
vísi varið og af okkar hálfu
byggðist öll þessi samningsgerð á
tilhæfulausum ótta, sem áróður
utanríkisráðherra og fleiri
áhrifamanna hafa vakið og
magnað.
í álitsgerð sem Jóhann Þórðar-
son, hæstaréttarlögmaður, hefur
unnið fyrir Samstöðu kemst hann
að þeirri niðurstöðu að eins og
EES-samningurinn liggur nú fyrir
sé fyrirhugað að taka það mikil
völd af íslenskum stjórnvöldum
og færa þau í hendur erlendum
aðilum, að eigi sé heimild til þess
í íslenskri löggjöf af taka þau af
með samningi - slíkt verði ekki
gert nema að undangenginni
stjórnarskrárbreytingu í sam-
ræmi við 79. grein stjórnarskrár-
innar. ÞI
MÓÐUHREINSUN
MILLI GLERJA
Er móða eða óhreinindi á milli glerja hjá þér?
• í fljótu bragði mætti ætla að eina ráðið sé að skipta um rúðu. En
til er önnur og einfaldari lausn sem felst í því að móðan er
hreinlega fjarlægð með sérhæfðum tækjum. Eftir það gegnir
„gamla" rúðan hlutverki sínu eins og ný. Með þessari aðferð
sparast umtalsverð fjárhæð því verðið er aðeins hluti kostnað-
ar vegna nýrrar rúðu og ísetningar. Með aðferð þessari hefur
náðst fullkominn árangur.
• Erum með ný og fullkomin tæki til hreinsunar.
• Kostnaður við hreinsun er aðeins brot af því sem kostar að
skipa um gler.
• Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins er einangrunartap aðeins um 1 % við borun á gleri.
• Rúðan er boruð út á tveimur stöðum, efra og neðra horni,
hreinsað er á milli og siðan settir loftræstitappar sem gera það
að verkum að loft leikur um glerið og móða nær ekki að mynd-
ast aftur.
Ath. Aðferðin er varanleg lausn.
VERKVERND HF.
Simi 91-616400, bilasimi 985-25412.
Stórkostlegt verðtilboð
á vönduðum 6 sœta hornsófum
Með leðri á slitflötum kr. 112.410 stgr.
Alklœddir leðri kr. 143.460 stgr.
KK|vöruboer'l‘
LZVJ HUSGAGNAVERSLUN
TRYGGVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SlMI (96)21410
Skák____________________
KEA-menn sterkastir
í fj órveldakeppninni
Hin árlega fjórveldakeppni í
skák var haldin á Akureyri
nýveriö. I þessari keppni leiða
fjögur skákfélög saman hesta
sína á sex borðum og er um-
hugsunartíminn hálf kiukku-
stund á mann. Skákmenn frá
KEA sigruðu nú annað árið í
röð.
Lokastaðan varð sú að KEA
fékk Í2A vinning, Skákfélag
Akureyrar 10A vinning, Skákfé-
lag UMSE 8 vinninga og Taflfé-
lag Dalvíkur 5 vinninga. Vinni
kaupfélagsmenn þriðja árið í röð
fá þeir glæsilegan bikar til eignar,
en Skákfélag Akureyrar hefur
oftast sigrað í þessari skemmti-
legu keppni.
í sigursveit KEA voru Rúnar
Sigurpálsson, Sigurjón Sigur-
björnsson, Haki Jóhannesson,
Margeir Steingrímsson, Haraldur
Ólafsson, Gunnlaugur Guð-
mundsson og Árni Sigurjónsson.
Eins og sjá má er þetta sterkt
lið og þar má finna sex félaga í
Skákfélagi Akureyrar. Þeir
Margeir, Haraldur og Gunnlaug-
ur eru þó að mestu hættir að tefla
en þeir eru fyrrverandi landsliðs-
menn Skákfélags Akureyrar og
hafa engu gleymt.
Skákstjóri var Albert Sigurðs-
son. SS
Námskeið í notkun
Toshiba örbylgjuofna
Námskeið 15.-16. maí
Leiðbeinandi: Dröfn Farestveit, hússtjórnarkennari.
Þeir aðilar sem keypt hafa Toshiba
örbylgjuofn í Vöruhúsi KEA eða
einhverju útibúi KEA og ekki hafa farið
á námskeið áður, eiga rétt til
þátttöku endurgjaldslaust.
Skráning þátttakenda í Járn- og
glervörudeild í síma 30476.
Takmarkaður fjöldi.