Dagur - 12.05.1992, Síða 13
Þriðjudagur 12. maí 1992 - DAGUR - 13
Skrifstofa Geðverndarfélags Akur-
eyrar Gránufélagsgötu 5 er opin
mánudaga og fimmtudaga kl. 10-12
og þriðjudaga kl. 16-19, sími 27990.
Fólk er hvatt til að líta inn eða
hringja og nota þessa nýju þjónustu.
Opið hús alla iniðvikudaga frá kl.
20.00.
Allir velkomnir í kaffi, spil og
spjall.
„Möniinumorgnar“
- opið hús í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju.
Miðvikudaginn 13. maí
frá kl. 10-12.
Frjáls tími, kaffi og spjall.
Allir foreldrar velkomnir með börn
Athugið: Síðasti tími fyrir sumarfrí.
BORGARBÍÓ
Salur A
Þriðjudagur
Kl. 9.00 JFK (Kennedy)
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Ekki segja mömmu aft
barnfóstran sé dauð
Kl. 11.00 Harkan sex
BORGARBÍÓ
S 23500
Vinningstölur laugardaginn (1?)® (30)(3 9. maí '92
4Ý (32)
VINNINGAR | UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 | 2 1.345.058.-
2.<7M‘ 3 155.881.-
3. 4af5 I 86 9.380,-
4. 3af5 | 3.785 497.-'
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.845.584.-
Jj i Éf I
upplýsingab:sImsv*hi91-681511 lukkulIna991002
KVIKMYNDARÝNI_____Jón Hjaltason
J.F.K.
Borgarbíó sýnir: J.F.K.
Leikstjóri: Oliver Stone.
Aðalhlutverk: Kevin Costner,
Tommy Lee Jones,
Gary Oldman og Sissy Spacek.
J.F.K. er skammstöfun fyrir John
Fitzgerald Kennedy en hann eða
öllu heldur hörmulegur dauðdagi
hans er viðfangsefni Oliver Stones
að þessu sinni. Kevin Costner er í
hlutverki saksóknara sem ákveður
að láta málið til sín taka og ákærir
kaupsýslumann (Tommy Lee Jon-
es) fyrir meinta aðild að morðinu.
J.F.K. er að mörgu leyti snilldar-
lega vel unnin kvikmynd. Frétta-
myndir frá árinu 1963 eru klipptar
saman við leikin atriði, hraðar
klippingar, snaggaralegar færslur
kvikmyndatökuvéla og vel valin
sjónarhom dulbúa heldur þung-
lamalega atburðarás. Yftrheyrslur
og samræður eru leikstjórans ær
og kýr, eiginlegir atburðir þar sem
eitthvað er um að vera - hreyfing,
hlaup, akstur, slagsmál, kynmök -
er ekki á dagskránni að þessu
sinni. Raunar er J.F.K. ágætis
dæmi um hvemig gera má
spennumynd án þess að lesa sig
áfram eftir þessum sígildu þráðum
slíkra kvikmynda.
Það fer ekkert á milli mála að
Stone hefur tekið ákveðna afstöðu
til morðsins, hann þykist vita
hverjir morðingjamir eru og fer
ekki dult með það. Raunar reiðir
hann svo hátt til höggs að vafa-
samt er hvar eða á hverjum það
lendir. Allt kerfið liggur undir
ákæm - eitt allsherjar samsæri
FBI, CIA, herforingja, kaupsýslu-
manna, landflótta Kúbumanna og
ég man ekki hverra og hverra er
undirrótin að morðinu. Lee Harry
Oswald (Garry Oldman) var (sam-
kvæmt áliti Stone) útsendari CIA.
Honum var ætlað að koma sér í
raðir kommúnista og njósna, jafn-
vel sá sundrungu meðal þeirra.
Þegar kemur að hinum örlagaríka
degi, 22. nóvember 1963, fáum
við að sjá hvar Oswald er hinn ró-
legasti að drekka kók, hann er að
vísu þátttakandi í samsærinu
mikla en án þess að vita það hefur
honum verið ætlað hlutverk sekt-
arlambsins. Hann beinir aldrei
byssu að forsetanum, hvað þá að
hann skjóti á hann. Engu að síður
er hann handtekinn sakaður um
morðið. Allt er þetta svindl og fals
til þess eins gert að leiða athyglina
frá hinum raunverulegu morðingj-
um.
Það er gott og blessað að taka af-
stöðu, og raunar nauðsynlegt ef
einhverjar hita-umræður eiga að
fara fram. Betra er að veifa röngu
ÖKUKENN5LH
Kenni á Galant, árg. ’90
ÖKUKENNSLA - ÆFINGATÍMAR
Útvegum öll gögn, sem með þarf,
og greiðsluskilmálar við allra hæfi.
JÓN S. RRNREON
Sími 22935.
Kenni allan daginn og á kvöldin.
tré en öngvu sögðu forfeður okkar
og vissu hvað þeir sungu. Hitt er
svo annað mál hvort Stone er á
réttri braut. Mér datt það rétt sem
snöggvast í hug að ef til vill væri
hann alls ekki á höttunum eftir
morðingjum heldur ætti J.F.K. að
vera ein allsherjar þjóðfélags-
ádeila, þess vegna væru sem allra
flestir dregnir fyrir rétt, stofnanir
jafnt og fjárplógsmenn samfélags-
ins. Hér er þó ekki nema hálf sag-
an sögð því að J.F.K. er ekki að-
eins þjóðfélagsádeila heldur
einnig mærðarleg lofrulla yfir hin-
um látna forseta. Eg ætlaði sem
minnst að fara út í sagnfræðilega
greiningu bíómyndarinnar - hef
enga þekkingu til þess - en mér
verður ævinlega bumbult þegar
miðaldra ístrumagar taka upp á
því að lofsyngja ungdóm sinn,
kalla sig jafnvel týndu kynslóðina
og setja töluverða þykkju í rödd-
ina yfir skilningsleysi okkar sem
yngri erum. Þá riðu hetjur um hér-
uð, Bítlamir og Doors, sem aldrei
munu eiga sína líka. Eftir því sem
Stone segir okkur var Kennedy
slík hetja, hann var einn allsherjar
mannvinur sem var í þann veginn
að breyta Bandaríkjunum í Para-
dís (blökkukonan segir; og hann
sem gerði svo mikið fyrir okkur)
og heiminum í samfélag friðelsk-
andi þjóða. Eitt af því sem leiddi
til dauða forsetans var einlægur
ásetningur hans (eftir því sem
Stone segir) að binda endi á Víet-
namstríðið. En Kennedy valdi ó-
neitanlega einkennilega leið til að
ná þessu marki. I valdatíð hans
fjölgaði bandarískum „hermála-
ráðgjöfum" í Suður-Víetnam úr
685 í 16.000. Stone kemst ekki
hjá því að minnast á Svínaflóainn-
rásina en hann gerir hana að gælu-
verkefni CIA og lætur þess ógetið
að það var Kennedy sem lagði
blessun sína yfir hana. Og hver
var það sem gaf eftir í eldflauga-
deilunni þegar Sovétríkin ætluðu
að notfæra sér staðsetningu Kúbu?
Stone er ekki að hampa svarinu en
gerir þess í stað Kennedy að hetju
fyrir staðfestu sína sem á að hafa
leyst deiluna.
Ekki get ég skilist við J.F.K. án
þess að minnast á Kevin Costner.
Hann er svolítið einkennilegur
leikari, eða öllu heldur svolítið
öðruvísi stórstjama. Leikur hans
er yfirleitt heldur sviplítill, þó
alltaf hugðnæmur. Hann á erfitt
með að vera sannfærandi þegar
sýna þarf mikla geðshræringu en
framkoma hans er látlaus og hent-
ar vel í hlutverkum sveimhuga og
einfara. Það þarf lítið til að
skyggja á Costner. Takið eftir
tveimur stuttum þáttum, fyrst í
flugvélinni og síðan á víðavangi,
þar sem liggur við að maður
gleymi Costner þegar hann kemst
í tæri við Walther Matthau og síð-
ar Donald Sutherland. Ég veit að
hlutverk Costners í J.F.K. er erfitt
og hann fer í gegn um það með af-
skaplega sléttum og felldum hætti.
Það er þó engu að síður spuming í
mínum huga hvort leikaravalið
hafi verið rétt. Hefði myndin ekki
orðið enn áhrifameiri ef kröftugri
leikari hefði verið settur í spor
saksóknarans?
Bestu þakkir fyrir vinsemd á
85 ára afmæli mínu, 5. maí.
Guð blessi ykkur öll!
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON,
Hörg.
Sumarbúðirnar við
Vestmannsvatn
Innritun er hafin
og er virka daga kl. 17-18.30.
Síminn er 96-27540.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Bridgefélags Akureyrar verður
haldinn þriðjudaginn 12. maí (í kvöld) í
Hamri og hefst hann kl. 1 9.30 stundvíslega.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Verðlaunaafhending fyrir mót vetrarins.
Kaffiveitingar í boði félagsins.
Bridgefélag Akureyrar.
Raðhúsíbúð
til sölu!
Til sölu mjög góð 5 herbergja raðhúsíbúð við
Stapasíðu, til afhendingar fljótlega. Stærð 135 fm
+ bílskúr 25 fm = 160 fm.
Fasteignasalan
Brekkugötu 4 • Sími 21744
Gunnar Solnes hrl. Jon Kr Solnes hrl og Arni Palsson hdl
Solust. Sævar Jonatansson
L
LANDSVIRKJUN
Staða rekstrarstjóra
Staða rekstrarstjóra Landsvirkjunar er laus til
umsóknar.
Staðan veitist frá 1. janúar 1993 að telja og er
umsóknarfrestur til 1. júlí nk. Umsóknir sendist for-
stjóra Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103
Reykjavík.
Umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og
fyrri störf umsækjanda auk annarra upplýsinga sem
hann telur máli skipta.
Reykjavík, 12. maí 1992,
LANDSVIRKJUN.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR,
Helgamagrastræti 47, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunardeild og þjónustu-
deild Dvalarheimilis Hlíðar.
Jóhann Pétur Sigurbjörnsson, Erla Sigurðardóttir,
Þórunn Sigurbjörnsdóttir, Magnús Björnsson,
Jón Haukur Sigurbjörnsson, Halldóra Jónsdóttir,
María Sigríður Sigurbjörnsd., Guðmundur Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.