Dagur - 12.05.1992, Síða 15
Þriðjudagur 12. maí 1992 - DAGUR - 15
I
EES-samningurinn hefur það í för meö sér að erlendir bankar og fjármála-
stofnanir geta opnaö útibú hér á landi án þess að fá til þess sérstakt leyfi.
Þeim nægir að hafa starfsleyfi í öðru EES-ríki.
um og vakti furðu þeirra sem búa
sunnar í álfunni og líta á áfengi
sem landbúnaðarvöru.
Kaupa Þjóðverjar
Illugastaði?
Frjálsir fjármagnsflutningar eru
atriði sem valdið hefur talsverð-
um deilum hér á landi og víðar í
EFTA-ríkjunum. Samkvæmt
samningnum ber ríkjunum nítján
að afnema allar hömlur á fjár-
magnsflutningum, fjárfestingum
og lánastarfsemi milli landa. í
frétt ráðuneytisins segir að þetta
frelsi sé ekki einungis nauðsyn-
legt heldur beinlínis forsenda fyr-
ir frjálsum flutningum á vöru og
þjónustu.
Nú eru í gildi töiuverðar höml-
ur á beinum fjárfestingum og
kaupum á fasteignum innan
EFTA og samningurinn gerir ráð
fyrir aðlögunartíma ríkjanna
þangað til þær hömlur verða með
öllu horfnar. Sá tími er mislang-
ur, Norðmenn og Svíar hafa tvö
ár til að fella þær niður, Austur-
ríkismenn, Finnar og íslendingar
þrjú ár og Svisslendingar og íbú-
ar Liechtensten fimm ár. Meðan
á aðlögunartímanum stendur
geta ríkin sett sérstakar reglur,
td. um kaup útlendinga á sumar-
húsum.
Sérstakar reglur munu hins
vegar gilda áfram í Noregi og á
íslandi um fjárfestingar á sviði
fiskveiða og vinnslu. Einnig eru í
samningnum ákvæði um að ein-
stök ríki geti takmarkað flutning
á fjármagni ef hann er talinn
ógna greiðslujöfnuði eða inn-
lendum peningamarkaði.
Jafnrétti kynjanna og
neytendavernd
Samningarnir um jaðarmálefni
snerta fjölmörg svið mannlegrar
starfsemi. Samvinna á sviði rann-
sókna og þróunar á að treysta
samkeppnisstöðu evrópsks iðn-
aðar og auðvelda aðgang lítilla
og meðalstórra fyrirtækja að
upplýsingum um nýjustu tækni
og nýja markaði. Raunar tekur
samningurinn mið af þeirri stað-
reynd að stærstan hluta hagvaxt-
ar undanfarinna ára má þakka
velgengni lítilla og meðalstórra
fyrirtækja. Ætlunin er að aflétta
ýmsum hömlum á því að slík
fyrirtæki geti flutt starfsemi sína
milli landa og aukið umsvif sín.
í þessum hluta samningsins er
að finna ákvæði um sérstakan
sjóð sem á að hafa það hlutverk
að bæta úr félagslegum og efna-
hagslegum ójöfnuði sem nú ríkir
milli aðildarríkja EB. Alls nemur
framlag EFTA-ríkjanna í þennan
sjóð um 35 milljörðum króna á
fimmtán árum. Þar af er hlutur
íslands rétt innan við 1% eða
rúmlega 300 milljónir króna.
Sjóðnum er einkum ætlað að
fjármagna verkefni sem lúta að
umhverfisvernd og menntun og
líklegustu ríkin til að hagnast á
þessum sjóði eru írland, Portúgal,
Spánn og Grikkland.
Samningurinn gerir ráð fyrir
því að EFTA-ríkin taki þátt í
starfi 50 vinnuhópa og nefnda
sem EB hefur sett á laggirnar til
að endurskoða lagasetningu á
sviði umhverfismála. Einnig fá
námsmenn frá EFTA-ríkjunum
aðgang að ýmsum áætlunum EB
um nemendaskipti og menntun
frá 1. janúar 1995.
Loks eru í samningnum fjöl-
mörg ákvæði um félagsmál og
neytendavernd. Félagsmála-
ákvæðin spanna vítt svið, allt frá
öryggi á vinnustað til jafnréttis
kynjanna, auk þess sem þar er að
finna ákvæði sem varða kaup og
kjör verkafólks, fatlaðra og líf-
eyrisþega. Þá hafa EFTA-löndin
samþykkt langan lista af EB-
reglugerðum á sviði neytenda-
verndar, svo sem um verðmerk-
ingar, farandsölumenn, auglýs-
ingar, greiðslukort ofl. Þessar
reglur setja ákveðnar lágmarks-
viðmiðanir, en hverju ríki er í
sjálfsvald sett hvort það vill hafa
reglurnar stangari.
Enn fjölgar stofnununum
Það hefur tekið langan tíma að
gera EES-samninginn og samn-
ingsgerðin steytt á ýmsum hindr-
unum. Sú síðasta voru athuga-
semdir EB-dómstólsins sem
töfðu undirritun samningsins um
nokkra mánuði. Pær snerust um
réttar- og eftirlitsþátt samnings-
ins sem er mjög viðamikill. Þar er
gert ráð fyrir að nokkrar nýjar
stofnanir verði settar á laggirnar.
Fyrst ber að nefna sameigin-
legar stofnanir EES en þær verða
fjórar: Ráðherraráð EES og
Sameiginleg EES-nefnd sem hafa
ákvörðunarvald og tvær sem
gegna ráðgjafarhlutverki: Þing-
mannanefnd EES og Ráðgjafar-
nefnd EES. Auk þess mun
EFTA koma sér upp þremur
stofnunum: Eftirlitsstofnun
EFTA og EFTA-dómstólnum
sem báðar eiga að tryggja fram-
kvæmd samningsins og Stjórnar-
nefnd EFTA sem ætlað er að
samræma stefnu og afstöðu
EFTA-ríkjanna.
Daglegur rekstur EES-svæðis-
ins verður í höndum EES-nefnd-
arinnar en í henni sitja embættis-
menn frá EFTA- og EB-ríkjun-
um. Valdamesta stofnunin verð-
ur hins vegar EES-ráðið þar sem
sitja ráðherrar EFTA, meðlimir
EB-ráðsins og framkvæmda-
stjórnar EB. f þessu ráði fer fram
pólitísk stefnumótun EES-samn-
ingsins. Allar ákvarðanir þessara
tveggja stofnana verða teknar
samhijóða.
Eftirlit með framkvæmd EES-
samningsins verður í höndum
Eftirlitsstofnunar EFTA og Fram-
kvæmdanefndar EB og eiga þær
að tryggja að samningsaðilar efni
skuldbindingar sínar, að ákvarð-
anir séu framkvæmdar á réttan
hátt og að allir þátttakendur virði
samkeppnisreglurnar. Sú fyrr-
nefnda verður skipuð sjö
mönnum, einum frá hverju
EFTA-ríki, og mega þeir ekki
taka við skipunum frá ríkisstjórn-
um, heldur ekki sinni eigin. Þetta
á að tryggja sjálfstæði stofnunar-
innar enda á hún að fylgjast með
.því að lögum um opinber inn-
kaup, samkeppni og ríkisstyrki sé
fylgt í EFTA-löndunum.
Akvarðanir í þessari stofnun eru
teknar með meirihluta atkvæða.
EFTA-dómstóllinn ásamt EB-
dómstólnum á að tryggja réttar-
eftirlit með ákvörðunum EES-
samningsins. EFTA-dómstóllinn
verður skipaður sjö mönnum sem
verða að fá einróma samþykki
ríkisstjórna EFTA. Þeir munu
kveða upp dóma í málum er
varða eftirlit með EFTA-ríkjun-
um og setja niður deilur milli
EFTA-ríkja um túlkun eða beit-
ingu EES-samningsins. Einstakl-
ingar geta einnig skotið málum til
dómstólsins.
Og þá er bara eftir að sjá hvort
þessi samningur verður að veru-
leika því enn eiga þjóðþing
EFTA-ríkjanna og Evrópuþingið
eftir að leggja blessun sína yfir
hann. Væntanlega verður það
ekki ljóst fyrr en að áliðnu
hausti, en samningurinn á að
taka gildi um næstu áramót um
leið og innri markaður EB verður
að veruleika. -ÞH
Minning
tEma Sigmundsdóttir
Fædd 13. iiinf 1930 - náin 2 maí 1992
Fædd 13. júní 1930 - Dáin 2. maí 1992
Kveðja frá vinnufélögum
Vor, sól hækkar á himni, gróður
vaknar af dvala og fuglar himins
syngja, vor, þetta litla orð, sem
hefur þó svo mikla merkingu og
gefur okkur von. Von um bjart
og hlýtt sumar, von um hlýja
bjarta daga, von um vinafundi og
ferðalög, von um gleðisöng og
gítarspil. Skyndilega dregur úr
eftirvæntingunni, ein sem átti að
vera með, halda uppi söngnum,
spila á gítarinn og taka þátt í
samverustundunum hefur verið
kölluð burt.
Vinnufélagi okkar, Erna Sig-
mundsdóttir, var kölluð burt
laugardaginn 2. maí sl. Á haust-
dögum kenndi hún sér meins,
sem í ljós kom að varð hennar
•banamein.
Hún gekk undir erfiða aðgerð
og háði baráttu sem sönn hetja.
Hjá okkur vinnufélögum Ernu
eru nú blendnar tilfinningar, von-
in sem fylgdi vorinu er tregafull
vegna söknuðar vinar.
Með þessum fátæklegu línum
viljum við votta börnum, tengda-
börnum, barnabörnum og bróður
samúð okkar. Við biðjum þess að
Guð leggi líkn með þraut.
Blessuð sé minning Ernu.
Samstarfsfélagar á bæjarfógeta-
skrifstofunni á Akureyri.
Aðstandendanámskeið
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur alkohól-
ista, hefst í dag, þriðjudaginn 12. maí.
Allar frekari upplýsingar og skráning á skrifstofunni
Glerárgötu 28, sími 27611.
S.Á.Á.-N.
Skíðafélag Dalvíkur
auglýsir eftir aðila
sem vill taka á ieigu rekstur á skíðaskála
félagsins, Brekkuseli.
Nánari upplýsingar hjá Jóni Halldóri í síma 61895.
Skíðaféiag Dalvíkur.
Vopnafjörður
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði
fyrir lögreglustöð á Vopnafirði og umboðsskrifstofu
sýslumanns þar, um 150-160 m2 að stærð.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og
áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík,
fyrir 20. maí 1992.
Fjármálaráðuneytið, 8. maí 1992.
ÚTBOÐ Auðkúluvegur 1992 Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum í
lagningu 2,8 km kafla á Auökúluvegi í Aust-
w ur-Húnavatnssýslu.
Magn 13.000 m3.
VEGAGERÐIN Verki skal lokið 30. september 1992.
Útboðsgögn veröa afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 12. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 25. maí 1992. Vegamálastjóri.
v
FRÁ HÁSKÓLAÍSLANDS
Skrásetning nýrra stúdenta
Skrásetning nýrra stúdenta til náms í
Háskóla íslands háskólaárið 1992-1993 fer
fram í Nemendaskrá Háskólans dagana 1.-12.
júní 1992.
Umsóknareyðublöð fást í Nemendaskrá sem opin er
kl. 10-16 hvern virkan dag á skráningartímabilinu.
Einnig verður tekið við beiðnum um skráningu nýrra
stúdenta dagana 6. til 17. janúar 1993.
Við nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafnframt
í námskeið á komandi haust- og vormisseri.
Umsóknum um skrásetningu skal fylgja:
1) Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófs-
skírteini.
2) Skrásetningargjald: kr. 22.350.
Ljósmyndun vegna nemendaskírteina fer fram í
skólanum í september 1992.