Dagur


Dagur - 14.05.1992, Qupperneq 3

Dagur - 14.05.1992, Qupperneq 3
Fimmtudagur 14. maí 1992 - DAGUR - 3 Fréttir í fullum skrúða í Smiðjunni á Akureyri. Frá vinstri: Helga Þórsdóttir, leiðbeinandi, Björk Ottósdóttir, Ester Ottósdóttir, Þórunn Þórðardóttir, Emma Stefánsdóttir, Dóróþea Reimarsdóttir og Lilja Torfadóttir. Á myndina vantar sjöundu konuna á námskeiði vetrarins, Guðrúnu Skarphéðinsdóttur. Mynd: Golli Sjö dugmiklar konur á Dalvík: Saumuðu sér upphlut og peysufót Aíkoma ríkissjóðs fyrstu þrjá mánuðina: Mun betri en áætlað var Trúlega eru ekki margar ungar konur nú til dags sem kunna að sauma peysuföt eða upphlut. Á liðnum vetri hafa sjö konur á Dalvík sótt námskeið hjá Helgu Þórsdóttur á Bakka í Svarfaðardal og saumað íslenska búninginn á sig. Sex þessara dugmiklu kvenna ásamt Helgu gerðu sér glaðan dag sl. föstudag í tilefni af því að saumaskapurinn væri búinn, snæddu kvöldverð í Smiðjunni á Aðalfundur Sambands íslenskra rafveitna verður haldinn í dag og á morgun á Akureyri að Hótel KEA og í Alþýðuhús- inu. Til fundarins mæta 140 fulltrúar af landinu öllu og gert er ráð fyrir að gestirnir verði 60 fleiri, þ.e. makar aðalfund- arfulltrúa. Fundarsetning hefst kl. 9.00 í Alþýðuhúsinu og strax á eftir verður gengið tii dagskrár í þremur fundarsölum. Mörg athyglisverð mál verða á dagskrá fundardagana. Nefna má umræð- ur um hugmyndir að breytingum Akureyri og brugðu sér síðan á sýningu Leikfélags Akureyrar á íslandsklukkunni. Að sjálfsögðu voru þær allar í þessum nýja glæsilega fatnaði. { samtali við Dag sagðist Helga skjóta á að með silfri væri kostn- aður við að koma sér upp upp- hlut hátt í 100 þúsund krónur. „Það er kannski ekki svo óskap- legur vandi að sauma upphlut, en óhætt er að segja að það krefjist mikillar yfirlegu. En óneitanlega á skipulagi orkumála, þar sem búast má við nýjum hugmyndum í orkuspármálum, einkaréttar- málum orkuveitna og umhverfis- málum þeirra. Á fundinum verða kynntar nýjar og samræmdar aðferðir við reikningsskil allra orkuveitna. Þá má þess geta að Hagsýsla ríkisins mun á fundin- um kynna gjörbreytt fyrirkomu- lag rafmagnseftirlitsmála. „Fundurinn markar tímamót í samstarfi raforkuveitna þar sem gert er ráð fyrir að á fundinum verði samþykkt stofnun tækni- ráðs, markaðsráðs, stjórnsýslu- er vandasamt að gera suma hluti, eins og t.d. stokkinn á peysuna. Emma Stefánsdóttir balderaði á beltið og peysuna á sínum upp- hlut og það er mjög mikil ná- kvæmnisvinna," sagði Helga. Hún sagðist vera ánægð með að ungar konur sýndu því svo mikinn áhuga að sauma sér upp- hlut og peysuföt. Á meðan áhug- inn væri til staðar varðveittist þessi þekking frá kynslóð til kyn- slóðar. óþh Bæjarstjórn Dalvíkur mun í sumar gangast fyrir átaki í atvinnumálum í samstarfí við Vísindanefnd Háskólans á Akureyri. Að sögn Jóns Þórð- arsonar, formanns nefndarinn- ar, er ætlunin að virkja hug- myndir um ný fyrirtæki og gera tilraun til að auka fjölbreytn- ina í atvinnulífí bæjarins. Að sögn Jóns verður fram- Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér frétt um afkomu ríkis- sjóðs fyrstu þrjá mánuði ársins í ár ásamt samanburði við sömu mánuði í fyrra. Sam- kvæmt henni var rekstraraf- koma ríkissjóðs rúmlega 900 milljónum betri en áætlað hafði verið. Tekjur voru 132 milljónum hærri en áætlað var og gjöld 774 milljónum lægri. Reyndar jukust tekjur ríkis- sjóðs um 2,6 milljarða króna milli ára en það samsvarar 13% aukningu á sama tíma og verð- bólgan var 6-7%. í fréttinni eru tíundaðar á þessu ýmsar skýring- ar sem flestar eru bókhaldslegar en einnig er nefnd til hert inn- heimta á bifreiðagjöldum og lækkun barnabóta. Á móti því vegur samdráttur í tekjum af innflutnings- og veltugjöldum sem stafar af almennum sam- drætti í efnahagslífinu. Á þessum ársfjórðungi var rekstrarhalli ríkissjóðs 4,6 millj- arðar eða 900 milljónum minni en áætlað var. Hallinn var 6,6 milljarðar á sama tíma í fyrra og er því þriðjungi minni í ár. Hrein lánsfjárþörf A-hluta ríkissjóðs nam á sama tíma 5,3 milljörðum en í fyrra var hún 8,2 milljarðar. Segir í fréttinni að tekist hafi að mæta lánsfjárþörfinni að mestu með sölu ríkisverðbréfa en í fyrra hafi henni að stærstum hluta ver- ið mætt með yfirdrætti í Seðla- banka. Þá er í fréttinni horft fram eftir árinu og sagt að nú þegar hafi „komið fram ýmis vandamál á útgjaldahlið sem þarf að bregðast kvæmd átaksins þannig að Vís- indanefnd Háskólans á Akureyri mun hafa starfsmann á bæjar- skrifstofunni á Dalvík í sumar og er hlutverk hans að vinna með einstaklingum eða hópum að athugun á hugmyndum þeirra um nýja atvinnusköpun á Dalvík. Haldnir verða hópfundir með þeim sem hafa hugmyndir á sama sviði, t.d. um opinbera starfsemi sem tlytja mætti til Dalvíkur, við. Hér má nefna aukin útgjöld í kjölfar kjarasamninga og viðbót- arútgjöld til ýmissa bundinna liða." Einnig segir að „enn hafi nokkur ráðuneyti ekki gripið til fullnægjandi aðgerða til að tryggja útgjaldamarkmið fjár- laga. Sem dæmi má nefna sjúkra- tryggingar, sjúkrastofnanir, málefni framhaldsskóla, embætti sýslumanna og ýmis verkefni umhverfisráðuneytis.“ Áhrif kjarasamninganna eru sögð rýra afkomu ríkissjóðs um rúman milljarð. Þar vega þyngst sérstakar aðgerðir í félags- og réttindamálum sem ríkisstjórnin lofaði að grípa til en þær kosta um milljarð. Þá muni launa- og lífeyrisgreiðslur hækka, en á móti vegi auknar tekjur vegna aukinna umsvifa í efnahagslífinu og lægri útgjöld vegna lægri vaxta. -ÞH Lengdarmet fiska af Islandsmiðum Samkvæmt skrá frá Hafrann- sóknastofnun var árið 1991 mikið lengdarmetár hjá fískum af íslandsmiðum. Þannig veiddist óvenju stór þorskur í Berufjarðarál fyrir ári. Þorskurinn reyndist 18 ára gamall hængur, 167 sm langur og 45 kíló á þyngd, slægður og gellaður. í janúar veiddist lengsta ýsa sem fengist hefur til þessa hér við land. Hún var 109 sm, 8,4 kíló slægð og 14 ára gömul. Hún veiddist á Vest- fjarðamiðum. Fleiri fiskar eru til- greindir í Ægi, riti Fiskifélags íslands. í október veiddist 38 sm langur karfi, suðvestur af Reykja- nesi og hann sá stærsti sem veiðst hefur á íslandsmiðum til þessa. í apríl veiddist 44 sm langur sand- koli út af Selvogi og ekki hefur veiðst stærri sandkoli hér við land svo vitað sé. Og í mars veiddist 46 sm löng skrápflúra undan Norð- austurlandi sem er sú lengsta sem hér hefur veiðst. ój þjónustugreinar, sjávarútveg og iðngreinar. Stefnt er að því að skila tillögum til atvinnumála- nefndar og bæjarstjórnar Dalvík- ur um miðjan ágúst nk. Jón sagðist vilja beina því til þeirra Dalvíkinga, sem vildu nýta sér þessa þjónustu, að vinna frek- ar úr hugmyndum sínum og hafa samband við Gunnlaug Sighvats- son í síma 61370 frá og með nk. þriðjudegi, 19. maí. óþh Sauðárkrókur: Vörusýning fyrir kjördæmið í júní Aðalfundur Sambands íslenskra rafveitna á Akureyri: Mun marka tímamót í samstarfi raforkuveitna - segir Eiríkur Eorbjörnsson, framkvæmdastjóri SÍR ráðs og fjármálaráðs raforku- I Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri veitna í landinu,“ segir Eiríkur | Sambands íslenskra rafveitna. ój Vísindanefnd HA og bæjarstjórn Dalvíkur: Taka höndum saman um að auka íjölbreytni í atvinnulífi Akureyri: Skorað á KEA að halda áfram verslunarrekstri í Höfðahlíð Helgina 19.-21. júní nk. veröur haldin vörusýning í íþróttahús- inu á Sauðárkróki. Þar munu ýmis fyrirtæki á Noröurlandi vestra og víðar að, kynna framleiðslu sína og þjónustu. Knattspyrnudeild Ungmenna- félagsins Tindastóls stendur að sýningunni og sér um fram- kvæmd hennar í samráði við Iðn- þróunarfélag Norðurlands vestra. Settir verða upp allt að fimmtíu sýningarbásar í íþrótta- húsinu og að sögn Þorsteins Birg- issonar, framkvæmdastjóra sýn- ingarinnar, eru þegar byrjaðar að berast inn pantanir á sýningar- plássi. Þorsteinn segir að sér finnist full þörf vera fyrir sýningu af þessu tagi, enda mörg ár síðan slík sýning hafi verið haldin í kjördæminu. Hann segist vera bjartsýnn á þátttöku og segir mjög góð viðbrögð hafi komið við þeim bréfum sem send voru til fyrirtækja og einstaklinga út af sýningunni. í því bréfi sagði m.a: „Hlutverk hennar (sýningarinn- ar) er að opna augu almennings enn betur fyrir NORÐURLANDI VESTRA og gefa öllum, er áhuga hafa á, kost á að kynna vörur sínar og framleiðslu." SBG Forsvarsmönnum Kaupfélags Eyfírðinga voru í gær afhentir undirskriftarlistar með nöfnum 354 íbúa í næsta nágrenni við Höfðahlíð, þar sem skorað er á KEA að halda áfram verslun- arrekstri í Höfðahlíð 1. Eins og komið hefur fram, mun Kaupfélagið loka Nettó verslun sinni í Höfðahlíð 1 á laugardaginn og opna hana að nýju að Óseyri lb föstudaginn 22. maí. Áskorun íbúanna er svohljóð- andi: „Við undirrituð viljum hér með skora á Kaupfélag Eyfirð- inga að halda áfram að hafa opna verslun með nauðsynjavörur í Höfðahlíð 1. Þar hefur verið verslun með nauðsynjar í áratugi og hér er fjölmennt íbúðahverfi og margir aldraðir, sem ekki hafa bíla til umráða og eiga óhægt með að sækja verslun um langan veg.“ -KK

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.