Dagur - 14.05.1992, Page 11
Fimmtudagur 14. maí 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
Hvernig í veröldinni kemur eigandi þessa húss bílnum sínum inn í bílskúrinn á efri hæðinni? Það er engin
furða þótt ljósmyndarinn hafi undrast þetta. En skýringin er sáraeinföld, eins og oftast. Eigandinn rekur
verkstæði á báðum hæðum hússins og efri dyrnar eru til þess að koma vörum inn á efri hæð verkstæðisins.
Fáir muna hver
hlaut Óskarsverð
launin í fyrra
- einugis 4 af 100 mundu hver var
besti karlleikarinn
Hver man snjóinn sem féll í
fyrra? Undir það geta kvik-
myndaleikarar og aðrar stjörnur
skemmtanalífsins tekið því fátt er
eins hverfult og fallvalt og frægð-
in á þeim vettvangi. Petta stað-
festist í lítilli könnun sem gerð
var á minni Bandaríkjamanna
hvað varðar handhafa Óskars-
verðlauna.
Eitt hundrað Bandaríkja-
menn, 50 af hvoru kyni, í fimm
borgum voru spurðir hverjir
hefðu hlotið þrenn helstu Óskars-
verðlaunin í fyrra, þe. besta
myndin, besti karlleikarinn í
aðalhlutverki og besta leikkonan
í aðalhlutverki. Mynd Kevins
Kostners, Dansar við úlfa, lifði
lengst í minni aðspurðra því 39
mundu að hún hafði fengið hinn
eftirsótta Óskar í fyrra. Heldur
fleiri konur en karlar mundu það.
Verr gekk þátttakendum að
muna hver hafði hlotið leikara-
verðlaunin. Sautján mundu eftir
Kathy Bates sem fékk Óskarinn
fyrir leik sinn í myndinni Misery,
en einungis fjórir mundu að það
var sá ágæti breski leikari Jeremy
Irons sem hlaut Óskar fyrir að
leika hinn meinta eiginkonu-
morðingja Claus von Bulow.
Þátttakendur stungu upp á
ýmsum leikurum og bíómyndum
og sum svörin voru eins og spegil-
mynd af tilnefningunum í ár en
könnunin var gerð rétt áður en
úthlutunin fór fram í vor. Einum
þátttakanda sem sagðist vera
mikill áhugamaður um kvik-
myndir þótti heldur neyðarlegt
að gata á öllum spurningunum og
sagði við spyrilinn: „En það er nú
ýmislegt annað sem skiptir máli í
tilverunni, ekki satt?“
Réttu svörin, að ofan: Jeremy
Irons, besti karlleikarinn, Kevin
Costner í bestu myndinni og besta
leikkonan, Kathy Bates.
Björgunarskóli Landsbjargar:
Nýir leiðbeinendur í skyndihjáip
Sunnudaginn 26. apríl lauk 12
daga námskeiði fyrir leiðbein-
endur í skyndihjálp. Nám-
skeiðið, sem var á vegum
Björgunarskóla Landsbjargar,
var haldið að Úlfljótsvatni.
Námskeið Björgunarskóla
Landsbjargar eru lengstu björg-
unarnámskeið sem haldin eru hér
á landi og sérstaklega sniðin fyrir
þarfir björgunarsveita. Þeir sem
standast próf að námskeiði loknu
fá réttindi sem leiðbeinendur og
jafnframt flokksstjóraréttindi
innan skipulags Álmannavarna
ríkisins.
Tólf manns tóku þátt í nám-
skeiðinu að Olfljótsvatni og komu
þeir víða af landinu. Aðalleið-
beinendur voru Thor B. Eggerts-
son, María Haraldsdóttir og
Guðmundur Ragnarsson.
Verðandi skyndihjálparkennarar ásamt leiðbeinenduin.
Fyrir sumarið!
Svampdýnur í sumarbústaðinn,
hjólhýsið, tjaldvagninn.
Svefnsófar eftir máli, hornsófar.
Sauma yfir dýnur og púða.
Mikið úrval áklæða.
SVAMPUR OG BÓLSTRUN
Austursíðu 2 (Sjafnarhúsið), sími 96-25137.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Ibúðir óskast!
Viljum taka á leigu 2ja-3ja herbergja íbúðir fyrir
starfsmenn okkar.
Vinsamlega hafið samband við Vigni Sveinsson
aðstoðarframkvæmdastjóra F.S.A.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 22100.
Bílskúrshurðaopnarar, bílskúrs-
hurðajárn og bílskúrshurðir
Fljótt samsettar léttar stálgrindahurðir klæddar
Oregonpine krossvið. Kynningarverð þessa viku.
Varahlutaþjónusta fyrir alla hurðaopnara og
járn, sérstaklega Lift-boy og Ultra lift opnara.
3S HF
Bílskúrshurðaþjónustan
farsími 985-27285
Er í bænum þessa viku.
<^° p%
Hin
sívinsæla
ölkeppni
verður að
sjálfsögðu
á sínum
stað
Milli kl. 10 og
11 verður
boðið upp á
ljúffengar
pizzusneiðar
sem fylgja
stórum bjór
DROPINN
HAFriARSTRÆTI 98 • AKUREYRl