Dagur - 28.05.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 28. maí 1992
Fréttir
Akureyri:
Ráðstefha um atvumu-
sköpun kvenna á
Norðurlandi eystra
- haldin dagana 19. og 20. júní nk.
Áhugahópur um atvinnumál
kvenna á Norðurlandi eystra
boðar til ráðstefnu á Akureyri
dagana 19. og 20. júní næst-
komandi undir yfirsskriftinni
„Að taka málin í eigin hend-
ur“. Samkvæmt upplýsingum
frá hópnun er ráðstefnan öll-
um opin en markmiðið með
henni er annars vegar að skapa
tengsl milli kvenna í atvinnu-
sköpun, bæði á Norurlandi
eystra og um allt land, og hins
vegar er ráðstefnunni ætlað að
vera vettvangur til að virkja þá
vakningu sem er um þessar
mundir meðal kvenna um allt
Iand bæði hvað varðar atvinnu-
Kröfluvirkjun:
Farfuglar
og ferðamenn
mættir
„Það er farinn að sjást hér
einn og einn ferðamaður og
rútur koma hér með skóla-
börn,“ sagði Birkir Fanndal,
yfirvélstjóri við Kröfluvirkjun,
aðspurður hvort farfuglar og
ferðamenn væru mættir á
svæðið.
Birkir sagði að allt væri komið
í venjulegt vorform þarna efra og
allir farfuglar sem vanir væru að
láta sjá sig væru komnir. Fleiri
fuglar en áður tíðkaðist eru nú
heimagangar við Kröfluvirkjun.
Þar eru maríuerlur, skógarþrestir
og hrafn, en hrafnar létu ekki sjá
sig heima við húsin fyrstu árin
eftir að virkjunin var tekin í
notkun. IM
sköpun og þörf til að hafa áhrif
á eigin atvinnuaðstæður og þar
með á eigið Iíf.
Áhugahóp um atvinnumál
kvenna á Norðurlandi eystra
skipa konur sem komnar eru úr
flestum héruðum landsins en ráð-
stefnan er sú þriðja í viðleitni
kvenna til að mynda hring um
landið. Fyrsta ráðstefnan var
haldin á ísafirði sl. haust og í vet-
ur var ráðstefna í svipuðum til-
gangi á Norðurlandi vestra. Ráð-
stefnan nýtur einnig stuðnings
jafnréttisnefndar Akureyrarbæj-
ar og atvinnumálanefndar, Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar,
Byggðastofnunar, Atvinnuþró-
unarfélags Þingeyinga og fleiri.
„Verið er að mynda atvinnu-
málanefndir kvenfélagasam-
banda um land allt, kvennahópar
formlegir og óformlegir halda
námskeið og ráðstefnur, konur
stofna samtök um smáiðnað, hitt-
ast til að skapa og ræða; konur
taka virkan þátt í átaksverkefn-
um og svo mætti lengi telja. Á
síðasta ári var í fyrsta sinn veitt
úr 15 milljóna sjóðnum til
atvinnusköpunar kvenna um land
allt. Þær milljónir voru enn frek-
ari hvatning til dáða. En sam-
starfið innan landshluta og milli
landshluta vantar. Þess vegna
höldum við þessa ráðstefnu, til
að konur geti hist, borið sama
bækur sínar og lagt sameiginlega
á ráðin um nánustu framtíð,“
segir í tilkynningu sem aðstand-
endur ráðstefnunnar sendu frá
sér í gær.
Meðal efnis á ráðstefnunni
verða ávörp Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur og Stefaníu Trausta-
dóttur en konur úr öðrum
landshlutum flytja einnig erindi.
JÓH
Mynd: Golli
í gær var unnið að lokafrágangi vegna sumarsýningarinnar í KA-höllinni sem hefst í dag.
Sýningin Sumar ’92 hefst á Akureyri á morgun:
Á flórða tug aðila sýna vörur sínar
Vöru- og sölusýningin Sumar
’92 verður opnuð í KA-höIlinni
á Akureyri síðdegis á morgun.
Að sögn Ómars Péturssonar,
framkvæmdastjóra sýningar-
innar, verða sýnendur 30-35
talsins og kemur um fjórðung-
ur þeirra af höfuðborgarsvæð-
inu.
Ómar segir að sýningin spanni
vítt svið en þó undir þeim for-
merkjum að vörurnar tengjast
sumrinu. „Þetta er allt frá mat-
vælum upp í tjaldvagna, bíla og
þess háttar,“ segir Ömar. Tölu-
verður hluti af sýningarvörum
eru innfluttar vörur en af heima-
framleiðendum má nefna Eyfirsk
matvæli, Mjólkursamlag KEA,
Fjöregg hf. og Foldu hf.
Sýningaraðstaðan innandyra í
KA-höllinni er um 1400 fermetr-
ar en auk þess verður um 2000
fermetra sýningarsvæði úti.
Ómar segir að nú verði aðgangur
að sýningunni ókeypis og vænt-
anlega auki það aðsóknina en
búist er við um 7000 gestum.
Sýningin verður opnuð kl. 17 á
morgun og verður opin til kl. 22
annað kvöld en á laugardag og
sunnudag verður opið milli kl. 12
og 18. JÓH
Rafveita Húsavíkur:
Sala dreifikerfisins á skoðunarstigi
„það verður ekki flanað að neinu,“ segir bæjarstjóri
voru þar til umræðu. Nýlega
komu fimm fulltrúar Rafmagns-
veitna ríkisins til viðræðna við
bæjarráð Húsavíkur um
„hugsanleg kaup“ Rarik á
dreifikerfi Rafveitunnar.
„Málið er á algjöru skoðunar-
stigi og það verður ekki flanað
að neinu í þessum efnum,“
sagði Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á fundi Bæjarstjórnar
Húsavíkur í síðustu viku er
málefni Rafveitu Húsavíkur
Frystihús Hólaness á Skagaströnd:
Bíðum eftir að þorskurinn
gangi á VestQarðarmið
- og erum bjartsýnir á næga atvinnu í sumar,
segir Haraldur Arnason
„Við erum að vinna grálúðu,“
sagði Haraldur Árnason, verk-
stjóri í frystihúsi Hólaness hf. á
Skagaströnd. „Þorskaflinn hef-
ur verið rýr að undanförnu en
nýlegar fréttir af afla við Suð-
vesturland vekja vonir um að
þorskurinn sé eitthvað að
glæðast. Togararnir hafa verið
að fá allt að 10 tonnum í hali
að undanförnu.“
Haraldur sagði að flakaða grá-
lúðan færi fyrst og fremst á
Þýskalands- og Frakklandsmark-
að en haus- og sporðskorin grá-
lúða færi til Japans og Taiwan.
Japanir borðuðu hana hráa.
Grálúðan er mjög feitur fiskur og
kvað Haraldur hana einna helst
líkjast rauðmaga í því efni - hún
væri mun feitari en önnur lúða.
Haraldur sagði frystihúsið fá
Haraldur Arnason, verkstjóri.
mest af sínu hráefni fá togurun-
um á staðnum en bátar lönduðu
fyrst og fremst rækju fyrir rækju-
vinnsluna.
Að sögn Haraldar Árnasonar
hefur atvinna verið næg en held-
ur ekkert meira. Hann sagði að
nokkuð af Pólverjum hefði unnið
hjá fyrirtækinu um tíma en nú
væru engir útlendingar á
staðnum. Hins vegar hefði ekki
þurft að segja fólki upp störfum
vegna minnkandi hráefnis. Ekki
er gert ráð fyrir að loka frystihúsi
Hólaness í sumar en á síðastliðnu
sumri var því lokað í nokkra daga
í lok ágúst en þá lýkur kvótaárinu.
Annars færi það eftir því hvernig
stæði á hjá veiðiskipunum þegar
liði á sumarið hvort hugað yrði
að lokun í einhvern skamman
tíma. Haraldur sagði að þeir hjá
Hólanesi biðu nú eftir því að þor-
skurinn gengi á Vestfjarðamið og
væru bjartsýnir á að nægileg
atvinna yrði í sumar. ÞI
Húsavíkurbær fékk Egil
Olgeirsson, rafmagnstæknifræð-
ing og Björn Haraldsson, endur-
skoðanda til að gera úttekt á
verðmæti dreifikerfisins, eftir að
fram hafði komið hugsanlegur
áhugi Rarik á kaupum á kerfinu.
Á fundi fulltrúa Rarik og
bæjarráðs var ákveðið að halda
áfram að skoða málin.
Talsverðar umræður urðu á
bæjarstjórnarfundinum um þetta
málefni. Fram kom að málið væri
ekki komið á það stig að ljóst
væri hvort raunverulegur áhugi
væri á sölu dreifikerfisins. Málið
væri á algjöru skoðunarstigi og
ljóst að ekkert yrði gert nema
málið fengi ítarlega umfjöll-
un í nefndum og bæjarstjórn.
Rarik þyrfti einnig að fá heimild í
fjárlögum áður en af slíkum
kaupum gæri orðið. Of snemmt
væri að tala um hvort einhverjar
líkur væru á sölu. IM
Kór Akureyrarkirkju:
í tónleikaferða-
lag til Danmerkur
Kór Akureyrarkirkju heldur
upp í tónleikaferð til Dan-
merkur föstudaginn 29. maí
nk. þar sem hann mun halda
ferna tónleika auk þess að
syngja í tvígang við guðsþjón-
ustur.
Kórinn syngur fyrstu tónleik-
ana sunnudaginn 31. maí í Sct.
Mortens kirkjunni í Randers,
vinabæ Akureyrar í Danmörku,
en fyrr þann sama dag syngur
kórinn við hámessu í Sct. Mortens
kirkjunni. Næstu tónleikar kórsins
verða í Fredens kirkjunni í Árós-
um þriðjudaginn 2. júní og þriðju
tónleikarnir í Silkeborg kirke
miðvikudaginn 3. júní. Síðustu
tónleikarnir verða í Dyssegárds-
kirke í Hellerup (úthverfi Kaup-
mannahafnar) laugardaginn 6.
júní. Söngferð Kórs Akureyrar-
kirkju lýkur með söng við
íslenska messu í Holmen kirkj-
unni í Kaupmannahöfn á hvíta-
sunnudag, sunnudaginn 7. júní.
Efnisskrá kórsins í þessari
fyrstu tónleikaferð hans erlendis
er blanda íslenskrar og erlendrar
tónlistar, bæði af kirkju- og ver-
aldlegum toga.
í tónleikaferðinn taka þátt um
45 manns. Stjórnandi Kórs Akur-
eyrarkirkju er Björn Steinar Sól-
bergsson. óþh