Dagur - 28.05.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 28. maí 1992
Litið inn í sal fornámsdeildar. Tvær stúlkur eru að bjástra við skúlptúra sem
eru ekki allir þar sem þeir sýnast.
Myndlistarnemendur skruppu út í molluna og stilltu sér upp fyrir myndatöku.
sóttu námskeið í Myndlistaskólanum á Akureyri í vetur.
Yfir 200 manns stunduðu nám og
Myndir: Golli
C ■L115 & .f
Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri
Mikil vinna er við uppsetningu Vorsýningarinnar og fá nemendur að kynnast
öllum stigum þeirrar vinnu.
Vorsýningin:
„Skiptir ekki öllu
máli hvar maður er“
- segir útskriftarnemandinn
Freyja Onundardóttir frá Pórshöfn
Freyja Önundardóttir er eini
nemandinn sem útskrifast úr
málunardeild Myndlistaskól-
ans á Akureyri að þessu sinni.
Hún sýnir lokaverkefni sitt á
Vorsýningunni, en það er fólg-
ið í fímm stórum olíumálverk-
um, auk þess sem hún sýnir
fleiri verk.
„Ég kom hingað frá Þórshöfn
til að stunda nám við Myndlista-
skólann og er nú að ljúka fjög-
urra ára námi. í lokaverkefninu
ákvað ég að taka manneskjuna
fyrir, allar myndirnar fimm eru
tilbrigði við manneskjuna. Ég
mála í olíu og er að gera tilraun
með fínlegri áferð sem ég næ
með því að mála þunnt lag og
fara fleiri umferðir," sagði
Freyja.
- Hvaðtekursvoviðhjáþér?
„Náminu er lokið þannig að ég
sný aftur heim til Þórshafnar."
- Með verkin í farteskinu,
væntanlega. Ætlarðu að vinna
við myndlist þar?
„Já, ég vonast til að geta helg-
að mig myndlistinni. Það er
draumurinn en það á eftir að
koma í ljós hvort hann rætist.
Maður stefndi að þessu í upp-
hafi.“
- En eru tækifærin ekki frekar
suður á mölinni en austur á
Langanesi?
„Ég held að það skipti ekki
öllu máli hvar maður er. Ég tel til
dæmis ekkert verra að vera á
Akureyri en í Reykjavík, þótt
þeir fyrir sunnan segi kannski
annað. Ætli þeir haldi ekki að
tækifærin séu frekar í útlöndum.
Ég held að maður geti allt eins
verið í sveitinni eða á litlum stað
ef manni líður vel og getur
unnið.“
Freyja lét vel af náminu og það
var kominn fiðringur í hana
vegna sýningarinnar. Manneskju-
myndirnar, lokaverkefni Freyju,
eru ekki málaðar eftir fyrirmynd
heldur eru þær sprottnar úr hug-
arheimi hennar. Þær eru voldug-
ar og litfagrar og burðarás Vor-
sýningar Myndlistaskólans, en
sýningin er að vanda ákaflega
fjölbreytt og skemmtileg. SS
Freyja Önundardóttir sýnir lokaverkefni sitt á Vorsýningunni, fimm stór
olíumálverk sem öll eru tilbrigði við manneskjuna. Hún er eini útskriftar-
nemandinn úr málunardeild að þessu sinni og ætlar að snúa aftur heim til
Þórshafnar. Mynd: Goiii
Hin árlega Vorsýning Mynd-
listaskólans á Akureyri hefst í
dag kl. 14 og verður sýningin
opin daglega fram á sunnudag
kl. 14-20. Flestir nemendur
skólans sýna þar afraksturinn
af starfí sínu í vetur og með
sýningunni lýkur átjánda
starfsári skólans en Myndlista-
skólinn á Akureyri var stofn-
aður 1974. Skólastjóri er Helgi
Vilberg.
„Aðstaða skólans gjörbreyttist
að öllu leyti þegar við fluttum
hingað upp í Gilið fyrir þremur
árum. Skólinn er núna miðsvæðis
í bænum og eins og menn vita þá
hafa miklir viðburðir verið að
gerast í Gilinu, í flestum húsanna
hefur verið að kvikna líf og
menningarstarfsemin mun
blómstra hér,“ sagði Helgi.
Umfang skólans hefur verið
svipað undanfarin ár og aðsókn
góð. í vetur stunduðu yfir 200
nemendur nám í Myndlista-
skólanum, bæði í dagskólanum,
sem skiptist í eins árs nám í for-
námsdeild og þriggja ára nám í
málunardeild, svo og á nám-
skeiðum fyrir börn og fullorðna.
Þá sækja nemendur á myndlista-
braut MA nám við Myndlista-
skólann.
Eins og Dagur hefur greint frá
er stefnt að því að koma á fót
deild fyrir grafíska hönnun við
skólann næsta haust og eykst þá
breidd hans til muna. Listrænn
undirbúningur, faglegt nám og
hagnýtt mun þá haldast í hendur
og deildirnar styðja hver aðra.
Einnig mun Myndlistaskólinn
koma inn í myndina ef kennara-
deild verður stofnuð við Háskól-
ann á Akureyri eins og ráðgert
er.
Fullskipað var í dagskólann í
vetur. Fjórtán nemendur útskrif-
ast úr fornámsdeildinni og halda
síðan áfram í mismunandi deild-
um í Reykjavík og á Akureyri.
Fimm komast inn í málunardeild
Myndlistaskólans. Þar voru fimm
á fyrsta ári í vetur og einnig fimm
á öðru ári en einn nemandi var á
þriðja ári og útskrifast því úr
málunardeild. Það er Freyja
Önundardóttir frá Þórshöfn, sem
rætt er við hér á síðunni.
Blaðamaður Dags og ljós-
myndari fylgdust með þegar
nemendur voru að undirbúa Vor-
sýninguna í vikunni. Sýningin
verður að vanda ótrúlega fjöl-
breytt. Freyja fær gott rými sem
útskriftarnemandi fyrir lokaverk-
efni sitt og langflestir nemendur
skólans eiga þarna verk, form-
teikningar, málverk, skúlptúra
og flest sem nöfnum tjáir að
nefna. Sýningunni er skipt upp
eftir því hvort nemendur voru í
fornámsdeild, málunardeild eða
á námskeiðum.
„Vorsýningin er lífsnauðsynleg
fyrir skólann. Nemendur fá að
spreyta sig við að velja verk á
sýningu og hengja upp og kenn-
urum, nemendum og áhugafólki í
bænum gefst kostur á að meta
vetrarstarfið og glöggva sig á
hvernig til hafi tekist. Þessar sýn-
ingar hafa verið ákaflega vel sótt-
ar og þótt viðburður í bæjarlíf-
inu. Mest höfum við fengið 1500
gesti á Vorsýningu sem er mjög
gott,“ sagði Helgi. SS