Dagur - 28.05.1992, Síða 16
Akureyri, fímmtudagur 28. maí 1992
Hádegistilboð alla daga
Súpa og salatbar ásamt okkar nýbökuöu brauöum fylgja öllum aðalréttum og pizzum
Frí heimsendingarþjónusta allan daginn
Alvöru 'veitinga.lixxs
VEITINGAHU8IÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
Póst- og símamálastofnunin:
Gunnarí Berg steftit
vegna sérsímaskrár
Lögfræðingur Póst- og síma-
málastofnunarinnar hefur stefnt
Gunnari Berg á Akureyri til
greiðslu á 204.000 kr. vegna
brota á fjarskiptaiögum við
útgáfu sérsímaskrár fyrir árið
1991. Gunnar er einn af þeim
sem staðið hafa fyrir útgáfu á
slíkum símaskrám á undan-
fömum ámm en Iögmenn Pósts
og síma telja að reglur hafí ver-
ið þverbrotnar í þessu sam-
bandi.
Dagur greindi frá því síðastlið-
ið haust að nokkrir aðilar, þeirra
á meðal Gunnar Berg og Knatt-
spyrnufélag Akureyrar, hefðu
fengið bréf frá lögmönnum Pósts
Húnaþing:
Tveir teknir á
170 km hraða
Sameiginlegt umferðareftirlit
Skagfírðinga og Húnvetninga
mældi tvo vélfáka á um 170 km
hraða á klst. skammt frá
Blönduósi að kvöldi þriðju-
dags.
Okumenn bifhjólanna voru
umsvifalaust stöðvaðir og þurftu
þeir að sjá á eftir ökuleyfum sín-
um vegna asans. SBG
og síma vegna meintra brota á
fjarskiptalögum í tengslum við
útgáfu sér- eða svæðissímaskráa.
í bréfinu voru leidd rök að því að
uppsetning efnis í umræddum
skrám væri ólögmæt en útgefend-
unum var gefinn kostur á að bæta
ráð sitt með því að greiða leyfis-
gjald án tafar, ella yrði lögð fram
kæra til refsingar.
Gunnar Berg var ófús að ræða
þetta mál í fjölmiðlum en hann
staðfesti að stefnan hefði borist
honum. „Mér er gert að greiða
ákveðið gjald samkvæmt reglum
um útgáfu sérsímaskráa frá 26.
júní 1991 sem vísað er til. Þetta
er allt hið undarlegasta mál eins
og sést best á þessu orðalagi í
stefnunni: „Ólögmæti bóta-
kröfunnar er byggt á 23. grein“
og svo framvegis. Ég vil ekki
ræða nánar um málið að sinni, en
það gæti snúist um prent- og tján-
ingarfrelsi í landinu," sagði
Gunnar.
Sveinn Brynjólfsson, formaður
knattspyrnudeildar KA, sagði að
deildin hefði gert út um málið við
Póst og síma á síðasta ári og það
væri úr sögunni. „Við sóttum um
Ieyfi til Pósts og síma í fyrra og
fengum það og greiddum ákveðið
leyfisgjald. Við sóttum aftur um
leyfi í ár og vonumst til að fá
það,“ sagði Sveinn. SS
Saltfiskafurðir SÍF:
Heildarverðmæti 13,6
milljarðar árið 1991
Heildarútflutningsverðmæti
saltfískafurða Sölusambands
íslenskra fískframleiðenda
nam 13,6 milljörðum króna á
árinu 1991. Þetta er 1,1 millj-
arði meira en árið áður, eða
tæplega 9% aukning. Á sama
tíma varð 6% samdráttur í
heildarútflutningi SÍF í tonn-
um talið, en alls voru flutt út
46 þúsund tonn af saltfíski í
fyrra. Útflutningsverðmæti
fyrir hvert tonn hefur því auk-
ist um 18% miili ára.
í ár eru 60 ár liðin frá stofnun
SÍF og var haldið upp á afmælið
að loknum aðalfundi í gær. Við
það tækifæri gaf Sölusambandið
Slysavarnafélagi íslands þrjú
miðunartæki og er verðmæti
þeirra um ein milljón króna. Pá
var forseta íslands afhend heið-
ursútgáfa af handriti að 60 ára
sögu SÍF sem gefin verður út inn-
an skamms.
Framleiðsla á saltfiskafurðum
hefur dregist saman undanfarin
ár samfara minnkandi þorskafla.
Heildarframleiðslan á síðasta ári
var 2.500 tonnum minni en árið
áður. Rúm 36% af heildarþorsk-
afla landsmanna fóru í saltfisk-
framleiðsluna.
Á síðasta ári seldi SÍF salt-
fiskafurðir fyrir 286 framleiðend-
ur um land allt og voru flestir á
Norðurlandi eða alls 91.
Um 98% útfluttra saltfisk-
afurða fóru til landa Evrópu-
bandalagsins í fyrra, miðað við
verðmæti. Portúgal er stærsta
viðskiptalandið en síðan koma
Spánn, Ítalía og Frakkland. SS
Meleyri er stærsti vinnuveitandinn á Hvammstanga en þar starfa á bilinu 60-80 manns. Mynd: þi
Meleyri hf.:
Unnið úr 3000 tonnum af
rækju á síðasta árí
- erum bjartsýnni nú eftir að verðið fór að hækka,
segir Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri
„Við reiknum með að geta
tekið við skólafólki þegar það
kemur á vinnumarkaðinn að
prófum loknum eins og áður,“
sagði Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Meleyrar á
Hvammstanga. Meleyri er
rækjuvinnsla og starfa þar á
bilinu 60 til 80 manns. Starfs-
mannafjöldi sveiflast nokkuð
til eftir árstíðum og hefur mest
farið í um 90 manns að sumar-
lagi en þá er verið að vinna úr
þeirri rækju sem aflast inni í
fjörðum.
Halldór sagði að á síðasta ári
hefði verið unnið úr 3000 tonnum
af rækju og um 600 tonnum af
hörpudiski hjá Meleyri. Hvað
horfurnar framundan varðar
sagði hann að staðan hafi verið
erfið síðustu tvö árin eftir að verð
á rækju hrundi en nú væru menn
bjartsýnni eftir að verðið hafí
hækkað nokkuð á nýjan leik.
Engar líkur séu þó til þess að
verðið eigi eftir að hækka í lík-
ingu við það sem var er rækju-
verð náði hámarki.
Meleyri var stofnuð 1972 þegar
veiðar á innfjarðarækju hófust í
Húnaflóa en fram til þess tíma
hafði engin teljandi útgerð verið
stunduð frá Hvammstanga. Nú er
Meleyri stærsti vinnuveitandinn á
staðnum og hefur starfsmanna-
fjöldinn verið svipaður á undan-
förnum árum. Halldór Jónsson
sagði að ef beitt væri meðaltals-
tölum við útreikninga mætti gera
ráð fyrir að allt að 300 manns
hefðu framfæri af starfsemi fyrir-
tækisins. Nú sem stendur eru
fimm rækjuskip gerð út frá
Hvammstanga en fjöldi þeirra er
nokkuð breytilegur eftir árs-
tíma. Þá kaupir fyrirtækið einnig
rækju af bátum við Breiðafjörð
og er hún flutt landleiðina til
vinnslu á Hvammstanga. Er þar
um bæði minni og stærri báta að
ræða en mest af þeirri rækju er
veitt í Kolluál. Halldór sagði að
megnið af framleiðslu Meleyrar
færi nú á Bretlandsmarkað en
einnig nokkuð til Danmerkur.
Knýjandi væri þó orðið að finna
fleiri markaði því ákveðin áhætta
fylgdi því að stóla um of á einstök
markaðssvæði.
ÞI
Húsavík:
2000 birkiplöntur í Skálamel
- framlag úr Yrkjusjóði forsetans
Um 2000 birkiplöntur verða
gróðursettar í Skálamel, neðst
í Húsavíkurfjall í dag. Það er
Foreldrafélag Barnaskóla
Húsavíkur sem fyrir gróður-
setningunni stendur en plönt-
urnar eru fengnar með fram-
lagi úr Yrkjusjóði forseta
íslands, frú Vigdísar Finnboga-
dóttur.
Félagar úr Húsgulli munu
stjórna gróðursetningunni sem
börnin, ásamt foreldrum og
kennurum, munu annast. Annars
er öllum velkomið að mæta og
Ieggja hönd á plóginn, frændum,
frænkum, vinum og vandamönn-
um.
Halldór Valdimarsson skóla-
stjóri sagðist, í samtali við Dag,
vilja hvetja sem flesta til að
mæta. Það er orðin hefð að For-
eldrafélagið standi fyrir gróður-
setningardegi á uppstigningar-
dag, en stundum hefur þurft að
fresta gróðursetningu vegna tíð-
arfars. Þetta er talinn góður endir
á vetrarstarfi skólans.
Kjarasamningar:
Lækkun gjalda fvrir læknisþjónustu barna
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
hefur efnt loforð sitt til aðiia
vinnumarkaðarins við gerð
kjarasamninga um að lækka
gjöld fyrir læknisþjónustu
vegna barna sem ríkisstjórnin
hafði áður hækkað.
í gær gaf heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra út reglugerð
þar sem kveðið er á um lækkun
gjalda fyrir læknisþjónustu vegna
barna. Þann 1. júní nk. falla
alveg niður gjöld vegna komu
barna, 6 ára og yngri, á heilsu-
gæslustöðvar og til heimilis-
lækna. Sighvatur Björgvinsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, tók þessi gjöld upp á síð-
asta ári og námu þau 600 kr.
Sama dag lækka gjöld fyrir
læknisþjónustu vegna barna, sem
njóta umönnunarbóta, niður i
þriðjung af því sem nú er greitt.
Það á við um heimsóknir á
heilsugæslustöðvar, til sérfræð-
inga og til rannsókna og verða
gjöldin þau sömu og elli- og
örorkulífeyrisþegar greiða.
Sameiginlegt gjaldahámark
vegna barna í sömu fjölskyldu
lækkar um helming í 6.000 kr. á
ári og tekur sú lækkun til alls
almanaksársins. Tryggingastofn-
un ríkisins mun endurgreiða
þeim fjölskyldum sem þegar hafa
greitt meira en 6000 kr. þau
útgjöld sem fara fram úr nýja
gjaldahámarkinu.
GT
Það eru margar trjáplöntur
komnar í fjallið eftir þessa daga,
10-15 þúsund sagðist Halldór
giska á. „Við erum stolt af þess-
um lundi og gróðurinn virðist á
góðri leið,“ sagði hann. Halldór
sagði að gróðursetningarátakið
teygði sig nú í átt til Skálatjarnar
og þegar þangað væri komið
hefðu menn hug á að planta þar
blómgróðri við hæfi.
Áætlað er að gróðursetningu
ljúki um kl. 15.30 og þá verður
Foreldrafélagið með kaffi- og
kleinusölu við skólann og krakk-
arnir fá pylsu og drykk gegn vægu
gjaldi. IM