Dagur


Dagur - 06.06.1992, Qupperneq 2

Dagur - 06.06.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 6. júní 1992 Fréttir Húsnæðisstofnun ríkisins: Færri íbúðum úthlutað í félagslega kerfinu í ár - alls 533 og þar af 355 á höfuðborgarsvæðinu Húsnæðisstofnun hefur gefið 60 félagslegum framkvæmda- aðilum á landinu fyrirheit um framkvæmdalán til byggingar eða kaupa á 533 íbúðum á árinu 1992. Alls bárust gildar umsóknir um 2.044 íbúðir. Af þessum 533 félagslegu íbúðum eru 355 á höfuðborgarsvæð- inu, 139 í öðrum landshlutum og 39 „óstaðsettar“ eins og segir í greinargerð frá Hús- næðisstofnun ríkisins. Þetta eru öllu færri íbúðir en úthlutað var til sveitarfélaga á árinu 1991 en þá voru þær 597 og gildar umsóknir um alls 1.716 íbúðir. Á þessu má sjá að niður- skurðurinn nemur 64 íbúðum á landinu öllu. Áætlaðar heildarlánveitingar Fjölbýlishús: til þeirra 533 íbúða sem fram- kvæmdalán verða veitt til nema 3,1 milljarði króna. Þar af er gert ráð fyrir að 1 milljarður komi til útborgunar í ár en 2,1 milljarður á árinu 1993. f greinargerðinni er getið um hámarksstærð á félagslegum íbúðum og hámarkskostnað við byggingu þeirra, tölur um íbúða- þörf eftir landshlutum eru reifað- ar, skilyrða sem fylgja lánveiting- um er getið og svo og þeirra atriða sem höfð voru að leiðar- ljósi við veitingu framkvæmda- lána. Lítum á síðastnefnda atriðið, en þar er kannski að finna ástæðu þess að sum sveitarfélög fá mun færri íbúðir í ár en í fyrra. Fyrstu sex atriðin sem tilgreind eru hljóða svo: Herb.- fjöldi Brúttósueiö m2 Háinarksverð 100% Hámarlslán 90% Byggingarkostnaöur kr7m2 1 60 5.038.000 4.534.000 83.967 2 70 5.498.000 4.948.000 78.543 3 90. 6.418.000 5.766.000 71.311 4 105 7.109.000 6.398.000 67.705 5 120 7.799.000 7.019.000 64.992 6 130 8.258.000 7.432.000 63.523 Parhús og raöhús: Herb.- Brúttóstairö fjöldi m2 Hámaiksverð Hámarkslán 100% 90% Byggingarkostnaður kr7m2 i 60 6.144.000 5.530.000 102.400 2 70 6.705.000 6.035.000 95.786 3 90 7.827.000 7.044.000 86.967 4 105 8.670.000 7.803.000 82.571 5 120 9.511.000 8.560.000 79.258 6 130 10.071.000 9.064.000 77.469 Hámarksstærðir og hámarksbyggingarkostnaður félagslegra íbúða. Landbúnaðarráðherra: Almennir bændafundir Fyrsti fundur ráðherra verður í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit þriðjudaginn 9. júní kl. 21.00. Daginn eftir, miðvikudaginn 10. júní verður fundur í Ýdölum í Aðaldal kl. 21.00 og í Valaskjálf á Egilsstöðum fimmtudaginn 11. júní kl. 21.00. Laugardaginn 13. júní boðar ráðherra til fundar í Miðgarði í Skagafirði kl. 13.30. Daginn eftir, sunnudaginn 14. júní verð- ur ráðherra með fund á Hótel Borgarnesi kl. 13.30 og á Hótel Selfossi kl. 21.00 þann sama dag. Halldór Blöndal, landbúnaö- arráðherra boðar til almennra bændafunda víðs vegar unt landið á næstunni. Á þessum fundum mun ráðherra flytja ræðu um stöðu og horfur í landbúnaði og svara fyrir- spurnum, auk þess sem almenn- ar umræður verða. Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga: Þrettán sækja um stöðu framkvæmdastjóra Það bárust 13 umsóknir um stöðu framkvæmdastjóra At- vinnuþróunarfélags Þingey- inga, en umsóknarfrestur rann út 25. maí sl. Reinhard Reynisson, stjórnarformaður félagsins sagðist reikna með að stjórnin færi yfir umsóknirnar nú um helgina og í næstu viku yrði hringurinn eitthvað þrengdur varðandi hver umsækjend- anna yrði fyrir valinu. Hann sagðist vona að hægt verði að ganga frá ráðningu sem fyrst. IM Húsnæðisþörf einstaklinga og fjölskyldna var metin og voru þar lagðar til grundvallar húsnæðis- kannanir, sem fylgja umsóknum sveitarfélaga. Lánveitingar síðustu 2ja ára til félagslegra íbúða í hverju byggð- arlagi fyrir sig voru hafðar til hliðsjónar, svo og fjöldi félags- legra íbúða í byggðarlaginu. Höfð var hliðsjón af því hvort fyrri lánveitingar til byggingar eða kaupa á félagslegu húsnæði hefðu verið notaðar. Tekið var tillit til þess hvort sveitarstjórnir þær, sem hlut áttu að máli, hafi undanfarið hafnað forkaupsrétti á félagslegum íbúð- um, sem komið hafa til innlausn- ar hjá þeim eða fengið íbúðir fluttar milli íbúðakerfa. Tekið var tillit til þess hvort félagslegar íbúðir hafa verið seld- ar einstaklingum, sem hafa verið yfir gildandi tekjumörkum eða ef litlum fjölskyldum hefur verið úthlutað óhóflega stórum íbúð- um. Atvinnuástand og hugsanleg búsetuþróun á hverjum stað fyrir sig var höfð í huga, miðað við til- tækar upplýsingar, svo sem úr lánsumsóknum og frá ýmsum ríkisstofnunum. SS Starfsemi Straumfisks hf. á Svalbarðseyri eykst með hverju árinu. Nýverið voru 20.000 laxar flokkaðir eftir stærð og þeir stærri fluttir til sjávar í flotkví þar sem þeir verða fóðraðir í sumar. I haust verður laxinum slátrað, en fram- leiðsla Straumfisks hf. hefur farið á Frakklandsmarkað í gegnum umboðs- aðila á ísafirði. Mynd: ój Bygging bóknámshúss fyrir FNVáS: Kostnaði misskipt miðað við lög Stofnkostnaði við byggingu húsakynna fyrir framhalds- skóla er misskipt milli aðila þegar miðað er við lög um framhaldsskóla en þar segir að kostnaði við byggingarfrant- kvæmdir og stofnbúnað fram- haldsskóla skuli skipt á milli ríkissjóðs og sveitarfélaga í ákveðnu hlutfalli. Að sögn Magnúsar Sigurjónssonar, framkvæmdastjóra Héraðs- nefndar Skagafjarðar skýrir Stjórnarráðið lögin svo að lög- bundinn eldvarnarbúnaður og lyftur séu ekki stofnbúnaður. „Kostnaður við byggingar- framkvæmdir og stofnbúnað framhaldsskóla skiptist þannig að ríkissjóður greiðir 60% áætlaðs kostnaðar samkvæmt viðmiðunar- reglum... Hlutur sveitarfélags eða sveitarfélaga er þá sá hluti kostnaðar sem ríkissjóður greiðir ekki,“ eins og segir í 3. gr. laga nr. 57 frá 1988 um framhalds- skóla. Að sögn Magnúsar greiðir ríkissjóður sinn fasta hlut einung- is samkvæmt viðmiði sem ríkið ákveður sjálft. í viðmiðinu felst áætlaður kostnaður en ríkið telur ýmiss konar aukakostnað falla utan við viðmiðið. Þar á meðal eru lögbundin atriði s.s. eldvarn- arkerfi og lyftur sem eru nauð- synlegar fötluðum nemendum og orkar lögskýring stjórnarráðsins því tvímælis. Allur kostnaður sem fer fram úr föstum hlut ríkis- ins er greiddur af sveitarfélögum. Magnús segir að sveitarfélög víða um land hafi reynt að vekja máls á misræmi í kostnaðarskipting- unni. „Við erum að reyna að fá þetta leiðrétt en það hefur ekki tekist og það er víðar sem ríkið setur einhliða reglur og tekur ekki til greina röksemdir. Þeir hafa budduna og ráða hvað þeir borga okkur en viðmiðunin er eldgömul," segir Magnús. Hákon Torfason, deildarstjóri 1 byggingardeild Menntamála- ráðuneytisins vísar þessu á bug. Hákon segir að ríkissjóður greiði sinn fasta hundraðshluta af við- Arthur Bogason vegna ummæla Þorsteins Más: „Þorsteinn umgengst sannleikann eins og frystitogari fisk“ - hirðir það sem honum hentar, hendir hinu Vegna ummæla Þorsteins Más Baldvinssonar, framkvæmda- stjóra Samherja hf. í blaðinu í gær, vill Arthur Bogason, for- maður Landssambands smá- bátaeigenda, taka eftirfarandi fram: „Þorsteinn umgengst sannleik- ann eins og frystitogari fisk, hirð- ir það sem honum hentar, hendir hinu. Mér finnst öll viðbrögð Þorsteins vinar míns bera keim af félaga Napóleon þegar hann var að verja sérhagsmuni sína og hinna svínanna. En gamanlaust sagt, þá er ekki hægt að líða að Þorsteinn geti villt um fyrir almenningi með þeim hætti sem hann gerir. Ég held því að það væri kjörið tækifæri fyrir RÚVAK að stefna okkur saman í beinni útsendingu. Sjái svæðis- útvarpið sér slíkt fært skora ég hér með á Þorstein Má að mæta mér á þeim vettvangi og finna þar orðum sínum stað. Með bestu kveðju Arthur Bogason.“ miðinu og að lögin séu til einföld- unar á skiptingu kostnaðar. Að sögn Hákonar er eldvarnarbún- aður og lyftukostnaður ekki tal- inn til stofnbúnaðar. „Við borg- um bara ákveðinn hluta á fer- metra og sveitarfélögin hafa sjálf samið um þetta. Lyfta og eld- varnarbúnaður er bara hluti af húsinu og það er innifalið í þessu viðmiði,“ segir Hákon í samtali við Dag. Öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra standa að fjölbrauta- skólanum en flest hafa þau bund- ist samtökum í héraðsnefndum. Héraðsnefnd Skagafjarðar, Siglu- fjarðarbær og Héraðsnefnd Vest- ur-Húnavatnssýslu standa að byggingu bóknámshússins en Héraðsnefnd Austur-Húnavatns- sýslu tekur ekki þátt. í lögum um framhaldsskóla er aðeins talað um þátttöku sveitarfélaga almennt. „Það er mjög slæmt að sveitarfélög geti vikist undan því að taka þátt í uppbyggingu skól- anna. Löggjafinn hefur brugðist þar sem ekki er kveðið á um það í lögum hvaða sveitarfélög eigi að standa að framhaldsskólunum,“ segir Magnús. Varla er heimilt að neita nemendum á svæði skólans inngöngu í hann vegna þess að viðkomandi sveitarfélög hafa ekki tekið þátt í kostnaði. „Það hefur a.m.k. ekki verið gert hér,“ segir Magnús. Samkvæmt samkomulagi sín á milli skipta sveitarfélögin, sem að bóknámshúsinu standa, afgangs- kostnaði þannig að Siglulfjarðar- bær og Vestur-Húnavatnssýsla greiða fastákveðið hlutfall af 40%-hlut sveitarfélaganna af við- miðinu. Af þessu leiðir að allur aukakostnaður og óvissuþættir lenda á Héraðsnefnd Skagafjarð- ar enda er hún ábyrg fyrir bygg- ingunni og sér um hana. GT

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.