Dagur - 06.06.1992, Page 5

Dagur - 06.06.1992, Page 5
Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 5 EFST í FIUGA Jón Flaukur Brynjólfsson Með grátstafinn í kverkunum Öðruvísi mér áöur brá. Það er ekki nema örstutt síðan íslendingar voru hrókar alls fagnaöar, hamingjusamasta þjóö í heimi og ég veit ekki hvað. Viö vorum bestir, ríkastir, gáfaðastir og fallegastir og áttum heimsmet í öllu mögulegu og ómögulegu. Hvergi var jafn gott að búa og á Islandi, hér draup smjör af hverju strái og hvergi var unnt að finna jafn hreint loft og vatn né fegurra mannlíf - nema hugsanlega að næturlagi um helgar. Auðvitað trúði þessu enginn innst inni. Það hefur jú vissulega verið gott að búa á íslandi en að sjálfsögðu ekki jafn gott og við höfum haldið svo staðfastlega fram. Þá hefðum við ekki sífellt þurft að tönglast á þessari blessaðri höfðatölu sem við grípum jafnan til þegar við förum halloka í einhverju eða viljum leggja aukna áherslu á unnin afrek okkar fólks. Ef ísland væri þessi paradís á jörð væri auðvitað orðið krökkt hér af fólki en maður hefur ekki orðið var við það. Ferða- menn sem hingað hafa slysast hafa reyndar ekki komist hjá því að dásama fegurð lands og þjóðar enda er fyrsta setningin sem allir útlendingar fá að heyra: „How do you like lceland?" Þeir sem hafa komið oftar en einu sinni halda sjálfsagt að íslendingar heilsist með þessum orðum. En þótt hinir erlendu gestir kunni ekki við að hreyta ónotum í biðj- andi íslensk andlitin eru margir án efa þeirri stundu fegnastir er þeir halda aftur til síns heima. Veðurfarið hér getur verið býsna hvimleitt, verðlagið er fyrir neðan (eða réttara sagt ofan) allar hellur, drykkjuskapur- inn ægilegur og svona maetti lengi telja. Það er eðlilegt að við íslendingar séum hreyknir af landinu og okkur sjálfum. Hverjum þykir sinn fugl fagur, jafnvel þótt hann trúi því ekki innst inni. Smáþjóð eins og okkur er nauðsynlegt að trúa því að við séum á ein- hvern hátt betri en aðrir og þótt þjóðarstoltið fari oft út í hreinan rembing er það betra en niðurlægjuháttur og minnimáttarkennd. En nú virðast íslendingar vera að taka hvílíkum sinnaskiptum að enginn hefði trúað því á dögum hamingjukönnunarinnar frægu. Hvar sem maður kemur heyrir maður og sér harmþrungna (slendinga barma sér yfir hlut- skiptinu, að búa á þessu skeri sem allir vissu að aldrei var byggilegt. Allt er að fara til fjandans og að hruni komið, hvort sem það er þorskstofninn eða kommúnisminn. Við eigum enga peninga og það er varla fyrir- hafnarinnar virði að opna launaumslagið. Veðrið er hundleiðinlegt, við reykjum alltof mikið og heilbrigðisráðherrann hlýtur að vera að missa vitið. KA og Þór er spáð falli í 2. deild, Rás 2 heyrist sko bara ekki neitt um land allt og svona mætti lengi telja. Kvartanir og kveinstafir í öllum hornum og hvílíkt ólán að vera (slendingur. Ég endurtek það sem ég sagði fyrst: Öðruvísi mér áður brá. íslendingar, áður hamingjusamasta þjóð í heimi, þjást nú af svo mikilli minnimáttarkennd og svartsýni að þeir ganga um með grátstafinn í kverkunum. Það er svo sannarlega mál að linni. Hvernig væri nú að hætta þessu svartagallsrausi og taka upp fyrri siði; telja sjálfum okkur og öðrum trú um að hvergi sé betra að búa? Vanmeta- kenndin fer okkur illa á meðan gömlu góðu drýgindin eru ómissandi hlutur í fari sér- hvers íslendings. Upp með þjóðrembinginn! Fréttagetraun 1. Hvað heita sjávarútvegsfyrirtækin ná- tengdu á Raufarhöfn og hver var saman- lagður hagnaður þeirra á síðasta ári? 2. Hver er formaður Verkalýðsfélagsins Einingar? 3. Hvaða tveir heiðursmenn á Akureyri urðu sextugir miðvikudaginn 3. júní? 4. Hvar var sjávarútvegssýningin „World Fishing Exhibition“ haldin? 5. Hvaða þrjú verk hefur verið tilkynnt að Leikfélag Akureyrar muni sýna á næsta leikári og hverjir eru höfundar verkanna? 6. Hvar var fyrsta skóflustungan að íþrótta- húsi tekin sl. laugardag og hver tók hana? 7. Hvað heitir þungarokkshljómsveitin sem átti að spila í Laugardalshöll í gær og hvað heitir nýjasta plata sveitarinnar? 8. Hvert var rekstrartap Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. á síðasta ári? 9. Hvers vegna er leiðin greið fyrir eggja- og fálkaþjófa í Mývatnssveit? 10. Hver var í síðasta helgarviðtali Dags, laugardaginn 30. maí? 11. Hverjir skoruðu mörk KA í 3:3 jafntefli gegn FH? 12. Orðabókarspurning: Hvað þýðir sögnin að fundáta? SS ■E|}!d •z\ •pU!|5fJBfa JBAJ So (l) U0SSS/(|JQ JJBUIJQ ’JJ sSn[js}UB|Jv u9f)SBpujæA>| -UJBJJ ‘UOSSQjnSlS JOPIIBJJ '01 •JB }Sb| JBA SUUBIUS)!|J|)J3E>||BJ JJBJg g "buoj5| Jjuofuiui 6‘Z8 '8 •>iJBa aqi jo JE3J uopiBjA] uojj ' 1 sddojq -jBfæqisx|Q ijiAppo ‘uos -snjSjS jnqjjjg ipuBiBSnBa p BipqsjnqjauiBio^j Qiy\ '9 ■snqs /fjjB-j jijjd jouSjajoj aqx 80 uojSpuiq puisy -*!}J3 JnqqosSuB| bujt ‘ssnBj)s Ji)jo UB5|B|qjnQ3-i g ujoq -BUUBUldnB^ I J0)U3Q B||3g J V •Ul|B)IBfH UJBg So UOSSJIQ iQupui •£ uossujofqæus ujofg 'Z •jq Jiuofnjui sz -iBujBq -jBjnBg EfQjqsy So qnqof -j ‘-WS Gæðingakeppni FUNA Melgerðismelum 12.-13. júní Dagskrá: Föstudagur 12. júní, kl. 16.00. Yngri og eldri flokkur unglinga. A- og B-flokkur gæðinga. Laugardagur 13. júní. 9.00 Opin töltkeppni. - Undanúrslit. 13.00-15.00 Úrslit — Yngri/eldri unglingar, A/B-flokkur. 15.00 Úrslit í tölti. 16.00 Kappreiðar. 20.00 Útreiðartúr og grillveisla. Skráning til miðvikudags 10. júní í 31220 (Reynir), 31334 (Þorsteinn). Einnig í Hestasporti. Útflutningsráð íslands boðar til opins fundar um útflutningsmál á Hótel KEA, miðvikudaginn 10. júní 1992, kl. 16.00. Dagskrá: 1. Kynning á starfsemi Útflutningsráðs íslands. - Gunnar Rafn Birgisson. - María E. Ingvadóttir. - Vilhjálmur Guðmundsson. 2. Staða gjaldeyrisöflunar íslendinga - framtíð- arhorfur. - Ingjaldur Hannibalsson. 3. Umræður. Fundarstjóri: Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Almennir bændafundir með Halldóri Blöndal landbúnaðarráðherra verða haldnir sem hér segir: Laugaborg, Eyjafjarðarsveit þriðjudaginn 9. júní kl. 21.00. Ýdalir, Aðaldal miðvikudaginn 10. júní kl. 21.00. Vaiaskjálf, Egilsstöðum fimmtudaginn 11. júní kl. 21.00. Miðgarður, Skagafirði laugardaginn 13. júní kl. 13.30. Hótel Borgarnes, Borgarnesi sunnudaginn 14. júní kl. 13.30. Hótel Selfoss, Selfossi sunnudaginn 14. júní kl. 21.00. Dagskrá fundanna: Landbúnaðarráðherra flytur ræðu um stöðu og horfur í landbúnaði. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fundirnir eru öllum opnir Landbúnaðarráðuneytið

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.