Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 6. júní 1992
Unglingasíðan
Iris Guömundsdóttir
Unglingar í sumarvinnu
Það er í sumar, eins 03 fyrri sumur, að það eru einhverjir sem ekki fá vinnu. Flest fyrirtæki
reyna að ráða einhverja skólakrakka til sumarafleysinga en það nægir samt ekki til að allir
geti fengið eitthvað að gera. Akureyrarbær starfrækir unglingavinnuna og markmiðið þar
er að sem flestir fái vinnu a.m.k. einhvern hluta úr sumrinu. í unglingavinnunni gefst
krökkunum færi á að vera úti og þykir það góð tilbreyting frá því að vera inni í skólanum
allan veturinn. En það eru ekki allir sem verða í ungiingavinnunni. Margir hafa starfað á
sama vinnustaðnum sumarið áður og jafnvel lengur en aðrir eru að hefja störf í fyrsta skipti
í ár. Ég hitti að máli nokkra hressa unglinga en vil taka það fram að einhverra hluta vegna
hefur mér gengið illa að fá stráka til að ræða við mig.
Hildur, Ásta og Svanhildur ætla í eins margar útilegur og þær geta í sumar.
Vinnan 03 ástin
Þær Ásta Kristinsdóttir, Svanhild-
ur Kristjánsdóttir og Hildur
Hauksdóttir sem allar eru 16 ára
voru á kvöldgöngu þegar ég hitti
þær. Þær eru allar búnar að fá
vinnu í sumar og eru mjög ánægð-
ar með þau störf sem þær fengu.
Ásta verður í efnaverksmiðj-
unni Sjöfn þar sem hún var einnig
í fyrra sumar. Hún vinnur frá
klukkan 7.30. til 18. 30 við að
líma miða á málningarfötur og
kann hún því ágætlega. Svanhild-
ur verður að vinna á Borgarvellin-
um í Sunnuhlíð og segir að hún sé
mjög ánægð með það vegna þess
að hún hefur gaman af börnum.
Hildur verður að vinna í skóla-
görðunum en veit ekki nákvæm-
lega hvað hennar hlutverk verður
þar vegna þess að hún er ekki
byrjuð enn.
Stelpumar segja að bærinn geri
mikið til þess að sem flestir ungl-
ingar geti fengið vinnu og segja
að það sé mikil aðsókn í unglinga-
vinnuna. Þær þekkja engan sem
verður atvinnulaus í sumar en
segjast hafa heyrt af nokkrum.
- En eru stelpumar ástfangnar
á vorin?
Svanhildur segir að það sé nú
ekkert meira en venjulega. Ásta
og Hildur fengu hana samt til að
játa að það er meiri rómantfk sem
fylgir vorinu og því ekki hjá því
komist að þær verði ástfangnari á
vorin en aðra hluta ársins.
Björn Pálsson.
Á bensínstöð
Það var með mikilli þolin-
mæði sem mér tókst að fá
Björn Pálsson 17 ára til að
segja við mig nokkur orð. 1
sumar ætlar Bjöm að vinna á
bensínstöðvum Esso eins og
hann hefur gert undanfarin 5
sumur og síðastliðinn vetur
með skólanum. Hann er
ánægður í vinnunni og segir
að launin séu ágæt ef hann
fær mikla vinnu. Þar sem
hann er sumarafleysingamað-
ur þá fer hann á milli stöðva
eftir því hvar vantar fólk
vegna sumarleyfa. Sjálfur
fær hann ekkert sumarfrí en
vonast samt til að fá a.m.k.
eina helgi til að geta farið í
útilegu.
Lengra varð okkar spjall
ekki og áður en ég vissi af
var Bjöm rokinn út í veður
og vind á hjólinu sínu.
Borgar er spenntur fyrir því að fá að spila á einhverjum skemmtistað í
sumar og er að vonast til að af því geti orðið.
í vinnuskólanum
Borgar Magnason 19 ára verður
flokksstjóri hjá vinnuskólanum í
sumar. Áður en hin eiginlega
vinna hefst þurfa flokksstjóramir
að fara á eins dags námskeið til að
undirbúa sumarvinnuna og leggja
drögin að reglum og öðru slíku.
þegar ég hitti Borgar var hann að
fara á þetta námskeið daginn eftir
og gat því lítið sagt mér um starfið
annað en það að hann á að vinna
með krökkunum og vera verk-
stjóri þeirra.
En hann hefur annað og meira
á prjónunum varðandi sumarið en
vinnuna. I 3 ár hefur hann verið í
tónlistarskólanum að læra á
kontrabassa og stefnir á tvær utan-
landsferðir tengdar tónlistamám-
inu í sumar. I júlí fer hann á
heimsmót blásarasveita 1 Sviss þar
sem hann mun dvelja í eina viku.
Síðar í sumar langar hann til að
fara í eina viku til einkakennara til
Danmerkur en á eftir að athuga
það betur.
Gerður er himinsæl með hestinn sinn og segir að þeir sem prófa að fara á
bak smitist flestir af hestabakteríunni.
Hesturinn heillar
Gerður Tryggvadóttir 13 ára er
mikil áhugamanneskja um hesta.
Það var fyrir þrem vikum sem afi
hennar keypti handa henni hest
sem hún hefur nefnt Þyt. Hennar
aðaláhugamál eru hestar og segir
hún að áhuginn hafi kviknað þeg-
ar hún fór á reiðnámskeið. Eftir’
að hafa farið á þrjú námskeið
leigði hún sér hross til að geta far-
ið í útreiðatúra en núna getur hún
farið þegar hana langar til.
- Er ekki mikil vinna að eiga
hest?
„Jú, en ég hef svo gaman af því
að vera hér í hesthúsunum að ég
finn ekki svo mikið fyrir því að
þurfa að fara einu sinni og jafnvel
tvisvar á dag til að gefa, kemba og
IJeira. Eg reyni svo að fara a.m.k.
4-5 sinnum í viku í útreiðatúr."
- Er ekki dýrt að eiga hest?
„Jú, ég þarf að leigja bás fyrir
hann hér í þessu hesthúsi sem er í
eigu Léttis. Þegar ég byrjaði að
leigja þá gerðist ég sjálfkrafa fé-
lagi í Létti. Það er að vísu ekkert
mál að ganga í félagið en þetta er
ágætt svona. Núna get ég keppt
og tekið þátt í öllu því sem gert er
í félaginu og er einmitt núna að
undirbúa mig fyrir næsta mót.“
- Ert þú búin að fá vinnu í
sumar?
„Já, ég verð í vinnuskólanum
og að passa bam. Eg verð líka í
vinnu heima hjá mér við að hjálpa
til við heimilisverkin, slá garðinn
og fleira. Afi minn keypti handa
mér hestinn og ég ætla að borga
honum til baka með því að vera
dugleg að hjálpa til heima. Ég veit
um marga sem eru ekki búnir að
fá neitt að gera í sumar svo ég er
heppin með að hafa fengið vinnu.
Mér finnst að vísu leiðinlegt að
þegar ég byrja að vinna þá kemst
ég ekki eins oft hingað eins og ég
hef getað. Þytur fer eftir viku í
haga þannig að í rauninni þyrfti ég
ekki að koma svona oft hvort eð
er. Haginn sem hann verður í er
rétt hjá reiðskólanum þannig að ég
get farið á bak þegar ég vil.“