Dagur - 06.06.1992, Qupperneq 13
Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 13
í f I! i /Tta t aii mm
1 m 1 m
Myndlistarmennirnir átta sem opna sýningu í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á miðvikudaginn.
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju:
Samsýning átta mvndlistarmamia
Dagana 10.-21. júní nk. munu
átta myndlistarmenn, búsettir í
Reykjavík, sýna verk sín í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Sýningarhópurinn kall-
ar sig „Trójuhestinn“.
Sýningin í safnaðarheimilinu
er viðamikil. Sýnd verða
málverk, grafíkverk og skúlptúr,
alls um 40 verk. Öll eru verkin ný
og hafa fæst verið sýnd áður.
Sýningarhópinn „Trójuhest-
inn“ skipa eftirtaldir listamenn:
Anna Eyjólfsdóttir, Borghildur
Óskarsdóttir, Guðrún Kristjáns-
dóttir, Kristinn E. Hrafnsson,
Ólöf Sigurðardóttir, Sigrid
Valtingojer, Sigurður Örlygsson
og Sólveig Eggertsdóttir. „Innan
þessa hóps eru listamenn með
mjög ólík efnistök og áherslur í
myndlistinni en eiga það sameig-
inlegt að vilja gjarnan sýna á
Akureyri," segir í frétt frá
„Trójuhestinum".
Sýningin verður opnuð mið-
vikudagskvöldið 10. júní kl.
20.00 og verða allir myndlistar-
mennirnir viðstaddir. Henni lýk-
ur svo, sem fyrr segir, sunnudag-
inn 21. júní.
Þessi þrjú ungmenni efndu nýverið til tombólu á Akureyri og söfnuðu 650 krónum til styrktar barnadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri. Þau eru (frá vinstri): Matthea Kristjánsdóttir, Kristín Kjartansdóttir og Guðmundur
Kjartansson. Mynd: jóh
Kortið sýnir ástand fjallvega vikuna 4. júní til 11. júní 1992. Vegir á skyggðum svæðum eru lokaðir
allri umferð þar til annað verður auglýst. Næsta kort verður gefið út af Vegagerð ríkisins 11. júní
næstkomandi.
Hobby hjólhýsi og
Camplet Ijaldvagnar!
BSA M.
sýningarsalur
Laufásgöíu 9, Akureyri, sími 26300.
Sjómannadagurinn
1992
Þeir sem ætla aö taka þátt í kappróðri eöa öðrum
íþróttum á sjómannadaginn 14. júní nk. tilkynni þátt-
töku til ívars Baldurssonar, hafnarvarðar í síma
26699 eða 985-36811.
Einnig verða kappróðrarbátar til afnota fyrir keppnis-
lið til æfinga í samráði við ívar.
Sjómannadagsráð Akureyrar.
Konur í
atvinnusköpun!
Takið^málin í eigin hendur og tak-
ið þátt í fyrstu ráðstefnunni fyrir
konur í atvinnusköpun.
AÐ TAKA MÁLIN f EIGIN HENDUR
Ráðstefna um atvinnusköpun kvenna
haldin í Aiþýðuhúsinu á Akureyri 19. og
20. júní 1992.
Helstu dagskrárlidir:
Föstudagur 19. júní - kvenréttindadagurinn
Setning - félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir.
Kveðjur frá fyrri ráðstefnum um atvinnumál kvenna. Frá
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.
Erindi: Tímamót - ný byrjun: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
sagnfræðingur, þingkona.
Smiðjur: Að hafa áhrif.
Valgerður H. Bjarnadóttir og Karólína Stefáns-
dóttir, Akureyri.
Ágústa Þorkelsdóttir, Refsstað, Vopnafirði.
Svanhildur Árnadóttir, Dalvík.
Markaðstorg, þar sem þátttakendur kynna vörur, þjónustu
og aðgerðir í atvinnusköpun.
Ferð í Kvennalund; Naustaborgum.
Sunnudagur 20. júní
Erindi: konan, ísland og umheimurinn: Stefanía Trausta-
dóttir, félgsfræðingur, varaþingkona.
Smiðjur: Leiðir í atvinnusköpun.
Þuríður Magnúsdóttir, Iðntæknistofnun, Reykja-
vík.
Sigríður Sverrisdóttir, Teru, Grenivík.
Elísabet Benediktsdóttir, Byggðastofnun, Reyð-
arfirði.
Helga Erlingsdóttir, Landamótaseli og Jóhanna
Valdimarsdóttir, Samkomugerði.
Erindi: Lynn Ludlam, atvinnuskapandi kona, Los Angeles,
Bandaríkjunum.
Smiðjur: Að skipuleggja framtíðina.
Þóra Þórarinsdóttir, Skeggja hf., Bakkafirði.
Elín Antonsdóttir, Akureyri.
Hildur Hákonardóttir, Selfossi.
Almennar umræður.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Guðrúnu og Elínu
í síma 96-21210/26200/11214 (Byggðastofnun/lðnþró-
unarfélag Eyjafjarðar) og Signýju í síma 96-42070 (At-
vinnuþróunarfélag Þingeyinga).
Þátttökugjald (f/fæði og ráðstefnugögn) er kr. 2000,-
og skráningarfrestur er til 11. júní.
Áhugahópur um atvinnumál kvenna
á Norðurlandi eystra.