Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 15
Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 15
Kenni á Nissan Sunny Sedan 4x4.
Tímar eftir samkomulagi.
Útvega öll náms- og prófgögn.
Greiðslukjör við allra hæfi.
Anna Kristín Hansdóttir,
ökukennari, sími 23837 og bíia-
sími 985-33440.
Salur A
Laugardagur
Kl. 9.00 Stúlkan mín
Kl. 11.00 Thelma og Louise
Sunnudagur
Kl. 3.00 Fievel Goos West
Kl. 9.00 Stúlkan mín
Kl. 11.00 Thelma og Louise
Mánudagur
Kl. 9.00 Stúlkan min
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Stúlkan min
Salur B
Laugardagur
Kl. 9.00 Hundaheppni
Kl. 11.00 Frankie og Johnny
Sunnudagur
Kl. 3.00 Leitin mikla
Kl. 9.00 Hundaheppni
Kl. 11.00 Frankie og Johnny
Mánudagur
Kl. 9.00 Hundaheppni
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Hundaheppni
BORGARBÍO
S 23500
SJÓNARHÆÐ
A HAFNARSTRÆTI 63
Hvítasunnudagur 7. júní: Almcnn
samkoma á Sjónarhæð kl. 17.
Síðasta samkoman á þessu sumri.
Allir eru innilega velkomnir.
KFUM og KFUK,
: Sunnuhlíð.
Hvítasunnudagur. Hátíð-
arsamkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Jón Viðar Guðlaugsson.
Tekið á móti gjöfum í hússjóð.
Allir velkomnir.
HUÍTASUtltlUHIfíKJAh wsmwshlíd
Föstudaginn 5. júní kl. 20.30: Bæn
og lofgjörö.
Laugardaginn 6. júní kl. 21.00:
Samkoma fyrir ungt fólk, ungt fólk
á öllum aldri velkomið.
Sunnudaginn 7. júní kl. 20.00
(hvítasunnudagur): Hátíðarsam-
koma, samskot tekin til innanlands-
trúboðsins, mikill og fjölbreyttur
söngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Meðlimir Ekkisaumaklúbbsins KK13, sem gera allt annað en að sauma og prjóna. F.v. Kristín Sigurðardóttir, Stórutjörnum, Svanfríður Birgisdóttir,
Stórutjörnum, Sigrún E. Gunnarsdóttir, Staðarfelli, Laufey Skúladóttir, Stórutjörnum, Helen Jónsdóttir, Stórutjörnum, Margrét Guðmundsdóttir,
Vöglum, Margrét Bjarnadóttir, Dæli, Sigríður Karlsdóttir, Tjarnarlandi, Jónína E. Guðmundsdóttir, Víðivöllum, Sigurlína H. Halldórsdóttir, Nesi, Hlíf
Guðmundsdóttir, Illugastöðum og Katrín Þorvaldsdóttir, Stórutjörnum. Á myndina vantar Þóru Ólafsdóttur, Hálsi Mynd: bb
Suður-Pingeyj arsýsla:
l’kkisauniaklúbburinn KK13
- mottóið að gera allt mögulegt nema að sauma og prjóna
„Þetta er klúbbur sem gerir
allt mögulegt annad en að
sauma og prjóna og það má
segja að það sé móttóið,“
sagði Svanfríður Birgisdóttir,
skólastjóri Stórutjarnaskóla og
ein kvennanna 13 í sauma-
klúbbnum KK13. Klúbburinn
komst lengst allra klúbba á
landsbyggðinni í spurninga-
keppni saumaklúbba í þættin-
um Landið og miðin hjá Sig-
urði Pétri Harðarsyni á Rás2.
„Við förum í gönguferðir, á
bíó, leigjum okkur sérstakar
vídeómyndir og spjöllum um þær
á eftir, tölum um bækur og löbb-
um á fjöll, förum í sund og leik-
fimi. Svo tölum við bara um
skemmtilega hluti. En það er
algjört leyndarmál hvað KK í
nafninu þýðir, makarnir fá ekki
einu sinni að vita það þó þeir séu
búnir að koma með margar uppá-
stungur. En 13 er happatalan
okkar og hún má alls ekki breyt-
ast,“ sagði Svanfríður aðspurð
um hvað klúbbkonur gerðu ann-
að en að prjóna og sauma og
hvað nafn klúbbsins þýddi.
Konurnar í KK13 kepptu fimm
eða sex sinnum í spurninga-
keppninni og komust í undanúr-
slit. „Það var mjög gantan að
taka þátt í keppninni og þetta
hristi okkur vel saman og við
lærðum líka talsvert á þessu. Ég
gæti náttúrulega nöldrað heilmik-
ið, en við erum ekkert að því í
þessunt klúbbi. Við undirbjugg-
um okkur ekki fyrir keppnirnar
nema hvað við kíktum í nokkrar
bækur þegar þetta fór að verða
alvarlegt, fyrst var þetta bara
leikur. í klúbbnum eru upp til
hópa mjög ólíkar konur sem
koma af dreifðu svæði; Fnjóska-
dal, Ljósavatnsskarði og Kinn-
inni. Þessi klúbbur varð til eftir
að við vorum búnar að vera sam-
an í leikfimi og sundi tvisvar í
viku í heilan vetur. Þegar fór að
vora ákváðum við að fara og fá
okkur eitthvað gott að borða
saman. Þá skemmtum við okkur
ofboðslega vel og hugmyndin um
stofnun klúbbsins fæddist og í
raun var kúbburinn stofnaður á
staðnum. Félagsskapurinn hefur
gefið okkur mikið því það er
mikil gleði ríkjandi þegar við
hittumst og þetta hefur verið
skemmtilegt.
Við hittumst einu sinni í mán-
uði og þá er dregið um hjá hverri
klúbburinn eigi að verá næst. Sú
sem lendir í því að fá okkur allar
heint þarf ekkert að gera annað
en það að standa fyrir óvæntri
uppákomu," sagði Svanfríður,
forsvarskona í ekkisaumaklúbbn-
um KK13. 1M
Söfa
Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81,
sími 22983.
Opið alla daga nema laugardaga frá
kl. 13-16.
Baldur H. Kristjánsson, fyrrum
bóndi á Ytri Tjörnum í Eyjafirði,
verður áttræður sunnudaginn 7.
júní.
Baldur er fæddur og uppalinn á Ytri
Tjörnum og starfaði þar að búi föð-
ur síns til ársins 1944 að hann hóf
sjálfur búskap á jörðinni. Baldur
útskrifaðist sem búfræðingur frá
bændaskólanum á Hvanneyri vorið
1938. Baldur hefur gegnt fjölda
trúnaðarstarfa fyrir sveit sína; sat
meðal annars tvívegis í hreppsnefnd
um nokkurt skeið og var hreppstjóri
Öngulstaðahrepps frá árinu 1971 til
1984. Baldur lét búrekstur sinn í
hendur Benjamíns sonar síns á
árinu 1985 en býr áfram á Ytri-
Tjörnum ásamt konu sinni Þuríði
Kristjánsdóttur frá Hellu á Árskógs-
strönd. Þau hjón munu dvelja á
heimili Snorra sonar síns í Kaup-
mannahöfn á afmælisdaginn.
Fermingar í Eyjafjarðarsveit
sunnudaginn 7. júní, hvítasunnudag:
Munkaþverárkirkja kl. 10.30:
Gunnur Ýr Stefánsdóttir,
Punkti.
Karl Óttar Leifsson,
Klauf.
Svala Rán Aðalbjörnsdóttir,
Laugarholti.
Theodór Kristjánsson,
Brúnum.
Víðir Starri Vilbergsson,
Kommu.
Grundakirkja kl. 13.30:
Ása Maren Gunnarsdóttir,
Brekkutröð 3.
Einar Hermann Einarsson,
Austurbergi.
Elsa Ösp Þorvaldsdóttir,
Ysta-Gerði.
Gestur J. Ingólfsson,
Ytra-Dalsgerði.
Grétar Freyr Vésteinsson,
Vallatröð 4.
Guðmundur Ævar Oddsson,
Ártröð 5.
Jens Ólafsson,
Brekkutröð 4.
Sandra Dögg Kristjánsdóttir,
Holtsseli.
Sindri Björn Hreiðarsson,
Skák.
Stefán Ásgeir Ómarsson,
Hlíðarhaga.
Vala Björt Harðardóttir,
Hólakoti.
Mánudaginn 8. júní,
annan í hvítasunnu:
Kaupangskirkja kl. 10.30:
Baldvin Stefánsson,
Þórustöðum 3.
Bjarkey Sigurðardóttir,
Gröf.
Fannar Örn Arnljótsson,
Þórustöðum 4.
Örlygur Þór Helgason,
Þórustöðum 7.
Þ.H.
Akureyrarprestakall:
Hátíðarguðsþjónusta
verður á Fjórðungs-
. sjúkrahúsinu á hvíta-
sunnudag kl. 10 f.h.
Hátíðarguðsþjónusta verður í
Akureyrarkirkju á hvítasunnudag
kl. 11 f.h. Kór Glerárkirkju syngur.
Organisti Jóhann Baldvinsson.
Eldri sem yngri fermingarbörn hvött
til þátttöku.
Sálmar: 170, 330, 335 og 331.
B.S. og Þ.H.
Hátíðarguðsþjónusta verður á
Hjúkrunardeild aldraðra, Seli I, á
hvítasunnudag kl. 2 e.h. Þ.H.
Hátíðarguðsþjónusta verður á Dval-
arheimilinu Hlíð á hvítasunnudag
kl. 4 e.h. Prestur séra Gunnlaugur
Garðarsson. Kór Glerárkirkju syng-
ur. Organisti Jóhann Baldvinsson.
B.S.
Fermingarguðsþjónusta verður í
Miðgarðakirkju í Grímsey á annan
hvítasunnudag kl. 11 f.h.
Fermd verða:
Anna Dóra Heiðarsdóttir,
Nýja-Sjálandi.
Hólmfríður Selma Haraldsdóttir,
Borgum.
Ólafur Ólafsson,
Ártúni. þ.H.
Möðruvallaprestakall:
Hátíðarguðsþjónusta verður í
Möðruvallakirkju á hvítasunnudag
7. júní og hefst kl. 13.30.
Athugið breyttan inessutíma.
Sungnir verða hátíðasöngvar Bjarna
Þorsteinssonar, organisti Birgir
Helgason.
Ferming verður í Glæsibæjarkirkju
kl. 16.00 sama dag.
Fermdur verður:
Valgeir Einar Ásbjörnsson,
Ytri-Skjaldarvík.
Sóknarprestur.
Fermingar í Ljósavatnsprestakalli
hvítasunnudag og annan i hvíta-
sunnu.
Hvítasunnudag kl. 11.00 í
Hálskirkju:
Hrönn Sigurðardóttir,
Tjarnarlandi.
Sigurður Reynir Sverrisson,
Stórutjarnaskóla.
Valbjörn Ægir Vilhjálmsson,
Birkimel.
Hvítasunnudag kl. 14.00 í
Illugastaðakirkju:
Hilmar Ingimundarson,
Þórðarstöðum.
Karl Gunnar Þormarsson,
Steinkirkju.
Sigurður Rúnar Guðmundsson,
Reykjum II.
Annan hvítasunnudag kl. 11.00 í
Ljósavatnskirkju:
Árný Þóra Ármannsdóttir,
Fosshóli.
Áslaug Þorgeirsdóttir,
Fremstafelli II.
Ásta Skarphéðinsdóttir,
Úlfsbæ.
Haukur Baldursson,
Eyjardalsá.
Hildigunnur Árnadóttir,
Fremstafelli I.
Sóknarprestur.
Stærri-Árskógskirkja:
Hátíðarmessa og ferming verður í
Stærri-Árskógskirkju á hvítasunnu-
dag kl. 10.30.
Fermd verða:
Fannar Þór Gunnarsson,
Ásvegi 5, Hauganesi.
Valgeir Smári Óskarsson,
Ólafsbraut 48, Ólafsvík.
Dagný Ragnarsdóttir,
Ásvegi 3, Hauganesi.
Kristjana Kristjánsdóttir,
Hellu, Árskógsströnd.
Soffía Gunnlaugsdóttir,
Ægisgötu 7, Árskógssandi.
Sóknarprestur.