Dagur - 06.06.1992, Side 20

Dagur - 06.06.1992, Side 20
Aíli og aflaverðmæti frystiskipa: Akureyrin hlutskörpust Fyrstu fjóra mánuði ársins 1992 var Akureyrin EA 10 aflahæst frystiskipa á landinu með 1.712 tonn. Einnig ef rætt er um gæði aflans er Akureyrin hlutskörp- ust því meðal skiptaverðmæti á úthaldsdag er einnig hæst hjá Akureyrinni, 1.411.825 kr. Norðlensk frystiskip tróna hæst Ólafsijörður: Nýtt skip kemur í næstu viku Sædís hf. í Ólafsfirði fær í næstu viku nýtt frystiskip sem keypt var frá Bandaríkjunum. Siglingin frá Seattle tekur um 5 vikur en skipið lagði af stað 5. maí sl. Skipið fær nafnið Lísa María og verður gert út á línuveiðar. Pað er um 38 metrar að lengd og 11 metrar að breidd og tekur um 200 tonn. í áhöfn skipsins verða 19-20 manns. Síðast er fréttist var ekki ljóst hvenær tekið verður formlega á móti skipinu en það er nú á síð- asta hluta hinnar löngu siglingar- leiðar. JÓH hvað þetta varðar því Örvar frá Skagaströnd er í öðru sæti og Mánaberg frá Ólafsfirði í því þriðja. Síðasti löndunardagur er þó að sjálfsögðu mismun- andi hjá þeim 24 frystiskipum sem með eru í skýrslu frá Landssambandi íslenskra útgerðarmanna. Sléttbakur Útgerðarfélags Akureyringa er í sjötta sæti hvað varðar meðal skiptaverðmæti á úthaldsdag; Víðir, sem er í eign Samherja hf. á Akureyri, er í því tíunda. Flesta úthaldsdaga norð- lenskra frystiskipa hafa Sléttbak- ur með 120 daga, síðan koma Örvar HU, Oddeyrin EA, Sigur- björg OF, Stakfell ÞH, Hjalteyrin EA, Akureyrin EA, og Margrét EA. Til samanburðar má nefna að Freri frá Reykjavík hafði flesta úthaldsdaga allra frystiskipa með 131 en Freri fylgdi einmitt Akur- eyrinni fast á eftir hvað varðar aflamagn í tonnum. Þess ber þó að geta hvað varðar síðustu lönd- unardaga að sex vikur liðu á milli fyrsta skipsins og þess síðasta. Akureyrin nýtti tímann líka vel því meðalafli hennar var 16,8 tonn á úthaldsdag þ.e. annað sæti. Flestar landanir höfðu Akureyr- in, Hjalteyrin og Stakfell með 7 landanir en Venus frá Hafnarfirði var með 8. GT Vaktavinnukerfi hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi: Um þriðjungi meira magn fer í gegnum vinnsluna Vaktavinnukerfi er nú komið á hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi hf. á Sauðárkróki. Starfsfólk samþykkti í maí að taka upp vaktavinnukerfi til reynslu í júní og júlí og hefur nýja kerf- ið verið notað þessa viku. Einar Svansson, framkvæmda- stjóri, segir of snemmt að segja til um reynslu af nýja kerfinu en ljóst sé þó að umtalsvert meira magn fari í gegnum vinnsluna en áður. Vaktirnar eru tvær, annars vegar frá kl. 6 að morgni til kl. 14 og hins vegar frá kl. 14 til kl. 20. Vant starfsfólk er að mestu leyti á fyrri vaktinni en sumarfólkið á þeirri síðari en þar segir Einar um að ræða starfsfólk sem unnið hafi áður hjá fyrirtækinu og sé öllum hnútum kunnugt. Einar segir um 100 manns nú í vinnu hjá fyrirtækinu og hugsanlega verði að bæta fleirum við. „Ég veit ekki hvort hægt er að tala um nokkurn árangur fyrr en menn sjá einn til tvo mánuði. En þó er ljóst að við erum að keyra meira í gegnum húsið og gæti munað 30-40%,“ sagði Einar. JÓH Umferð um hvítasunnu: Tiilitssemi, varúð og reglusemi Ein mesta ferðahelgi ársins er nú hafin og hefur Umferðarráð beint þeim tilmælum til öku- manna að þeir gæti tillitssemi varúðar og reglusemi í umferð- inni um hvítasunnuhelgina. Næsta blað kemur út miðvikudaginn 10. júní. Undanfarin sumur hefur slys- um á þjóðvegum fjölgað. Gætni ökumanna getur minnk- að hættu á slysum og skal þá haft í huga að ökuhraði sé í samræmi við aðstæður og beltin séu spennt hjá börnum og fullorðnum. Umferðarráð bendir sérstaklega á að áfengi og akstur fara ekki sam- an en áfengi getur verið í blóðinu langt fram á næsta dag eftir neyslu. Vonast er til að lögreglan þurfi sem minnst afskipti að hafa af ökumönnum vegna umferðar- lagabrota. GT Einum hinna „slösuðu“ flugfarþega komið fyrir á sjúkrabörum. Mynd: Golli Flugslys sviðsett á Akureyrarflugvelli: Fimm farþegar „slasaðir“ við suðurenda flugbrautarinnar Flugmálastjórn setti á svið flugslys á Akureyrarflugvelli í gærmorgun. Flugvél með 5 manns innanborðs átti að mis- takast lending og voru allir slasaðir og þar af einn sem lá talsvert fjær sjálfum slysstaðn- um. Beðið var fljótlega um aðstoð slökkviliðs þar sem einn hinna „slösuðu“ var fast- ur í flakinu Gunnar Oddsson umdæmis- stjóri Flugmálastjórnar á Norðurlandi segir þessa æfingu lið í því að æfa alla starfsmenn flugvallanna frá Blönduósi og austur til Vopnafjarðar í að tak- ast á við slíkan vanda sem flug- slys er. Það eru Birgir Ólafsson slökkviliðsstjóri á Reykjavíkur- flugvelli og Friðrik Þorsteinsson varðstjóri í Slökkviliðinu í Reykjavík sem stjórna þessari æfingu en þeir hafa verið með samskonar æfingar við flugvellina á Egilsstöðum og Vestmannaeyj- um en auk þess taka þátt í æfing- unni hér starfsmenn Flugfélags Norðurlands og Flugleiða sem mundu taka þátt í aðgerðum ef til kæmi. Eftir æfingu verður síðan sest niður og gerð úttekt á því hvað betur hefði mátt fara og eins á því sem vel heppnaðist. GG Þrotabú ísnó: Hlutafélag Keldhverfinga kaupir „Það er klárt að við kaupum þetta,“ sagði Ólafur Jónsson, forsvarsmaður heimamanna í Kelduhverfi sem hyggjast um helgina stofna hlutafélag til kaupa á þrotabúi ísnó hf. Ólaf- ur sat í gærmorgun ásamt fjór- um félögum sínum við lestur samnings um kaupin, sem aðeins á eftir að skrifa undir. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið á þessu stigi málsins. Um er að ræða kaup á öllum fasteignum og lausafé þrotabús ísnó í Kelduhverfi, fiski í stöð- inni og kvíunr í Vestniannaeyj- um. Um 40 einstaklingar hafa lagt fram loforð um hlutafé, er þar um að ræða heimamenn í Keldu- hverfi auk vina og vandamanna vítt og breitt um landið, að sögn Ólafs. Svarthamar hf. á Húsavík er ekki aðili að hlutafélaginu, en í síðustu viku slitnaði upp úr samningaviðræðum Svarthamars við þrotabúið. „Við veröum að vera bjartsýn- ir á fiskeldið því ég veit ekki á hverju við ætlum að lifa. Vill ein- hver benda mér á aðra atvinnu- grein á íslandi sem er virkilega í gær var undirritaöur samning- ur milli íslenska útvarpsfélags- ins, Samvers hf. á Akureyri og Akureyrarbæjar um að keppn- in um Landslagið 1992 verði góð, fyrir utan að flytja inn súkkulaði eða eitthvað svoleiðis? Við erum að leggja hér fram tölu- vert hlutafé og nú er bara að berjast í þessu. Nú þarf að fara að gera út seiði sem ættu að vera komin í sjó, farin að stækka og verða að góðum fiskum,“ sagði Ólafur, aðspurður um bjartsýni sína á rekstur fyrirtækisins. IM haldin á Akureyri. Samver mun sjá um framkvæmd keppn- innar en stefnt er að því að lokakvöldið verði í Sjallanum í október. Akureyri: Landslagið norðan heiða Veðrið um hvítasunnuna: Hlýtt en Samkvæmt upplýsingum Veð- urstofunnar ættu Norðlending- ar að fá ágætis veður um hvíta- sunnuhelgina, reyndar það besta á landinu þótt ekki sé hægt að lofa sólskini. í dag ætti að vera sunnan og suðvestanátt á Norðurlandi og sólarlítið sunnanáttin verður ríkjandi alla helgina. Skýjað verður með köfl- um en þurrt og hiti á bilinu 12-15 stig. Ekki er hægt að lofa sólskini en einhverjar glennur ættu þó ekki að koma á óvart. Ættu Norðlendingar að gera sér það að góðu þar sem spáð er rigningu sunnan- og vestanlands. JHB Þórarinn Ágústsson, fram- kvæmdastjóri Samvers, segir þessa keppni viðamikið verkefni. Tíu myndbönd verða tekin upp á Akureyri en auglýst verður fljót- lega eftir lögum í keppnina. Hljóðupptaka verður væntanlega í Reykjavík en önnur vinna fyrir keppnina verður á Akureyri, sem og úrslitakeppnin sjálf. Akureyrarbær og Sjallinn styrkja þetta verkefni Samvers en ætlunin er að í tengslum við keppnina verði kynningarstarf fyrir Akureyrarbæ. JÓH

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.