Dagur - 01.07.1992, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 1. júlí 1992 - DAGUR - 9
stólaskipan hafa í för með sér
fleiri dómsmál við hvern dómstól
enda verða þeir aðeins átta tals-
ins og taka því yfir stærri svæði.
„Ég get ímyndað mér að þetta
auðveldi lögmönnum að setjast
að, þar sem dómstólarnir hafa
aðsetur, og hafa atvinnu af mál-
flutningi."
„Pað er engin heimild fyrir
fulltrúa á fjárlögum en við þurf-
um a.m.k. einn fulltrúa í viðbót
og ég held að embættið sé undir-
mannað í upphafi,“ sagði Freyr
aðspurður um hvort hann teldi að
embættið annaði málafjölda.
Að sögn Freys munu dómarar
áfram úrskurða um gjaldþrot.
Einnig munu þeir úrskurða í
réttarágreiningi sem upp kann að
rísa auk þess sein þeir munu
skipa skiptastjóra þrotabús en
slík skipun er stjórnvaldsathöfn.
„Þarna eimir eftir af gamla
réttarfarinu en að öðru leyti höf-
um við ekkert með gjaldþrotamál
að gera. Annars er reiknað með
að gjaldþrotamálum fækki mikið
út af auknum kostnaði við með-
ferð þeirra.“
Greið málsmeðferð
Nokkuð hefur verið um að aðilar
dómsmála hafi samið um að
flytja mál frá landsbyggðinni til
Reykjavíkur þar sem það hefur
verið dæmt í bæjarþingi enda
hefur sérþekking þar verið meiri.
„Það hefur líka verið öfugt; iðu-
lega hefur komið fyrir að menn
hafi flutt mál úr Bæjarþingi
Reykjavíkur til Akureyrar til að
þau gangi hraðar fyrir sig,“ segir
Freyr. Hann segir að síðan bráða-
birgðabreyting var gerð á tilhög-
un dómsvalds í héraði í upphafi
árs 1990 hafi meðferð dómsmála
verið greiðari en áður.
„Dómsmálum mun auk þess
■fækka verulega vegna þess að
víxlar, tékkar og skuldabréf
verða aðfararhæf án dóms með
nýjum aðfararlögum. Þau mál
hafa verið á að giska 70% af öll-
um þingfestum málum og þá
gengur greiðara að afgreiða önn-
ur mál,“ sagði Freyr. Réttarör-
yggi er ekki hætt með þessu að
sögn Freys enda hafa slík mál
yfirleitt verið dæmd að stefnda
fjarstöddum-í svokölluðu útivist-
armáli.
Freyr Ófeigsson telur grund-
vallarbreytingar á opinberu
réttarfari vera til bóta. „Nú nálg-
umst við ákæruréttarfar sem hér
hefur ekki þekkst. Ég hef alltaf
verið mjög hlynntur því enda
hefur mér fundist rannsóknar-
réttarfarið heldur hvimleitt og
gamaldags," sagði Freyr að
lokum.
Freyr Ófeigsson, dómstjóri Héraðsdóms Norðurlands eystra sem hefur
aðsetur á Akureyri.
Hluti húsnæðis nýja héraðsdómstólsins verður væntanlega tekinn í notkun í
ágúst en ekki er tjárveiting fyrir hinum hlutanum þótt dómstóllinn taki til
starfa í dag.
einkum Hæstaréttar. „Ég á von á
því að til að byrja með verði
býsna mörgum málum áfrýjað til
Hæstaréttar og ég held að það
muni taka einhver ár að ná sam-
ræmi og öryggi í málsmeðferð.
Ég hefði gjarnan viljað að réttar-
farsbreytingarnar hefðu verið
hægari enda sagði einhver að þær
væru meiri en eðlilegt væri að
gera í heila öld.“
„Embættið undirmannað“
Að sögn Freys mun breytt dóm-
Björn Rögnvaldsson, aðalfulltrúi
sýslumannsins á Akureyri. Myndin
er tekin skömmu áður en Björn fór
í síðasta réttarhaldið - sem fulltrúi
með dómsvald. Myndir: GT
Gerðarþolar sóttir með
lögregluvaldi
Björn sagði að málsmeðferð við
fjárnám yrði greiðari í kjölfar
breytinganna. „Nú verða veittar
miklu rýmri heimildir til að láta
sækja gerðarþola með lögreglu-
valdi ef hann mætir ekki við
boðun. Það fyrsta sem gerðarþol-
ar verða varir við er að lögreglan
fer að sækja þá í vinnu eða heim
því það hefur verið dálítið mikið
um að fólk hunsi boðanir og mæti
ekki ef það á engar eignir. Menr
mega búast við því að þessu
úrræði verði beitt strax í upp-
hafi,“ sagði Björn.
Ný afgreiðsla
- í eldra húsnæöi
„Hér verður opnuð ný afgreiðsla
á neðstu hæðinni 1. júlí en ekki
verður ráðist í breytingar á hin-
um hæðunum fyrr en á næsta
ári,“ sagði Björn en sýslumanns-
embættið verður til húsa á 1., 2.
og 3. hæð Hafnarstrætis 107 þar
sem gamla embætti sýslumanns
og bæjarfógeta var til húsa þar til
í dag. Efsta hæðin tilkemur nýj-
um Héraðsdómi Norðurlands
eystra sem fjallað er um annars
staðar á síðunni.
Nýjar stöður eða ekki
„Við teljum okkur þurfa meiri
mannskap en auk sýslumanns
erum við fimm löglærðir,“ sagði
Björn þegar Dagur spurði hann
um hvort nýja sýslumanns-
embættið myndi anna mála-
fjölda
„Ég veit ekki betur en að allt
sé óbreytt varðandi launakjör
löglærðra fulltrúa enda lítur ríicið
svo á að ekki sé um nýjar stöður
að ræða. Það er þá okkar að
sækja á skilning ríkisins,“ sagði
Björn Rögnvaldsson aðspurður
um óvissu í kjaramálum fulltrúa
við nýju embættin - héraðsdóm-
stólana og sýslumannsembættin.
Lítið sumarfrí
í tilefni breytinganna hafa tæp-
lega 500 lögfræðingar um allt
land sótt endurmenntunarnám-
skeið á vegum dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins í vor. „Nám-
skeiðin hafa gengið vel en efnið
ær svo gífurlega mikið að það er
aldrei hægt að fara ítarlega í allar
jbreytingarnar á svona námskeið-
um. Þau eru ágætis grunnur en
annars byggist þetta mikið upp á
sjálfsnámi. Undirbúningurinn
-hefði mátt vera örlítið lengri því
þetta er gífurleg vinna. Fyrsta
handbókin er nýkomin og við
verðum þá að ætla okkur júlí-
mánuð í að lesa okkur til. Við
fulltrúarnir sjáum ekki fram á
mikið sumarfrí yfir sumarmánuð-
ina,“ sagði Björn að lokum. GT
Til sölu eru
eftirtaldir notaðir bílar á
Bifrv. Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5, 603 Akureyri
Sími 96-22520 - Eftir kl. 19 96-21765
Tegund Árg. Km Litur Ásett Stgr.
verð verð
Land Rover 1988 27 þ. Blár/Grár 1.400.000 1.200.000
Nissan Pulsar 1988 84 b. Liósblár 680.000 580.000
ToyotaTersel 4x4 1987 104 þ. Rauður 750.000 650.000
Toyota Corolla4x4 1989 72 þ. Blár 950.000 850.000
Suzuki Fox 4x4 1988 67 þ. Blár 700.000 560.000
Subaru Legacy b 4x4 1990 35 þ. Brúnsans. 1.356.600 1.250.000
SubaruTurbo 4x4 1985 110þ. Ljósgrænn 780.000 680.000
Subaru st. at. 4x4 1987 96 þ. Grænn 850.000 660.000
Subaru st. at. 4x4 1987 65 þ. Vínrauður 850.000 660.000
Subaru st. b. 4x4 1988 86 þ. Ljósgrár 1.050.000 850.000
Subaru st. at. 4x4 1988 77 þ. Blár 1.050.000 850.000
Subaru Leg. at. sed. 1990 20 þ. Brúnsans. 1.356.600 1.250.000
Hægt er að fá alla þessa bíla á mjög góðum greiðslukjörum.
ToyotaTersel 4x4
Suzuki Fox 4x4
Land Rover
Tilboð
1987 104 þ. Rauður 600.000
1988 67 þ. Blár 500.000
1988 27 þ. Biár 1.000.000
BSV
Bifreiðaverkstaedi
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 — Sími 22520 - Akureyri.
Nýtt við kjötborðið
Djúpsteiktar franskar
kartöflur með kjúklingnum
Einars pylsubrauð
5 í poka 48 kr.
Grænar baunir 390 g
niðursoðnar 29 kr.
Maiskorn 425 g 38 kr.
TC frosið grænmeti
454 g - ýmsar g. 99 kr.
Þvottaduft 1,2 kg 99 kr.
Grillkol 4,5 kg 289 kr.
Matvörumarkaðurinn
Kaupangi
Opið virka daga 9.00 til 22.00.
Laugardaga og sunnudaga 10.00 til 22.00.