Dagur - 01.07.1992, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 1. júlí 1992 - DAGUR - 11
„Fjölmiðlar blása stunduin upp mál sem ekkert púður er í“
- segir Guðmundur Hrafn Thoroddsen útibússtjóri Búnaðarbankans á Akureyri
Útibússtjóraskipti urðu í Bún-
aðarbankanum á Akureyri í lok
maímánaðar er Gunnar Hjart-
arson sem verið hefur útibús-
stjóri hér í allmörg ár settist í
stói útibússtjóra í Hveragerði
en við tók Guðmundur Hrafn
Thoroddsen. Nokkur úlfaþytur
varð eftir komu Guðmundar
þar sem margir töldu að hann
sýndi ýmsum viðskiptamönn-
um bankans óbilgirni eða jafn-
vel ósanngirni.
Um þau mál hefur verið fjallað
hér áður á síðum D AGS og verða
ekki hér til frekari umfjöllunar en
hins vegar lítillega fræðst um
þennan nýja útibússtjóra sem
reyndar verður hér aðeins til
haustsins því starfið hefur verið
auglýst laust til umsóknar. Guð-
mundur mun á haustdögum halda
suður til Reykjavíkur og taka við
starfi í aðalbanka Búnaðarbank-
ans sem m.a. felst í umsjón með
öllum útibúum bankans.
Guðmundur Hrafn er fæddur
og uppalinn í Rcykjavík og tók
stúdentspróf frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1957 og hóf síðan
nám í lagadeild Háskólans. Hann
hóf síðan störf við Búnaðarbank-
ann tveimur árum síðar og segir
aö það hafi frekar verið tilviljun
en sérstakur áhugi á banka-
Guðmundur Hrafn Thoroddsen.
störfum að allur hans starfsferill
hafi verið innan veggja Búnaðar-
bankans. Faðir hans var reyndar
bankamaður líka, starfaði lengst
af við Útvegsbankann.
En hefði hann valið sér annað
ævistarf cf slíkt val hefði staðið
honum til boða?
„Já það hefði ég eflaust gert en
segja má að ég hafi orðið innlyksa
í Búnaðarbankanum. Ég fór
reyndar í laganám og áhuginn á
þeim tíma stóð þá til starfa tengdu
því námi. Ég hef hins vegar ekk-
Haraldur Hjalmarsson
frá Kambi í Deildardal:
Ljóð og lausavísur
Út er komin bókin „Ljóð og
lausavísur“ eftir Harald
Hjálmarsson frá Kambi í
Deildardal í Skagafiröi. í bók-
inni er að finna flestar af snjöli-
ustu vísum Haraldar ásamt
nokkrum kvæðum. Einnig er
þar skráð æviágrip hans.
Haraldur Árni Hjálmarsson
var fæddur að Hofi á Höfða-
strönd í desembermánuði 1908
og lést í febrúar 1970. Að honum
stóðu kjarnmiklar, skagfirskar
ættir á báðar síður. Gísli Magnús-
son frá Eyhildarholti ritaði minn-
ingargrein eftir Harald látinn.
Gísli segir að Haraldur sé vafa-
laust þekktastur fyrir yrkingar
sínar. „Hann varpaði fram
stökum, oft bráðsnjöllum, hve-
nær sem var og hvernig sem á
stóð. Vísurnar komu ósjálfrátt,
hrukku honum af munni, áður en
hann sjálfur vissi af. Þær komu
og hurfu, líkt og leiftur. Fæstar
voru festar á blað. Flestar munu
hafa gleymst í erli og önn. Þó lifa
margar á vörum ntanna víðs veg-
ar um landið og enn aðrar eru á
strjálingi í blöðum og ritum.“
Dagsprent hf. prentaði bókina,
sem er í takmörkuðu upplagi.
Hana má panta hjá útgefanda
bókarinnar. Birni Dúasyni í
Ólafsfirði. Jafnframt tekur Helga
Björnsdóttir að Digranesvegi 52 í
Kópavogi við pöntunum.
Hér að neðan birtast nokkrar
vísur Haraldar og öruggt má telja
að vísnavinum þyki fengur í bók
þessari. ój
Sjálfsmat
Ljóð mín eru lítils verð,
langt frá því að vera góð.
Þau eru flest í flýti gerð
fyrir þann sem næstur stóð.
Öðruvísi en ætlað var
Alinn var ég upp í sveit,
æskuhraustur, glaður.
En nú er ég eins og alþjóð veit
örlagadrykkjumaður.
Haraldur Hjálmarsson.
Óánægður
Óður minn er ekki þjáll,
yrki ég flest í bláinn.
Ó, að ég væri eins og Páll
eða jafnvel Káinn.
Skáldið gekk í stúku
Stúkan að mér hefir hert,
hörð er þessi líðan.
Ég hef ekki getað gert
góða stöku síðan.
Að loknum blaðalestri
Nú fer ég að lesa lög,
læra svindl og hrekki.
Lítið dugar höndin hög
og heiðarleikinn ekki.
'0 efitit íolta
lamut íatni
||UMFHROAR
ert velt vöngum yfir því hvað ég
vildi taka mér fyrir hendur ef til
stæði að skipta um starf í dag.“
Guðmundur hefur ekki verið í
Reykjavík alla tíð, heldur tók
hann við starfi útibússtjóra á
Blönduósi 1965 og var þar til árs-
ins 1980 er hann tók við útibúss-
tjórastarfinu í Hveragerði.
Bankaútibúið í Hveragerði var þá
höfðustöð bankans í Árnessýslu
en auk þess voru útibú á Selfossi,
Laugarvatni og Flúðum og síðar
einnig á Hellu."
Hver eru aðallega þín áhuga-
mál?
„Meðan ég bjó á Blönduósi
stundaði ég badminton með
nokkrum félögum mínum en þeg-
ar ég fluttist í Árnessýsluna þá
datt það að mestu upp fyrir og ég
held að það hafi verið vegna þess
að félagar mínir í íþróttinni urðu
skiljanlega eftir fyrir norðan. Ég
hef bæði gagn og gaman af því að
fara í sund og fer oft í lengri og
styttri gönguferðir sem tengjast
áhuga mínurn á útivist. Á sumrin
fer ég oft í ferðalög um óbyggöir
landsins."
Hvernig verður sumarfríinu í ár
varið?
„Ég verð nú hér á Akureyri í
sumar, og það er vinna en ekki frí
þannig að engar bollaleggingar
liafa verið um það hvernig ætti að
eyða fríi sem ekki er fyrir hendi.“
Það er stundum sagt að við lif-
um í óvægnu þjóðfélagi. Finnst
þér Akureyringar vera óvægnir í
skoðunum um menn og málefni?
„Nei, ég vil ekki fallast á það að
þeir séu það umfram annað fólk.
Mér finnst hins vegar að fjölmiðl-
arnir séu oft ansi óvægnir og reyni
jafnvel að blása upp mál sem ekk-
ert púður er í. En lífsgæðakapph-
laupið verður ýmsum oft ansi erf-
itt þegar reynt er að lifa eftir
„staðli“ sem er ofar þeirri getu
sem launin leyfa. Það er ýmsum
„Okkur blöskrar aö sjá
grimnrdarverk eins og þegar
vopnlaus fangi er skotinn,
særðir látnir bíða dauða síns og
óbreyttir borgarar rændir,
þeini nauðgað eða haldiö án
dóms og laga. Við liljótum að
trúa því að einhvers staðar
verði að draga mörkin - að
mönnum beri að virða ein-
hverjar „leikreglur“ þrátt fyrir
grimmdina á vígvellinum. Það
er einmitt þetta sem máliö
snýst um.“
Þetta er tilvitnun í einn af
sendifulltrúum Alþjóðaráös
Rauða krossins úr myndinni
„Mannréttindi í verki", sem
Rauði kross íslands hefur látið
þýða og gefið út með íslensku
erfið raun að draga úr þeim kröf-
um og þá falla kannski orð sem
annars hefðu betur verið ósögð."
Kona Guðmundar er Elísabet
Thoroddsen og starfar hún við
Heilsuhæli Náttúrulækningafé-
lagsins í Hveragerði. Þau eiga
þrjú uppkomin börn, eina dóttur
og tvo syni og þrjú barnabörn.
tali. Myndin er gerð af Breska
Rauða krossinum og fjallar um
störf sendifulltrúa Álþjóðaráðs-
ins á átakasvæðum, en þeirra
hlutverk er meðal annars að hafa
eftirlit með að Genfarsáttmál-
arnir séu haldnir. Genfarsáttmál-
arnir eru í raun þær reglur sem
kveða á um leyfilegt athæfi í
stríði, hvaða vopn megi nota og
hvernig farið skuli með stríðs-
fanga svo eitthvað sé nefnt.
Næstum öll ríki jarðar hafa
undirritað sáttmálana og þar með
viðurkennt mannúðarskyldur
Rauða krossins.
Sýningartími myndarinnar er
18 mínútur. Hún er til sölu á
skrifstofu RKÍ og jafnframt til
útláns úr bóka- og myndbanda-
safni Fræðslumiðstöðvar RKÍ.
Rauði kross fslands:
Mynd um rétt
fólks í stríði
Sprengitilboð
Kartöflur 2 kg kr. 45
Dæmi um verð:
Coke 2 lítrar kr. 89
Pepsi 2 lítrar kr. 89
RC cola 11/2 líter kr. 77
Sinalco 11/2 líter kr. 59
Pampers bleiur kr. 1.091
WC pappír m/8 rúllum kr. 115
Blanda 0,2 lítrar kr. 29
Kókómjólk kr. 38
Opið mánudaga til föstudaga kl. 12-18.30
laugardga kl. 10-14
Ath! Tökum kreditkort og viðskiptamannanótur