Dagur - 01.07.1992, Page 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 1. júlí 1992
Ný byggingarreglugerð tekur gildi 1. júlí 1992
Umhverfisráðuneytið hefur sam-
kvæmt 4. gr. byggingarlaga nr.
54/1978 sett byggingarreglugerð
nr. 177/1992 með gildistöku 1.
júlí 1992. Jafnframt feliur úr gildi
reglugerð nr. 292/1979 með síðari
breytingum.
Helstu breytingar sem gerðar
hafa verið frá fyrri reglugerð eru
eftirfarandi:
- breytingar sem eru tilkomn-
ar við setningu laga nr. 47/
1990 er skipulags- og bygging-
armál voru flutt þann 1. jan-
úar 1991 frá félagsmálaráðu-
neyti til umhverfisráðuneytis.
Einnig hafa verið leiðréttar
tilvitnanir í lög, reglugerðir
og staðla sem breytt hefur
verið frá síðustu útgáfu reglu-
gerðarinnar.
- ítarlegar er kveðið á um
þau hönnunargögn sem skila
ber til byggingarfulltrúa, svo
sem uppdrætti að brunavörn-
um bygginga, séruppdrætti
aðalhönnuða í mælikvarða
1:50 eða stærri, sem háðir eru
samþykki byggingarfulltrúa
og ákvæði um útreikninga
burðarþolshönnuða. Með
breytingunum er stefnt að því
að tryggt sé að nauðsynleg
hönnunargögn liggi ávallt fyr-
ir áður en byggingarfram-
kvæmdir hefjast.
- þá hafa verið gerðar ýms-
ar breytingar með tilliti til
reynslu undanfarinna ára. Má
þar nefna meðal annars að nú
er krafist vottorða frá Rann-
sóknarstofnun byggingariðn-
aðarins um styrkleika- og
gæðakröfur allra verksmiðju-
framleiddra húsa og bygging-
arhluta. Ákvæði eru um fyrir-
komulag almennra tjald- og
hjólhýsasvæða og um stöðu-
leyfi hjólhýsa svo og eftirlit.
Þá eru sett ákvæði um örygg-
isráðstafanir við sundlaugar,
heita potta eða útilaugar.
Einnig er breytt ákvæðum um
stærð á lyftum til samræmis
við staðla. Til að auðvelda
eftirlit og tryggja gæði vegna
viðgerða og endurbóta eru
sett sérstök ákvæði er varða
klæðningu bygginga vegna
steypuskemmda og um
steypu- og sprunguviðgerðir.
Pá vill umhverfisráðuneytið
benda á að ævinlega skal fara
fram lokaúttekt bygginga, þegar
frágangur allur er fullbúinn.
Skipulag ríkisins hefur gefið út
í sérriti gildandi skipulagslög,
byggingarlög, skipulagsreglugerð
og hina nýju byggingarreglugerð
ásamt greinargerð þar sem nánar
í opinberri umræðu hefur að
undanförnu gætt efasemda um
gagn af notkun hvarfakúta til
þess að minnka mengun í
útblæstri bíla. Auk þess hefur
verið látið að því liggja að um
er greint frá þeim breytingum
sem gerðar hafa verið. Sérritið
verður til sölu í Námsgagnastofn-
un að Laugavegi 166 og kostar
500 krónur.
Byggingarreglugerð þarf nán-
ast að vera í sífelldri endurskoð-
un og ljóst er að talsverðra
endurbóta er þörf á þessari reglu-
gerð svo hún megi betur nýtast
sé að ræða óheyrilegan kostn-
að fyrir þjóðarbúið.
Fram kemur í fréttatilkynning-
unni frá umhverfisráðuneyti og
dómsmálaráðuneyti, að á sínum
tíma skipaði umhverfisráðherra
nefnd til að fara yfir þessi mál,
m.a. þá gagnrýni sem fram hefði
komið á notkun hvarfakúta til að
draga úr mengun frá bílum hér á
landi. „Engu að síður þótti ráðu-
neytunum rétt í ljósi umræddrar
gagnrýni að fjalla aftur um málið
og var fyrir milligöngu Bifreiða-
skoðunar íslands leitað til
tveggja sérfræðinga á þessu sviði,
þeirra Ágústar Jónssonar, véla-
verkfræðings, og Lennart
Erlandsson, forstöðumanns Mot-
ortestcentrum í Stokkhólmi, sem
er virt rannsókastofa á sviði
mengunarvarna í bílum. Þeir
ásamt Karli Ragnars, forstjóra
Bifreiðaskoðunarinnar, eru
höfundar að skýrslunni „Greinar-
gerð um mengunarvarnir
bílum,“ sem kom út í júlí 1991
Niðurstaða úr umfjöllun sér-
fræðinganna, sem fram fór nýver-
ið, styður fyrri niðurstöður
nefndar umhverfisráðuneytis.
Hún er eftirfarandi: „Flestir bíla-
framleiðendur, ef ekki allir, geta
boðið bíla með hvarfakútum,
einnig bílaframleiðendur í Aust-
ur-Evrópu. Ekki er vitað til að
bílar með hvarfakúta hafi hækk-
að í verði þeirra vegna. Raunar
ber bílablöðum saman um að svo
sé ekki. Ástæðan er sú að flest
lönd í Vestur-Evrópu, Norður-
Ameríku, Ástralíu og Japan gera
kröfur um hvarfakúta. Þannig
eru þeir orðnir hluti af raðsmíð-
inni í bilaframleiðslunni. Þess
vegna eru sumar tegundir orðnar
dýrari án hvarfakúta. Reynslan í
öðrum löndum þar sem sambæri-
legar reglur hafa komið til fram-
kvæmda staðfestir þetta.
Útihitastig hefur nánast engin
áhrif á virkni hvarfakúta. Til þess
að hvarfakúturinn vinni eðlilega
þarf hann að hafa náð 300 til 400
gráðum á celsíus. Þessu hitastigi
er náð á u.þ.b. 90 sek. frá gang-
setningu sem svarar til u.þ.b. 1
km. aksturs. Litlu máli skiptir,
hvort útihitastig er 0 gráður
eða 20 gráður á celsíus, þar
munar 5-6% sem eykur upphit-
unartíma hvarfakútsins um 5 sek.
Eldsneytisnotkun bíla með
hvarfakútnum minnkar að jafn-
aði um 5-10% þegar miðað er við
nýlega bíla án hvarfakúta. Sé
hins vegar miðað við eldri bíla
með háþrýstum vélum fyrir blý-
bensín er eldsneytisnotkun bíla
með hvarfakúta svipuð. Ástæð-
an er sú að nýtni vélanna minnk-
aði þegar þær urðu lágþrýstari
fyrir blýlaust bensín. Með til-
komu hvarfakútanna er magn
súrefnis til brunans mælt af mik-
illi nákvæmni með svokölluðum
hönnunaraðilum, byggingareftir-
liti og byggingariðnaði. Nýtt
frumvarp til skipulags- og bygg-
ingarlaga var lagt fram á Alþingi
í vor og er nú til umfjöllunar í
umhverfisnefnd þingsins. Sam-
hliða nýjum byggingarlögum er
nauðsynlegt að gagnger endur-
skoðun reglugerðar fari fram og
hefur umhverfisráðuneytið hafið
undirbúning að því starfi.
súrefnisnema, sem eykur nýtni
eldsneytisins nokkurn veginn til
jafns við mismuninn á há- og lág-
þrýstum vélum. Sjálfur hvarfa-
kúturinn hefur engin áhrif á elds-
neytisorkuna. Ekki er óvarlegt
að ætla að almenn notkun hvarfa-
kúta á Islandi muni minnka elds-
neytisnotkunina um 5%, með
hliðsjón af reynslu annarra
þjóða.
Ójafn snúningshraði bílvélar-
innar hefur engin áhrif á virkni
hvarfakútsins. í hvarfakútnum
eru framkallaðar efnabreytingar
eða þeim hraðað þar sem kol-
mónoxíð og kolefni breytast í
koldíoxíð og vatn. Köfnunarefn-
isoxíð breytist í hreint köfnunar-
efni. Þessar efnabreytingar
verða þegar lofttegundir streyma
um innra yfirborð hvarfakútsins
og eru þær algerlega óháðar
snúningshraða vélarinnar.“
í lok fréttatilkynningarinnar
segir að með vísun til framan-
ritaðs megi ljóst vera að fullyrð-
ingar um verulegan kostnaðar-
auka og minni gagnsemi hvarfa-
kúta hér en annars staðar fá ekki
staðist. ój
Tvær nýjar
Ijóðabækur
Útgáfufélagið Dimma hefur
sent frá sér tvær nýjar Ijóða-
bækur, Draumkvæði eftir
Aðalstein Ásberg Sigurðsson
og Tré hreyfa sig hægt eftir
Paal-Helge Haugen.
Draumkvæði er sjötta ljóða-
bók Aðalsteins Ásbergs. Hann
hefur einnig samið skáldsögur,
barnabækur og fjölda söngtexta
bæði við eigin lög og annarra.
Nýverið hlaut hann verðlaun í
bókmenntasamkeppni Almenna
bókafélagsins fyrir barnabókina
Dvergastein.
Draumkvæði er 62 blaðsíður,
en bókin skiptist í fjóra kafla,
sem hafa að geyma 39 ljóð.
Tré hreyfa sig hægt eftir
norska skáldið Paal-Helge Haug-
en er úrval ljóða úr 7 bókum,
sem út komu á tímabilinu 1967-
1990, en þýðandi er Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson.
Paal-Helge Haugen er vel
þekktur í heimalandi sínu og hef-
ur auk ljóða m.a. skrifað leik-
texta og barnabækur. í ljóðum
sínum notar hann oft hversdags-
legt málfar og myndir á nýstár-
legan hátt og tekst þannig að
varpa nýju ljósi á hið Ijóðræna
landslag.
Tré hreyfa sig hægt er 72 blað-
síður.
Bókin er gefin út með styrk frá
Norræna þýðingarsjóðnum.
Dagsprent hf.
Símar: 24166 & 24222
Dómsmálaráðimeyti og umhverfisráðuneyti:
Um hvarfakúta
- fullyrðingar um kostnaðarauka og minni gagnsemi
fá ekki staðist