Dagur - 01.07.1992, Qupperneq 16
heimsendingarþjónusta
JO JL JL alla daga
Suziziuda.gatilfi3xxnitudaga.lcl. 1S.00-SS3.30
Föstudaga og lauga.rd.aga kl. 1S.00-04.30
Hádegistilboð alla daga
í dag opnar ný afgreiðsla sýslumannsins á Akureyri þar sem Utvegsbankinn var áður til húsa en í gær voru loka-
framkvæmdir í Hafnarstræti 107. Mynd: gt
Bæjarfógeti horfinn
- réttaröryggi í stað einveldisskipulags
í dag taka til starfa átta nýir
héraðsdómstólar og 27 ný
sýslumannsembætti sem taka
við störfum bæjarfógeta og
sýslumanna. Þessi nýja skipan
er liður í aðskilnaði dómsvalds
og umboðsvalds í héraði sem
staðið hefur til alla tuttugustu
öldina. Ekki varð þó af breyt-
ingunni fyrr en mál Jóns Krist-
inssonar kom fyrir mannrétt-
indanefnd Evrópu og voru lög
um aðskilnaðinn sett árið
1989. Samfara þessu er gerð
bylting á réttarfari sem mun
líkast til auka réttaröryggi á
Islandi.
Sýslumenn á Norðurlandi
verða á Blönduósi, Sauðárkróki,
Siglufirði, Ólafsfirði, Akureyri
og Húsavík en þeir „fara, hver í
sínu umdæmi, með stjórnsýslu
ríkisins,“ eins og segir í lögunum.
Sýslumenn eða fulltrúar þeirra
munu ekki hafa dómsvald eins og
fyrirrennarar þeirra og bæjar-
fógetar höfðu samkvæmt skipan
þeirri sem á var komið í kjölfar
einveldis 1662. Svalbarðsstrand-
arhreppur og Grýtubakkahrepp-
ur sem áður heyrðu undir sýslu-
mann Þingeyjarsýslu heyra nú
undir nýjan sýslumann á Akur-
eyri.
Sýslur landsins, 23 talsins,
leggjast þó ekki alveg niður því
við sýslumörk eru lögsagnar-
umdæmi nýrra héraðsdómstóla
miðuð. Á Norðurlandi verða
tveir héraðsdómstólar; annar á
Akureyri og hinn á Sauðárkróki.
Dómstólar munu sjá um allar
dómsathafnir þ. ám. flytjast öll
gjaldþrotamál til þeirra að svo
miklu leyti sem til kastá dómara
kemur.
Tæplega 500 lögfræðingar um
allt land hafa í vor verið á nám-
skeiðum um breytingarnar sem
taka gildi í dag. Nánar er fjallað
um breytingarnar í opnu Dags í
dag.
Lögfræðingarnir ætla ekki að
mæta til vinnu á morgun þar sem
ekki hefur náðst samkomulag um
kjaramál þeirra. GT
Þrír ungir bflþjófar
handteknir á Akureyri
- höfðu einnig neytt ííkniefna
og falsað
Lögreglan á Akureyri handtók
í hádeginu í gær þrjá unga
Reykvíkinga sem höföu stoliö
bíl í höfuðborginni kvöldið
áður og keyrt norður um nótt-
ina. Piltarnir hafa einnig orðið
uppvísir að ávísanafalsi og
fíkniefnaneyslu.
Að sögn Gunnars Jóhannsson-
ar, rannsóknarlögreglumanns á
avisanir
Akureyri, hafa piltarnir falsað
eitthvað af ávísununt í Reykjavík
en ekki er þar um verulegar upp-
hæðir að ræða. Við leit í bifreið-
inni í gær fundust tæki og
ummerki um amfetamínneyslu
en ekkert amfetamín.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri og í Reykavík vann að þess-
um málum í gær og sagði Gunnar
rannsóknina langt komna. JHB
Meleyri hf. á Hvammstanga:
Selur Sigga Sveins
Meleyri hf. á Hvammstanga
selur líklega bátinn Sigga
Sveins ÍS-29, sem er 100 tonna
stálbátur byggður á ísafirði
1987, til Víkings Halldórssonar
hjá Stakkholti hf. í Ólafsvík.
Með bátnum fylgir 420 tonna
rækjukvóti, 320 tonn af skel-
fiski og 20 tonn af þorski.
Söluverð skipsins er 145 millj.
króna og að sögn Guðntundar
Sigurðssonar stjórnarformanns
Meleyrar hf. er tilgangur fyrir-
tækisins með sölunni að losa um
harðan skuldahnút sem fyrirtæk-
ið er í. Auk Sigga Sveins á
Meleyri hf. bátana Bjarma HU-
13, Hersi HF-227 og Jöfur KE-17
og þess utan eru allnokkrir bátar
í viðskiptum við fyrirtækið og
leggja upp rækju til vinnslu í
rækjuverksmiðjunni á Hvamms-
tanga.
Aðspurður segist Víkingur
Halldórsson búast við að skrifað
verði undir kaupsamning fyrir
næstu helgi. Auk kvótans sem
fylgir bátnum verður útvegaður
þorskkvóti til að veiða. GG
Átak hf. á Sauðárkróki:
Frekari köimun á eldi hlýsjávarfiska
- samkvæmt forathugun er eldi á vartara talinn álitlegur kostur
Hluthafafundur í Átaki hf. á
Sauðárkróki sl. mánudags-
kvöld samþykkti að fela stjórn
félagsins að vinna að stofnun
undirbúningsfélags til frekari
athugunar á eldi hlýsjávaifiska,
en samkvæmt forarðsemis-
athugun, sem Guðmundur
Örn Ingólfsson, líilræðingur á
Hafrannsóknastofnun, hefur
unnið, er arðbært að fara út í
þetta eldi hér á landi, ‘inkuni
þykir tegundin vartari álitleg,
en hún er vel þekkt í Miðjarð-
arhafi og með ströndum Vest-
ur-Evrópu.
Guðmundur Örn sagði í sam-
tali við Dag að þetta verkefni
væri unnið í samvinnu við Sjávar-
útvegsstofnun Háskóla íslands og
frönsku Hafrannsóknastofnun-
ina. Athugunin hafi beinst að
þrem tegundum hlýsjávarfiska,
vartara, gullbrama og sandhverfu
og forathugun bendi til að vartari
henti best til eldis hér. „Við höf-
um einnig verið að kanna sam-
keppnishæfni okkar og niður-
staðan er að við séum fyllilega
samkeppnishæfir við kvíaeldi á
Miöjarðarhafssvæðinu," sagði
Guðmundur Örn.
Hann sagði að athuganir á
þessu eldi hafi miðast við að nýta
þær fjárfestingar sem fyrir eru í
hérlendum eldisstöðvum, „en
síðan þarf að bæta við tækni sem
eykur orkunýtingu. Miðað við
þessar forathuganir sýnist okkur
að þarna sé um að ræða hag-
kvæma nýsköpun í íslensku
atvinnulífi.“
Guðmundur Örn sagði að næg-
ur markaður væri fyrir vartara í
Evrópulöndum, t.d. vaeru greidd-
ar 1200 krónur fyrir kílóið í
Frakklandi. „Við erum að vinna
að stofnun undirbúningsfélags á
Sauðárkróki og því er ætlað að
fara betur ofan í saumana á ýms-
um þáttum þessa máls, eldi,
markaðsmálum og framkvæmda-
áætlun,“ sagði Guðmundur Örn
og tók fram að forarðseniisathug-
un hafi verið styrkt af Byggða-
stofnun og Rannsóknarráði ríkis-
ins. óþh
Húsnæðisvandamál Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra:
Gæti þurft að vísa nemenduin frá
Ólafur Arnbjörnsson, aðstoð-
arskólameistari Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki, segir að ef ekki
takist að leysa húsnæðisvanda
skólans fyrir veturinn þurfi að
vísa frá milli 50 og 60 nemend-
um. Hann segist ekki sjá hvaða
skólar á Norðurlandi eigi að
taka við þeim.
Skráðir nemendur á fysta ári í
skólanum eru 145 talsins
en
nýnemar alls um 200 og hefur
aðsókn aldrei verið jafn mikil.
Ekki verður hægt að veita öllum
umsækjendum heimavistarpláss
en húsnæðisvandamál nemenda
verða leyst með öllum tiltækum
ráðum. Skortur á kennsluhús-
næði er stórt vandamál hjá
skólanum og óljóst hvort tekst að
leysa það. Ólafur Arnbjörnsson
segir að það ætti að skýrast á
næstu dögum hvort það tekst og
segist verða að vera bjartsýnn.
„Ég skil ekki orð Tryggva
Gíslasonar um að þeir nemend-
ur, sem vísað er frá MA, fái inni
í öðrum skólunt á Norðurlandi.
Ég sé ekki hvaða skólar það ættu
að vera nema hugsanlega Fram-
haldsskólinn á Húsavík þar sem
ég vissi að var eitthvað pláss.
Hins vegar eru fleiri skólar að
vísa frá nemendum, m.a. Fram-
haldsskólinn á Laugum og Verk-
menntaskólinn á Akureyri og
ólíklegt að skólinn á Húsavík
taki við öllu þessu fólki,“ sagði
Ólafur Arnbjörnsson. JHB
Öxarljarðarheiði:
Eldri hjón frá
Svíþjóð teppt í
tvo sólarhinga
- köld, svöng og glöð
að ía kakó hjá björg-
unarmönnum sínum
„Þau lágu undir teppuni í
bílnuin, köld og svöng og
voru glöð að fá heitt kakó
og brauð sem við færðum
þeim,“ sagði María Trausta-
dóttir, húsfrcyja í Sandfells-
haga, sem fékk óvænta gesti
aöfaranótt þriðjudagsins.
Hún fór á Öxaríjarðarheiði
um miðnætti á mánudags-
kvöld ásamt Gunnari Björns-
syni bónda sínum og þriðja
aðila, til hjálpar eldri hjón-
um frá Svíþjóð sein dvalist
höfðu í bíl sínum á heiðinni
frá því á laugardagskvöld,
eða í tvo sólarhringa.
„Við hefðum ekki sofið
róleg eftir að við vissum af
þeim á heiðinni," sagði María,
en það var maöur frá Vega-
gerðinni sem fann bíl hjón-
anna á mánudagskvöld og var
hann fimm km ofan við Sand-
fellshaga. María og Gunnar
fóru á vél mcð ámoksturstækj-
um ásamt öðrum bfl til örygg-
is, mokuðu frá bíl Svíanna og
höfðu hann á milli véiarinnar
og bílsins niður af heiðinni.
„Þau spurðu hvort það
kæmi svona snjór á hverju
sumri, og það í júní,“ sagði
María. Sænsku hjónin þáðu
veitingar í Sandfellshaga er
þau koniu niður af heiðinni en
vildu ekki með nokkru móti
þiggja gistingu í bænurn, held-
ur sváfu í sendibíl sínum á
hlaðinu um nóttina, hefur lík-
lega þótt nóg fyrir sér haft.
Aðspurð sagði María að
algengt væri að hjálpa þyrfti
fólki af heiðinni og sem dæmi
mætti nefna að urn jólin hefðu
hjón með barn í vagni komið
gangandi niður af heiðinni,
cflir að hafa fest bíl sinn þar.
1M