Dagur - 23.07.1992, Qupperneq 11
Fimmtudagur 23. júlí 1992 - DAGUR - 11
IÞRÓTTIR
»
i»
Stórleikur á Akureyrarvelli:
„Vinnum Skagann heima“
- sagði Gunnar Gíslason, þjálfari KA, þegar ljóst var að KA fengi
heimaleik gegn ÍA í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppninnar
KA-menn duttu í lukkupottinn
þegar þeir fengu heimaleik í
undanúrslitum Mjólkurbikar-
keppninnar þegar dregið var í
gær. Andstæðingarnir eru þó
ekki af lakara taginu, sjálft
topplið 1. deildar, IA. Leikur-
inn verður á Akureyrarvelli 6.
ágúst og hefst klukkan 19.00.
Fylkir fékk heimaleik gegn Val
í hinum undanúrslitaleiknum.
„Nei ég er ekkert hræddur við
það að fá Skagann fyrst. Við
vinnum þá hérna heima," sagði
Gunnar Gíslason, þjálfari og
leikmaður KA, þegar Ijóst var
hverjir myndu spila saman í
undanúrslitum Mjólkurbikarins.
„Pað er sama á hvaða liði við
lendum í þessum leik. Það er
bara bónus fyrir okkur að fá ÍA,
öll pressan er á þeim en aðalmál-
ið er að við fáum heimaleik. Ef
maður ætlar að verða bikarmeist-
ari þarf að vinna öll liðin og þá
skiptir ekki máli í hvaða röð liðin
koma. Við förum að sjálfsögðu í
þetta með því hugarfari að ætla
alla leið, annað er ekki hægt,“
sagði Gunnar Gíslason.
Páll Gíslason, leikmaður KA,
hefur skorað í báðum leikjum
liðsins í Mjólkurbikarnum. Hann
sagðist mjög ánægður með það
að fá ÍA í heimsókn. „Þetta er
það besta. Við verðum bara
fyrstir til þess að leggja þá að
velli í sumar og það er ágætt að
það verði í undanúrslitum bikar-
keppninnar. Ég mun að sjálf-
sögðu halda áfram að reyna að
skora,“ sagði Páll Gíslason.
Páll Gíslason hefur skorað í báðuni
bikarleikjunuin.
Logi Már Einarsson hefur ákveðið að leika með KA í handboltanum í vetur.
Ekki hefur neitt lieyrst um að Eggert Benjamínsson ætli að gera slíkt hið
sama.
Handknattleikur:
Æfingar hafnar hjá KA
- Fara leikmenn í verkfall?
Golf:
Greifamótið í dag
Mctþátttaka var í Greifamótinu
í golfi síðastliðinn fimmtudag.
Veðrið var mjög gott og marg-
ir lögðu leið sína á golfvöllinn.
Mótið heldur áfram í dag og
hefst klukkan 13.00. Úrslitin
úr mótinu 16. júlí og heildar-
staða er eftirfarandi. Tölurnar
tákna höggafjölda og stig:
Með forgjöf:
1. Jón Steindór Árnason 30/12
2. -3. Páll Pálsson 33/9
2.-3. Rafn Kjartansson 33/9
4.-5. Stefán Jónsson 34/6,5
4.-5. Sunna Borg 34/6,5
6.-10. Ólafur Gylfason 35/3,0
6.-10. Magnús Jónatansson 35/3,0
6.-10. Gunnlaugur Búi Ólafss. 35/3,0
6.-10. Jón Óskarsson 35/3,0
6.-10. Ólafur Hilmarsson 35/3,0
Án forgjafar:
1. Jón Steindór Árnason 34/12
2. Ólafur Gylfason 38/10
3-5. Guðmundur Sigurjónsson 39/7
3. -5. Þórhallur Pálsson 39/
3.-5. Viðar Þorsteinsson 39/7
6. Páll Pálsson 41/5
7. -8. Ólafur Hilmarsson 42/3,5
7.-8. Stefán Jónsson 42/3,5
9.-10. Magnús Jónatansson 43/1,5
9.-10. Guðbjörn Garðarsson 43/1,5
Heildarstaða með forgjöf: Stig
1. Gunnar Jakobsson 26,7
2. Jón Steindór Árnason 24
3. Guðmundur Finnsson 19,7
4. Ólafur Hilmarsson
5. Karl Steingrímsson
Heildarstaða án forgjafar:
1. Ólafur Gylfason
16,8
16,3
Knattspyrna:
Nokkrir í bann
Aganefnd KSÍ heldur vikulega
fundi til þess að úrskurða leik-
menn í bann, einn leik eða fleiri,
allt eftir eðli þeirra brota sem
þeir eru fundnir sekir um.
Nokkrir leikmenn af Norðurlandi
voru dæmdir í eins leiks bann f
fyrradag og tekur það bann gildi
frá og með föstudag.
Vegna brottvísunar:
Guðmundur Hákonarson, 2. fl. Þórs.
Kristjana Jónasdóttir, Tindastóli.
Vegna fjögurra gulra spjalda:
Sveinbjörn Ásgrímsson, Völsungi.
Mark Duffield, Leiftri.
Vegna sex gulra spjalda:
Páll Pálsson, 2. fl. Þórs.
Ólympíuleikarnir:
Handboltaliðið til Spánar
- reynt verður að sýna
leiki liðsins í Sjónvarpinu
Það er nú að verða nokkuð
Ijóst að íslenska landsliðið í
handbolta muni leika á
Ólympíuleikunum í Barce-
lona.
Nefndin sem fjallar um fram-
kværnd aðgerða gegn Júgóslavíu,
samkvæmt ályktun öryggisráðs
Sþ nr. 757 (1992), hélt í fyrradag
fund um tilmæli Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar að leyfa íþrótta-
mönnum frá Júgóslavíu (Serbíu
og Svartfjallalandi) að taka þátt í
ÓL í Barcelóna.
A fundinum kynnti Austurríki
málamiðlun þar sem einstakling-
um frá Júgóslavíu yrði heimiluð
þátttaka á leikunum en ekki
hópum. Þessi tillaga var sam-
þykkt og er sérstakleg tekið fram
að Júgóslavía mætti ekki keppa í
handknattleik, körfubolta eða
sundknattleik.
Niðurstaða nefndarinnar er
endanleg og miðað við stöðu
málsins í dag bendir allt til þess
að ísland muni keppa í hand-
knattleik á Ólympíuleikunum.
2. Sverrir Þorvaldsson
3. -4. Jón Steindór Árnason
3.-4. Þórhallur Pálsson
5. Sigurpáll Sveinsson
31
22
22
18,8
Nú fer tímabil handknatt-
leiksinanna að byrja og liðin
farin að undirbúa sig af fullum
krafti. Handknattleikslið KA
ætir nú af kappi, undir stjórn
Alfreðs Gíslasonar, og hyggur
á æfingaferð til Hollands 24.
ágúst. Liðið hefur breyst nokk-
uð frá því á síðasta tímabili.
Að sögn Alfreðs Gíslasonar
eru æfingar byrjaðar af fullum
•krafti og er æft tíu sinnum í viku.
„Þetta er um 20 manna hópur
sem er að æfa og ég á jafnvel von
á því að við verðum með sterkara
lið en í fyrra. Sérstaklega á ég
von á því að varnarleikur okkar
verði betri en í fyrra,“ sagði
Alfreð. Hann vildi láta þess getið
að hinn síungi og spræki horna-
maður, Logi Már Einarsson,
hefði ákveðið að spila með liðinu
og væri mikill fengur að honum
upp á liðsmyndina að gera.
Alfreð vonaðist til að með komu
Loga myndi kvenpeningur bæjar-
ins koma á pallana og láta í sér
heyra. „Logi er mikill „sjarmör"
og hann heldur stelpunum vak-
andi þótt illa gangi,“ sagði
Alfreð.
KA-liðið heldur út til Hollands
í æfinga- og keppnisferð í lok
ágúst. Þar verða Hollandsmeist-
ararnir og annað hollenskt fé-
lagslið, belgísku meistararnir,
ÍBV og KA. Að sögn Alfreðs
verður þetta nokkuð sterkt mót
og öll aðstaða er þarna til fyrir-
myndar.
Stefnt er að því að íslandsmót-
ið í handknattleik hefjist 16.
september en sá orðrómur hefur
verið á kreiki að leikmenn ætli að
fara í verkfall vegna þeirra reglna
sem gilda um félagaskipti. „Það
er varla búið að skrifa undir hjá
nokkrum manni og þetta eru
alger ólög,“ sagði Alfreð. SV
SAMrfæ
bhk
Þór-UBK
Hörkuleikur á Akureyrarvelli
föstudaginn 24. júlí kl. 20.00
1 síðasta leik M 'fÉi.p
léku þeir Bjarni
* ***, W og Hlynur
. mjög vel. ÍPw
Á Él Hvað gera þeir
annað kvöld?
Bjarni Sveinbjörnsson.
Hlynur Birgisson.
Akureyríngar og nærsveitamenn!
Komið á völlinn og sjáið hörkuleik
Soils
...að sjálfsögðu!