Dagur - 20.08.1992, Blaðsíða 12
Kjörorð okhar = Góð þjónusta
Opið virka daga frá kl. 11.30-22.30 - Um helgar frá kl. 12.00-24.00
Næturherimsending tíl kl. 01.00
föstudags- og laugardagskvöld
Blönduós:
Nýtt ferðaþjónustu-
fyrirtæki í uppsiglingu
Fyrirtækið Stígandi á Blöndu-
ósi flytur inn og setur upp hús í
samstarfi við norskt fyrirtæki.
Þetta samstarf hófst fyrir rúmu
ári og hafa þegar verið sett upp
tvö hús. Nú eru uppi hug-
myndir um ferðaþjónustu í
tengslum við þessi hús og
Maður viUtist
í Fitjárdal
- björgunarsveitir fundu
hann heilan á húfi
Lögreglunni á Blönduósi var
tilkynnt um týndan mann um
kl. 23:30 á þriðjudagskvöld.
Fóru björgunarsveitir til leitar
og fannst maðurinn heill á húfí
um kl. 2:05 um nóttina.
Maðurinn var á ferð í Fitjárdal
með félaga sínum og ætluðu þeir
að veiða í Fitjá. Þeir urðu síðan
viðskila. Sá sem týndist var lítt
kunnur staðháttum og illa búinn
og því ákveðið að hefja leit, enda
komið myrkur. Fóru Flugbjörg-
unarsveitin í Víðidal og Slysa-
varnadeildin Káraborg á
Hvammstanga til leitar á tveimur
bílum sitt hvoru megin við ána og
fundu manninn fljótlega. Var
hann þá á leið inn á heiði. Hann
var við góða heilsu, en nokkuð
kalt. sþ
undirbúningur hafínn að stofn-
un nýs fyrirtækis.
Hilmar Kristjánsson hjá Stíg-
anda tjáði blaðinu að samstarfið
við Ál-hyttebyg hefði hafist fyrir
u.þ.b. einu og hálfu ári. Stígandi
flytti inn bæði sumarhús og heils-
árshús og setti upp. Þeir hefðu
fengið lóð hjá bænum, svokallað
Sýslumannstún við hliðina á
tjaldstæðunum. Þar voru sett upp
tvö hús í fyrra en leyfi fékkst fyrir
10 húsum. Húsin tvö hafa verið í
útleigu og ágætri nýtingu í vetur
og í sumar þó ekki sé farið að
auglýsa þau sérstaklega. Fyrir-
hugað er að reisa þessi 10 hús og
reka ferðaþjónustu í tengslum
við þau. í undirbúningi er stofn-
un nýs fyrirtækis í þessu sam-
bandi. Hafa ýmsir aðilar sýnt
áhuga á að gerast hluthafar á
móti heimamönnum. Auk þessa
stendur til að nokkrir blaðamenn
frá norskum veiði- og útivistar-
tímaritum komi um miðjan októ-
ber og kanni aðstæður. Fram-
haldið fer að miklu leyti eftir þvf
hvernig þeim líkar.
Ef af verður er stefnt á viku
„ævintýraferðir", m.a. boðið upp
á veiði og útivist. Fyrst og fremst
verður markaðurinn miðaður við
Norðurlönd til að byrja með.
„Við erum ekki með stóra
drauma til að byrja með og höf-
um alla fyrirvara á því að þetta
gangi upp“, sagði Hilmar. sþ
Kvótastaða ÚA:
„Staðan er langt frá
því að vera slæm“
- segir Einar Óskarsson
„I dag eigum við eftir að ná um
2000 tonnum í þorskígildum.
Togararnir hafa að undan-
förnu sótt mest í þorsk og ýsu,
enda eru þetta þær tvær teg-
undir sem við eigum eftir nú í
lok kvótaárs. Veiðin gengur
upp og ofan sem oft áður,“
segir Einar Óskarsson hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa.
Að sögn Einars kom Hrímbak-
ur EA til löndunar sl. mánudag.
Úr togaranum var landað 156
tonnum, þar af voru 148 tonn
þorskur. I gær var Svalbakur EA
til löndunar. Samsetning aflans,
sem er 140 tonn, er nokkuð
VEÐRIÐ
Skammt vestur af landinu er
nærri kyrrstæð 995 millibara
lægð en heldur vaxandi 1000
millibara lægð um 600 km.
vestur af írlandi hreyfist norð-
austur. Hiti breytist fremur
lítið. Vænta má austan- og
suðaustan kalda í dag, það
verður skýjað víðast hvar og
jafnvel smá skúrir.
óvenjuleg þar sem hátt í 100 tonn
er ýsa og kolinn er 20 tonn.
„Kvótaárinu lýkur í lok mán-
aðarins. Úthíutaður kvóti
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
var 15.200 tonn í þorskígildum.
Að auki máttum við veiða það
sem var flutt frá fyrra ári og lítils-
háttar var keypt. Þannig höfðum
við til ráðstöfunar á veiðiárinu
17.200 tonn í þorskígildum. í dag
eigum við eftir að ná um 2000
þorskígildum. Tíu dagar eru eftir
af kvótaárinu og öll skipin á sjó.
Við getum flutt 20% af hverri
tegund milli ára, þannig að stað-
an er langt frá því að vera slæm,“
segir Einar Óskarsson. ój
Nú standa yfír breytingar á inngangi heimavistar Menntaskólans á Akureyri en fyrirhugað er að nýtt 50 fermetra
anddyri rísi á jarðhæð austan megin í heimavistinni. Mynd: Goiii
EES-samningurinn og jarðakaup útlendinga:
„Fyrirvaranum var haldið
tfl streitu - en haftiað“
- segir Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra
„Það er rangt að fyrirvarar um
landakaup hafí gufað upp í tíð
fyrri ríkisstjórnar því á fundi
hennar í október 1990 upplýsti
aðalsamningamaður íslands að
ekki fengist varanlegur fyrir-
vari sem takmarkar kaup út-
lendinga á jörðum og því yrði
að gera það með því að setja
girðingar í íslensk lög. Á þeim
fundi var ákveðið að setja slík
lög en ríkisstjórninni entist
ekki aldur til að Ijúka því,“
sagði Steingrímur Hermanns-
son, fyrrverandi forsætisráð-
herra, þegar hann var inntur
álits á ummælum Tómasar
Inga Olrich alþingismanns um
EES-samninginn í Degi í gær.
„Slíkar girðingar hafa aðrar
þjóðir sett. Þær hefði átt að setja
í lög á síðasta þingi þar sem
jarðakaup væru skilyrt heimilis-
festi á íslandi í ákveðinn tíma,
skilyrði um búsetu á slíkum jörð-
um eða með því að styrkja for-
kaupsrétt sveitarfélaga og ríkis,“
sagði Steingrímur og bætti við að
sambærileg ákvæði í írskum lög-
um hefðu staðist fyrir EB-dóm-
stólnum þrátt fyrir að ekki mætti
mismuna innlendum og erlend-
um aðilum.
Steingrímur sagði að enn mætti
setja slík lög ef ekki fælist í þeim
mismunun eftir ríkisborgararétti.
„Landbúnaðarráðherra hefur
tíma til áramóta til að setja fram
slíkt frumvarp og kannski lengur
því ákvæðið um jarðakaup kem-
ur ekki til framkvæmda 1. janú-
ar. Því er lofað að það komi
frumvarp um þetta og þá er ég
sammála Tómasi Inga,“ sagði
Steingrímur Hermannsson í sam-
tali við Dag.
„Ég hefði gjarnan viljað sjá
slík lög í tíð fyrri ríkisstjórnar en
fyrri landbúnaðarráðherra var
tregur og vildi finna aðrar leiðir.
Það tafði málið þótt hann væri
alveg sammála því að ekki kæmi
til greina að opna fyrir jarða-
kaup,“ sagði Steingrímur,
aðspurður um hvort Steingrími J.
Sigfússyni hefði ekki borið að
setja fram slíkt frumvarp í sinni
ráðherratíð.
„Ég taldi fyrir mitt leyti að það
væri fullreynt að fyrirvari fengist
ekki. Það hefur enginn fyrirvari
gufað upp; honum var haldið stíft
til streitu en fyrirvaranum var
hafnað,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson að lokum. GT
Akureyri:
Framkvæmdir við Slökkvi-
stöð boðnar út
- útboðsgögn liggja fyrir á fóstudag
Á næstu dögum verða fram-
kvæmdir við nýju slökkvistöð-
ina við Árstíg á Akureyri
boðnar út. Að sögn Sigurðar J.
Sigurðssonar, formanns bæjar-
ráðs, eiga slökkvistöð og að-
staða fyrir strætisvagna að vera
tilbúin um mitt næsta ár. Til-
Tvö umferðaróhöpp á Akureyri
Umferðarslys varð á gatna-
mótum Byggðavegar og Þing-
vallastrætis á Akureyri í
hádeginu í gær. Bifreið og
reiðhjól lentu saman og var
hjólreiðamaðurinn fluttur á
sjúkrahús til rannsóknar.
Einnig var tilkynnt um minni-
háttar árekstur á Akureyri í
gærmorgun.
Rétt fyrir kl. 9.00 í gærmorgun
varð smávægilegur árekstur við
gatnamót Gránufélagsgötu og
Hólabrautar. Engin meiðsl urðu
á fólki en lögregla var kölluð til
til að aðstoða við skýrslugerð.
Tildrög síðara óhappsins voru
þau að bifreið sem ekið var vest-
ur Þingvallastræti og beygt til
hægri inní Byggðaveg fékk reið-
hjól framan á sig. Talið er að
unglingur sem á hjólinu var hafi
annað hvort komið niður Þing-
vallastrætið á öfugum vegarhelm-
ingi eða á gangstétt. Eftir er að fá
staðfestingu vitna.
Hjólreiðamaðurinn kvartaði
um eymsli í baki og var fluttur á
sjúkrahús til athugunar. Ekki er
talið að meiðsl hans séu alvarleg.
KR
boðið er opið öllum og er til-
boðsfrestur rúmur.
„Slökkvistöðin og strætisvagna-
aðstaðan eru auglýst sem eitt
verkefni en kostnaðaráætlun hef-
ur ekki verið gefin upp,“ sagði
Sigurður og hún verður ekki gef-
in upp fyrr en tilboð liggja fyrir.
Kaupverðið á húsnæði slökkvi-
stöðvar framtíðarinnar var- 56
milljónir.
„Verktíminn er þokkalega
langur og tilboðsfrestur sæmilega
rúmur þannig að verktakar á
Akureyri ættu að eiga mjög auð-
velt með að skila tilboðum og
haft gott svigrúm til að vinna
verkið,“ sagði Sigurður J. Sig-
urðsson í samtali við Dag.
Útboðsgögn ligjya fyrir á
föstudag að sögn Agústar Berg,
deildarstjóra byggingadeildar
Akureyrarbæjar. GT