Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 1
Hreppsnefnd Hríseyjar:
Starfsmöraium Sævars og
Sæfara sagt upp störftun
Hreppsnefndarfundur var hald-
inn í Hrísey sl. laugardag. A
fundinum var ákveðið að segja
sameinmg
án heilsársvegar
yfir Fljótsheiði
- segir í skýrslu sveitar-
félaganefndar um
Suður- Þingeyj arsýslu
Heilsársvegur yfir Fljótsheiði í
Suður-Þingeyjarsýslu er talinn
nauðsynlegur ef sveitarfélög í
sýslunni sameinast. Þá er litið
svo á að ef takast eigi að sam-
eina alla Norður-Þingeyjar-
sýslu norðan Jökulsár á Fjöll-
um í eitt sveitarfélag, verði að
stytta leiðina um Melrakka-
sléttu, líklega með vegi yfir
Öxarljarðarheiði.
Petta kemur fram í áfanga-
skýrslu sveitarfélaganefndarinnar
svokölluðu, sem kynnt var sl.
föstudag.
Nefndin leggur til í skýrslunni
að frumvörp um breytingu á
skiptingu landsins í sveitarfélög
og reynslusveitarfélög (2 eða 3
talsins) verði lögð fram og sam-
þykkt frá Alþingi á vorþingi
1993. Gert er ráð fyrir að í því
frumvarpi komi fram að atkvæða-
greiðslu um ný umdæmi skuli
lokið fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar 1994 og að sameiningu
skuli lokið hjá þeim, sem sam-
þykkja hana, fyrir 1. janúar 1998.
óþh
starfsmönnum ferjanna upp
störfum með þriggja mánaða
fyrirvara. Um er að ræða níu
fastráðna starfsmenn. Jafn-
framt var ákveðið að fækka
ferðum út í Grímsey yfir hávet-
urinn. Aðeins verður farin ein
ferð á viku.
Að sögn Jónasar Vigfússonar,
sveitarstjóra í Hrísey, er uppsagn-
arbréfið stílað eftirfarandi: „Á
hreppsnefndarfundi í gær var
ákveðið að segja upp öllum
starfsmönnum og afgreiðslum
ferjanna Sæfara og Sævars með
eðlilegum fyrirvara, sem við telj-
um vera þrjá mánuði. Hér með
er þér því sagt upp störfum með
samningsbundnum fyrirvara.
Ástæða uppsagnanna er sú að um
næstu áramót er gert ráð fyrir að
Vegagerð ríkisins taki við rekstri
ferja og flóabáta á landinu. Til-
gangurinn er sá að hægt sé á eðli-
legan hátt að endurskipuleggja
reksturinn. Gerum við ráð fyrir
að í janúarmánuði á næsta ári
verði teknar upp viðræður við
starfsmenn ferjanna um framtíð
fyrirtækisins, þeir endurráðnir
sem ástæða þykir til og samið um
kaup og kjör. Tilkynnist þetta
hér með um leið og þér eru þökk-
uð störf hjá ferjunum.“ ój
föstudag var fyrsti opnunardagur skautasvellsins á Akureyri. Þessar þrjár yngismeyjar voru meðal fyrstu gest-
anna. Mynd: Robyn
Nær 60% síldarkvótans verið veiddur:
Stærstu bátamir hafa veitt sinn
kvóta og eru komnir á loðnu
Þrír bátar lönduðu loðnu á
Raufarhöfn um helgina, Sjáv-
arborg GK 755 tonnum, Bjarni
Ólafsson AK 959 tonnum og
Loðnukvótinn aukinn
í 820 þúsund lestir
Rannsóknaskipin Árni Frið-
riksson og Bjarni Sæmundsson
hafa lokið árlegum haust-
Lögreglan:
Bifreið stolið á Greni-
vík og hún skennnd
Vöruflutningabifreiðin sem
olli tjóni á klæðningu í Ólafs-
fjarðargöngum í síðustu viku
er fundin og var þar um gos-
flutningabifreið að ræða.
Um helgina var ökumaður
stöðvaður við Sílastaði í Krækl-
ingahlíð á 122 km hraða við
aðstæður sem ekki bjóða upp á
hraðakstur. Töluverð ölvun var á
Akureyri aðfaranótt laugardags
og þurfti lögreglan að hafa
afskipti af allmörgum sem blótað
höfðu Bakkus ótæpilega. Þessa
nótt var rúða brotin í Borgarsöl-
unni og bifreið stolið á Grenivík,
en þjófarnir náðust en bifreiðin
hafði skemmst eitthvað í þeirra
meðförum. Á laugardeginum
varð árekstur við Þingvallastræti
á móts við sundlaugina og varð
þar nokkurt eignatjón en engin
slys á fólki. Fyrir fótaferðartíma
á sunnudagsmorgun var ökumað-
ur tekinn, grunaður um ölvunar-
akstur. GG
mælingum á loönustofninum á
vegum Hafrannsóknastofnun-
ar. Lagt er til að heildarkvótinn
verði aukinn um 320 þúsund
lestir, þ.e. úr 500 þúsund lest-
um í 820 þúsund lestir.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
þegar óskað eftir því við norsk og
grænlensk stjórnvöld að þau sam-
þykki þessa tillögu.
Samkvæmt ákvæðum um skipt-
ingu loðnukvótans koma 78%
heildarkvótans í hlut íslands og
því mundi kvóti íslensku skip-
anna verði aukinn úr 390 þúsund
lestum í 640 þúsund lestir. GG
Örn KE var með 327 tonn. í
gær kom svo Huginn YE með
500 tonn. Mjög lítil loðnuveiði
var aðfaranótt mánudagsins,
bátarnir voru að fá mest 50
tonn í kasti. Aðalveiðisvæðið
hefur verið norðaustur af
Langanesfonti.
Svanur RE landaði 300 tonn-
um af loðnu á Þórshöfn á sunnu-
dag og Helga RE kom með 800
tonn af síld sem öll fór til
bræðslu. í gær kom Húnaröst RE
með 400 tonn af síld, og fór stór
hluti af farminum til vinnslu.
Súlan landaði 700 tonnum af
loðnu og síld í Krossanesi á
mánudag en enginn annar bátur
var hins vegar væntanlegur til
löndunar. Guðmundur Ólafur
ÓF hefur veitt allan sinn síldar-
kvóta og er kominn á loðnumiðin
og fékk í fyrrinótt 40 tonn í fjór-
um köstum og Björg Jónsdóttir
ÞH var búin að fá 60 tonn af
loðnu í tveimur köstum. Fleiri
síldarbátar eru komnir aftur á
loðnumiðin þar sem þeir hafa
veitt sinn síldarkvóta en megnið
af síldarafla þeirra hefur farið til
bræðslu. 11 bátar voru á loðnu-
miðunum í gær.
Á mánudag var búið að salta í
18 þúsund tunnur af síld en engir
sölusamningar eru enn í sigtinu,
en hins vegar hafa síldarsaltend-
ur vaxandi áhyggjur af því hversu
stór hluti síldaraflans fer til
bræðslu en bátarnir fá allt að
þrefalt hærra verð fyrir vinnslu-
síldina. Heildarsíldaraflinn er nú
kominn í 52 þúsund tonn en Haf-
rannsóknastofnun hefur lagt til
að síldaraflinn á vertíðinni 1992/
1993 verði 90 þúsund tonn.
Arnþór EA frá Árskógssandi
landaði sl. laugardag 100 tonnum
af síld til vinnslu hjá Strandasíld
á Seyðisfirði og 190 tonnum í gær
sem bæði veröur söltuð og fryst.
Arnþór EA hefur fengið um 1050
tonn af síld og þar af hafa aðeins
um 200 tonn farið til bræðslu.
Síldin stendur enn mjög djúpt en
er í sæmilega þéttum torfum og því
þokkalega veiðanleg á nóttinni.
GG
Eldsvoðinn í Húnabæ á Blönduósi:
Tjónið metið á rúmar 7 milljónir króna
- eldsupptök ókunn
Eins og fram kom í Degi
kviknaði í bflaverkstæði á
Blönduósi sl. föstudag. Verk-
stæðið heitir Húnabær og er
húsið í eigu Húnfjörð hf. Að
sögn Braga Árnasonar slökkvi-
liðsstjóra er ekki enn vitað
um cldsupptök, en þó ekki
ólíklegt að kviknað hafi í út frá
rafmagni. Óskar Húnfjörð
framkvæmdastjóri Húnfjörð
hf. segir tjónið metið á rúmar 7
milljónir.
Bragi Árnason slökkviliðs-
stjóri segir eldinn hafa logað
mest í þakinu, en þar var ein-
angrað með hefilspónum og heyi
sem eðlilega er mjög eldfimt. Það
varð að taka plötur á þaki upp til
að slökkva í því. Húsið var fullt af
eldfimum hlutum, að sögn
Braga, s.s. dekkjum, timbri og
umbúðum og því erfitt um vik við
slökkvistarfið. Bílarnir tveir sem
sagt var frá í Degi að hefðu verið
inni náðust út stuttu eftir að
slökkviliðið kom á vettvang og
eru rnikið skemmdir, en ekki
ónýtir. Sagði Bragi að erfiðast
hefði verið að fá vatn, þar sem
enginn brunahani væri í nágrenn-
inu og slökkviliðið varð að flytja
allt vatn að. Mjólkurbíll kom til
aðstoðar og flutti vatn, en Bragi
sagði að slökkvistarfið hefði
gengið fljótar fyrir sig ef slökkvi-
liðið ætti vatnsbíl. „Það er allt
útlit fyrir að kviknað hafi í út frá
rafmagni, en það liggur þó ekki
ljóst fyrir“, sagði Bragi.
Framkvæmdastjóri Húnfjörð
hf., Óskar Húnfjörð, sagði í sam-
tali við blaðið að eignin sé tryggð
á rúmar 7 milljónir, hús og
innbú, að undanskildu því sem
leigutaki á sjálfur. Helmingur
hússins var leigður undir verk-
stæðið, en í hinum hlutanum
voru geymslur í eigu Húnfjörð
hf. þar sem geymdar voru vélar
og fleira. Sagðist Óskar ekki
skilja í að kviknað hafi í út frá
rafmagni þar sem rafmagnstaflan
hafi verið ný og lagnir endurlagð-
ar fyrir fáum árum. Að vísu væri
hluti ljósalagna gamall. Ekki
náðist í Björn Valbergsson sem
rekur sprautuverkstæðið í Húna-
bæ. sþ