Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 3. nóvember 1992 Þannig leit Elliheimili Akureyrar út fyrir réttum 30 árum. í dag gerir starfsfólk og heim- ilisfólk á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri sér glaðan dag og er tilefnið 30 ára starfsafmæli heimilisins. Boðið verður til kaffidrykkju kl. 15 og verða konur úr kvenfélaginu Fram- tíðinni sérstakir gestir, en þær hafa frá upphafi lagt Hlíð lið með ýmsum hætti, nú síðast með tækjagjöfum til sjúkra- þjálfunar. Björn Þórleifsson, deildar- stjóri Öldrunarþjónustu Akur- eyrarbæjar, hefur tekið saman ágrip af sögu Hlíðar og er stuðst við hana í eftirfarandi samantekt. Fyrsti áfangi vígður í ágúst 1962 Akureyrarbær með stuðningi kvenfélagsins Framtíðarinnar stóð að byggingu Elliheimilis Akureyrar. Framtíðin gaf strax eina milljón til byggingarinnar og síðar ýmsan búnað. Bygginga- nefnd starfaði undir forsæti Magnúsar E. Guðjónssonar, bæjarstjóra. Húsið var byggt af byggingameisturum bæjarins, en teiknað af Jóni Geir Ágústssyni, núverandi byggingafulltrúa Akureyrarbæjar. Elliheimilið var vígt 29. ágúst 1962 og varð þar með gjöf bæjar- ins til sjálfs síns á 100 ára afmæl- inu. Formlega tók það síðan til starfa 3. nóvember það sama ár, | en þá flutti fyrsta vistfólkið inn, fimm konur og tveir karlar. Ætl- að var pláss fyrir 28 vistmenn á heimilinu, en fljótlega var það meira en fullsetið, því oftast voru vistmenn 34-36 fyrstu árin. Fyrsta forstöðukona heimilis- ins var Ásthildur Þórhallsdóttir, en Sigríður Jónsdóttir tók við starfinu árið 1964. Bæjarstjórn Akureyrar heimil- aði árið 1969 stjórn Elliheimilis- ins að hefja viðbyggingu og var hún tekin í notkun strax árið eftir. Þessi viðbygging rúmaði 30 vistmenn, en fljótt kom í ljós að vegna mikillar eftirspurnar þyrfti fljótlega frekara rými. í mars 1973 sótti stjórn Elliheimilisins um að hefja byggingu þriðja áfanga Hlíðar. Um sumarið það ár hófust framkvæmdir og var þeim lokið strax árið eftir. Sigríður Jónsdóttir lét af starfi forstöðukonu dvalarheimilisins árið 1977 og tók Jón Kristinsson, sem stjórnað hafði Skjaldarvík- urheimilinu frá 1966, við stjórn beggja heimilanna. Og áfram var byggt... Árið 1978 var hafin smíði við- byggingar við Hlíð, en þar átti að vera þvottahús á jarðhæð, ásamt forvinnslu fyrir mötuneyti. Á efri hæð var borðsalur stækkaður og komið fyrir borðstofu fyrir starfs- fólk og bakaríi. Einnig var hafinn undirbúningur að byggingu tveggja raðhúsa á lóð Hlíðar. Áttu að vera sex íbúðir í hvoru. Þar af voru fjórar hjónaíbúðir og átta einstaklingsíbúðir. Fram- kvæmdum við bæði stækkunina og raðhúsin lauk árið 1980 og var flutt í raðhúsin sama ár. Á þessum tíma var farið að huga að frekari viðbyggingum við Hlíð. Þá var rými fyrir 190 manns á Hlíð og í Skjaldarvík, en 240 manns á biðlista. Auk tilfinnan- legs skorts á vistrýmum vantaði rými fyrir heilsurækt, félagsstarf og samkomuhald. Margar hugmyndir voru rædd- ar og gekk erfiðlega að fá teikn- ingar Aðalsteins V. Júlíussonar að viðbyggingu samþykktar, þar sem gert var ráð fyrir að í henni væri meira sameiginlegt rými en reglur kváðu á um. En á endan- um fengust lán frá Húsnæðis- stofnun og Framkvæmdasjóði aldraðra út á bygginguna og síð- ari hluta árs 1983 var fyrsti áfang- inn boðinn út og var samið við Norðurverk. Haldið var áfram næsta ár og var þá ætlunin að steypa allt húsið upp og koma á það þaki. Vegna fjárskorts varð þó að skipta þeim áfanga og draga hluta verksins fram á árið 1985. Stórbætt aðstaða með tilkomu Vestur-HIíðar Á árinu 1986 lét Jón Kristinsson af störfum sem forstöðumaður dvalarheimilanna og var Cecil Haraldsson ráðinn í hans stað. Síðar það sama ár var nýbygg- ingin í Vestur-Hlíð loks fokheld. Við verkinu tók þá byggingarfyr- irtæki Aðalgeirs Finnssonar, sem lauk við allar innréttingar í hús- inu. Fyrstu íbúarnir fluttu svo í húsið í maí 1988 og var það smám saman tekið í notkun fram á byrjun næsta árs. í Vestur-Hlíð eru íbúðir fyrir 30 manns, ýmist hjóna eða einstaklingsíbúðir. Meðalaldur íbúanna er nú tæp 84 ár. í húsinu er einnig aðstaða fyr- ir dagvistun, setustofur, skrifstof- ur Öldrunardeildar, sjúkraþjálf- unaraðstaða og samkomusalur. í salnum er góð aðstaða fyrir fund- arhöld, skemmtanir og nám- skeið. Listaverk á norðurvegg er eftir Höllu Haraldsdóttur, en kvenfélagið Framtíðin gaf heim- ilinu það. Listskreytingarsjóður ríkisins greiddi þó hluta kostnað- ar við verkið. Sem forstöðumað- ur nýja hlutans, sem gengið hefur undir nafninu Þjónustumiðstöð- in, var ráðin Anna Guðrún Jóns- dóttir, hjúkrunarfræðingur. Cecil Haraldsson lét af störfum hjá Öldrunarþjónustu Akureyr- arbæjar árið 1988 og í byrjun árs 1989 tók Bjarni Kristjánsson við stöðu deildarstjóra Öldrunar- deildar og gegndi henni út það ár. Sá hluti nýbyggingarinnar í Hlíð sem síðastur komst í notkun var ætlaður fyrir sjúkraþjálfun og líkamsrækt ásamt búnings- aðstöðu. Heitum potti með vatns- og loftnuddi var komið þar fyrir á síðasta ári, en kaup á hon- um voru fjármögnuð af gjafa- sjóði Hlíðar. Stigi upp í pottinn var gefinn af kvenfélaginu Fram- tíðinni. Sjúkraþjálfari var ráðinn til starfa á þessu ári og hafist handa við að kaupa sjúkraþjálf- unartæki. Kaup á tækjunum eru aðallega fjármögnuð með and- virði íbúðar við Norðurgötu, sem Öldrunardeild fékk að gjöf, en kvenfélagið Framtíðin hefur einnig styrkt þau tækjakaup. Á teikningum er áætlað að sund- laug rísi við suðurgafl nýja hússins. Hjúkrunardeild Á árinu 1985 var hafist handa við uppbyggingu hjúkrunardeildar við dvalarheimilið Hlíð. Einnar hæðar íbúðarálmu, elsta hluta hússins, var breytt og hún endur- bætt til að þjóna nýju hlutverki. Þegar upp var staðið var komin þarna hjúkrunaraðstaða fyrir 19 manns og hefur deildin gengið undir nafninu A-gangur. Árið 1988 var suðurhluti B- gangs endurnýjaður og fengust þar hjúkrunarpláss fyrir 14 sjúkl- inga. Alls eru hjúkr,unarplássin 65 og eru 2 notuð fyrir skamm- tímavistanir. í slíkri vistun eiga sjúklingarnir að dvelja 3 vikur í senn, einstaka í 6 vikur ef brýn þörf krefur. Starfsmenn Heima- hjúkrunar ráðstafa þessum skammtímarýmum. Eitt herbergi á hjúkrunar- heimilinu er notað í bráðatilfell- um fyrir þá íbúa í þjónustumið- stöð sem veikjast og einnig fyrir deyjandi sjúklinga. Það herbergi er alltaf í notkun. Meðalaldur á hjúkrunarheimil- inu er rúmlega 84 ár og eru konur rösklega % hlutar íbúanna. Inni í húsnæði hjúkrunardeild- anna eru einnig 15 almenn dval- arheimilispláss og er þeim dreift um húsið. Fimm þeirra eru á efri hæð ofan við eldhúsálmu, en þar er um að frekar óhentugt hús- næði að ræða sem þarfnast end- urbóta. Eftir að starfseminni í Austur- Hlíð var breytt á þennan veg var nafni þess hluta stofnunarinnar breytt í Hjúkrunarheimilið Hlíð. Það þjónar eingöngu Akureyri. Á Hjúkrunarheimilinu starfa alls 82 í u.þ.b. 60 stöðugildum. Hjúkrunarforstjóri er Helga Tryggvadóttir. Læknisþjónustu á heimilinu er sinnt af þremur heilsugæslulæknum. í lokin skal getið formanna stjórna Hlíðar. Formaður fyrstu stjórnar Elli- heimilis Akureyrar var Magnús E. Guðjónsson. Bragi Sigurjóns- son tók við árið 1966 og gegndi formennsku til ársins 1974 þegar Hreinn Pálsson tók við. Árið 1978 tók Ingólfur Jónsson við formennsku í stjórn Dvalar- heimilanna og árið 1982 varð Svava Aradóttir formaður. Sú skipulagsbreyting varð árið 1986 að þá var kjörið Öldrunarráð sem hafa skyldi umsjón með öidrunarþjónustu og endurskipu- leggja hana. Formaður þess var kjörin Áslaug Einarsdóttir. Enn urðu skipulagsbreytingar á stjórnun öldrunarmála eftir sveit- arstjórnarkosningar 1990. Öldr- unarráð var lagt niður og Félags- málaráði falið að fara með öldr- unarmálin auk dagvistunar-, barnaverndar- og fjölskyldu- mála. Sigrún Sveinbjörnsdóttir var kjörin formaður Félagsmála- ráðs. óþh Nokkur atriði úr sögu öldrunarþjónustu á Akureyri 1943 Stefán Jónsson stofnar Skjaldavíkurheimilið. 1962 Elliheimili Akureyrar vígt 29. ágúst. Ásthildur Þórhallsdótt- ir ráðin forstöðukona. 1963 Sigríður Jónsdóttir tekur við forstöðu. 1965 Stefán Jónsson gefur Akureyrarbæ Skjaldarvík. Jón Þor- valdsson ráðinn forstöðumaður. 1966 Jón Kristinsson tekur við forstöðu í Skjaldarvík. 1969 Byggt við bæði Elliheimili Akureyrar og Skjaldarvík. 1973 Byrjað á 3. áfanga Hlíðar. Skemmtanir fyrir aldraða hefjast í Sjallanum. 1974 Heimilisþjónusta og heimahjúkrun sett á laggirnar. 1975 Bygging bústjórabústaðar hefst í Skjaldarvík. Opið hús fyrir aldraða hefst á Varðborg. 1976 Föndurkennsla hefst í Hlíð. Fyrsta dagsferðin fyrir aldraða. 1977 Heimilin sameinuð undir eina stjórn. Jón Kristinsson tekur við forstöðu beggja. 1979 Hafin viðbygging við Hlíð fyrir þvottahús og fl. Hafin bygg- ing raðhúsa á lóð Hlíðar (lokið 1980). 1980 Hafin bygging vélageymslu í Skjaldarvík (lokið 1983). 1983 Bygging Vestur-Hlíðar boðin út. 1985 Byrjað að breyta Austur-Hlíð í hjúkrunardeild. Þjónustu- hópur aldraðra tekur til starfa. 1986 Vestur-Hlíð fokheld. Dagvistun aldraðra hefst. Öldrunarráð skipað. Jón Kristinsson lætur af störfum eftir 20 ár. Cecil Haralds- son tekur við forstöðu. 1987 Skipuð samstarfsnefnd um byggingar íbúða fyrir aldraða. 1988 Fyrstu íbúar flytja í Vestur-Hlíð. Stefnumótun um málefni aldraðra samþykkt. Cecil Haraldsson lætur af störfum. 1989 Vestur-Hlíð smám saman tekin í notkun. Hverfaskipulag heimilisþjónustu. Starfsár Bjarna Kristjánssonar. 1990 Björn Þórleifsson ráðinn deildarstjóri öldrunarþjónustu. 1991 Fyrsta sambýli aldraðra tekur til starfa í Bakkahlíð. Félags- miðstöð aldraðra í Víðilundi tekur til starfa. Húsnæði að Bjargi keypt fyrir væntanlega þjónustumiðstöð í Glerárhverfi. 1992 Sjúkraþjálfun hefst í Hlíð. Annað hús keypt fyrir sambýli. Bygging íbúða fyrir aldraða hefst við Lindarsíðu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.