Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 3. nóvember 1992 - DAGUR - 7
Körfuknattleikur, 1. deild:
Þórsarar stálu sigrinum
- unnu Reyni í jöfnum leik
Á föstudagskvöldið mættust í
1. deild Islandsmótsins í körfu-
knattlcik lið Þórs og Reynis frá
Sandgerði. Fyrirfram var búist
við jafnri og spennandi viður-
eign, þar sem bæði lið voru
með fullt hús stiga fyrir viður-
eignina. Það varð líka raunin.
Liðin voru hnífjöfn allan tím-
ann en með yfirveguðum leik
náðu Þórsarar að tryggja sér
sigurinn á lokasekúndunum,
eftir að hafa verið undir megn-
ið af hálfleiknum. Þegar leik-
tíminn rann út var forskot Þórs
4 stig, 100:96.
Leikurinn fór frekar rólega af
stað og svo virtist sem leikmenn
væru að þreifa fyrir sér. Þórsarar
virkuðu frekar daufir og hefðu
með eðlilegum leik átt að ná
góðu forskoti strax á fyrstu mín-
Framhaldsskólamót
í knattspymu
Riðlakeppni í framhaldsskóla-
móti KSÍ er nú lokið.
Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri tryggði sér rétt til þátttöku í
undanúrslitum með sigri í sínum
riðli í karlaflokki, en í þeim riðli
voru einnig MA og Háskólinn á
Akureyri. I undanúrslitum kepp-
ir VMA við lið Tækniskóla
íslands. Ekkert lið af Norður-
landi komst áfram í kvenna-
flokki.
útunum. Lið Reynis byggist mest
upp í kringum 2 menn, þá
Anthony Stisse og Toomer Magi
sem er hávaxinn blökkumaður.
Leikurinn var á köflum nokkuð
grófur og var mikið um villur þó
dómararnir væru stundum helst
til smámunasamir. Þórsarar
leiddu megnið af fyrri hálfleik en
með góðum kafla skömmu fyrir
leikhlé tryggðu Reynismenn sér 3
stiga forskot í hálfleik, 53:50.
Seinni hálfleikur var áfram
jafn og spennandi. Reynismenn
voru oftast skrefi á undan og
munaði þar mestu um stórleik
Toomer Magi sem skoraði 25 stig
í seinni hálfleik, eða ríflega
helminginn af stigum Reynis.
Var með ólíkindum hversu hitt-
inn hann var og virtist hreinlega
allt rata ofan í körfuna hjá
honum. Toomer er skemmtilegur
leikmaður, en skortir líkamlega
burði til að geta talist í fremstu
röð, enda ungur að árum.
Lokasekúndurnar voru æsi-
spennandi. Reynismenn náðu 2
stiga forskoti þegar 1 mínúta var
til leiksloka en Þórsarar náðu að
jafna og komast yfir. Síðan var
dæmdur ruðningur á Reyni og
Þórsarar brunuðu í sókn þegar
aðeins 7 sekúndur voru eftir.
Brotið var á Konráði og hann
skoraði örugglega úr báðum víta-
skotunum og sigur Þórs var í
höfn. Konráð Óskarsson átti
stórleik fyrir Þór og skoraði 41
stig. Einnig átti Björn Sveinsson
góða spretti. Sigur Þórs var
sanngiarn. Þeir héldu ró sinni
þegar spennan var í hámarki og
fyrir það á hið unga lið heiður
skilinn.
Gangur leiksins: 4:4. 15:10, 18:15, 20:23,
37:33, 50:53, 55:56, 61:61, 70:75, 84:85,
90:90, 94:96 og 100:96.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 41, Björn
Sveinsson 21, Þorvaldur Örn Arnarson
12, Einar Valbergsson 8, Davíð Hreið-
arsson 8, Birgir Ö. Birgisson 7, Arn-
steinn Jóliannesson 3 og Einar H.
Davíðsson 1.
Stig Keynis: Toomer Magi 38, Anthony
Stisse 12, Hólmgeir Hólmgeirsson 12,
Sigurþór Þórarinsson 9, Gestur Gylfason
8, Jón Guðbrandsson 5, Sveinn Gíslason
4, Daði Bergþórsson 2 og Guðmundur
Skúlason 2.
Arnsteinn Jóhannesson er einn af ungu strákunum í liði Þórs. Þó hann sé
aðeins 17 ára er hann fastamaður í liðinu. Tvímælalaust mikið efni þar á
ferð. Mynd: Robyn
Lokahóf hjá yngri flokkum KA
margt til gamans gert
Á dögunum hélt KA sitt árlega
lokahóf í knattspyrnu fyrir
yngri flokka félagsins.
Körfuknattleikur, 1. deild kvenna:
Tap og sigur hjá
liði Tindastóls
Hið unga körfuknattleikslið
Tindastóls í kvennaflokki hélt
suður yfir heiðar um helgina
þar sem leikið var gegn ÍS og
Islandsmeisturum Keflavíkur.
Liðið náði því sem stefnt var
að og vann leikinn gegn ÍS.
Seinni leikurinn var gegn
Keflavík sem er með eitt sterk-
asta liðið í deildinni. Aldrei
var spurning um úrslit í þeim
leik en Islandsmeistararnir
unnu stórt, 100:63.
Stelpurnar í Tindastól sýndu
mjög góðan leik á móti ÍS.
Leikurinn var í járnum lengi
framanaf og í hálfleik var staðan
23:26 fyrir Tinadstól. í síðari
hálfleik sýndu norðanstelpur síð-
an klærnar og sigu framúr. Loka-
tölur urðu 58:43. Stigahæstar í
liði Tindastóls voru Kristín
Magnúsdóttir með 16 stig og
Kristjana Jónsdóttir með 15.
Auk þeirra átti Inga D. Magnús-
dóttir góðan leik en sigurinn
byggðist þó fyrst og fremst á liðs-
heildinni.
Á laugardag var síðan leikið
gegn ÍBK. íslandsmeistararnir
höfðu töglin og halgdirnar í þeim
leik og var sigur þeirra aldrei í
hættu. Munurinn í hálfleik var 21
stig, 30:51. Forskot heimastelpna
jókst síðan smátt og smátt og í
leikslok var staðan 100:63. Stiga-
hæstar í liði Tindastóls voru
Birna Valgarðsdóttir með 21 stig
og Kristín Magnúsdóttir með 16.
Kári Maríusson þjálfari Tinda-
stóls sagðist vera nokkuð ánægð-
ur með árangurinn hingað til, þó
alltaf væri hægt að gera betur.
„Tveir sigrar úr 5 leikjum er ekki
svo slæmt og fyllilega í samræmi
við það sem hægt var að búast
við. Það er mjög erfitt að spila
svona 2 leiki í röð, ekki síst af því
að stemmningin dettur niður þeg-
ar bíða þarf fyrir sunnan. Kefla-
víkurliðið er mjög sterkt. Þær eru
hávaxnar og með mikla leik-
reynslu. Þær pressuðu stíft og
leikurinn var því opinn og
skemmtilegur, sagði Kári. Næsti
leikur liðsins er að hálfum mán-
uði liðnum á heimavelli gegn
Njarðvík.
Hófið var að sjálfsögðu haldið
í KA-húsinu að viðstöddu fjöl-
menni. Spilað var bingó og fleira
sér til gamans gert. Samkvæmt
venju voru einnig veittar viður-
kenningar fyrir mestu framfarir í
hverjum flokki, leikmenn flokk-
anna heiðraðir og markakóngur
KA krýndur. Að þessu sinni var
markakóngur KÁ Rósa Sig-
björnsdóttir sem skoraði 38 mörk
á keppnistímabilinu. Með réttu
er hún því raunar markadrottning
KA. En þessi hlutu viðurkenn-
ingar á lokahófinu:
7. fl. karla
Leikmaður: Jóhann Helgason.
Mestu framf.: Gunnar Björnsson.
Valið á leikmanni 3. flokks kom
fáum á óvart. Landsliðsmaðurinn
Þórhallur Hinriksson var að keppa
við Dani um það leyti sem verðlaun-
in voru afhent.
6. fl. karla
Leikmaður: Elmar Sigþórsson.
Mestu framf.: Arnar Sæþórsson.
5 fl. karla
Leikmaður: Jóhann Hermannsson.
Mestu framf.: Gylfi H. Gylfason.
4. fl. kvenna
Leikmaður: Rannveig Jóhannsd.
Mestu framf.: Þóra Rögnvaldsd.
4. fl. karla
Leikmaður: Þóroddur Ingvarsson.
Mestu framf.: Jón F. Kolbeinsson.
3. fl. kvenna
Leikmaður: Helga Hermannsd.
Mestu framf.: Halla Hafbergsd.
3. fl. karla
Leikmaður: Þórhallur Hinriksson.
Mestu framf.: Friðrik Flosason.
2. fl. kvenna
Leikmaður: Erna L. Rögnvaldsd.
Mestu framf.: Ragnheiður Pálsd.
Markakóngur KA
Rósa Sigbjörnsdóttir
Markadrottning KA Rósa Sig-
björnsdóttir. Hver vildi ekki skora
38 mörk á einu keppnistímabili?
Mynd: HA
Eftir átök sumarsins er nauðsynlegt að koma saman og gleðjast yfir því sem
áunnist hefur.