Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 3. nóvember 1992
Enska knattspyrnan
Þorleifur Ananíasson
Óbreytt staða á toppnum í Englandi
- óvænt tap Man. Utd. gegn Wimbledon - Leeds Utd. slapp með skrekkinn
Ekki varð breyting á toppi
Úrvaisdeildarinnar eftir leiki
laugardagsins þar sem bæði
efstu liðin gerðu jafntefli í
lcikjum sínum. Annars ein-
kenndust leikir dagsins af ein-
hverjum doða flestra liða og
fátt um fína drætti þó óvænt
úrslit litu dagsins Ijós bæði í
Úrvalsdeildinni sem 1. deild-
inni. Ef til vill hafa leikirnir í
Deildabikarnum fyrr í vikunni
setið í mönnum, en hvað um
það við skulum renna yfir leik-
ina.
■ Efsta liðið í Úrvalsdeildinni,
Blackburn, fékk það erfiða verk-
efni að sækja heim hið sterka lið
Sheffield Wed. Eins og vænta
mátti var þar um harða baráttu
að ræða, en þegar upp var staðið
hafði hvorugu liðinu tekist að
koma boltanum í net andstæðing-
anna. Markalaust jafntefli á úti-
velli gegn Sheff. Wed. verða þó
að teljast hagstæð úrslit fyrir hið
Úrslit
Deildabikarinn
2. umferð, síðari leikur.
Scunlhorpe-Leeds Utd. 2:2
Deildabikarinn
3. umferð.
Aston Villa-Manchester Uld. 1:0
Blackbum-Norwich 2:0
Bury-Q.P.R 0:2
Chelsea-Newcastle 2:1
Crewe-Noltingham For3 0:1
Derby-Arsenal 1:1
Everton-Wimbledon 0:0
Manchester City-Tottenham 0:1
Notts County-Cambridge 2:3
Piymouth-Scarborough 3:3
Portsmouth-Ipswich 0:1
Sheffíeld Utd.-Liverpool 0:0
Sheffíeld Wed.-Leicester 7:1
Southampton-Crystal Palace 0:2
Swindon-Oldham 0:1
Watford-Leeds Utd. frcstað
Að lcikjunum loknum var
dregið til 4. umferðar og þá
mætast þessi lið:
Nottingham For.-Tottenham
Sheffield Wed.-Q.P.R.
Aston Villa-Ipswich
Cambridge-Oldham
Derby/Aisenal-Plymouth/Scarborough
Blackburn-Watford/Leeds Utd.
Everton/Wimbledon-Chelsea
ShefBeld UtdÆiverpool-Crystal Palace
Úrvalsdeildin
Chelsea-Sheffield Utd. 1:2
Everton-Manchester City 1:3
Leeds Utd.-Coventry 2:2
Manchester Utd.-Wimbledon 0:1
Norwich-Middlesbrough 1:1
Nottingham For.-Ipswich 0:1
Sheffíeld Wed.-Blackburn 0:0
Southampton-Oldham 1:0
Tottenham-Liverpool 2:0
Aston Villa-Q.P.R. 2:0
Crystal Palace-Arsenal mánudag
1. deild
Tranmere-Peterborough 1:1
Brentford-Bristol City 5:1
Bristol Rovers-Millwall 1:0
Cambridge-West Ham 2:1
Grimsby-Portsmouth 3:0
Leicester-Newcastle 2:1
Luton-Southend 2:2
Oxford-Watford 1:1
Sunderland-Notts County 2:2
Swindon-Bamsley 1:0
Wolves-Derby 0:2
Charlton-Birmingham 0:0
skemmtilega lið Blackburn.
■ Á sama tíma fékk Norwich,
sem er jafnt Blackburn að
stigum, nýliða Middlesbrough í
heimsókn. Með sigri í leiknum
hefði Norwich náð toppsætinu og
við því bjuggust nú flestir. Þeir
máttu hins vegar þakka fyrir jafn-
teflið að lokum eftir að Middles-
brough hafði náð forystu í leikn-
um með marki Paul Wilkinson.
Það kom síðan f hlut eins af
minni spámönnum Norwich að
jafna leikinn fyrir lið sitt er
skammt var til leiksloka, þá náði
Daryl Sutch að jafna fyrir Norwich
með sínu fyrsta marki fyrir liðið.
■ Óvæntustu úrslitin á laugardag
í Úrvalsdeildinni urðu án efa
á Old Trafford heimavelli
Manchester Utd. Par kom lið
Wimbledon í heimsókn, en liðið
hefur ekki verið að gera stóra
hluti að undanförnu. Leikmenn
Wimbledon eru þó þekktir fyrir
að bera ekki virðingu fyrir mót-
herjum sínum og því minni sem
þeir eru frægari og á því fengu
leikmenn Man. Utd. að kenna.
Man. Utd. núverandi handhafi
Deildabikarsins var slegið úr
þeirri keppni í vikunni af Aston
Villa og leikmenn liðsins höfðu
ekki náð sér eftir það áfall er þeir
mættu hinum harðskeyttu og
miskunnarlausu spilurum Wimble-
don. Eina mark leiksins skoraði
gamla kempan Lawrie Sanchez
fyrir Wimbledon í síðari hálfleik
og áhorfendur á Old Trafford
trúðu vart sínum eigin augum.
■ Það stefndi einnig í óvænt úrslit
á Elland Road heimavelli Eng-
landsmeistara Leeds Utd., venju-
legum leiktíma lokið og gestirnir
Coventry höfðu yfir 2:1. Fyrsta
tap meistaranna á heimavelli í
marga mánuði virtist ekki
umflúið, en eins og oft áður tókst
liðinu að bjarga stigi er miðvörð-
urinn Chris Fairclough skoraði
fyrir liðið og jafnaði 2:2. Coven-
try hafði óvænt yfir í hálfleik 1:0
með sjálfsmarki Gary McAllister
sem skallaði boltann í eigið
mark er hann ætlaði að skalla frá
eftir hornspyrnu. Lee Chapman
náði að jafna fyrir Leeds Útd. í
síðari hálfleik og þá áttu flestir
von á að liðið léti kné fylgja
kviði. Pað tókst þó ekki, en þess
í stað náði Peter Ndlovu á ný for-
ystu fyrir Coventry er hann slapp
í gegnum vörn Leeds Utd. Marg-
ir töldu hann kolrangstæðan og
hafði dómarinn í nógu að snúast
við að róa leikmenn Leeds Utd.
niður. Leeds Utd. sem leikur síð-
ari leik sinn í Evrópukeppninni
við Rangers á miðvikudaginn
varð fyrir því áfalli að missa
David Batty meiddan út af og
gæti það reynst liðinu dýrt gegn
Rangers.
■ Eins og sjónvarpsáhorfendur
sáu var leikur Chelsea gegn
Sheffield Utd. afspyrnuslakur og
illa leikinn. Mörkin þrjú voru
einnig í sama stíl og komu öll eft-
ir mistök mótherjanna. Adrian
Littlejohn sem var áberandi besti
maður vallarins náði forystu fyrir
Sheff. Utd. á 41. mín. eftir
mistök fyrirliða Chelsea Andy
Townsend, en Townsend bætti
síðan fyrir mistök sín er hann
jafnaði fyrir Chelsea á sömu mín.
með skoti í gegnum klofið á
Simon Trecey í marki Sheff. Utd.
Sigurmark Sheff. Utd. skoraði
síðan Brian Deane eftir sendingu
Littlejohn sem hafði náð boltan-
um af Kevin Hitchcock í marki
Chelsea.
■ Þorvaldur Örlygsson skoraði
sigurmark Nottingham For. gegn
Crewe í Deildabikarnum í vik-
unni, en Forest er nánast áskrif-
andi að úrslitaleiknum í þeirri
keppni. Liðinu gengur þó ekki
eins vel í Úrvalsdeildinni og
vermir þar botnsætið. Enn eitt
tapið bættist við á laugardag er
forest fékk nýliða Ipswich í heim-
sókn og tapaði 0:1. Það var Jason
Dozzell sem skoraði sigurmark
Ipswich snemma í fyrri hálfleikn-
um og þrátt fyrir góðan vilja
tókst Þorvaldi og félögum ekki
að breyta því.
■ Ekkert gengur hjá Everton
um þessar mundir og ekki kæmi á
óvart þó farið væri að hitna undir
framkvæmdastjóranum Howard
Kendall. Á laugardag fékk hann í
heimsókn Manchester City, liðið
sem hann yfirgaf er hann gekk að
nýju til liðs við Everton. Man-
chester liðinu hefur gengið illa að
undanförnu, en það kom þó ekki
í veg fyrir auðveldan 3:1 sigur á
Everton. Mike Sheron skoraði
tvívegis fyrir Man. City og þriðja
mark liðsins kom frá David
White. Eina svar Everton við
þessu kom undir lokin og það frá
leikmanni City, David Brightwell
sem varð fyrir því að skora
sjálfsmark.
■ Tottenham náði að hrista af
sér slyðruorðið er liðið lagði
Liverpool að velli 2:0 og nældi
þar með í þrjú dýrmæt stig. Bæði
þessi fornfrægu félög mega raun-
ar muna sinn fífil fegurri, en hvað
um það tvö mörk Tottenham í
Gamla hörkutólið Kevin Moran er sem
kann greinilega tökin á mótherjunum.
síðari hálfleiknum gerðu út um
leikinn. Það voru þeir Nayim og
fyrirliðinn Neil Ruddocic sem
skoruðu mörkin.
■ Southampton náði sér einnig í
þrjú dýrmæt fallbaráttustig er lið-
ið sigraði Oldham á heimavelli
sínum með eina marki leiksins.
Það var Richard Hall sem gerði
út um leikinn fyrir Southampton.
1. deild
■ Newcastle tapaði sínum öðr-
um leik í röð er liðið heimsótti
Leicester. Þeir David Lowe og
Bobby Davison skoruðu fyrir
Leicester í 2:1 sigri liðsins.
■ Paul Kitson og Craig Short
tryggðu Derby 2:0 sigur á útivelli
gegn Wolves.
■ Trevor Morley skoraði fyrir
West Ham á útivelli gegn
Cambridge en það dugði þó
skammt gegn tveim mörkum
heimaliðsins. Þ.L.A.
klettur í vörninni hjá Blackburn og
Meistarabragur á Aston Villa
A sunnudag tóku leikmenn
Aston Villa á móti Q.P.R. í
ágætum og fjörugum leik. Og
eftir 2:0 sigur náði Aston Villa
þriðja sætinu í úrvalsdeildinni,
en mín trú er sú að þar fari
verðandi Englandsmeistarar.
Það var nafni framkvæmda-
stjórans, Dalian Atkinson sem
var í aðalhlutverki hjá liðinu er
bæði mörkin voru skoruð.
Það voru aðeins 2 mín. eftir af
vel leiknum og jöfnum fyrri hálf-
leik er Atkinson vann skalla-
einvígi gegn Darren Peacock
miðverði Q.P.R. og skallaði bolt-
ann fyrir fætur Dean Saunders
sem afgreiddi hann í netið.
Saunders hefur leikið frábær-
lega fyrir Villa eftir að hann var
keyptur frá Liverpool og skorar
nánast í hverjum leik og enn hefur
liðið ekki tapað leik sem Saunders
hefur leikið með í.
Q.P.R. liðið var líflegt og lék
vel, það var því naumt forskot
Villa og greinilegt að liðið þurfti
að bæta við marki til þess að
afgreiða leikinn. Og það kom í
hlut Atkinson að gera út um leik-
Dean Saunders hefur verið óstöðv-
andi eftir komuna til Aston Vilia.
inn fyrir Villa er hann skaut bolt-
anum á milli fóta Tony Roberts
markvarðar Q.P.R. eftir varn-
armistök Peacock 11. mín. fyrir
leikslok.
Ron Atkinson framkvæmda-
stjóri Aston Villa er greinilega að
gera mjög góða hluti með liðið
sem hefur hægt og bítandi krafl-
að sig upp stigatöfluna. Þá hefur
honum örugglega ekki leiðst að
slá fyrrum vinnuveitendur sína
hjá Manchester Utd. úr Deilda-
bikarnum fyrr í vikunni, en það
er einmitt mark frá Dean Saund-
ers sem sá um Utd. liðið.
Þótt enn sé langt til vors og
mikið óleikið í Úrvalsdeildinni
þá tel ég lið Aston Villa líklegast
til þess að hampa fyrstu sigur-
launum Úrvalsdeildarinnar. Sem
stendur leikur liðið besta fótbolt-
ann í Englandi og leikmannahóp-
urinn er mjög sterkur. Þ.L.A.
Staðan
Úrvalsdeildin
Blackburn 14 7-6-1 25: 8 27
Norwich 14 8-3-3 24:25 27
Aston Villa 14 6-6-2 23:15 24
QPR 14 6-5-3 20:15 23
Arsenal 13 7-2-4 17:12 23
Coventry 14 6-5-3 18:15 23
Man. Utd. 14 5-6-314:11 21
Ipswich 14 4-8-2 20:18 20
Chelsea 14 5-4-5 19:17 19
Man. City 14 5-4-5 17:14 19
Leeds 14 4-6-4 25:23 18
Middlesbrough 14 4-6-4 22:20 18
Shcff. Wed. 14 4-5-5 15:18 17
Liverpool 14 4-4-6 20:23 16
Sheff. Utd. 14 4-4-6 14:20 16
Oldham 14 3-6-5 21:23 15
Tottenham 14 3-6-5 14:22 15
Wimbledon 14 3-5-6 18:21 14
Southampton 14 3-5-612:17 14
Everton 14 34-7 12:19 13
Crystal Palace 13 1-8-4 17:1611
Nottingham Forest 14 2-4-8 11:23 10
1. deild
Newcastle 13 11-0-2 26:10 33
Swindon 14 8-3-3 28:19 27
Leicester 14 7-3-4 18:16 24
West Ham 13 7-2-4 24:10 23
Charlton 14 6-5-318:1123
Tranmere 13 6-4-3 23:13 22
Wolves 14 5-7-2 21:13 22
Miilwall 13 5-5-319:1120
Birmingham 13 54-411:1719
Watford 14 54-5 24:2519
Peterborough 13 5-3-517:1718
Portsmouth 13 5-3-516:1818
Grimsby 13 5-3-517:1518
Derby 14 5-3-5 22:18 18
Bristol City 13 5-2-6 19:30 17
Oxford Unitcd 13 3-7-313:12 16
Cambridge United 14 4-4-6 13:23 16
Notts County 14 3-5-6 18:29 14
Brentford 13 34-618:17 13
Barnsley 13 3-3-713:1412
Sunderland 13 3-3-7 15:26 12
Luton 13 2-5-6 19:21 11
Southend 13 2-5-612:1711
Bristol Rovers 14 2-3-9 19:34 9