Dagur - 03.11.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 3. nóvember 1992
Íþróttir
Körfubolti
Úrvalsdeild
Úrslit föstudag:
Haukar-Grindavík 78:77
UBK-KR 70:72
Njarðvík-Snæfell 81:79
Úrslit sunnudag:
Skallagrímur-Haukar 81:89
Grindavík-UBK 90:73
Valur-Njarðvík 92:88
KR-Keflavík 85:94
Snæfell-Tindastóll 79:60
Staðan: A-riðill: ÍBK 6 6 0 628:514 12
Haukar 6 5 1 546:518 10
Tindastóll 6 3 3 540:602 6
Njarðvík 6 2 4 568:581 4
UBK 6 0 6 489:564 0
B-riðiU
Valur 6 5 1 520:488 10
Skallagrímur 633519:508 6
Snæfell 6 2 4 517:508 4
Grindavík 6 2 4 501:489 4
KR 624 470:526 4
Bikarkeppnin
í körfubolta
Dregið hefur verið í forkeppni bikar-
keppni Körfuknattleikssambands
íslands. Úrvalsdeildarliðin bætast síðan
í hóp sigurvegaranna þegar næst verður
dregið. En þessi lið leika saman:
Njarðvík b-ÍS 4.11. kl. 20.00
Höttur-ÍR 5.11. kl. 20.00
ÍA-Þrymur 6.11. kl. 20.30
Þór-Bolungarvík 6.11. kl. 20.00
Grindavík b-UFA 7.11. kl. 16.00
Haukar b sitja hjá
Blak
Úrslit helgarinnar:
1. deild karla
KA-Stjarna 2:3
Þróttur R-HK 2:3
Þróttur Nes-ÍS 0:3
Þróttur Nes-ÍS 1:3
1. deild kvenna:
Víkingur-HK 3:1
Þróttur Nes-ÍS 1:3
Þróttur Nes-ÍS 1:3
Þýska
knattspyman
Úrslit:
Schalke-Uerdingen
Leverkusen-Dresden
Bremen-Wattenscheid_
Stuttgart-Bayern Miinchen
Saarbriicken-Dortmund
Mönchengladbach-HSV
Bochum-Kaiserslauten
Nurnberg-Köln
Karlsruhe-Frankfurt
Staðan:
Bayern Múnchen
Frankfurt
Leverkusen
Bremen
Karlsruhe
Dortmund
Stuttgart
Núrnberg
Schalke
Kaiserslautern
Saarbrúcken
Uerdingen
Dresden
Mönchengladbach
Wattenscheid
HSV
Köln
Bochum
1:1
0:0
3:0
2:3
3:1
0:0
1:3
2:1
4:1
12 7-4-1 25:13 18
12 5-6-1 22:15 16
12 5-6-1 26:10 16
12 6-4-2 20:14 16
12 7-2-3 28:20 16
12 7-1-4 22:16 15
12 5-3-4 20:20 13
12 5-3-4 11:12 13
12 4-4-4 16:18 12
12 5-1-6 16:15 11
12 3-5-4 16:20 11
12 3-4-5 15:2110
12 3-4-5 13:19 10
12 2-5-5 16:23 9
12 3-3-6 20:28 9
12 1-6-5 11:18 7
12 3-1-8 15:23 7
12 1-4-713:19 6
Stuttgart að missa af lestiimi?
Nú um helgina fór 12. umferð
þýsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu fram. Eyjólfur Sverrisson
og félagar í Stuttgart urðu að
sætta sig við tap gegn Bayern
Miinchen á heimavelli, 2:3.
Leikurinn var stórskemmtilegur
og liðin fengu fjölmörg mark-
tækifæri sem þeim gekk reyndar
misvel að nýta. Leikmenn Stutt-
gart voru miklu sterkari í fyrri
hálfleiknum og þeir voru
óheppnir að vera ekki tveimur til
þremur mörkum yfir í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn byrjaði eins
og sá fyrri með þungri sókn
Stuttgart. Á 53. mín. fiskaði
markakóngur síðasta keppnis-
tímabils, Fritz Walter, umdeilda
vítaspyrnu sem hann skoraði
sjálfur úr af öryggi. Við þetta
mark var eins og leikmenn Bay-
ern hefðu fengið vítamínsprautu
í rassinn og allur leikur liðsins
gjörbreyttist og á meðan leik-
menn Stuttgart voru enn að fagna
marki Walters, jafnaði Bayern.
Þar var að verki Bruno Labbadia
sem skoraði eftir góðan undir-
búning ungs leikmanns, Harald
Cerny að nafni, frá Austurríki.
Cerny þessi, sem enn er á áhuga-
mannasamningi hjá Bayern, var
besti maður vallarins á laugar-
daginn og á 61. mín. bætti hann
öðru marki við fyrir Bayern eftir
glæsilegan einleik upp vallar-
helming Stuttgart. Á 69. mín.
skoraði Ziege þriðja mark Bay-
ern eftir að hafa fengið sendingu
í gegnum vörn Stuttgart frá
Cerny. Undir lok leiksins náði
Golke síðan að minnka muninn
fyrir Stuttgart.
Leikurinn var eins og áður
sagði mjög skemmtilegur og vel
leikinn, sérstaklega spiluðu leik-
menn Stuttgart vel framan af
leiknum, en þeim tókst ekki að
nýta marktækifærin sín og því fór
sem fór. Eyjólfur átti ágætan leik
og fékk þokkalega dóma í þýsk-
um fjölmiðlum.
■ Nýliðar Saarbrúcken hafa
komið á óvart í vetur og á laugar-
daginn lagði liðið Borussia Dort-
mund á heimavelli, 3:1. Leikur-
inn þótti mjög vel leikinn. Kristl
og Búrger skoruðu tvö fyrstu
mörk leiksins fyrir heimamenn
en markvarðahrellirinn Chapui-
sat minnkaði muninn fyrir gest-
ina frá Dortmund, sem nú í vik-
unni framlengdu samning Ottmar
Hitzfeld þjálfara liðsins, sem orð-
aður hafði verið við Stuttgart sem
hugsanlegur arftaki Christoph
Daum, til 1996. Þremur mínútum
eftir venjulegan leiktíma innsigl-
aði síðan Krátzer sigur Saar-
brúcken með marki af stuttu færi.
■ Leikur Núrnberg og Kölnar
var um margt sérkennilegur og
skemmtilegur. Markmenn og fyr-
irliðar liðanna þeir Bodo Illgner
hjá Köln, sen hefur verið aðal-
landsliðsmarkvörður Þjóðverja
undanfarin ár, og Andreas
Köpke hjá Núrnberg, sem hefur
verið markvörður númer tvö í
Þýskalandi, voru óumdeilanlega
menn leiksins, þó sérstaklega
Köpke sem virðist vera á góðri
leið með að ná sæti Illgners í
landsliðinu. Eftir aðeins fimm
mínútna leik var einum leik-
manna Núrnberg vikið af leik-
velli eftir ljótt brot. Varamaður-
inn Trulsen kom Köln yfir á 33.
mín. Á 41. mín fékk Núrnberg
vítaspyrnu, sem Dorfner tók, en
Illgfner gerði sér lítið fyrir og
varði spyrnuna. Aðeins fjórum
mínútum síðar fengu leikmenn
Núrnberg aðra vítaspyrnu og þá
fannst Andreas Köpke tími til
kominn að taka til sinna ráða.
Hann tók spyrnuna sjálfur og
skoraði af öryggi framhjá félaga
sínum og aðalkeppinaut, Bodo
Illgner. Á 74. mín. tókst síðan
tíu leikmönnum Núrnberg að
tryggja sér sigurinn með marki
Olivares.
■ Borussia Mönchengladbach
og Hamburger gerðu markalaust
jafntefli í botnbaráttuslag.
■ Kaiserslautern vann sinn
fyrsta sigur á útivelli þegar liðið
vann neðsta lið deildarinnar,
Bochum. Wegmann kom Boch-
um yfir í fyrri hálfleik en Lieber-
knecht, Daninn Golbaek og Wite-
czek svöruðu fyrir Lautern í þeim
síðari.
■ Schalke hafði fyrir þessa um-
ferð ekki unnið neinn leik á
heimavelli í vetur og það breytt-
ist ekkert þegar Bayer Uerdingen
kom í heimsókn. Leiknum lauk
með jafntefli, 1:1. Búskens skor-
aði fyrir heimamenn en Kranz
fyrir gestina.
É Werder Bremen vann Watten-
scheid á heimavelli, 3:0. Nýsjá-
lendingurinn Rufer skoraði tvö
mörk og Norðmaðurinn Bratseth
það þriðja.
■ Leverkusen og Dresden gerðu
markalaust jafntefli í Leverkus-
en.
■ Á sunnudagskvöldið fór síðan
síðasti leikur tólftu umferðar
fram í Karlsruhe. Þar áttust við
Karlsruhe, sem komið hefur allra
liða mest á óvart í vetur, og
Frankfurt, sem var eina liðið sem
hafði ekki tapað leik í deildar-
keppninni í vetur. Karlsruhe
gerði sér lítið fyrir og vann stór-
sigur, 4:1. Yeboah kom Frank-
furt yfir á 10. mín. en Rússinn
Kirjakov jafnaði fyrir Karlsruhe
Körfubolti, úrvalsdeild:
Snæfellingar sigruðu vængbrotið lið Tindastóls
- þrír af fastamönnum liðsins ekki með
Á sunnudagskvöldið var leikin
heil umferð í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Lið Tindastóls
héit til Stykkishólms og keppti
við heimamenn í liði Snæfells.
Eftir jafnan fyrri hálfleik sigu
heimamenn framúr í þeim
seinni og sigruðu örugglega
með 79 stigum gegn 60.
Tindastóll gat ekki mætt til
leiks með sitt sterkasta lið þar
sem báðir leikstjórnendur liðsins,
þeir Páll Kolbeinsson og Björg-
vin Rúnarsson, voru meiddir. Þá
var Haraldur Leifsson veikur og
því voru 3 af fastamönnum liðs-
ins ekki með. Munar um minna í
5 manna liði. Það þurfti því að
láta suma leika aðrar stöður en
þeir eru vanir og allt kom þetta
verulega niður á leik liðsins.
„Síðan hittum við bara ekki
neitt," sagði Valur Ingimundar-
son þjálfari Tindastóls. „Liðið fer
að spila allt öðruvísi við þessar
kringumstæður. Menn missa
sjálfstraustið og gera mikið af
mistökum.
Tindastóll var yfir í hálfleik,
35:36, en í þeim síðari gekk ekk-
ert upp og hittnin var mjög léleg.
Að skora 24 stig í síðari hálfleik
segir sína sögu um gang leiksins.
Að sögn Vals þurftu heimamenn
lítið að hafa fyrir sigrinum enda
náði Iið hans sér aldrei á strik.
Bestur í liðið Tindastóls var
Chris Moore, en hann skoraði 27
stig í leiknum, þar af 19 í fyrri
hálfleik. Er það mál manna að
Moore sé einn besti erlendi leik-
maðurinn hér á landi um þessar
mundir. Næsti leikur liðsins er í
kvöld er Valsmenn koma í heim-
Tindastóll á heimaleik í kvðld og þá getur liðið krækt í 2 stig. Haraldur Leifs-
son verður þá vonandi orðinn frískur.
sókn. Valsmenn eru efstir í B- leik til þessa. Það verður því hart
riðli og hafa aðeins tapað einum barist á Króknum í kvöld.
Toppiið Bayern Munchen iagði Eyj
kljást við leikmann Baycrn.
á 29. mín. Krieg kom síðan Karls-
ruhe yfir á 61. mín. og síðan
skoraði Manfred Bender, sem
kom til Karlsruhe frá Bayern
Múnchen fyrir þetta keppnistíma-
bil, tvö mörk. Fyrst skoraði hann
stórglæsilegt mark úr aukaspyrnu
á 68. mín. og síðan úr víti á síð-
ustu mínútu leiksins. Karlsruhe
er þar með komið í þriðja sæti
deildarinnar en Frankfurt, sem
átti möguleika á að komast á
topp deildarinnar, féll niður í það
fjórða.
Árni Hermannsson,
Þýskalandi.
Chris Moore átti ágætan leik á móti
Snæfelli.
Beinar útsendingar
á Króknum
Á síðasta ári hófust á Sauðár-
króki beinar útsendingar frá
útileikjum Tindastóls í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Nú
mun verða framhald á þvf.
Utsendingunum var dreift í
gegnum dreifikerfi útvarpsstöðv-
ar nemenda Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki, á FM 93,7. Nú hef-
ur verið gerður samningur milli
stúdentsefna og körfuknattleiks-
deildar Tindastóls um að stú-
dentsefnin annist þessar sending-
ar fyrir yfirstandandi keppnis-
tímabil. Þau fyrirtæki sem munu
fjármagna þessar útsendingar og
gera körfuknattleiksáhuga-
mönnum í Skagafirði kleift að
fylgjast með gengi sinna manna
eru, Bókabúð Brynjars, Toyota-
umboðið á Sauðárkróki og
Tryggingamiðstöðin á Sauðár-
króki. Það er einmitt Bókabúð
Brynjars sem hefur umboð fyrir
tvö síðastnefndu fyrirtækin.