Dagur


Dagur - 04.11.1992, Qupperneq 7

Dagur - 04.11.1992, Qupperneq 7
Miðvikudagur 4. nóvember 1992 - DAGUR - 7 Alice J. Sigurðsson: Tímabundin Mðun rjúpunnar skynsamlegasta lausnin Hinn 21. okt. sl. birtist í Degi athyglisverð grein eftir Friðjón Guðmundsson frá Sandi. Taldi hann þörf á algeru banni við rjúpnaveiði. f sunnudagsblaði Mbl. 25. okt. sl. birtist svo ýtar- leg greinargerð um rjúpnaveiði fyrr og síðar og ástand rjúpna- stofnsins í landinu og framtíðar- horfur hans. Blöðunum berast mörg lesendabréf í sama dúr. Það er ekki að ástæðulausu, að þessi mál ber svo mjög á góma í haust. Víst kann að vera, að rjúpnastofninn sé í náttúrlegri lægð um þessar mundir, en hinu er ekki að leyna, að aldrei í sögu þjóðarinnar hafa rjúpnaveiðar verið sóttar af meira kappi en und- anfarin ár. Veiðimenn eru orðnir of margir, og rjúpan á naum- ast nokkurs staðar griðland. Nú þeysa menn fyrirhafnarlítið um fjöll og firnindi á vélsleðum, fjallabílum og fjórhjólum, flengj- ast um allar jarðir. Áður fyrr gengu menn til rjúpna í orðsins fyllstu merkingu og komust því ekki langt þann stutta tíma, sem skotljóst var í skammdeginu. í þá daga var ekki stunduð sportveiði. Menn skutu sér til matar, reyndar líka í tölu- verðum mæli til þess að drýgja tekjur búa sinna með því að selja kaupmönnum. Rjúpa var seld til Danmerkur, en þar sem Danir vildu helst af öllu hvíta fugla, var upphaf veiði- tímans fært fram á haustið, og stendur það enn. Veiðitíminn hefst 15. október. Þá eru rjúp- urnar ekki lengur flekkóttar, all- ar orðnar hvítar. Fuglafræðingar telja, að þær rjúpur, sem tekst að HHBBHBHBBBBnBSBBH „Rjúpnaveiði - sport- veiði, eins og flestir vilja nefna þetta - ætti að vera takmörkuð, miðast við neyslu veiðimannanna og skylduliðs þeirra. Rjúpu ætti ekki að skjóta af gegndar- lausri græðgi í því skyni að setja hana á markaðstorg - selja hana dýrum dómum verslunum og veitingahúsum. Bann við slíkum veiðum hefur verið sett víða í öðrum löndum.“ þrauka þangað til seinnipartinn í nóvember, séu einmitt þær rjúpur, sem lifa af veturinn og auka kyn sitt að vori. Þeir telja líka, að margir unganna frá sumrinu séu þá fallnir í valinn af ýmsum ástæðum. Með hliðsjón af þessu mætti ætla, að skynsam- legra væri að hefja veiðarnar fyrr að haustinu og að stöðva þær líka fyrr í stað þess að teygja veiði- tímann fram undir jól, eins og nú gerist. Með því móti gætu þær rjúpur nýst, sem lifðu eigi af vet- urinn hvort sem væri. Nú reyna menn með öllum til- tækum ráðum að skjóta eins margar rjúpur og þeir komast yfir. Samt þurfum við ekki lengur að bjarga búum okkar með því að selja kaupmönnum bráðina. Sá tími er löngu liðinn, það sjá allir vitibomir menn. Rjúpna- veiði - sportveiði, eins og flestir vilja nefna þetta - ætti að vera takmörkuð, miðað við neyslu veiðimannanna og skylduliðs þeirra. Rjúpu ætti ekki að skjóta af gegndarlausri græðgi í því skyni að setja hana á markaðs- torg - selja hana dýrum dómum verslunum og veitingahúsum. Bann við slíkum veiðum hefur verið sett víða í öðrum löndum. Allur veiðiskapur byggist á því, að næga veiðibráð sé að finna, minna má ekki gagn gera. íslendingar hafa neyðst til að setja kvóta á þorsk og síld, loðnu og rækju, svo að dæmi séu nefnd. Með skefjalausum veiðum fækk- ar rjúpu, uns hinir fjölmörgu skotmenn berjast um að murka lífið úr þeim ræflum, sem eftir lifa. Þegar öll kurl koma til grafar, virðist mér því tímabundin friðun rjúpunnar vera skynsamlegasta lausnin, eins og nú er ástatt. Alice J. Sigurðsson. öllum aldri. Þegar rætt er um lík- amsræktarstöðvar er nauðsynlegt að kynna sér vel hvaða menntun þeir aðilar hafa sem stjórna þar æfingum. Þar er víða pottur brot- inn og má margt betur fara. Ef við hugum betur að því hve- nær markviss líkamsþjálfun hefst má segja að hún byrji þegar börn hefja skólagöngu. Þá er þess krafist að kennarar hafi lokið námi við íþróttakennaraskóla íslands eða hafi sambærilega menntun. Ætti það nokkuð að vera öðruvísi þegar fólk eldist? Breytist eitthvað í þjóðfélaginu sem segir að nú skuli ekki lengur gera kröfur til þess fólks sem stjórnar líkamsrækt hjá almenn- ingi? Síður en svo. Það er eins nauðsynlegt þá eins og í æsku að kröfur séu gerðar til leiðbeinenda í líkamsrækt. Sumar líkamsræktarstöðvar bjóða upp á vel menntaða kennara, kennara sem hafa þekk- ingu á hinum ýmsu þáttum lík- amsræktar; þáttum sem ekki er hægt að kenna á einu helgarnám- skeiði. Þó er það alltof algengt að starfsmenn á þessum stöðvum hafi litla og jafnvel enga menntun á þessu sviði. Svo slæmt er það víða að ómenntaðir aðilar eru látnir stjórna stórum hópi fólks. Þessir aðilar kalla sig erobikleið- beinendur. En hvað liggur þar að baki? Jú, oft á tíðum aðeins stutt helgarnámskeið í þolþjálfun (erobik). Nú má spyrja: „Er nauðsynlegt að hafa menntað fólk sem kennara í líkamsrækt?“ Svarið er skilyrðislaust já. Þeir þættir sem kennari verður að hafa í huga, eins og líkamsástand viðkomandi, álag, ákefð, æfinga- val og margt fleira, verða ekki kenndir á einu helgarnámskeiði. Líkaminn er dýrmætasta eign hvers manns. Hann á ekki að láta í hendurnar á einhverjum fúskara. Við förum ekki með bíl- inn okkar í viðgerð til aðila sem litla þekkingu hefur á bílum. Það vakti athygli fyrir stuttu, þegar einn af eigendum líkams- ræktarstöðvar lét hafa eftir sér í sjónvarpsviðtali að það skipti engu máli hvernig æfingarnar væru framkvæmdar í þolþjálfun, AKUREYRARBÆR i borgarar Skemmtun verður föstudagskvöldið 6. nóvem- ber kl. 19.00 í Félagsmiðstöðinni Víðilundi. Uppákomur, kaffiveitingar og dans. Aðgangseyrir kr. 600. Komið og fáið ykkur snúning á nýjum stað. Félagsstarf aldraðra. heldur væru það þoláhrifin sem skiptu öllu máli. Þarna skilur á milli fagfólks og þess fólks sem starfar á þessu sviði en skortir þekkingu. Almenningur á rétt á að ekki sé verið að leika sér með þeirra dýrmætustu eign af aðil- um sem vita ekki hvernig líkams- þjálfun skal háttað. Almenningur á rétt á að boðið sé upp á fagfólk á líkamsræktarstöðvum. .Kynnið ykkur því vel hvaða menntun starfsfólk líkamsræktarstöðva hefur áður en þið skráið ykkur á námskeið. Stjórn íþróttakennarafélags íslands. Kolbeinn Kjartansson, rjúpnaskytta í Aðaldal, er ekki á móti friðun rjúp- unnar. En meðan rjúpan er ekki friðuð, skýtur hann sínar rjúpur. Pú færð allan pappír á einum stað Strandgötu 3 I • Akureyri • ts- 24222 & 24166 HUSBRÉF Kaupum og seljum húsbréf Ávöxtunarkrafa við kaup 7,80%, við sölu 7,60% .*= KAUPÞING NORÐURLANDS HF Kaupvangsstræti 4 Akureyri • Sími 96-24700.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.