Dagur - 04.11.1992, Side 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 4. nóvember 1992
Verslunanniðstödm Sunnuhlíð tíu á
Hefur sannað gildi sitt
lerárhverti og "arörð„gleika var po af sjónar-
‘ð
íkstur í verslunar sem na starfa þar með versl-,
ijrnu að donu \L töðinni Sunnuhlíð eru n verslunarþjón-
isséss-^''"
blaðsins valdu af hanaan
Guðbjörg Kristinsdóttir.
Guðbjörg Kristinsdóttir í Pálínu:
Meiri breidd í þeim hópi
sem kemur að versla
Guðbjörg Kristinsdóttir hefur
rekið verslunina Pálínu í Sunnu-
hlíð frá því haustið 1986. Guð-
björg sérhæfir sig í verslun með
vefnaðarvörur og allt sem lýtur
að saumaskap. Hún hefur einnig
staðið fyrir saumanámskeiðum,
sem hún segir að hafi verið vel
sótt. Undirtektir sýni að mikið sé
um saumaskap á Akureyri og
• viðskiptin hafi farið vaxandi allt
frá því hún hóf verslunarrekstur-
inn. „Breiddin í þeim hópi sem
kemur hingað að versla er alltaf
að aukast og ég tel að það gildi
um verslunarmiðstöðina í heild,“
sagði Guðbjörg.
Hún sagði einnig að nokkuð
stór hluti af viðskiptavinum sín-
um væru ungar konur sem legðu
mikið upp úr því að sauma á sig
sjálfar og börn sín og sauma-
námskeiðin væru vel sótt. Tvö
námskeið eru í gangi í einu nú
fyrir áramót og síðan eru önnur
tvö námskeið fyrirhuguð síðar í
vetur. Guðbjörg sagði að Sunnu-
hlíðin væri nú búin að vinna sér
ákveðinn sess í hugum fólks. Það
vissi almennt af þeirri þjónustu
sem væri í boði og sækti hana
þótt verslunarmiðstöð af þessu
tagi ætti ætíð í samkeppni við
miðbæjarkjarnann. Hún kvaðst
hafa veitt því athygli að fólk af
efri brekkunni á Akureyri komi
nokkuð í Sunnuhlíð til að versla
- færi jafnvel fremur þangað en
niður í miðbæ enda liggi Sunnu-
hlíðin í beinu sambandi hvað
umferðaræð af brekkunni varðar.
Guðbjörg sagði að fjölbreytni í
þjónustu styrki verslunarmið-
stöðina sem heild og benti á að
nú væru hafnar umræður um að
koma á fót lyfjaverslun og póst-
þjónustu í Sunnuhlíð sem væri af
hinu góða.
„Það hefur tekið nokkurn tíma
að byggja verslunarmiðstöðina
upp en nú er fólk farið að taka
við sér,“ sagði Guðbjörg. Hvað
staðsetningu verslunarmiðstöðv-
arinnar varðar kvaðst Guðbjörg
telja að hún væri nokkuð góð ef
miðað væri við bæjarhverfið
umhverfis hana en ef tií vill hefði
hún þurft ákveðnari kynningu
strax í byrjun. Hún sagði að mjög
góður samstarfsandi væri á meðal
rekstraraðila í húsinu og ákveð-
inn vísir að félagslífi væri til
staðar. ÞI
Pálmi Stefánsson og Alfreð Almarsson:
Styrkurinn Hggur í fjölbreytniimi
- hugmyndir um lyflabúð og pósthús til umijöllunar
„Farið var að ræða um þessa
byggingu um miðjan áttunda ára-
tuginn þegar miklar bygginga-
framkvæmdir áttu sér stað hér
fyrir norðan Glerá og hverfið var
nánast að byggjast," sagði Pálmi
Stefánsson, verslunar- og hljóm-
listarmaður í Tónabúðinni, en
hann er einn af frumbýlingum
Sunnuhlíðar - hefur verið með
verslunarstarfsemi þar frá upp-
hafi. Hann sagði að upphaflega
hefði hugmyndin verið að koma á
fót lítilli hverfaverslun en
umræðan fljótlega farið á það stig
að byggja stærri verslunarmið-
stöð þar sem fleiri verslanir og
þjónustustarfsemi yrði til húsa.
Þessar hugmyndir hefðu síðan
þróast á þann veg að úthlutað
hefði verið lóð fyrir verslunar-
miðstöð og Sunnuhlíðin síðan
orðið til á teikniborðinu. Smár-
inn hf., sem þá var starfandi
byggingafyrirtæki á Akureyri,
annaðist byggingu verslunarmið-
stöðvarinnar og fyrirtæki og ein-
staklingar festu síðan kaup á
ákveðnum hlutum byggingarinn-
ar til starfsemi sinnar.
Rekstur í verslunarmiðstöð-
inni er að miklu leyti með svip-
uðu sniði og var í upphafi en
margir rekstraraðilar hafa komið
og farið. Pálmi Stefánsson sagði
að á ýmsu hafi gengið varðandi
rekstur fyrirtækja í Sunnuhlíð
þau tíu ár sem verslunarmiðstöð-
in hefur starfað og segja mætti að
þessi áratugur hafi farið í að
vinna starfsemina upp. Nú hefur
Sunnuhlíð skipað sér á meðal
fastra þjónustukjarna í Akureyr-
arbæ og allt virtist benda til að
byrjunarörðugleikarnir séu að
baki.
Margir byrjuðu of illa
undir búnir
Varðandi ýmskonar erfiðleika
sem upp hafa komið á undan-
fömum ámm sagði Pálmi Stefáns-
son að of margir þeirra er
hófu rekstur hafi verið of illa
undir hann búnir og einnig hafi
tekið lengri tíma að vinna þessari
starfsemi ákveðin sess í hugum
íbúa Akureyrar og nærliggjandi
byggðarlaga en menn gerðu sér
vonir um. Mun meiri umferð sé
nú um verslunarmiðstöðina en
áður hafi verið og á tveimur síð-
ustu árum hafi afkoma fyrirtækja
þar verið almennt betri en fyrr.
Alfreð Almarsson
Tryggingu.
Norðlenskri
Slíkt bendi til að verslunarmið-
stöðin hafi sannað gildi sitt.
Staðsetningin
skapaði vanda
Þeir Pálmi Stefánsson og Alfreð
Almarsson hjá Norðlenskri
Tryggingu, sem á sæti í fram-
kvæmdastjórn Sunnuhlíðar,
ræddu um að staðsetning verslun-
armiðstöðvarinnar ætti nokkurn
þátt í hvað erfiðlega hafi gengið
að skapa henni þá viðskiptavild
sem nauðsynleg er. Mistök hefðu
átt sér stað í skipulagsvinnu þeg-
ar hverfið var skipulagt og
aðgengi að Sunnuhlíðinni væri
ekki sem skyldi þegar um stóran
þjónustukjarna sé að ræða. Þótt
verslunarmiðstöðin liggi nokkuð
miðsvæðis í Glerárhverfi standi
hún ekki við neina af aðal-
umferðaræðum í gegnum
hverfið. Erfitt geti reynst að
finna hana fyrir ókunnuga og
nauðsynlegt hefði verið að hafa
beina aðkomu að henni af Hlíð-
arbraut.
Pósthúsi og lyfjabúð
verði komið á fót
Nú eru starfandi 25 aðilar í
Sunnuhlíð - þar af 18 verslanir en
auk þess eru þar banki, heilbrigð-
isþjónusta, bókhalds- og endur-
skoðunarþjónusta og aðstaða
nokkurra félagasamtaka. Alfreð
Almarsson sagði að nú væri rætt
um þær hugmyndir að koma á fót
lyfjabúð og pósthúsi í Sunnuhlíð
- þá þætti hefði vantað í þjónustu-
kjarnann til þessa og bindu menn
nú vonir við þær breytingar á
Verslunar- og þjónustu-
aðilar í Sunnuhlíð
Blómabúðin Laufás
Búnaðarbankinn - útibú
Habró - fataverslun
Kristjánsbakarí
Lj ósmyndabúðin
Matvöruverslun KEA
Möppudýrið - bókabúð
Trygging hf. - tryggingar
Pálína - vefnaðarvörur
Rafland - rafmagnsvörur
Samson - hársnyrtistofa
Saumavélaþj ónustan
Skóverslun M. H. Lyngdal
Slétt og fellt - fatahreinsun
Tónabúðin - hljóðfæraverslun
Vaggan - barnavöruverslun
Videó Eva - vídeóleiga
Ynja - kvenundirföt
Pálmi Stefánsson í umhverfi sem
flestir þekkja hann - hljóðfæri í bak
og fyrir.
lyfjalögum sem boðaðar hafa
verið og einnig að Póstur og sími
telji sér það til tekna að opna úti-
bú í Glerárhverfi. Alfreð sagði
nokkurri furðu gegna að í bæ af
þeirri stærð sem Akureyri er þurfi
að fara með hvert bréfkorn til
pósthússins í miðbænum. í sam-
bandi við aukna þjónustustarfsemi
hefur verið ákveðið að kanna
möguleika á viðbyggingu við
verslunarmiðstöðina þar sem öll
pláss eru nú fullnýtt en að sögn
Alfreðs og Pálma eru ekki miklir
stækkunarmöguleikar vegna
skipulagsforsenda og nærliggj-
andi bygginga. Þó er talið unnt
að byggja nokkuð við núverandi
húsnæði til norðurs.
Styrkurinn liggur í
fjölbreyttri starfsemi
Þeir Alfreð Almarsson og Pálmi
Stefánsson voru sammála um að
styrkur Sunnuhlíðar sem verslun-
armiðstöðvar liggi í þeirri fjöl-
breytni sem í boði sé á staðnum.
Hver starfsemi styrkti aðra aðila
og því nauðsynlegt að viðhalda
þeirri fjölbreytni sem tekist hafi
að skapa og helst að auka hana.
Af þeim sökum væri reynt að
gæta þess að tveir samskonar
þjónustuaðilar störfuðu ekki hlið
við hlið í Sunnuhlíðinni.
Breyttur rekstur matvöru-
verslunarinnar breytti
rekstrarforsendum í heild
Hvað varðar breytingar á versl-
unarstarfseminni og aukningu
hennar sögðu þeir Alfreð og
Pálmi að tvennt kæmi einkum til.
Annars vegar hefði tíminn unnið
með þjónustuaðilum í Sunnuhlíð
- verslunarmiðstöðin væri í reynd
komin á kortið hjá íbúum Akur-
eyrar og nærliggjandi byggða en
einnig ættu breytingar sem orðið
hefðu á rekstri matvöruverslunar
Kaupfélags Eyfirðinga nokkurn
þátt í þróuninni. í fyrstu hefði
hún verið rekin sem hverfaversl-
un og verðlag á vörum miðað við
slíkar verslanir en síðar hefði
reksturinn verið sniðinn meir að
rekstri stórmarkaða, verðlag ver-
ið lækkað og opnunartími
lengdur. Við þær breytingar
hefði verslunin aukist til muna
sem aðrir verslunareigiendur
njóti nú góðs af. ÞI