Dagur - 04.11.1992, Side 11

Dagur - 04.11.1992, Side 11
Miðvikudagur 4. nóvember 1992 - DAGUR - 11 Lundúnapistill Þórir Jóhannsson skrifar „Notalegt er norðrið“ Þessa dagana krækja Bretar rauð- um draumsóleyjum í hnappagöt sín. Pessum árlega sið hafa þeir haldið frá lokum fyrri heimsstyrj- aldarinnar til að minnast fallinna stríðshetja. Á götum úti eða í rangölum neðanjarðarkerfisins má sjá meðal-Tjallann klæddan jakkafötum frá Marks & Spencers eða Slaters, á leið til vinnu í City með skjalatösku í annarri hend- inni, regnhlíf í hinni og Evening Standard eða Times (eftir því hvaða tími sólarhringsins er) undir hendinni. Þar á milli, í axl- arhæð, skín eldrauð draumsóley. Bretar, allir sem einn, minnast fallinna samlanda sinna í von um að þurfa ekki að þola slíkan missi aftur. Bretar hafa staðið í ströngu gegnum aldirnar. Þeir hafa háð margt stríðið við erlend- ar þjóðir en líka við sitt eigið fólk. Ég segi þeirra fólk þó svo að meðlimir IRÁ telji sig ekki eiga samleið með breska samveldinu. Liðsmenn IRA hafa haldið Lundúnabúum í helgreipum ann- að slagið og þeir stóðu að baki 15 sprengingum í höfuðborginni í nýliðnum októbermánuði einum. Einn maður, óbreyttur borgari, hefur látið lífið og engin merki þess að látunum sé að linna. Lundúnabúar eru staðráðnir í að láta þetta ekki á sig fá og ferð- ast um með rauðar draumsóleyj- ar, tákn vonar um frið, en óttast að þessi alda sé í raun bara for- smekkur að einhverju meiru, enda jólaörtröðin í nánd. Þetta er Tjallinn í hnotskurn. Það gengur á ýmsu, jafnvel lífum er ógnað, en samt halda þeir sínu striki og segja: „A bit of nuisance but we must go on with it I dare say.“ Það mæðir mikið á John Major þessa dagana. Samdrátturinn er alltaf í hámarki, en viti menn, enn sannast hið margkveðna að „lengi getur vont versnað.“ Nýbúið er að loka kolanámum og Bretar hita húsin sín á reiðinni einni saman, slík voru viðbrögðin við þeim fréttum. Það nýjasta er að segja á upp fólki í Ford-verk- smiðjunum á Lundúnasvæðinu. Einnig er rætt um að loka nokkr- um sjúkrahúsum. Störf sem skipta tugum þúsunda eru í hættu. Ég og skosk unnusta mín búum hjá manni sem rekur franskan veitingastað í Twicken- ham og hann fer ekki varhluta af samdrættinum. Gestum hefur snarfækkað og endar ná varla saman. Kaldhæðnin kemur glögglega fram í því að eitt kvöldið kom á Raefil’s veitinga- húsið maður með fjölskyldu sína. Hann var að halda upp á að hon- um hafði EKKI verðið sagt upp starfinu eins og hann hafði verið hræddur um! En hvernig ætli Major gangi í dag? Heldur hann velli og nær í gegn staðfestingu á Maastricht- samningnum eða nær Verka- mannaflokkurinn að fella hann og lýsa þar með yfir vantrausti á ríkisstjórnina? Allt að 40 íhalds- menn gætu lýst sig andvíga samn- ingnum, þannig að útlitið er ekki gott fyrir Major. Menn hans reyna auðvitað að sýnast bjart- sýnir en ljóst er að stjórn Majors stendur eða fellur með úrslitun- um í dag. Á meðan hlakka ég til skand- inavískrar hátíðar, sem haldin verður hér í London frá miðjum nóvember fram í desember. Hátíðin ber yfirskriftina „Tender is the North“, eða „Notalegt er Norðrið". Hlutur íslendinga í hátíðinni er glæsilegur og á Akureyrarvinurinn Jakob F. Magnússon veg og vanda að því að koma íslenskri list og listflutn- ingi á framfæri á ekki verri stöð- um en Barbican Centre og Wigmore Hall, svo aðeins tveir séu nefndir. Það er ljóst að á næstu dögum mun þjóðerniskenndin blómstra. Kær kveðja frá Lundúnum, Þórir Jóhannsson. Fatnaður og skór á 1 hreint ótrú/egu veröi. \ Aiitað 60% verðiækkun \ á vörum frá NiKE. Sériegur ráðgjafi frá NfKE-umboðinu verður á staðnum fimmtudag og föstudag. slp HQ Glerárgötu 28 - Sími 96-11445 KA-Víkingur miðvikudag kl. 20.30 í KA-höllinni Ódýr markaður Allra hagur Kreditkortaþjónusta Opið mánudaga-föstudaga kl. 12-18.30. Laugardaga kl. 10-16. Sunnudaga kl. 13-17. Tilboð Grilloður kjúklingur 497 kr. Kortöflur 2 kg 69 kr. €gg 18 stk. í bokko 247 kr. kg Ritz kex 58 kr. 1/2 lítri Sonitos oppelsín 49 kr. Matvöru- markaðurinn Kaupangi Opið virka daga kl. 9-22 Laugardaga og sunnudaga kl. 10-22

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.