Dagur - 04.11.1992, Side 15
Miðvikudagur 4. nóvember 1992 - DAGUR - 15
Iþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Handbolti 1. deild í kvöld:
„Menn eru tilbúnir
að leggja aJlt undir'
í kvöld veröa fimm leikir í 1.
deild karla í handknattleik.
Einum leik er lokið, viðureign
Vals og FH sem endaði með
jafntefli.
Þórsarar eiga útileik á móti
HK en KA menn fá Víkinga í
heimsókn. Rætt var við Arna
Stefánsson liðsstjóra KA og
Gunnar Gunnarsson þjálfara
Víkings og þeir spurðir um leik-
inn.
Árni Stefánsson, KA.
„Ég held að allir geri sér grein
fyrir því að við verðum að vinna.
Við héldum fund eftir síðasta leik
og skoðuðum hann nákvæmlega.
Þar fundum við ýmislegt sem við
stefnum á að laga. Við erum þó
hvergi bangnir. Við vitum að lið-
ið er gott en gengið hefur ekki
verið samkvæmt því. En hlutirnir
verða að fara að koma og það er
það sem við ætlum okkur að
gera. Menn eru sammála um að
taka sig saman í andlitinu og snúa
blaðinu við. Við ætlum ekki að
tapa fleiri stigum á heimavelli.
Sigur er í raun lífsnauðsynlegur
fyrir okkur. Ég vona bara að
áhorfendur mæti þrátt fyrir að
okkur hafi ekki gengið nógu vel,“
sagði Árni Stefánsson.
Gunnar Gunnarsson, Víkingi.
„Gengi liðsins hefur komið nokk-
uð á óvart, ekki síst okkur
sjálfum,“ sagði Gunnar Gunnars-
son þjálfari Víkinga. Gunnar
spilaði í Svfþjóð um árabil en
snéri síðan heim og hóf að leika
með Víkingum. Hann tók við
þjálfun liðsins fyrir þetta keppn-
istímabil af Guðmundi Guð-
mundssyni. Víkingsliðið er nú
nokkuð breytt. Auk Guðmundar
hafa Karl Þráinsson, Björgvin
Rúnarsson og Alexei Trufan hætt
að leika með liðinu. „Okkur hef-
ur gengið vel á útivöllum til þessa
og við förum í þennan' leik eins
UFA-Þór í kvöld:
Endurvekja Skemmustenmmmguna
í kvöld veröur stórleikur í 1.
deOd íslandsmótsins í körfu-
bolta, þegar UFA tekur á móti
Þór í Skemmunni. Leikurinn
tiefst kl. 20.00.
Leikurinn er heimaleikur UFA
en þeir stefna á að spila sína
heimaleiki í Skemmunni fram-
vegis. Endurvekja á hina einu og
sönnu Skemmustemmningu en til
þess þurfa áhorfendur að fjöl-
menna á leikinn. í hálfleik verða
nokkrir áhorfendur valdir til að
taka þátt í skotkeppni. Sigurveg-
arinn fær gjafakort í Smiðjuna
en næstu tveir fá kassa af Pepsi.
og aðra leiki. Ég býst við KA-
mönnum sterkum en staða liðsins
í deildinni segir ekkert til um
styrk þess.“ Honum fannst mótið
í heild hafa þróast svipað og hann
bjóst við. Valur og FH væru með
sterkustu liðin. Þau hafa verið að
hirða stig þrátt fyrir að spila illa
sem líka sýnir styrk þeirra að
mati Gunnars.
Þórsarar spila gegn HK. Eftir
góða byrjun hefur liðinu ekki
gengið eins vel í síðustu leikjum
en leikurinn á móti Selfyssingum
gaf þó vonir um að liðið sé á upp-
leið.
KA-menn verða að sigra í kvöld til þess að bæta stöðu sína í deildinni og
endurheimta sjálfstraustið.
Áhorfendaijöldi á leikjum Samskipadeildarinnar:
Flestir sáu leik Þórs og KA
Það var hart barist
UFA og Þórs.
síðasta leik
Mynd: Robyn
KSI hefur nú sent frá sér tölur
um áhorfendafjölda á leikjum
Samskipadeildarinnar síðast-
liðið sumar. Flestir áhorfendur
komu til að sjá leik Þórs og
KA 8. júní eða 1.910 manns.
Þá eru Þórsarar í 4. sæti þegar
áhorfendatölur á heimaleikjum
eru skoðaðar. Að meðaltali
komu 777 manns á völlinn til að
horfa á Þórsara spila og alls 6.990
áhorfendur í sumar á heimaleiki
Þórs. Flestir komu í Frostaskjól-
ið að horfa á KR, eða 10.031,
sem gerir 1.115 að meðaltali á
hverjum leik. KA er í 7. sæti 1.
deildar félaganna með 539 áhorf-
endur að meðaltali. Flestir komu
á völlinn í 3. umferð Samskipa-
deiladinnar en þá voru 5.557
áhorfendur á völlunum. Þá fór
einmitt fram leikur Þórs og KA
sem dró að sér flesta áhorfendur
allra leikja í sumar. Að lokum
fylgir listi yfir fjölda áhorfenda á
Handknattleikur, íslandsmót 5. flokks:
KA vann í flokki B-liða
Um helgina var haldið íslands-
mót fyrir 5. flokk í handbolta.
Leikfyrirkomulag er með þeim
hætti að öll liðin koma saman
og er skipt niður í riðla. Þau lið
sem lenda í 8 efstu sætunum fá
stig en alls verða 3 mót haldin í
vetur og síðan fara efstu liðin í
úrslitakeppni.
Mótið um helgina var haldið í
Hafnarfirði og til leiks mættu 60
lið. Keppendur voru nærri 700
talsins og 180 leikir voru spilaðir
um helgina í 4 íþróttahúsum.
Mikið verk er að skipuleggja slík
mót og þó flest hafi tekist vel var
samt ýmislegt sem að mátti finna
og rekja mátti beint til þess
hversu stórt mótið var í sniðum.
Einkum voru dómaramál í ólestri
og þeir sem dæmdu oft ekki
Jóhannes Bjarnason, þjálfari.
vandanum vaxnir.
Keppt var í flokki A, B og C-
liða og sendu KA og Þór A og B-
lið til keppninnar. Þjálfarar
beggja liða voru sammála um að
þetta fyrirkomulag á mótinu væri
stórt skref aftur í tímann.
Jóhannes Bjarnason hjá KA
sagði þetta vera út í hött. Mótið
væri allt of stórt í sniðum. Lið frá
sama félagi væru að keppa á
sama tíma í mismunandi húsum
og fyrir lið utan af landi gengi
þetta ekki upp. Ingólfur Samúels-
son hjá Þór tók í sama streng.
Þjálfarar geta ekki verið á tveim
stöðum í einu með liðum sínum
og krakkarnir því í háfgerðu
reiðileysi milli leikja.
Ágætis árangur náðist á mót-
inu. Lið KA í flokki B-liða varð í
1. sæti og í flokki A-liða hafnaði
KA í því 3. Liðin kræktu þar með
í 8 og 6 stig sem fylgja liðinu í
næstu keppni. Lið Þórs náði ekki
í stig að þessu sinni. A-lið KA
vann alla sína leiki í riðlakeppn-
inni og í milliriðli en tapaði fyrir
ÍR 15:17 eftir framlengdan leik í
4 liða úrslitum og vann síðan
stórsigur á KR, 18:8 í keppni um
3 sætið. B-liðið gerði 1 jafntefli í
milliriðli en vann annars alla sína
leiki og sigraði ÍR örugglega í
úrslitaleiknum, 18:10. Jóhannes
Bjarnason sagði árangurinn jafn-
vel betri en menn hefðu átt von á
og væri þetta gott veganesti í
næstu keppni. A-lið Þórs missti
naumlega af keppni um verð-
launasæti en það gerði jafntefli
við Gróttu og vann stórsigur á
Tý. B-liðið vann Fylki en tapaði
öðrum leikjum sínum.
Risapottur í
Eurotips
I dag lýkur sölu á 4. og síðasta
Eurotips seðlinum. Fnginn
náði 14 réttum í síðustu 2 skipti
og því er 1. vinningur þrefald-
ur. Gert er ráð fyrir að 1. vinn-
ingur verði 30 milljónir og því
er til mikils að vinna.
Eurotips er samstarfsverkefni
getraunafyrirtækjanna í Svíþjóð,
Danmörku, Austurríki og íslandi
og 1 vinningur er sameiginlegur
hjá öllum löndunum 4. Aðrir
vinningsflokkar, þ.e. 13,12 og 11
réttir, eru greiddir út í hverju
landi fyrir sig eftir þátttöku þar.
Til mikils er að vinna því nú er
risapottur með þreföldum 1.
vinningi. Sölukerfinu verður lok-
að kl. 16.55 í dag og því vissara
að tryggja sér miða fyrir þann
tíma. Leikirnir á seðlinum eru
sem kunnugt er úr Evrópukeppn-
inni og svipmyndir úr þeim eru
sýndar sama kvöld í Ríkissjón-
varpinu.
heimaleikjum félaganna og menn
geta síðan skemmt sér við að
reikna út meðaltalsfjölda á hverj-
um leik.
KR 10.031 áhorfendur
ÍA 8.223 áhorfendur
Fram 7.367 áhorfendur
Þór
Vikingur
ÍBV
KA
Valur
UBK
FH
6.990 áhorfendur
5.114 áhorfendur
4.910 áhorfendur
4.851 áhorfendur
4.836 áhorfendur
4.395 áhorfendur
4.095 áhorfendur
fljj ◄
45.
-fyrirþig ogþina fjölskyldu! |@ÍkvÍkd
Árni skorar á
Alfreð Gíslason
Um síðustu helgi var nokkuð um óvænt úrslit í ensku knattspyrnunni og fór
það illa með margan getraunaspekinginn. Það má t.d. segja um þá félga
Árna Stefánsson og Nóa Björnsson sem áttust við í getraunaleik Dags í
síðustu viku. Árni náði aðeins 5 réttum sem þó nægði honum til sigurs þar
sem Nói var bara með 4. Leikmenn Liverpool brugðust aðdáendum sínum
illilega og töpuðu fyrir Tottenham. Þeir félagar treystu báðir á sigur þeirra
fyrnefndu en Nayim og Ruddock sáu til þess að Tottenham tók öll stigin
heim með sér frá Anfield Road.
Árni Stefánsson hefur nú sigrað tvívegis í keppninni og er þar með i
efsta sæti þar sem enginn hefur náð þeim árangri það sem af er á þessu
keppnistímabili. Árni, sem auk þess að kenna nemendum Verkmennta-
skólans íþróttir, er liðsstjóri KA í handbolta, ákvaö að skora Alfreð Gíslason
þjálfara á hólm. Alfreð brást Ijúfmannlega við en sagðist reyndar vita hverju
hann ætti að þakka þennan „heiður". „Þetta er bara af því að mínir menn
Tottenham unnu Liverpool um helgina," en Árni er mikill aðdáandi Liver-
pool.
Eins og búist var við tók salan á getraunaseðlum mikinn kipp þegar
sænsku leikirnir duttu út. í síðustu viku voru seldir getraunaseðlar hér á
landi fyrir tæpar 8 milljónir. Litlu mátti muna að Golfklúbbur Akureyrar
þyrfti að láta 1. sætið af hendi yfir þau félög sem mest selja af
getrauaseðlum. Alls skrifuðust 92.993 raðir á GA en Fylkir vantaði aðeins 46
raðir til að slá þeim við. Þessi tvö félög eru lang efst en næsta félag er Valur
með rúmlega 25 þúsund raðir. I lokin er vert að minna á Eurotips en sölu á
síðasta seðlinum lýkur á morgun.
*c k. < Alfreð ◄S Q_ 00 C 'K
1. Arsenal-Coventry IX 1
2. Aston Villa-Man. Utd. 1 1X
3. Blackburn-Tottenham 1 1
4. Chelsea-Crystal Palace X2 12
5. Ipswich-Southamton 1X X
6. Liverpool-Middlesbro 1 1
7. Man. City-Leeds X2 12
8. Nottingham Forest-Everton 2 1X
9. Wimbledon-QPR X 1X
10. Brentford-Charlton X2 1X
11. Bristol City-Birmingham 2 12
12. Derby-Millwall 1 1
13. Leicester-Tranmere X2 1
Upplýsingar um rétta röð og vinningsupphæðir:
Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455
Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888