Dagur - 14.11.1992, Page 6
% - HlJrlAU - SHHT IBOrnavnn 1UD6D1BDUBJ
6 - DAGUR - Laugardagur 14. nóvember 1992
Börnin okkar
Hagnýt ráð til að létta Mum skólabömum dagimi
í tveimur síðustu þáttum, um börnin okkar, hefur verið fjall-
að um ýmis atriði tengd þeim þáttaskilum sem verða í lífi
barna þegar þau hefja skólagöngu. Á þessum tímamótum,
þegar börnin okkar kveðja leikskólann sinn eða þann aðila
sem gætt hefur þeirra í heimahúsi, er ekki aðeins skólinn nýr
og framandi heldur einnig allt það sem barninu er ætlað að
takast á við utan veggja hans.
Því miður sýna kannanir að fjöldi íslenskra barna verður að
bjarga sér á eigin spýtur frá því skóladagur er úti þangað til
löngum vinnudegi foreldra þeirra líkur. Um þau mál verður
fjallað nánar í næsta þætti um börnin okkar.
Engin einföld ráð koma að haldi til að færa til viðunandi veg-
ar líf þeirra barna sem búa við ófullnægjandi aðstæður. Hins
vegar er vert að íhuga ýmis einföld atriði sem geta Iétt börn-
unum okkar lífið bæði innan og utan veggja skólans.
Besta úlpa í heimi
Þegar við veljum föt handa börn-
unum okkar ættum við að hafa
það að leiðarljósi að þau séu
þægileg, mjúk, hlý, lipur og hæfi
þeim aðstæðum sem þeim er ætl-
að að duga í, fremur en að velja
flíkur sem eru samkvæmt nýjustu
tísku. Leitumst við að kenna
börnunum okkar þegar frá upp-
hafi að klæða sig eftir veðri. Um
fram allt veljum föt sem barnið
kann vel við og vill ganga í. Lit-
rík föt eru lífleg auk þess sem
þau eru mikilvægt öryggisatriði í
umferðinni. Gleymum ekki að
festa endurskinsmerki á allar
yfirhafnir barnanna okkar og
veljum íþrótta- og skólatöskur
með endurskinsmerkjum.
Gætum þess að utanyfirföt og
skófatnaður sé þannig að auðvelt
og fljótlegt sé að klæða sig úr og
í. Ef barnið okkar er í úlpu með
einum rennilás og skóm með
„frönskum rennilás“ verður það
síður síðast út í frímínútur í
skólanum eða inn í sætið sitt að
þeim loknum. Það er ekki upp-
lífgandi að berjast síðastur allra
við að komast í allt of þröng stíg-
vél eða úr tískulegum skóm sem
eru með flóknum reimabúnaði.
Merkjum allar yfirhafnir, töskur,
skó, íþróttaföt og handklæði vel,
helst á áberandi stað með stórum
stöfum. Athugum að oft eiga
margir í sama bekknum eins
úlpur, stígvél eða töskur.
grænmeusa, ...
«ÖRNFL0HKV)B
Fæðuhringurinn, alltaf í fullu gildi.
Það er ganian að opna nestisbox sem inniheldur næringarríka, spennandi og girnilega máltíð.
Hollt fæði, nægjanleg
hvíld, heppileg klæði og
öruggt athvarf hjálpa
barninu okkar að takast á
við vanda hversdagsins.
Mikilvægat af öllu er að
við gefum okkur tíma í
hvert einasta sinn sem
barninu okkar líður illa til
að krjúpa niður á hné og
sétja okkur í spor þess.
Hvfld og næring
Þegar barnið þitt fer í skólann
þarf það á allri sinni orku og ein-
beitingu að halda. Þess vegna er
mjög mikilvægt að það fái undan-
tekningarlaust bæði reglulegan
og nægilega langan nætursvefn og
holla og næringarríka fæðu. Nú
til dags er til fjöldi ýmiskonar
bóka og rita sem fjalla um mat og
mataræði. Einfaldasta leiðin til
að tryggja að börnin okkar fái öll
þau næringarefni sem þau þarfn-
ast er að fara eftir flokkun fæðu-
tegunda samkvæmt Fæðuhringn-
um. Fæðuhringurinn er í flestum
bókum sem fjalla um hollt matar-
æði en allar fæðutegundir, sem
innihalda nauðsynleg næringar-
efni, er hægt að flokka í einhvern
af flokkum fæðuhringsins. Það er
ágæt þumalfingursregla að gæta
þess að borða eitthvað úr hverj-
um fæðuflokki á hverjum degi.
Æskilegast er að magnið sé sam-
bærilegt við vægi flokksins í
fæðuhringnum. Flestir sem ein-
hverja þekkingu hafa á þessu
sviði eru á einu máli um að stað-
góður og hollur morgunverður sé
gulls ígildi. Þess vegna er mikil-
vægt að bæði við og börnin okkar
venjum okkur á og gefum okkur
tíma til að borða vel og skynsam-
lega á morgnana. Veljum hafra-
graut, slátursneið, súrmjólk,
korn, gróft brauð, ávexti, hrökk-
brauð, ost, kæfu, grænmeti, egg,
ávaxtasafa og mjólk og gleymum
ekki lýsinu.
Fimm daga vikunnar er nesti
ein af máltíðum dagsins hjá börn-
unum okkar. Það getur reynst
þrautin þyngri að nesta börnin
sín dag eftir dag, vetur eftir
vetur, með hollu nesti sem þeim
finnst girnilegt og lystugt upp úr
nestisboxinu. Því fjölbreyttara
sem val þitt og barnsins þíns er
þegar tekið er til í nestisboxið því
minni líkur eru á að nestið verði
leiðigjarnt. Oft vilja börn helst
sama nestið dag eftir dag, viku
eftir viku. Úrval ávaxta, græn-
metis, brauðtegunda, áleggs,
jógúrts og drykkjarvara er hins
vegar mjög fjölbreytt. Það er
sjálfsagt að leitast við að bæta
smátt og smátt nýjum tegundum í
hóp þeirra sem börnin okkar
kunna að borða og vilja borða.
Athvarf og öryggi
Það er hverju barni mikilvægt að
eiga vissu um öryggi og athvarf
eftir að erilsömum skóladegi
lýkur. Það hefur tvímælalaust
jákvæð áhrif á líðan barna og ein-
beitingargetu í skólanum ef þau
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
því hvert skal halda og hvað skal
gera þegar skólabjallan hringir
út. Á þeim heimilum, þar sem
foreldrar eru enn í vinnu sinni
þegar skóla barnanna lýkur, er
nauðsynlegt að börnunum sé full-
komlega ljóst hvert þau geta leit-
að ef eitthvað ber út af. I flestum
tilfellum er nauðsynlegt öryggis-
atriði að barnið geti leitað til að
minnsta kosti tveggja aðila. Það
gefur auga leið að þá eru helm-
ingi meiri líkur á að barnið fái
hjálp strax, ef það hefur skorið
sig við að skera epli, dottið og
fengið áverka, skrúfað frá
vatnskrana sem því tekst ekki að
skrúfa fyrir aftur eða orðið fyrir
öðrum áföllum. Athugið að víða
er möguleiki á að fá gæslu fyrir
börn í skólunum eftir að kennslu
lýkur. Það er mikilvægt öryggis-
atriði að kenna börnum að
hringja á lögreglustöðina. Gefum
okkur góðan tíma til að ræða við
þau um hlutverk lögreglunnar
þannig að þau átti sig á hvenær
aðstæður eru orðnar það alvar-
legar að nauðsynlegt sé að hafa
samband við lögreglu.
Ræðum einnig um það við þau
hvað það er sem nauðsynlegt er
að segja í símann við lögreglu-
þjóninn, upplýsingar eins og hvar
barnið er statt, hvað það heitir og
hvert vandamálið er.
Næsti þáttur: „Lyklabörn - Pokabörn11