Dagur - 14.11.1992, Qupperneq 21
Laugardagur 14. nóvember 1992 - DAGUR - 21
□ HULD 599211167 VI 2.
I.O.O.F. 15 = 17417117Va = Sp.
KFUM og KFUK,
'i Sunnuhlíð.
Sunnudaginn 15. nóv.,
söngva- og bænastund kl.
20.30. Allir velkomnir.
Akureyrarprestakall:
Helgistund verður á
Fjórðungssjúkrahúsinu
nk. sunnudag, 15. nóv-
ember, kl. 10 f.h.
B.S.
Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju
verður nk. sunnudag, kl. 11 f.h. Öll
börn eru velkomin og foreldrar eru
einnig hvattir til þátttöku.
Hátíðarmessa verður í Akureyrar-
kirkju nk. sunnudag, 15. nóvember,
kl. 14. Minnst verður afmælis kirkj-
unnar. Fluttir verða þættir úr þýskri
messu eftir Franz Schubert við texta
Sverris Pálssonar.
Óskar Pétursson syngur einsöng.
Kór Akureyrarkirkju syngur og
leiðir safnaðarsöng.
Nokkrir hljóðfæraleikarar koma
fram í athöfninni.
Sálmar: 288, 286, 586 og 26.
Sóknarprestar.
Kvenfélag Akureyrarkirkju hefur
kaffisölu og basar í Safnaðarheimil-
inu eftir messu.
Aðalfundur Listvinafélags Akureyr-
arkirkju verður í Kapellunni nk.
sunnudag kl. 16.
Æskulýðsfélagið heldur fund í Safn-
aðarheimilinu (litla sal) nk. sunnu-
dag kl. 17. Nýir félagar velkomnir.
Mætið vel.
Glerárkirkja.
Biblíulestur og bænastund verður í
kirkjunni laugardag kl. 13.00.
Fjölskylduguðsþjónusta verður nk.
sunnudag kl. 11.00 árdegis. Foreldr-
ar eru hvattir til að mæta með börn-
in sín.
Æskulýðsfélag kirkjunnar er með
fundi alla sunnudaga kl. 17.30.
Kvenfélagið Baldursbrá verður með
basar í kirkjunni laugardaginn 14.
nóvember kl. 15.00.
Sóknarprestur.
Möðruvallaklausturskirkja.
Guðsþjónusta verður á sunnudag-
inn kl. 14.00.
Hulda Hrönn M. Helgadóttir.
Grundarkirkja.
Messa á Grund sunnudaginn 15.
nóvember kl. 13.30 og í Kristnes-
spítala kl. 15.00
Sóknarprestur.
Gjafir:
Kr. 1000 til Akureyrarkirkju frá
N.N. og kr. 1000 til Strandarkirkju
frá A.S.
Bestu þakkir.
Birgir Snæbjörnsson.
tÚtfararþjónustan
á Akureyri,
Kambagerði 7.
Opið kl. 13-17, sími 12357 og
símsvari þess utan.
Boðin er alhliða útfararþjónusta.
V
. Frá Sálarrannsóknarfé-
lagi Akureyrar.
'/' Þórunn Maggý miðill,
starfar hjá félaginu dag-
ana 24.11.-29.11.
Tímapantanir á einkafundi verða
laugard. 14.11 frá kl. 14-16 í símum
12147 og 27677.
Ath! Þeir sem hug hafa á að komast
að hjá Hrefnu Birgittu, læknamiðli,
í vetur geta haft samband á sama
tíma.
Munið gíróseðlana.
Stjórnin.
Já, . -1 ifiT:3fi ■ SJÓNARHÆÐ
M HAFNARSTRÆTI 63
Laugardagur 14. nóv.: Laugardags-
fundur fyrir 6-12 ára kl. 13.30. As-
tirningar og aðrir krakkar, verið
dugleg að mæta! Unglingafundur kl.
20. Allir unglingar velkomnir.
Sunnudagur 15. nóv.: Sunnudaga-
skóli í Lundarskóla kl. 13.30. Allir
krakkar velkomnir. Samkoma á
Sjónarhæð kl. 17. Allir eru hjartan-
lega velkomnir.
HMASunnumKJAn v/smwshlíð
Laugardagur 14. nóv. kl. 10.30-14.00
bíblíukennsla með Helgu Zider-
manis, sama dag kl. 20 vakningar-
samkoma með Helgu Zidermanis.
Sunnudagur 15. nóv. kl. 11 barna-
kirkjan, krakkar ath. breyttan tíma,
sama dag kl. 15.30 vakningarsam-
koma með Helgu Zidermanis,
skírnarathöfn, samskot tekin til
kristniboðsins.
Barnagæsla verður á sama tíma fyrir
krakkana.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
► Hjálpræðisherinn.
Sunnud. 15. nóv. kl.
11.00 helgunarsamkoma. Kl. 13.30
sunnudagaskóli. Kl. 17.30 her-
mannasamkoma. Kl. 19.30 bæn. Kl.
20.00 almenn samkoma.
Mánud. 16. nóv. kl. 16.00 heimila-
samband.
Miðvikud. 18. nóv. kl. 17.00 fundur
fyrir 7-12 ára.
Fimmtud. 19. nóv. kl. 20.30 biblía
og bæn.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Séra Þórhallur Höskuldsson, sókn-
arprestur, verður fimmtugur nk.
mánudag, 16. nóvember.
Hann tekur á móti gestum í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju þann dag
kl. 20-23.
Brúðhjón:
Hinn 11. nóvember voru gefin sam-
an í hjónaband í Akureyrarkirkju
Friðný Björg Sigurðardóttir sjúkra-
liði og Benedikt Barðason kennari
við V.M.A. Heimili þeirra verður
að Skólastíg 1, Akureyri.
Minningarkort Hjálparsveitar skáta
Akureyri, fást í Bókvali, Bókabúð
Jónasar og Blómabúðinni Akri,
Kaupangi.
Minningarspjöld Náttúrulækninga-
félagsins á Akureyri fást í Bókvali,
Amaró og Blómabúðinni Akri í
Kaupangi.
Minningarspjöld Kvenfélagsins
Framtíðar fást í: Bókabúð Jónasar,
Blómabúðinni Akri, Dvalarheimil-
inu Hlíð, Dvalarheimilinu Skjaldar-
vík og hjá Margréti Kröyer Helga-
magrastræti 9.
Efst íhuga
Þórður Ingimarsson
Samvinnustarfíð
hefur gildi
Segja má aö kaflaskipti hafi orðið í
viðskiptasögu íslands þegar atvinnu-
rekstri Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga var skipt í sérstök fyrir-
tæki fyrir nokkru. Með því var atvinnu-
rekstri Sambandsins sem stórrar
rekstrareiningar með blönduðum
rekstri hætt, en við tóku sjálfstæð
fyrirtæki er hvert um sig sinntu
afmörkuðum rekstrarþáttum. Sam-
bandið sem slíkt varð eignarhalds-
félag er átti mismunandi stóra hluti í
hinum nýju fyrirtækjum og ætlun for-
ráðamanna samvinnuhreyfingarinn-
ar var að dreifa eignaraðild að þess-
um rekstri og efla hann þannig í takt
við nýja tíma. Ekki verður annað
sagt en þessar aðgerðir hafi heppn-
ast þótt deila megi um hvort fyrr
hefði átt að hefjast handa um
ákveðnar skipulagsbreytingar innan
Sambandsins.
Nú hefur Sambandið aftur verið í
sviðsljósinu vegna uppgjörs á skuld-
um þess við Landsbanka íslands.
Uppgjörið er í sjálfu sér ekkert ann-
að en lokaaðgerð þeirra breytinga er
hrundið var af stað með stofnun
sjálfstæðra fyrirtækja um rekstrar-
þætti þess. Upþgjörið mun að öllum
líkindum flýta því að fleiri aðilar taki
höndum saman um þann atvinnu-
rekstur sem í hlut á, því mikið er í
húfi í erfiðu atvinnuástandi að fram-
leiðslu- og atvinnutækifæri glatist
ekki.
Þegar svo viðamikill rekstraraðili,
sem Samband íslenskra samvinnu-
félaga var í íslensku efnahagslífi, er
bútaður í sundur er von að eftir því
sé tekið á meðal þegna þjóðfélags-
ins. Og menn spyrja eðlilega ákveð-
inna spurninga og hafa skiptar
skoðanir á orsökum og afleiðingum
þeirra breytinga sem orðnar eru.
Samvinnustarfið varð til er dreifð og
fátæk þjóð reyndi að mynda verslun
í eigin landi. Þær hugsjónir frum-
kvöðla kaupfélaganna og samvinnu-
hreyfingarinnar urðu að veruleika og
ollu óumdeilanlega straumhvörfum í
atvinnuháttum og efnahag víða um
land. Þótt tímar hafi breyst og nýjar
áherslur myndast í viðskipta- og
efnahagslífi hefur samvinnustarfið
ákveðið gildi og er í raun nauðsyn-
legt í því samfélagi, þar sem eignar-
aðild og völd í atvinnulífi hafa til-
hneigingu til að safnast á fáar
hendur.
Menntaskólinn á Akureyri:
Um 50 nemendur tóku
þátt í módelnámskeiði
- efna til tískusýningar í Sjallanum í kvöld
BORGARBÍÓ
Salur A
Laugardagur
Kl. 9.00 Veröld Waynes
Kl. 11.00 Far and away
Sunnudagur
Kl. 3.00 Prinsessan
og durtarnir
Kl. 9.00 Veröld Waynes
Kl. 11.00 Far and away
Mánudagur
Kl. 9.00 Far and away
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Far and away
HVlTIR SANDAR
Salur B
Laugardagur
Kl. 9.00 Hvítir sandar
Kl. 11.00 Hvítir sandar
Sunnudagur
Kl. 3.00 Pétur Pan (kr. 300)
Kl. 9.00 Hvítir sandar
Kl. 11.00 Hvftir sandar
Mánudagur
Kl. 9.00 Hvítir sandar
Þriðjudagur
Kl. 9.00 Hvítir sandar
BORGARBÍÓ
S 23500
Á vegum Hugins, skólafélags
Menntaskólans á Akureyri,
hefur undanfarna daga farið
fram módelnámskeið. Um
fimmtíu nemendur skólans
tóku þátt í því.
Námskeiðið var byggt upp á
kennslu í módelstörfum, snyrt-
ingu, siðum, venjum og almennri
kurteisi. Leiðbeinendur voru frá
Módelsamtökunum og þar fremst
í flokki frú Unnur Arngrímsdótt-
ir, einn virtasti leiðbeinandi á
sínu sviði á landinu.
Afrakstur þessa námskeiðs
mun birtast bæjarbúum og öðr-
Ungmennafélögin þrjú
Eyjafjarðarsveit, Árroðinn,
Framtíðin og Vorboðinn efna
til þriggja kvölda spilavistar.
Fyrsta spilakvöldið er á morg-
un kl. 20.30 í Freyvangi.
Mjög glæsileg verðlaun eru í
boði. Heildarverðlaun fyrir hæsta
skor öll þrjú kvöldin er utan-
landsferð að verðmæti 100.000
krónur, önnur verðlaun vöru-
úttekt hjá KEA að verðmæti
40.000 krónur og 3. verðlaun
vöruúttekt hjá KEA að verðmæti
15.000 krónur.
um gestum á fjölum Sjallans í
kvöld, laugardaginn 14. nóvem-
ber, með tískusýningu frá Herra-
búðinni, Tískuverslun Steinunn-
ar, Parinu, Levi’s búðinni og
Sporthúsinu. Áætlað er að sýn-
ingin hefjist laust eftir miðnætti,
nánar tiltekið um kl. 00.30.
„Þarna er ungt og glæsilegt
fólk að sýna föt frá nokkrum
helstu tískuverslunum bæjarins
og við hvetjum sem flesta til að
láta þennan viðburð ekki fram
hjá sér fara,“ segir í frétt Hugins,
skólafélags Menntaskólans á
Akureyri.
Þrenn verðlaun verða veitt fyr-
ir hæstu skor hvert kvöld. Eru
það vöruúttektir hjá KEA að
verðmæti 10.000, 7.500 og 5.000
krónur.
Sem fyrr segir verður fyrst spil-
að annað kvöld í Freyvangi.
Sunnudaginn 22. nóvember nk.
verður spilað í Laugarborg og
þriðja og síðasta spilakvöldið
verður í Sólgarði laugardaginn
28. nóvember. Þar verður efnt til
dansleiks eftir að félagsvistinni
lýkur.
Aðgangseyrir að hverju spila-
kvöldi er 600 krónur.
Eyjaíjarðarsveit:
Þriggja kvölda
félagsvist að hefjast
- fyrsta spilakvöldið á morgun í Freyvangi