Dagur - 14.11.1992, Page 23
Laugardagur 14. nóvember 1992 - DAGUR - 23
í UPPÁHALDI
„Ætla að taka vel á móti kærustunni'
-segir Finnur Birgir Jóhannsson
Þeir sem fylgjast með
handbolta kannast alJir
við Finn Jóhannsson,
hinn harðskeytta línu-
mann Þórs. Finnur gekk til liðs
við Þórsara fyrir þetta keppn-
istímabil og hefur vakið athygli
fyrir vasklega framgöngu á
vellinum. Hann tekur jafnan vel
á andstæðingunum og eru þeir
ekki öfundsverðir að lenda í
höndunum á honum. Finnur
stundar nám á íþróttabraut í
VMA og er auk þess í hljóm-
sveitinni Frantic ásamt félaga
sínum í Þórsliðinu Atla Rún-
arsyni og fleiri góðum mönn-
um. Finnur lét vel af veru sinni
hjá Þór og hann hefði ekki
undan neinu að kvarta
Hvað gerírðu helst ífrístundum?
„Ég slappa bara af og borða
þegar ég á frí.“
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Það eru pitzur. Ég er alveg
frægur fyrir það.“
Uppáhaldsdrykkur?
„Ég hugsa að það sé vatnið.“
Ertu hamlileypa til allra verka á
heimilinu?
„Það er spuming. Já, eigum við
ekki bara að segja að ég sé
nokkuð magnaður við hús-
verkin.“
Spáirðu mikið i heilsusamlegt
líferni?
„Já ég geri það. Maður er alltaf
Finnur Birgir Jóhannsson.
í góðu formi og svo hugsa ég
líka mikið um hvað ég set ofaní
mig.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu í
áskríft?
„Satt best að segja þá kaupi ég
ekki eitt einasta blað eða tíma-
rit.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá
þér?
„Sú bók sem er á náttborðinu
hjá mér núna er Spænski lingo-
fónninn."
Hvaða hljómsveitltónlistarmaður
er í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Nú er erfitt að velja. Ég er
sjálfur í poppinu og á ákaflega
erfitt með að gera upp á milli.
Ég held ég verði bara að segja
að allt sem viðkemur rokkinu
sé í uppáhaldi."
Uppáhaldsíþróttamaður?
Það er körfuknattleiksmaðurinn
Micael Jordan.“
Hvað horfirðu helst á í sjónvarpi?
„Ég horfi mest á fréttir og síðan
að sjálfsögðu íþróttaþættina."
Á hvaða stjórnmálamanni
hefurðu mest álit?
„Satt best að segja þá hef ég
ekki hugmynd um það. Ég er
svo gersamlega gersneyddur
áhuga á stjómmálum að það
nær ekki nokkurri átt. Ég hef
ekki einusinni kosið ennþá.
Mér finnt þetta allt vera eins,
sama hver stjómar.“
Hvar á landinu vildirðu helst búa
fyrír utan heimabœinn?
„Mosfellsbær er minn heima-
bær og ef ég gæti ekki búið þar
þá vildi ég helst búa í Reykja-
vík. Það er engin spuming.“
Hvað mundirðu kaupa efþúfeng-
ir 100 þúsund krónur upp úr
þurru?
„Ég held að ég mundi gera mér
glaðan dag einhversstaðar."
Hvernig mundirðu eyða þriggja
vikna vetrarfríi?
„Bara í rólegheitum í borginni."
Að lokum, hvað cetlar þú að gera
um helgina?
„Að taka vel á móti kæmstunni
og hafa það huggulegt með
henni.“ HA
Nýjar bækur
Ó fyrir framan
- nýtt sagnasafn eftir
Þórarin Eldjárn
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út
sagnasafnið Ó fyrir framan eftir
Þórarin Eldjárn, einn okkar fjölhæf-
ustu rithöfunda, en á liðnum árum
hefur hann sent frá sér hátt á annan
tug skáldverka, ljóð, skáldsögur og
smásagnasöfn.
Þessi nýja bók Þórarins hefur að
geyma fjórtán sögur sem eiga það
gjarnan sammerkt að þegar minnst
er á gæfu, heppni eða hamingju er
komið ó fyrir framan þar sem síst
skyldi. Heppni hjónanna Aðalsteins
og Eddu snýst til að mynda í óheppni
á sömu stundu og þau álpast í epla-
kassann forboðna í sjoppunni Para-
dís. - Sá gæflyndi og spaki heimilis-
hundur, Lilli, reynist ógæfan ein og
umhverfist í trylltan klámhund af
gefnu tilefni. - Og þó að Sigurlaug,
sjónvarpskonan vinsæla, finni ham-
ingjuna um stund í viðtalsþáttum
sínum, uggir stúlkan ekki að sér fyrr
en hún hefur ánetjast óhamingju
trylltrar fíknar sem rekur hana í
endalaus opinská og einlæg viðtöl.
í kynningu Forlagsins segir:
„Sjaldan hefur frásagnargleði og
húmor Þórarins Eldjárns notið sín
jafn vel og í þessu sagnasafni. Þó að
sögurnar hafi á sér sakleysislegt yfir-
bragð, þá er flest með þeim ólíkind-
um að hætt er við að tvær grímur
renni á lesendur, enda skýtur höf-
undurinn sér óspart á bak við gráa
glettu og hér er flest annað en
sýnist. Sumir kunna að telja sig hafa
milli handanna haldgóðar dæmisög-
ur um hégóma og fláræði. En eins
víst er að um misskilning sé að
ræða, því þær eru sannast sagna
hálar. Og hætt er við að um boð-
skapinn og merkinguna muni menn
endalaust þræta.“
Lifið
framundan
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér skáldsöguna Lífið framundan
eftir franska rithöfundinn Romain
Gary.
Lífið framundan er fyrir löngu
talin til sígildra verka franskra bók-
mennta og fyrir hana hlaut höfund-
urinn frægustu og eftirsóttustu verð-
laun sem veitt eru frönskum rithöf-
undum - Goncourt-verðlaunin.
Guðrún Finnbogadóttir þýddi sög-
una.
Sagan segir frá Mómó - hann er
lítill og fallegur snáði, arabi og
hóruungi - en fáir vita með vissu
hversu gamall hann er. Hann elst
upp í einu af fátækrahverfum París-
ar hjá Rósu, uppgjafa vændiskonu
af gyðingaættum sem á efri árum lif-
ir af því að taka börn annarra vænd-
iskvenna í fóstur - börn sem verða
til þegar „atvinnumanneskja lendir í
fæðingarslysi" eins og krakkarnir í |
götunni orða það. Milli Mómós og
Rósu kviknar órjúfanleg vinátta
sem dafnar í hörðum heimi stór-
borgarinnar.
Á Svörtuhæð
Út er komin hjá Máli og menningu
skáldsagan Á Svörtuhæð eftir enska
rithöfundinn Bruce Chatwin.
Sagan segir frá leiguliðanum
Amos Jones sem dag einn kemur
auga á prestsdótturina Maríu við
messu, en frá þeim degi tekur líf
þessa kotbónda stakkaskiptum.
Sagan hefst um síðustu aldamót og
eru rakin til okkar daga örlög
tveggja ættliða á bænum Sýn á
Svörtuhæð. í fyllingu tímans taka
tvíburarnir Benjamín og Lewis við
búinu. Þeir eru nauðalíkir, en stefna
þó í ólíkar áttir, annar vill fara burt,
hinn vill vera.
Bruce Chatwin fæddist árið 1940.
Hann nam fornleifafræði í háskóla
og ferðaðist víða um heim við rann-
sóknir sínar á hirðingjum. Um tíma
starfaði hann bæði sem blaðamaður
og listaverkasali. Chatwin lést árið
1989. Áður hafa komið út á íslensku
eftir hann skáldsagan Utz.
Árni Óskarsson þýddi bókina sem
er 247 blaðsíður.
TTTWI
Bændur athugið!
Eigum á lager heimilisrafstöðvar frá 1,4 kw
til 17 kw til tengingar á dráttavélar.
Einnig diesel og bensínvélar.
Leitið nánari upplýsinga.
Við Tryggvabraut • Akureyri ■ Sími 22700
JJÍN uió HRRFNRGII—
í Vín um helgina
Lifandi tónlist.
Kaffihlaðborð sunnudag
að hætti Blómaskálans.
Vínarís og ísréttir alla daga.
Gott úrval í gróðurhúsi.
Gréta Berg teiknar um helgina.
Opið mánud.-föstud. frá kl. 13-22.
Opið laugard.-sunnud. frá kl, 13-19.
Velkomin í Vín 31333
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍSABET JAKOBSDÓTTIR,
Víðilundi 12i, Akureyri,
sem andaðist 6. nóvember, verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju mánudaginn 16. nóvember kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag van-
gefinna.
Gunnar Árnason, Svava Engilbertsdóttir,
Guðmundur Árnason, Sigriður Kristjánsdóttir,
Guðlaug Árnadóttir, Haukur Jónsson,
Anna Arnadóttir, Jón Árni Eiísson,
Jakob Árnason, Jóna Jónasdóttir,
Edda Árnadóttir, Reidar Kolsoe,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR JÓNATANSSON,
Byggðavegi 101 E, Akureyri,
lést 12. nóvember á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Aðalbjörg og Rósa Guðmundsdætur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför,
STURLU ÞORLEIFSSONAR,
Sólvölium, Akureyri.
Sigríður Björg Sturludóttir
og systkini hins látna.