Dagur - 14.11.1992, Blaðsíða 24
Rætt um að ráðast í
samanburðarrannsókn á
launastöðu kynjanna
Valgerður Bjarnadóttir, jafn-
réttisfulltrúi Akureyrarbæjar,
hefur kynnt bæjarráði Akur-
eyrar hugmynd um að ráðast í
gerð samanburðarrannsóknar
á launastöðu kynjanna hjá
Akureyrarbæ. Bæjarráð
afgreiddi þetta mál ekki á
fundi sl. fimmtudag, en það
mun væntanlega koma til
afgreiðslu á bæjarráðsfundi í
næstu viku.
Valgerður sagði í samtali við
Dag að ekki væri hugmyndin að
gera hefðbundna launakönnun,
vitað væri að töluverður launa-
munur væri á milli karla og
kvenna, jafnt í bæjarkerfinu á
Akureyri sem annars staðar í
þjóðfélaginu. „En þarna er ætl-
unin að taka fyrir ákveðna
kvennahópa og karlahópa og
ákveðin kvennastörf og karla-
störf og nota starfsmatskerfi til
þess að meta þessi störf upp á
nýtt og finna hvað eru sambæri-
leg störf. Þetta viljum við gera
vegna þess að í lögum um jafna
Skógræktarfélag
Eyfirðinga:
hafið vegna
jólanna
Starfsmcnn Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga hafa á síð-
ustu dögum unnið að skóg-
arhöggi að Miðhálsstöðum í
Hörgárdal. Um er að ræða
furutré sem eru mjög vinsæl
sem jólatré.
Aðalsteinn Svanur Sigfús-
son hjá Skógræktarfélagi Ey-
firðinga segir, að f ár komi úr
lendum félagsins um 400 jóla-
tré. Fiest trjánna eru furutré.
„Rauðgrenið er vinsælast
sem jólatré. Þau tré fáum við
úr Vaglaskógi, Fellsskógi og
Fossselsskógi í Suður-Þingeyj-
arsýslu. Blágrenið er einnig
nokkuð vinsælt og kemur
einnig úr skógum Suður-Þing-
eyjarsýslu. Auk þeirra trjáa er
að framan greinir þá fáum við
tré frá Danmörku. Normanns-
þinurinn er visæll þá sérstak-
lega fyrir það að hann fellir
ekki barrnálarnar. Ráðgert er
að sala jólatrjáa hefjist 10.
desember á Akureyri," segir
Aðalsteinn Svanur Sigfússon.
ój
O HELGARVEÐRIÐ
Reikna má með nokkurri
snjókomu eða slyddu í dag en
síðan fer veður hægt hlýn-
andi, þó fyrst sunnan og vest-
anlands. Á sunnudag verður
slydda eða rigning en á mánu-
dag og þriðjudag verður suð-
austan strekkingur og slydda
og veður aftur kólnandi. Á
loðnumiðum verða áfram 5 til
6 vindstig og slydda, en hægir
síðan og verður úrkomulítið.
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla segir að greidd skuli jöfn
laun fyrir sambærileg og jafn
verðmæt störf. Þess vegna viljum
við komast að því hvort stað-
reyndin sé sú að allt sem konur
vinni sé minna virði en það sem
karlar vinna. Ef við komumst að
því að það sem konur séu að gera
sé jafn verðmætt og það sem
karlar eru að gera, þá sitjum við
uppi með að verið sé að brjóta
lög,“ sagði Valgerður.
Hún sagði slíka könnun auð-
vitað viðamikla og því nauðsyn-
legt að ráða sérstakan starfsmann
til að vinna að henni. Hún sagði
að sambærileg könnun hafi aldrei
verið gerð hér á landi, en hún
væri þekkt erlendis.
Valgerður sagðist ekki gera sér
fyrirfram hugmynd um hvað slík
könnun myndi leiða í ljós. „Ég
þykist vita að við finnum dæmi
um óréttmætan launamun, en ég
þykist líka vita að við finnum
dæmi um að allt sé í stakasta
lagi.“
Böðvar Guðmundsson er hönn-
uður þess eina starfsmatskerfis
sem er í notkun hér á landi. Val-
gerður sagðist hafa rætt við
Böðvar um þetta mál, en ekki
liggi fyrir formlegt svar hans um
að nota starfsmatskerfið hjá
Akureyrarbæ. óþh
Jólasveinar eru óvenju snemma á ferðinni að þessu sinni því einn þeirra
hafði komið sér fyrir í glugga Pósts og síma í Hafnarstræti 102 í vikunni og
náði að vera viðstaddur opnum söludeildar fyrirtækisins á jarðhæð hússins.
Gísli J. Eyland sagði að koma jólasveinsins bæri einungis vott um hvað sam-
göngur væru góðar við Akureyri en ekki fylgdi sögunni með hvaða hætti
sveinki kom í bæinn. Tæplega hefur hann komið á sleða í snjóleysinu - ef til
vill hefur hann komið með áætlunarfluginu að sunnan eins og ýmsir aðrir
sem erindi eiga til Akureyrar. Mynd: Robyn
Akureyrarbær:
Fyrri umræða um fjárhags-
áætlun verði 24. nóvember
- áætlunin verði afgreidd á desemberfundi bæjarstjórnar
Fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar, sem vera átti nk. þriðjudag,
hefur verið frestað til þriðju-
dagsins 24. nóvember, en þá er
ætlunin að leggja fram til fyrri
umræðu fjárhagsáætlun bæjar-
ins fyrir næsta ár.
Að undanförnu hefur bæjarráð
komið saman daglega til að að
vinna að gerð fjárhagsáætlunar.
Þeirri vinnu er nú að ljúka og
gerir Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs, sér vonir um
að bæjarráð gangi frá áætluninni
nk. mánudag. Miðað við það seg-
ir Sigurður unnt að leggja hana
fram á bæjarstjórnarfundi að
rúmri viku liðinni og að óbreyttu
er gert ráð fyrir að hægt verði að
afgreiða áætlunina á fundi bæjar-
stjórnar um miðjan desember.
Sigurður segist ekki vita til að
fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar
hafi nokkru sinni verið afgreidd
fyrir áramót.
Sigurður segir að vinna við
gerð fjárhagsáætlunar hafi gengið
vel. „Við höfum verið að reyna
að koma okkur upp því vinnulagi
Fiskmarkaðurinn á Skagaströnd:
Lítið framboð á físki
Vegna rysjóttrar tíðar að
undanförnu hafa aflabrögð
Skagastrandarbáta verið léleg
og því hefur framboð á fiski á
fiskmarkaðnum verið fremur
lítið. Sl. þriðjudag voru þó seld
á markaðnum 5,2 tonn, mest
þorskur, af rækju- og línubát-
um.
Meðalverð á þorski var 92
krónur, á undirmálsþorski 62
krónur, á ýsu 90 krónur, á keilu
48 krónur og grálúðu 75 krónur.
Kaupendur eru allir af Reykja-
víkursvæðinu, en einn stærsti
kaupandi fisks af mörkuðum á
Norðurlandi vestra, Fiskiðja
Sauðárkróks, hefur keypt nokk-
uð af Faxamarkaði og getur
keypt fisk frá Skagaströnd
þaðan, því Skagastrandar-
markaðurinn er beintengdur
Faxamarkaði.
ísfisktogarinn Arnar HU-1
landaði í vikubyrjun 40 tonnum
til vinnslu hjá Hólanesi hf. en
frystitogarinn Örvar HU-21 var á
föstudag kominn með 120 tonn,
sem gerir í aflaverðmæti um 22
milljónir króna og mun hann
væntanlega landa þeim afla um
helgina. GG
að ljúka fjárhagsáætlun komandi
árs áður en árið hefst og við von-
umst enn til að það takist. Að
vísu vitum við ekkert hvað gerist
í þingsölum í desember. Á þessu
stigi er erfitt að átta sig á því
hvort verði gerðar breytingar á
tekjustofnunum, til dæmis hvort
menn fari að fikta við aðstöðu-
gjaldið og hækki hlutfall útsvars í
staðgreiðslu. En við gerð fjár-
hagsáætlunarinnar höfum við
gengið út frá óbreyttum tekju-
stofnum,“ segir Sigurður.
Sigurður segir að grunnurinn
að því að hægt sé að vinna fjár-
hagsáætlun mun fyrr en áður, sé
að upplýsingastreymi um pen-
ingalega stöðu sé mun betra en
áður. „En meginatriðið er að
menn setja sig inn á annan tíma-
punkt í þessari vinnu og það er
engin launung að mun auðveld-
ara er að vinna þetta þegar nán-
ast engar verðlagsbreytingar hafa
orðið milli ára,“ segir Sigurður.
Sigurður segir að ekki sé búið
að ganga endanlega frá tekjuhlið
fjárhagsáætlunarinnar, en hann
komi ekki auga á rök fyrir
umtalsverðum breytingum á tekj-
um milli ára, þrátt fyrir spár um
frekari samdrátt í þjóðfélaginu á
næsta ári. „Við spáðum ekkert í
samdrátt í fyrra og tekjuáætlun
þessa árs virðist ætla að standast
ágætlega," segir Sigurður J. Sig-
urðsson. óþh
Bæiarráð Akureyrar:
Ahugifyrir
endurviimslu-
fyrirtækivið
Réttarhvanun
Á fundi bæjarráðs Akureyr-
ar sl. fimmtudag var lagt
fram erindi frá undirbún-
ingshópi að stofnun
Úrvinnslunnar hf. á Akur-
eyri þar sem lýst er áhuga á
að setja slíkt fyrirtæki á
stofn við Réttarhvamm ofan
Akureyrar, skammt frá
Gúmmívinnslunni hf.
Skipulagsdeild Akureyrar-
bæjar og skipulagsnefnd vinna
nú að gerð deiliskipulags að
þessu svæði og er gert ráð fyrir
að þar gæti m.a. orðið flokk-
unarstaður fyrir sorp. Frumtil-
lögur að skipulaginu voru
kynntar á bæjarráðsfundi sl.
fimmtudag.
Akureyrarbær keypti á sín-
um tíma Vinkils-húsið, þar
sem Trésmiðjan Tak er nú til
húsa. Trésmiðjan Tak hefur
haft húsið á leigu af bænum,
en á fundi bæjarráðs sl.
fimmtudag var samþykkt að ef
af þessu skipulagi yrði væri
rétt að bærinn hefði frjáls
afnot af svæðinu og því var tal-
ið rétt að endurnýja ekki
leigusamning við Tak. óþh
Umtalsverð
hækkun á leigu
í KA-íþróttahúsi
Bæjarráð hefur samþykkt
umtalsverða hækkun gjalda
fyrir afnot Akureyrarbæjar
af íþróttahúsi KA vegna
íþróttakennslu bama í Lund-
arskóla. >
Forsvarsmenn KA höfðu
farið frarn á hækkun gjalda
vegna skólakennslunnar og
vísuðu til þess að endar næðu
ekki saman miðað við núgild-
andi gjaldskrá. Skólafulltrúi
hafði á fundi 29. október sl.
greint bæjarráði frá viðræðum
sem hann og bæjarritari áttu
við formann KA og forstöðu-
mann KA-heimilisins um
þetta mál. óþh
Rættum
byggingamál
framhaldsskóla
Byggingamál framhalds-
skólanna á Akureyri voru
nokkuð ítarlega rædd í
bæjarráði sl. fimmtudag, en
starfshópur á vegum Héraðs-
ráðs Eyjafjarðar hefur að
undanförnu haft þau til
skoðunar.
Sveitarfélögin á Eyjafjarð-
arsvæðinu greiða, hluta af
stofnkostnaði framhaldsskól-
anna og þau munu á næstunni
taka endanlega afstöðu til þess
hvaða röð skuli vera á ný-
byggingum annars vegar við
Verkmenntaskólann og hins
vegar Menntaskólann. Bæjar-
ráð mun væntanlega ljúka
umræðu um þetta mál á fundi
nk. fimmtudag. óþh