Dagur - 27.11.1992, Síða 9
Föstudagur 27. nóvember 1992 - DAGUR - 9
Það skemmtilegasta sem ég^eri
í skólanum er að læra. Það er
mjög fræðandi. Hildur 3.2.
☆
í heimilisfræði lærum við margt,
bæði fræðumst um mat og búum
til mat. Svo höfum við lært að
gera nokkur salöt og núna í síð-
asta tíma lærðum við að búa til
pissu. Hún bragðaðist alveg
ágætlega en ekki alveg eins og
Greifapissur. Hún var líka svo-
lítið skrítin í laginu. Hún var
einhvern veginn svona, bara
miklu stærri. Hildur Jana 5.3.
Furðufatadagur: Erum við ekki „æðisleg“?
í skólanum, í skólanum
er skemmtQegt að vera“
í Rósuverkefninu eigum við að
búa til landslag og sumarbú-
staði. Utan á þeim eiga þeir að
vera eins og hús á íslandi fyrir
150 árum, en inni mega þeir
vera með nýjustu græjum. Við
búum til blóm, tré, foss, tjörn,
kletta, fjöll, gras og gervigíga.
Við byrjum á þessu af því að
Rósa kom frá skóla í Skotlandi
og vildi fá að sitja í stofunni á
mánudögum og var með þetta
verkefni. Helgi Valur 5.3.
Mér finnst sundið skemmtileg-
ast. Ég veit ekki af hverju, en
líklega af því að við erum með
svo skemmtilegan kennara.
Hann heitir Erlingur. Allur
bekkurinn er í einu og mér
finnst það of mikið af því að
sundlaugin er full af krökkum
úr bekknum. Við eigum að taka
fjórða stig í ár, en ég er búin að
ná því. Oft fáum við að leika
okkur í lok tímans.
Ragnheiður Tinna 5.3.
í tónmennt syngjum við til
dæmis ísland er íand þitt og
Kvöldsigling. Við erum á þriðju-
dögum. Það er mjög skemmti-
legt í tónmennt. Jóhann kennir
okkur tónmennt. Við förum
stundum í leiki, til dæmis Fram,
fram fylking, Eldur og brenni-
steinn og margt fleira.
í íþróttum hlaupum við og för-
um yfir hest og svoleiðis. Það er
mjög gaman í íþróttum. Hulda
kennir okkur íþróttir. Stundum
förum við í leiki og fótbolta og
körfubolta og handbolta og
margt fleira. Rannveig 5.3.
☆
í hannyrðum er svo skemmti-
legt að vera. Það er svo gaman
að gera fiskana. Það er gaman í
leikfimi þegar við erum í fót-
bolta. Það er líka gaman í
sundi. í frímínútum fer ég
stundum í fótbolta. Það finnst
mér skemmtilegast.
Einar Logi 5.3.
Þegar við fórum í gönguferð
klöppuðum við hestum og lék-
um okkur. Svo þegar við vorum
á heimleið var hált og við
renndum okkur niður og löbb-
uðum heim í skólann og hlust-
uðum á sögu og svo fórum við
heim til okkar. Endir.
Sólveig 3.2.
☆
Ég var hippi og var með hár-
kollu og var í rifnum buxum og
í skyrtu. Við fórum fram á gang
og sungum. Áður fórum við upp
að töflu og sögðum hvað við
værum. EgiII 5.3.
☆
Um daginn gerðum við tilraunir
með snjó. Við skoðuðum hann
með stækkunargleri. Þann 17.
nóvember var mikið stand. Við
pússuðum og máluðum og gerð-
um margt skemmtilegt. 20.
nóvember er í dag, furðufata-
dagurinn sjálfur. Ég er lítið
barn með snuddu og smekk.
Laufey 3.2.
Samskiptí
Strákarnir eru mjög misjafnir.
Sumir eru skemmtilegir, aðrir
leiðinlegir; sumir sætir, aðrir
ljótir, en flestir hrekkjóttir þó
að þeir séu það ekki allir.
Stríðni sumra gengur út í öfgar.
Hrekkir þeirra eru oft leiðinleg-
ir og oft meiðir sig einhver þeg-
ar þeim til dæmis dettur í hug að
kasta snjókúlu í einhvern. Og
hverjum finnst gaman þegar
einhver (oftast strákur) stendur
yfir manni og kallar mann aum-
ingja ef maður meiðir sig og fer
að gráta.
Auðvitað geta strákar líka verið
skemmtilegir og allt það en það
hafa svo margir strákar gaman
af því að stríða þó að þeir tryll-
ist sjálfir þegar þeim er strítt.
Ég er ekki að segja að stelpur
séu fullkomnar. En strákar (og
allir)! Ekki stríða nema þið þol-
ið stríðni sjálfir.
Eva Guðríður 6.2.
Krakkarnir eru flestir skemmti-
legir og ef þeim er strítt er það
oftast bara meinlaust grín en ef
það er alvarlegt er tekið á því
strax. Oftast er mikið að læra
heima og þá er lítill tími til að
leika sér. Það finnst mér leiðin-
legast og flestum finnst það líka.
Sumir kennarar eru of strangir
og eru þá ekki í uppáhaldi hjá
krökkunum. Mér finnst að það
ætti að selja mat í skólanum fyrir
yngri krakka. Benedikt 6.1.
☆
Á laugardaginn fórum við á
skauta. Þar mættu um 25
manns, bæði fullorðnir og börn.
Vorum við um eina klukku-
stund á skautum. Skemmtileg-
ast var að sjá foreldra detta og
var greinilegt að langt var síðan
sumir fóru síðast á skauta. í
skólanum er þó nokkuð félagslíf
og er skólinn að reyna að fá for-
eldrana til að taka þátt í skóla-
starfinu.
í frímínútum förum við út. Við
förum í leiki eða rennum okkur
á svellinu og við tækifæri stríð-
um við stelpunum. En því mið-
ur eru frímínúturnar allt of
stuttar og yfirleitt þurfum við að
fara inn áður en gamanið er
búið. Sverrir 6.1.
Nú ætla ég að segja ykkur skoð-
un mína á skóla. Mér finnst
ekkert mjög þægilegt að vakna
klukkan sjö eða korter yfir bara
til að fara í skólann. Að vísu er
skemmtilegt í nokkrum fögum.
En aðalfjörið eru partý eða
böll. Það er líka ágætt í leikjum
og í frímínútum. Kennararnir
eru allir eða allavega flestir
mjög skemmtilegir. Ég skal
nefna dæmi um skemmtilega
kennara t.d. Erlingur, Ragga,
Þura, Hulda, Gerður, Snorri,
Sólveig og fleiri og fleiri. I
skólanum, eins og annars
staðar, eiga allir að geta verið
vinir þó að manni finnist hún
eða hann ekki eins fullkominn
og maður sjálfur. Maður á ekki
að leggja önnur skólasystkin í
einelti. En maður má ekki
gleyma af hverju maður er í
skóla. Við erum í skóla til að
læra en ekki til að fíflast. En ég
þori að fullyrða að stundum
ganga kennararnir of langt með
lærdóminn. Ef við förum ekki í
skóla þá gengur okkur verr f líf-
inu. f sumum skólum fá jafn-
aldrar okkar að byrja klukkan
hálf níu í skólanum á mánudög-
um því það er frí daginn áður.
Mér finnst að svo ætti að vera
hjá okkur. En þrátt fyrir þetta
er skólinn ágætur.
Hilda Dröfn 6.2.
Ljóð
Skólinn
Skólinn er leiðinlegur.
Að skrifa, reikna og lesa
er allt svo leiðinlegt.
Allir vilja fara heim að sofa.
Sveinn 7.3.
Skólastofan
Allir eru farnir út.
Það er slökkt á Ijósunum.
En eins og sprengju sé varpað
fer allt af stað,
plakötin fljúga um stofuna,
stólar labba um, borðin tala saman
og skólabækurnar fara út um allt.
En um morguninn fara krakkarnir að koma
og stólarnir, borðin, plakötin og bækurnar
eru komin á sinn stað.
Þorbjörg 7.3.
Skólinn
Skólinn minn heitir SÍÐUSKÓLI.
Hann er voða stór.
Þar eru 580 börn.
Og það verða 581 þegar
vinur minn kemur í skólann.
Mér finnst ágætt í skólanum.
Tryggvi 7.3.
Konur!
Fundur í Laxdalshúsi Akureyri, sunnu-
daginn 29. nóvember kl. 15.30.
Rannveig Sigurðardóttir hagfrœðingur BSRB
flytur erindi um stöðu kvenna innan EES.
Kaffiveitingar.
Fundurinn er öllum opinn.
Kvennalistinn
Norðurlandi eystra.
03
03
I
|
:bi
G J A F A
V A R A
Frábært úrval af sápum og
baðvörum í fallegum gjafa-
umbúðum á mjög gúðu verði
llmandi fregðibaðsjurtir
Hiunið okkar góctu snyrtívörumerki
Snyrtivörudeíld