Dagur


Dagur - 27.11.1992, Qupperneq 10

Dagur - 27.11.1992, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Föstudagur 27. nóvember 1992 Dagdvelja Stiörnuspá * eftir Athenu Lee ■ Föstudagur 27. nóvember G Vatnsberi (20. Jan.-18. feb.) ) Satúrnus og Úranus eru ráðandi öfl hjá þér og verða til að auka á skilning í garð annarra. Árangur- inn verður sérlega ánægjulegur dagur. m Piskar (19. feb.-20. mars) ) Vingjarnleg ábending frá vini sem þú hefur verið að kynnast upp á síðkastið, bjargar deginum. Þú færð langþráða viðurkenningu fyrir störf þín. Hrútur (21. mars-19. aprtl) ) Allartímaáætlanir renna út í sand- inn í dag en það kemur ekki að sök. Fréttir af nánum vini eða ætt- ingja koma á óvart. Happatölurnar eru 10, 17 og 25. Naut (20. aprtl-20. mal) ) Þetta er dagur elskendanna. Áhrif Venusar eru sterk og pör munu finna til sérstakrar nálægðar. Sambönd sem hafa verið í upp- lausn ættu að lagast. d Tvíburar (21. maí-20. Júnl) ) Yngri kynslóðin er óvenju upp- reisnargjörn og hávaðasöm í dag. Morguninn verður samt sem áður ágætur en hvíldin jafnframt langþráð í kvöld. C Krabbi (21. JúnI-22. Júll) ) Þú ert svo upptekinn af félagslífinu að það kemur niður á daglegum skyldustörfum. Stutt ferðalag mun gleðja mjög eldri manneskju sem verður þér þakklát fyrir tillitssemina. Ijón (23. Júll-22. ágúst) ) Þarfir annarra hafa forgang i dag og það angrar þig ekkert þar sem þú ert í eðli þínu meir gefandi en þiggjandi. Tilfinningalega kýst þú hins vegar að þiggja. (3 Meyja (23. ágúst-22. sept.) ) Samgönguerfiðleikar breyta áætl- un þinni f dag en seinkunin mun leiða gott af sér. Rómantíkin er á næstu grösum og hún tengist þeim sem þér eru kærir. 0 Vog (23. sept.-22. okt D Fortíðaruppgjör er fyrirsjáanlegt og tengist líklega breytingum á hefðum eða tímaáætlunum. Breyt- ingin tengist samt ekki nýrri tækni. ŒSporðdrekA (23. okt.-21. nðv.) J Þú leggur mikla krafta í að skipu- leggja daginn... að ekki sé talað um útgjöldin... en allt verður það unnið til einskis. Kvöldið lofar góðu. ( Bogmaður A (22, nðv.-21. des.) J Áhugi þinn og elja munu hafa góð áhrif á alla sem umgangast þlg i dag. Það verður leita til þín varð- andi skipulag skemmtunar. Steingeit 'N (22. des-19. Jan.) J Þú gleður hóp fólks um leið og þú veldur öðrum hópi óánægju. En þú getur ekki skipt þér í tvennt svo sendum hinum óánægðu ástar- kveðju. Happatölurnar eru 4, 22 og 30. A léttu nótunum Til hvers? Siggi litli, sex ára snáði, var búinn að sitja lengi þögull og hugsi. Loks snéri hann sér að mömmu sinni: „Mamma, er það ekki Guð, sem gefur okkur daglegt brauð?“ „Jú, auðvitað, væni minn.“ „Og kemur ekki jólasveinninn með jólagjafirnar?" „Vitanlega." „Og kom ekki storkurinn með mig og litlu systur?“ „Jú, jú, auðvitað var það storkurinn." „En til hvers höfum við þá eiginlega hann pabba...?“ Allt bendir til að árið verði ánægjulegt og árangursríkt, sér- staklega í efnislegu tilliti. Hins vegar kanntu að þurfa aðstoð til að ná ákveðnu marki sérstak- lega um miðbik ársins. Ástar- sambönd og tengsl við annað fólk verða mjög ánægjuleg. Þetta þarftu ab vita! Þybbinn gutti! Þybbnasta smábarn, sem sögur fara af, var James Weir (1819- 1821). Samkvæmt legsteini í Cambushnethan í Wishaw í Strathclyde, Skotlandi, vó dreng- urinn 50,8 kíló þegar hann var 13 mánaða gamall og var þá 1,01 metri á hæð og 99 senti- metrar að ummáli um mittið! Að vera á flæðiskeri staddur Orðtakið merkir að vera í klípu. Tvennt kemur til greina um upp- runa orðtaksins. Menn voru fyrr á öldum fluttir í flæðarsker (flæðisker) í refsingarskyni, þ.e. sker sem yfir flýtur á flóði. Senni- legra er þó að líkingin sé runnin frá búfé, sem lent hefur í flæði- skerjum. Dómgreind „Efist aldrei um dómgreind kon- unnar yðar - minnist þess hverj- um hún giftist." Ókunnur höfundur. STÓHT Ruslakista Starra í Garði Starri í Garði hefur gefið út Ijóðabók sem hann nefnir Or ruslakistu Starra í Garði. Eins og nafnið gefur til kynna hefur Starri tínt upp úr ruslakistunni Ijóðmæii sem hann hefur sett saman um dagana. Eða eins og hann segir sjálfur í formála: „Þegar maður fer að tína upp úr gam- alli ruslakistu heldur maður áfram í þeirri von að finna eitthvað nýtilegt á botninum, enda þótt manni finnist lítils- virði sem kemur upp í hendur manns hverju sinni og þetta geti náttúrulega orðið eilíf von- brigði. En hér er sem sagt uppraðað og samanbundið innihaldið úr ruslakistu Starra í Garði, allt eins og það leggur sig.“ Þunnur Þjóðvilji Mörg Ijóða Starra eru í léttari kantinum. Til dæmis þetta, sem ber yfirskriftina; að vera kaupfélagsmaður: Bið ég guð um aðeins eitt: eftir sólarlagið, að útförina geti ég greitt í gegnum kaupfélagið. Eins og flestir vita er Starri harður vinstri maður. Honum hefur þó ekki alltaf líkað við Alþýðubandalagið. Þjóðviljinn sálugi fékk þessa kveðju frá Starra: Þunnur í roði er Þjóðviljinn, með þvaður og íþróttaraus, minna er sinnt um málstaðinn og menningin stendur á haus. Þegar Starri varð sjötugur orti hann; Ellin ríður öllu á slig, andans þrýtur kraftur. Þó er ennþá samur við sig sjötíu ára kjaftur. Hótanir Jóhönnu Jóhanna Sig- urðardóttir, fé- lagsmálaráð- herra, hefur enn eina ferð- ina hótað að segja af sér. Hótanir heilagr- ar Jóhönnu (eins og Jón Baldvin kallaði hana) eru vart lengur tíðindi og hafa sumir á orði að ekki sé hægt að taka mark á þessum upphlaupum félagsmálaráðherra. En kannski gerir Jóhanna alvöru úr hótunum sínum í þetta skiþtið. Einn toþpkrati sagði við skrifara í vikunni að ekki þyrfti að koma á óvart að Jóhanna notaði þetta tækifæri til að fara út úr ríkisstjórninnj, hún væri búin að fá leið á þessu öllu saman og hefði miklu meiri áhuga á skella sér í framboð til borgarstjórnar í Reykjavík í næstu kosningum. Við sjáum hvað setur.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.